Morgunblaðið - 02.06.2003, Blaðsíða 6
ÍÞRÓTTIR
6 B MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
CHELSEA keypti í gær ítalska
markvörðinn Marco Ambrosio frá
Chievo. Þessi 30 ára gamli mark-
vörður á að leysa Hollendinginn Ed
de Goy af hólmi en samningur hans
við Lunúndaliðið verður ekki endur-
nýjaður.
JÓHANNES B. Jóhannesson, Ís-
landsmeistari í snóker, hefur unnið
tvo leiki og tapað einum á Evrópu-
mótinu í snóker sem nú stendur yfir í
Þýskalandi. Jóhannes tapaði í gær
fyrir Íranum Garry Hardiman, 4:0.
Brynjar Valdimarsson hefur hins
vegar unnið báða leiki sína til þessa.
OTTMAR Hitzfeldt er orðinn sig-
ursælasti þjálfari Þýskalands eftir
sigur Bayern München á Kaisers-
lautern í úrslitum bikarkeppninnar.
Þetta var 15. titill Hitzfelds á ferl-
inum en Udo Lattek vann 14 titla á
þjálfaraferli sínum.
HITZFELD hefur tvívegis stjórn-
að liði til sigurs í Evrópukeppni
meistaraliða, Dortmund 1997 og
Bayern München 2001. Sex meist-
aratitlar eru komnir í safn þjálfar-
ans, tveir með Dortmund 1995 og
1996 og fjórir með Bayern, 1999,
2000, 2001, og 2003. Bikarmeistara-
titlarnir eru tveir með Bayern, 2000
og 2003, og þegar hann var við
stjórnvölinn hjá Grasshoppers í
Sviss varð liðið tvívegis meistari og
bikarmeistari þrisvar sinnum.
REAL Madrid hafnar því staðfast-
lega að hafa borið víurnar í Arsene
Wenger, knattspyrnustjóra Arsen-
al. Fjölmiðlar hafa á undanförnum
dögum og vikum greint frá því að
forráðamenn Madrid-liðsins hafi sett
sig í samband við Wenger með það
fyrir augum að fá hann til að taka við
liðinu af Vincente Del Bosque en
samningur hans við félagið rennur út
síðar í sumar.
ÞJÓÐVERJAR áttu ekki í erfið-
leikum með að leggja Kanadamenn
að velli í vináttulandsleik í knatt-
spyrnu í gær í Wolfsburg, 4:1. Berti
Vogts, fyrrverandi þjálfari Þjóð-
verja og núverandi þjálfari Skot-
lands, var á meðal áhorfenda, en
Skotar mæta Þjóðverjum í Evrópu-
keppninni í Glasgow á laugardaginn
kemur.
FÓLK
Þetta er fjórða tvenna Bayern-liðs-ins frá upphafi en þetta sigur-
sæla lið hampaði deildar- og bikar-
meistaratitli árin 1969, 1986 og 2000.
Bæjarar fengu óskabyrjun í viður-
eigninni gegn Kaiserslautern því eftir
aðeins 10 mínútna leik var staðan orð-
in, 2:0, og var Michael Ballack að
verki í bæði skiptin. Ballack skoraði
með skalla á 3. mínútu eftir sendingu
Owens Hargraeves og þeir voru aftur
á ferðinni 7 mínútum síðar.
Hargraeves var felldur og úr víta-
spyrnunni sem dæmd var skoraði
Ballack af öryggi. Perúbúinn Claudio
Pizaro bætti þriðja markinu við á 50.
mínútu en liðsmenn Kaiserslautern
náðu að laga stöðuna 10 mínútum fyr-
ir leikslok þegar Miroslav Klose skor-
aði. Tveimur mínútum áður en Klose
skoraði fékk Marian Hristov, liðs-
maður Kaiserslauterns, reisupassann
fyrir brot á Giovane Elber.
Ottmar Hitzfeldt, þjálfari Bayern,
braut blað í sögu þýsku knattspyrn-
unnar en hann varð fyrsti þjálfarinn
til vinna tvöfalt með sitt lið, en hann
var við stjórnvölinn hjá Bæjurum fyr-
ir þremur árum.
