Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 4 . A P R Í L 2 0 0 3 B L A Ð B
FÍNIR PILTAR/2 GAMAN AÐ VERA VEL TIL HAFÐUR/3
HÖNNUNARÁR Í BARCELONA – TILGANGUR OFAR FEGURÐ OG FULL-
KOMNUN/4 VINIR HLJÓÐS OG VINYLS/6 AUÐLESIÐ EFNI/8
BARDAGAÍÞRÓTTIR hafanotið nokkurra vinsældahér á landi undanfarið,nýlega voru ólympískir
hnefaleikar leyfðir og tískan ber
þess merki þar sem boxaraskór og
hermannabuxur hafa átt mjög upp
á pallborðið.
Friðelskandi íslenskur almenn-
ingur getur nú sparkað í ímynd-
aðan andstæðing, kýlt hann undir
hökuna eða í kjálkann eða jafnvel
afhausað hann í tímum sem ætlað
er að efla þol og stæla líkamann.
Þetta eru Body Combat-tímarnir í
líkamsræktarstöðvunum Baðhús-
inu, Sporthúsinu og Þrekhúsinu.
Unnur Pálmarsdóttir er
margfaldur Íslandsmeistari í
dansi og þolfimi og einn reynd-
asti líkamsræktarþjálfari hér
á landi. Hún er ein af þeim
sem heldur fólki á öllum
aldri við efnið í Body Comb-
at-tímunum, sem og mörg-
um öðrum tímum hjá áð-
urnefndum stöðvum.
„Og hausinn af,“ kallar
Unnur um leið og hún
sveiflar handleggnum
með flötum lófa og
ímyndar sér að haus-
inn fljúgi af andstæð-
ingnum. Þátttakend-
urnir gera það sama
og leggja meira
vöðvaafl í hreyf-
inguna þegar þeir
ímynda sér að
þeir hafi and-
stæðing, að
sögn Unnar.
Hversu of-
beldiskennt
sem þetta kann
að hljóma er nokkuð til í
þessu. Endalaust er hægt að kýla
út í loftið og hugsa um hvenær
leikfimitímanum ljúki nú, en ef
einbeiting er til staðar og viðkom-
andi ímyndar sér að hann þurfi á
öllu sínu afli að halda til að verj-
ast reynir hann meira á sig og
brennir þ.a.l. meira. Það er nú til-
gangurinn hjá flestum þeim sem
sækja líkamsræktarstöðvarnar.
Á ekkert skylt við hnefaleika
„Uppercut, jab, hook,“ kallar
Unnur og salurinn hreyfist í takt
við tónlistina. Mörg lögin eru
gömul og þekkt, búið að endur-
hljóðblanda þau og bæta við ýms-
um hljóðáhrifum; gler brotnar eða
slegið er í járn á sama tíma og
„bardagamennirnir“ sparka
kannski í ímyndaða andstæðinginn
með „scissorkick“. Varnarstaðan
er tekin upp á milli og þátttak-
endur hoppa létt og fjaðrandi.
Ákveðnar hreyfingar eða rútína
á við hvert lag og er mikil keyrsla
af spörkum, höggum og hoppi eða
sippi við hvert lag en smáhvíld
þess á milli. Tíminn endar á
styrktaræfingum fyrir arma og
maga og svo góðum teygjum í
austrænum anda. Unnur segir að
tímarnir séu góðir til að fá bæði
andlega og líkamlega útrás og
hver sem er geti stundað Body
Combat. Þátttakendur í tímunum
er fólk á aldrinum 16-60 ára af
báðum kynjum en konur eru ívið
fleiri.
Body Combat er samsett úr
hreyfingum sem teknar eru úr
nokkrum bardagaíþróttum og
austurlenskri leikfimi, t.d. Tae
Kwon Do, Tai Chi, Kata, Muay
Thai og Karate. Unnur tekur
skýrt fram að Body Combat eigi
ekkert skylt við hnefaleika, hún sé
mjög andvíg hnefaleikum og lög-
leiðingu þeirra hér á landi. Notk-
un ímyndunaraflsins og eigin lík-
amsafls sé allt annað.
Barist við ímyndaðan
Morgunblaðið/Kristinn
Einbeitingin leynir sér ekki hjá þátttakendum í fjölmennum Body combat-tíma í Sporthúsinu.
Þjálfari á faraldsfæti Vafin
hönd
Unna
r
Pálm
arsdó
ttur í
einni
af hre
yf-
ingum
Body
com-
bat: „
Kata
guard
“.
andstæðing