Morgunblaðið - 29.05.2003, Side 2
2 C FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NÚR VERINU G
ÍFURLEGT framboð á
Kanadarækju á Evr-
ópumörkuðum sl. tvö ár
hefur kippt fótunum
undan rækjuútgerð og
-vinnslu hér á landi. Af-
urðaverð hefur lækkað
og í kjölfar þess hefur
verð til rækjuútgerða farið lækkandi um leið
og aflinn hefur minnkað um rúmlega helming
miðað við síðustu ár. Afkoma Samherja í
rækjuvinnslu er sú langversta í síðasta þriggja
mánaða uppgjöri.
Skelrækjumarkaðurinn í Kína er að hrynja
um þessar mundir þar sem lungnabólgufarald-
urinn þar er m.a. talinn líklegur áhrifavaldur.
Offjárfesting í vinnslunni kemur mönnum í
koll og hefur mörgum verksmiðjum verið lok-
að og sér ekki fyrir endann á þeirri þróun.
Er ljósglæta einhvers staðar í öllu þessu
myrkri? Eina glætan, segir einn viðmælenda
blaðsins, er að Kanadamenn eru komnir í
sömu spor og Íslendingar og Norðmenn, sem
sitja í svipaðri súpu og íslensku fyrirtækin.
Framboð á rækju aukist mikið
Framboð pillaðrar rækju eykst ár frá ári, sér-
staklega vegna aukinnar framleiðslu Kan-
adamanna, segir Halldór Árnason,
framkvæmdastjóri Barry
Group á Íslandi. En það
eru fleiri sem framleiða
meira, segir hann,
Grænlendingar áætla að
auka framleiðsluna talsvert
á þessu ári.
Barry Group, sem er
stórt sjávarútvegsfyr-
irtæki í Kanada, á og rekur
þrjár rækjuverksmiðjur
þar í landi. Barry Group á Ís-
landi selur þeirra rækju í Evrópu og að auki
fyrir verksmiðju í eigu Daley Brothers Ltd. í
Kanada. Auk þess selur Barry Group rækju
frá Íslandi og aðrar sjávarafurðir fyrir ís-
lenska framleiðendur.
Halldór og Gísli Gíslason hafa séð um söluna
fyrir Barry Group á Íslandi og Aðalsteinn
Gottskálksson, sem starfaði áður hjá Íslensk-
um sjávarafurðum og Nasdar, mun slást í hóp-
inn með þeim í júní.
„Framboðið á pillaðri rækju hefur aukist
mjög mikið á undanförnum árum,“ segir Hall-
dór. Áætlað er að Kanadamenn, sem voru
varla á Evrópumarkaði fyrir þremur, fjórum
árum, selji yfir ellefu þúsund tonn af rækju í
Evrópu í ár. Heildarmarkaðurinn þar er um
áttatíu og fjögur þúsund tonn og fram að þessu
hafa Íslendingar, Norðmenn, Grænlendingar
og Færeyingar verið ráðandi þar.
„En Kanadamenn veiða feikilega mikið og
meira og meira með hverju ári,“ útskýrir Hall-
dór, „en Bandaríkjamarkaður hefur valdið
miklum vonbrigðum. Kanadamenn höfðu gert
sér vonir um að selja stóran hluta af rækjunni
þangað en það hefur ekki gengið eftir. Í stað-
inn hafa þeir selt hana til Evrópu og líklega
meira magn á þessu ári en áður.“
Í samræmi við þetta aukna framboð segir
Halldór að verðið hafi lækkað með hverju ári
undanfarin ár. „Það má segja að það sé búið að
vera offramboð af pillaðri rækju mörg und-
anfarin ár. Nokkrar verksmiðjur á Íslandi og í
Noregi hafa hætt starfsemi og nokkrar hafa
stöðvast tímabundið vegna þess hve afkoman
er léleg,“ segir Halldór.