„Ég var í tapliði í fyrra á þremur
vígstöðvum svo ég er ákaflega glaður
yfir þessum úrslitum,“ sagði Ballack
eftir leikinn en hann lék með Lever-
kusen á síðustu leiktíð sem tapaði
tveimur úrslitaleikjum í fyrra, í bik-
arkeppninni og Meistaradeildinni, og
varð í 2. sæti á eftir Dortmund í deild-
arkeppninni.
„Það má segja að þessi kröftuga
byrjun okkar hafi gert út um leikinn
og eftir hana höfðum við leikinn í okk-
ar höndum,“ sagði Ballack ennfrem-
ur.
Annar bikar AC Milan
á þremur dögum
AC Milan tryggði sér á laugardag
bikarmeistaratitilinn í ítalska boltan-
um. Liðið gerði 2:2-jafntefli við Roma
í seinni leik liðanna, sem fram fór í
Milan. Francesco Totti skoraði fyrstu
tvö mörk leiksins og kom liðinu í 2:0
en Brasilíumaðurinn Rivaldo minkaði
muninn fyrir heimamenn áður en Fil-
ippo Inzaghi jafnaði metin. Undir lok-
in harðnaði leikurinn mikið og þeir
Antonio Cassano og Francesco Totti
fengu báðir að líta rauða spjaldið.
Fyrri leik liðanna lauk með 4:1-sigri
Milan í Róm. Paolo Maldini var hæst-
ánægður að leik loknum. „Við spiluð-
um frábærlega í dag, sérstaklega ef
tekið er mið af því að við lékum til úr-
slita í Meistaradeild Evrópu aðeins
þremur dögum fyrir þennan leik.
Vonandi eru þessir tveir titlar aðeins
upphafið að nýju gullaldarskeiði hjá
AC Milan.“
Reuters
Þýsku landsliðsmennirnir Oliver Kahn, fyrirliði Bayern, og
Michael Ballack fagna bikarmeistaratitlinum í Berlín.
Fjórða
tvenna
Bæjara
BAYERN München varð þýskur bikarmeistari í 11. sinn í sögu fé-
lagsins þegar liðið bar sigurorð af Kaiserlautern í úrslitaleik á ól-
ympíuleikvanginum í Berlín á laugardagskvöldið. Rúmlega 70.000
áhorfendur sáu Bæjara sigra, 3:1, og tryggja sér þar með annan tit-
ilinn á leiktíðinni en Bayern München varð fyrir nokkru þýskur
meistari í 18. sinn eftir mikla yfirburði í 1. deildar keppninni.
KNATTSPYRNA
Efsta deild karla, Landsbankadeild:
Hlíðarendi: Valur – Þróttur R..............19.15
Efsta deild kvenna, Landsbankadeild:
Vestmannaeyjar: ÍBV – Breiðablik..........20
Bikarkeppni KSÍ
VISA-bikar karla:
Keflavík: Keflavík 23 – Breiðablik............20
Húsavík: Völsungur – Leiftur/Dalvík ......20
Helgafellsvöllur: KFS – Fram 23 .............20
Borgarnes: Skallagrímur – Deiglan .........20
Fagrilundur: HK – Haukar 23 ..................20
Árskógsst.: Reynir Á. – Tindastóll ...........20
VISA-bikar kvenna:
Egilshöll: Fjölnir – HSH ...........................20
Kópavogsvöllur: HK/Víkingur – Fylkir ...20
Kaplakriki: FH – RKV ..............................20
Í KVÖLD
KNATTSPYRNA
Efsta deild karla,
Landsbankadeild:
Fylkir - FH................................................ 3:0
Staðan:
Fylkir 4 3 0 1 8:2 9
KR 3 2 1 0 4:2 7
Valur 3 2 0 1 6:6 6
FH 4 1 2 1 5:4 5
ÍA 3 1 1 1 4:3 4
KA 3 1 1 1 4:5 4
Þróttur R. 3 1 0 2 5:6 3
Grindavík 3 1 0 2 4:6 3
ÍBV 3 1 0 2 4:7 3
Fram 3 0 1 2 4:7 1
Markahæstir:
Haukur Ingi Guðnason, Fylkir .................. 3
Jóhann H. Hreiðarsson, Valur ................... 3
Sinisa Kekic, Grindavík .............................. 3
Björgólfur Takefusa, Þróttur R................. 2
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV ............. 2
Gunnar Þór Pétursson, Fylkir ................... 2
Hjálmar Þórarinsson, Þróttur R. .............. 2
Jónas Grani Garðarsson, FH ..................... 2
Steinar Tenden, KA .................................... 2
1. deild karla
Keflavík - Þór........................................... 1:3
Þórarinn Kristjánsson 64. - Jóhann Þór-
hallsson 7., Pétur Kristjánsson 75., Ingi
Hrannar Heimisson 90.
