Morgunblaðið - 05.05.2003, Page 12
AP-fréttastofan hefur heim-
ildir fyrir því að Tim Dunc-
an leikmaður San Antonio
Spurs hafi verið valinn mik-
ilvægasti leikmaður NBA-
deildarinnar, MVP, á þessu
keppnistímabili en Duncan
var einnig valinn á sl. ári.
Aðeins sjö leikmenn hafa
afrekað að vera valdir í
MVP tvö ár í röð en þeir eru
auk Duncan: Michael Jord-
an, Magic Johnson, Larry
Bird, Moses Malone, Kar-
eem Abdul-Jabbar, Wilt
Chamberlain og Bill Russ-
ell.
Það eru íþróttafrétta-
menn í Bandaríkjunum sem
standa að kjörinu. San Ant-
onio náði besta árangri allra
liða á tímabilinu, þar sem
liðið vann 60 leiki af alls 82.
Duncan skoraði 23,3 stig að
meðaltali, tók 12,9 fráköst,
gaf 3,9 stoðsendingar í leik
og varði 2,92 skot að með-
altali. Aðrir sem komu
sterklega til greina í þessu
kjöri voru miðherji Minne-
sota Timberwolves Kevin
Garnett, Tracy McGrady
(Orlando), Allen Iverson
(Philadelphia), Kobe Bryant
og Shaquille O’Neal (Los
Angeles Lakers).
Duncan
leikmaður
ársins
Þótt brandarinn um lélegt gengiliðanna í Austurdeildinni í loka-
úrslitunum undanfarin ár virðist
ekki hlægilegur fyrir
aðdáendur liðanna
þar, er ekki hægt að
taka úrslitakeppnina
í þeirri deild alvar-
lega fyrr en þau ná að vinna meira en
einn leik gegn bestu liðum Vestur-
deildarinnar. Lið eins og Phila-
delphia og New Jersey hafa ekki
sýnt undanfarnar vikur að þau hafi
nokkuð að gera í fjögur bestu lið
Vesturdeildarinnar þessa dagana.
Skemmtilegasta viðureignin í ann-
arri umferðinni lítur út fyrir að vera
leiksería meistaranna Los Angeles
Lakers gegn San Antonio Spurs.
Lakers tapaði öllum fjórum viður-
eignum liðanna í deildarkeppninni,
en meistararnir hafa unnið níu af tíu
síðustu leikjum liðanna í úrslita-
keppninni undanfarin tvö keppnis-
tímabil. Ef þessi leiksería hefði byrj-
að fyrir mánuði síðan hefði maður
þurft að veðja á San Antonio, en eftir
að hafa fylgst með síðustu leikjum
Lakers í Staples Center er ekki
hægt annað en dást að hæfileika Phil
Jackson til að hafa lið sitt tilbúið
þegar í úrslitakeppnina er komið.
Lengst af vetrinum var Lakers
liðið eins og gangandi sápuópera
hérna í borginni, en þegar í harð-
bakkann hefur slegið hefur Shaq-
uille O’Neal loksins náð sér á strik
og sýnt allar sínar bestu hliðar – eft-
ir að Kobe Bryant hélt liðinu á floti.
Nú fá þeir kappar hinsvegar verð-
uga keppinauta frá San Antonio.
Enginn hjá Lakers hefur getað
stöðvað Tim Duncan í framherja-
stöðunni og Frakkinn Toni Parker
virðist geta gert hvað sem hann vill í
bakvarðarstöðunni gegn Derek
Fisher. Sem fyrr mun Spurs valda
O’Neal með tveimur varnarmönnum
og lykillinn að leikseríunni mun sem
fyrr verða hittni opinna samherja
O’Neal. Í þessari leikseríu getur allt
gerst.
Ef Dallas hefur náð að sigra Port-
land, mun viðureign Dallas og Sacra-
mento verða mjög skemmtileg. Bæði
lið hafa mikla breidd og leika hraðan
og skemmtilegan leik. Spáin er að
reynsla Sacramento undanfarin ár
muni gera gæfumuninn hér.