Gestur Geirsson, framleiðslustjóri hjá Sam-
herja á Akureyri, kennir gengi krónunnar um
bága stöðu rækjuiðnaðarins. „Gengið er að
drepa okkur, það er
mjög erfið staða, sama
hvar er gripið niður í grein-
inni, hvort sem það er í veiðum
eða vinnslu,“ segir hann.
„Við höfum verið með óbreytt
verð hér frá 1998 í íslenskum krón-
um,“ bætir hann við. Þeir hjá Sam-
herja hafi greitt bátunum sama verð
síðan en að því verði breytt vegna þess að
þeir geti það ekki lengur. Þeir reikni með að
borga breytt verð frá næstu mánaðamótum.
„Við sögðum upp samningum okkar við út-
gerðirnar um síðustu mánaðamót og komum
til með að þurfa að lækka verðið um 5–10%.“
Samherji gerir ekki út skip á rækju en gerir
þess í stað samninga við útgerðir sem landa
hjá fyrirtækinu. „En við vitum að við sækjum
ekkert þangað, þessar útgerðir eru allar rekn-
ar með tapi,“ segir Gestur.
Veiða rúmlega helmingi minna
„Ég held að það sé leitun að rækjuútgerð við
norðanvert Atlantshaf sem er rekin með hagn-
aði,“ bætir Gestur við til útskýringar. Menn
þrífist á því að hluta til að fara á aðrar veiðar
með rækjunni. Útgerðin sé rekin með tapi en
hafi þá einhvern hagnað af þorskveiðum eða
slíku.
„Ég veit að það eru sumir aðilar á Íslandi
sem halda skipunum á sjó eingöngu vegna
þess að þau eru á söluskrá,“ fullyrðir hann.
„Það er betra að selja skip sem er í drift heldur
en það sem er bundið við bryggju.“ Menn sætti
sig við eitthvert tap í von um að geta selt skip-
in. „Þetta er rosalegt,“ heldur Gestur áfram,
„verðið hefur lækkað og lækkað í erlendri
mynt og þegar gengið fe
svona út.“
Það sem veldur þessu
mikla framboð rækju fr
ópumarkaðina. „Við vei
landi heldur en við gerð
tonn á móti 70.000 tonnu
sem veiddu kannski ekk
að veiða 120.000 tonn eð
markaðurinn hefur ekk
bara meira magn.“
Ef litið er yfir lengri t
tonna rækjuveiði á Íslan
meðaltalinu en þegar þo
í ekki neitt“ eins og Ges
rækjustofninn og skapa
rækjunni.
Nýir markaðir eina
Að sögn Gests hefur ver
framleiðendur eigi að ve
Svartnætti vi
íslenska rækj
!
!"" #
!
!
!
"
#
Verð á skelflettri rækju hefur lækkað mikið veg
Það blæs ekki byrlega í
rækjuiðnaðinum um þessar
mundir. Árni Hallgrímsson
kynnti sér hvað er að gerast
á rækjumörkuðunum hér-
lendis sem erlendis.
FJÓRÐA misseri ÚA-skólans lauk í
vikunni en frá því í byrjun apríl hafa
um 10 starfsmenn félagsins tekið
þátt í gítarnám-
skeiði á Akureyri.