Staðan:
Víkingur R. 3 2 1 0 6:2 7
Þór 3 2 1 0 6:3 7
Keflavík 3 2 0 1 8:6 6
HK 3 1 2 0 4:2 5
Afturelding 3 1 2 0 2:1 5
Haukar 3 1 1 1 4:6 4
Njarðvík 3 1 0 2 5:6 3
Stjarnan 3 0 2 1 4:6 2
Leiftur/Dalvík 3 0 1 2 1:4 1
Breiðablik 3 0 0 3 1:5 0
2.deild karla
Sindri - Fjölnir ......................................... 1:4
Sævar Gunnarsson - Davíð Þór Rúnarsson,
Kristinn S. Sigurjónsson, Ilija Kitic, Steinn
Símonarson.
Staðan:
Völsungur 3 3 0 0 15:4 9
Fjölnir 3 2 0 1 9:6 6
KS 3 2 0 1 8:5 6
ÍR 3 2 0 1 7:4 6
Víðir 3 2 0 1 6:3 6
Selfoss 3 1 1 1 5:4 4
Tindastóll 3 1 0 2 5:9 3
KFS 3 1 0 2 6:11 3
Sindri 3 0 1 2 2:7 1
Léttir 3 0 0 3 1:11 0
3. deild karla:
A-riðill:
BÍ - Drangur............................................. 3:1
Staðan:
Víkingur Ó 2 2 0 0 3:1 6
BÍ 2 1 0 1 4:3 3
Skallagr. 2 1 0 1 3:2 3
Deiglan 2 1 0 1 2:1 3
Drangur 3 1 0 2 4:5 3
Bolungarvík 2 1 0 1 2:4 3
Númi 1 0 1 0 2:2 1
Grótta 2 0 1 1 2:4 1
B-riðill:
Freyr - Hamar.......................................... 4:2
Staðan:
Leiknir R. 2 2 0 0 15:1 6
Freyr 2 2 0 0 6:2 6
Reynir S. 2 1 1 0 10:1 4
ÍH 2 1 1 0 4:1 4
Árborg 2 0 2 0 1:1 2
Hamar 2 0 0 2 3:8 0
Afríka 2 0 0 2 0:8 0
Ægir 2 0 0 2 1:18 0
C-riðill:
Snörtur - Hvöt .......................................... 0:2
Staðan:
Hvöt 2 1 1 0 4:2 4
Reynir Á 2 1 1 0 3:2 4
Neisti H. 2 1 0 1 5:5 3
Vaskur 2 1 0 1 3:3 3
Magni 2 0 2 0 3:3 2
Snörtur 2 0 0 2 3:6 0
Efsta deild kvenna, Landsbankadeild
KR - Þór/KA/KS ......................................9:1
Hrefna Jóhannesdóttir 5, Ásthildur Helga-
dóttir 2, Katrín Ómarsdóttir, Þóra B.
Helgadóttir vítasp. - Kristín M. Gísladóttir.