Atlantshafsmegin ætti New Jers-
ey Nets að slá út Boston Celtics, en
úrslitakeppnin í Austurdeildinni hef-
ur einkennst af því að ekkert lið virð-
ist vera að skera sig úr. Boston virð-
ist hafa náð góðum dampi í úrslita-
keppninni og gæti komist í úrslit
Austurdeildar. Philadelphia mun
eiga við Detroit, sem náði að rétt úr
kútnum gegn Orlando Magic í
rimmu liðanna. Detroit sýndi styrk
sinn í síðustu tveimur leikjum sínum
gegn Magic þar sem Chauncey Bill-
ups fór á kostum í liði Pistons á með-
an Tracy McGrady mistókst illilega
á ögurstund.
Shaquille O’Neal hefur náð sér á strik og sýnt allar sínar bestu hliðar
Reuters
Tracy McGrady og Drew
Gooden, leikmenn Orlando.
Reuters
Kobe Bryant og Shaquille O’Neal eru erfiðir viðureignar.
Bestu
liðin
áfram
EFTIR of langa fyrstu umferð
eru öll sterkustu liðin komin
áfram í úrslitakeppni NBA deild-
arinnar. Forráðamenn NBA-
deildarinnar eru kampakátir yfir
hversu marga leiki þurfti í flest-
um tilfellum til að útkljá leik-
seríurnar, en fyrir aðdáendur
NBA-boltans eru flestir þessara
aukaleikja þarflausir þegar á
heildina er litið. Los Angeles
Lakers sló út Minnesota í sex
leikjum, San Antonio Spurs
þurfti jafnmarga leiki til að slá
út Phoenix Suns, Sacramento
þurfti aðeins fimm leiki gegn
þreyttu liði Utah Jazz, en Dallas
þurfti sjöunda leikinn til að út-
kljá viðureignina við Portland í
gær. Og meðan ég man, það er
víst líka úrslitakeppni í Aust-
urdeildinni.
Gunnar
Valgeirsson
skrifar frá
Los Angeles
Pollin vill
Jordan
burt frá
Wizards
BANDARÍSKA dagblaðið
New York Times hefur heim-
ildir fyrir því að Michael
Jordan muni ekki starfa fyrir
né eiga hlut í NBA-liðinu
Washington Wizards á næstu
leiktíð. Jordan keypti á sín-
um tíma hlut í félaginu og
gerðist framkvæmdastjóri
leikmannamála hjá liðinu.
Hann „seldi“ sinn hlut í liðinu
þegar hann hóf að leika með
Wizards árið 2001 en sam-
kvæmt reglum NBA-
deildarinnar geta leikmenn
ekki átt hlut í NBA-liðum.
New York Times segir
ennfremur að eigandi liðsins,
hinn 79 ára gamli Abe Pollin,
hafi ekki áhuga á að starfa
áfram með Jordan þar sem
Pollin taldi að Jordan hefði
ekki sýnt starfinu mikinn
áhuga þegar hann stýrði leik-
mannamálum liðsins. Jordan
var oftar en ekki fjarverandi
á heimaleikjum liðsins og það
líkaði Poll illa. Að auki var
Jordan sá sem tók ákvarð-
anir hvað varðar leikmanna-
málin og í vetur var Jordan
mjög gangrýninn á samherja
sína, leikmenn sem hann
hafði sjálfur ráðið til félags-
ins. Pollin telur að Jordan
hafi verið meira á golfvell-
inum en á skrifstofu félagsins
á meðan hann var við störf á
því sviði.
New York Times telur lík-
legt að Jordan muni selja
sinn hlut í Wizards á ný og
hafi nú þegar sett sig í sam-
band við aðila sem ætla sér
að endurreisa NBA-liðið sem
var á sínum tíma staðsett í
Charlotte en var flutt til New
Orleans á sl. ári.