Sem fyrr hafa fjöl-
breytt námskeið
verið í boði í skól-
anum, bæði á Ak-
ureyri og á öðrum
svæðum, þar sem
ÚA er með starfs-
stöðvar. Hall-
grímur Gíslason
launafulltrúi hjá
ÚA hefur haft yfirumsjón með skól-
anum og hann segir ljóst að þessi
starfsfræðsluskóli sé búinn að festa
sig í sessi. Stefnt er að því að útvíkka
starfsemina næsta haust með því að
setja upp samræmdan starfsfræðslu-
skóla innan Brims. Hallgrímur sagði
jafnframt uppi hugmyndir um að
breyta nafni skólans í „Lífsins skóla.“
Guðbrandur Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri ÚA og Brims sagði að
fólk áttaði sig ekki á hversu auðvelt
væri að koma verkefni sem þessu í
framkvæmd. Til væru starfs-
menntasjóðir og með samningi við
Símey, Símenntunarmiðstöð Eyja-
fjarðar, líkt og ÚA gerir, sér Símey
um framkvæmdina. „Hvað getur
þetta verið einfaldara?“ Guðbrandur
sagðist mjög ánægður með hvernig
til hefur tekist með skólann. „Þetta
hefur gengið betur en ég þorði að
vona og þá sérstaklega á stærri stöð-
unum.“
Tungumál og tölvur
Hallgrímur sagði að boðið væri upp á
styttri námskeið, þar sem aðal-
áherslan væri lögð á tungumál og
tölvur og einnig tómstunda-
námskeið. Hann sagði að á tungu-
málanámskeiðunum hefði fólk fyrst
og fremst sótt í að læra ensku og
spænsku og á tölvunámskeiðunum
hefur verið boðið upp á grunn-
námskeið og framhaldsnámskeið.
Á þeim tveimur árum sem skólinn
hefur verið starfræktur hafa rúm-
lega 100 manns sótt námskeiðin, eða
um helmingur starfsmanna félags-
ins, og þar af hafa tveir starfsmenn
sótt alls níu námskeið. Hallgrímur
sagði að ekki væri marktækur mun-
ur á námskeiðssókn karla og kvenna
en þeir sem síst hafa sótt námskeiðin
eru yngri konur og miðaldra karlar.
„Við höfum verið með um 10 nám-
skeið á önn og mesta umfangið er á
Akureyri. Það hefur hins vegar
stundum verið erfitt að fá nægan
mannskap á námskeiðin á minni
stöðunum, því það þarf alltaf ákveð-
inn lágmarksfjölda. Við höfum verið
með námskeið á átta stöðum landinu,
þar sem ÚA er með starfsstöðvar og
stöðunum mun fjölga þegar Har-
aldur Böðvarsson á Akranesi og
Skagstrendingur á Skagaströnd bæt-
ast við en reyndar hefur þegar verið
haldið eitt námskeið á Skagaströnd.“
Koma til móts við fólkið
Hann sagði tilganginn með skólanum
margþættan. „Einn megintilgang-
urinn er þó að koma til móts við
starfsfólkið og bjóða því upp á aukna
menntun og um leið aukna færni í
lífsins ólgusjó. Við viljum að starfs-
fólkið finni að það sé einhvers virði
og sé ánægðara – því er ekki sagt að
ánægt starfsfólk sé betra starfs-
fólk?“
Námskeiðin eru misjafnlega dýr
en starfsfólkið greiðir aðeins hluta af
kostnaðinum, því starfsmanna-
félagið, fyrirtækið og Landsmennt
koma þar einnig að málum. Ódýrasta
námskeiðið sem boðið hefur verið
upp á í vetur er vínsmökkunarnám-
skeið en það dýrasta gítarnámskeið.
Í námskrá ÚA-skólans er einnig að
finna námskeið í gerbakstri, leiklist,
siðfræði, heimspeki, förðun, liðsanda
og liðsheild og námskeið í íslensku
fyrir erlent starfsfólk.
Auka færni í
lífsins ólgusjó
Fjölbreytt námskeið í boði í skóla ÚA
Hallgrímur
Gíslason
Morgunblaðið/Kristján
Um 10 starfsmenn ÚA á Akureyri luku þátttöku í gítarnámskeiði í vikunni,
undir stjórn Björns Þórarinssonar. Í þeim hópi voru Margrét Þórðardóttir
t.h. Arnheiður Eyþórsdóttir og Edda Aspar.
!"
#
$
%
&
$
#
'
(
)
*
*
+,
-.
!
(
(!
*#
/
0
&!
1
1
/#
-
*
#
2
*
#
3
#
0
$ %&'()
()
* (
(
" #$%&'(% '))*
+
,-
+.(
/%%
/0
1
2
( ( ( ( ( ( ( *()
+,(
$('
$'$
,,*
-+,
*,#
.
0