Staðan:
KR 4 3 1 0 20:3 10
Valur 3 2 1 0 7:4 7
ÍBV 3 2 0 1 15:4 6
Breiðablik 3 2 0 1 4:6 6
Stjarnan 3 1 0 2 5:6 3
FH 3 1 0 2 3:4 3
Þór/KA/KS 4 1 0 3 4:14 3
Þróttur / Haukar 3 0 0 3 1:18 0
1. deild kvenna:
HK/Víkingur - Hvöt ................................. 5:0
Staðan:
HK/Víkingur 2 2 0 0 6:0 6
RKV 2 2 0 0 8:4 6
Breiðablik 2 1 1 0 0 3:2 3
Fjölnir 2 1 0 1 2:2 3
ÍR 2 0 0 2 3:5 0
Þróttur/Haukar 2 1 0 0 1 1:3 0
HSH 2 0 0 2 3:10 0
Bikarkeppni kvenna,
Visa bikarkeppnin:
Þróttur/Haukar - ÍA ................................ 3:4
Þýskaland
Úrslitaleikurinn í bikarkeppninni:
B. München - Kaiserslautern ................. 3:1
Michael Ballack 3., 10. vítasp., Claudio Piz-
aro 50. - Miroslav Klose 80. - 71,000.
Frakkland
Úrslitaleikurinn í bikarkeppninni:
París SG - Auxerre .................................. 1:2
Skotland
Úrslitaleikurinn í bikarkeppninni:
Rangers - Dundee.................................... 1:0
Lorenzo Amoruso 66. - 47,136.
Ítalía
Úrslitaleikurinn í bikarkeppninni:
AC Milan - Roma...................................... 2:2
Rivaldo 65., Filippo Inzaghi 90. - Francesco
Totti 56., 64. - Rauð spjöld. Antonio Cass-
ano (Roma) 70, Totti (Roma) 86. - 70,000.
AC Milan vann samanlagt í tveimur leikj-
um, 6:3.
Austurríki
Úrslitaleikur í bikarkeppninni
Austria Vín - Kärnten ............................. 3:0
Spánn
Santander – Espanyol ..............................5:2
Real Sociedad – Valencia..........................1:1
Sevilla – Huelva.........................................1:0
Barcelona – Málaga ..................................2:1
Alavés – Real Betis ...................................0:1
Mallorca – Vallecano.................................1:1
Valladolid – Osasuna.................................0:2
Villarreal – Bilbao .....................................1:1
Deportivo – Atl. Madrid ...........................3:2
Real Madrid – Celta Vigo .........................1:1
Staða efstu liða:
Real Sociedad 36 21 10 5 66:42 73
Real Madrid 36 20 12 4 79:41 72
Deportivo 36 21 6 9 63:43 69
Celta Vigo 36 16 10 10 42:32 58
Valencia 36 16 9 11 52:32 57
Bilbao 36 14 10 12 59:56 52
Barcelona 36 13 11 12 58:46 50
Sevilla 36 13 11 12 36:33 50
Belgía
Úrslitaleikur í bikarkeppninni
La Louviere - Sint-Truiden..................... 3:1
Noregur
Bodö/Glimt – Rosenborg ..........................0:3
Bryne – Tromsö.........................................6:1
Lilleström – Ålesund ................................1:1
Lyn – Sogndal............................................3:0
Stabæk – Vålerenga..................................1:0
Odd Grenland - Viking............................. 1:1
Staða efstu liða:
Rosenborg 9 8 1 0 23:5 25
Stabæk 9 5 2 2 14:8 17
Viking 9 4 4 1 17:10 16
Bodö/Glimt 9 4 3 2 13:10 15
Sogndal 9 4 2 3 14:14 14
Odd Grenland 9 4 2 3 15:16 13
Bryne 9 4 0 5 20:14 12
Lyn 9 3 3 3 15:17 12
Lilleström 9 2 4 3 8:14 10
Ísland – Danmörk 31:32
Gangur leiksins: 0:1, 4:4, 8:7, 8:12, 13:13,
15:16, 17:20, 21:24, 24:26, 27:29, 30:31,
31:32.
Mörk Íslands: Jaliesky Garcia 9/1, Guðjón
Valur Sigurðsson 8/2, Ásgeir Örn Hall-
grímsson 4, Dagur Sigurðsson 3, Róbert
Sighvatsson 2, Snorri Steinn Guðjónsson 1,
Bjarni Fritzson 1, Vignir Svavarsson 1, Ar-
on Kristjánsson 1, Róbert Gunnarsson 1.
Varin skot: Guðmundundur Hrafnkelsson
8/1, Birkir Ívar Guðmundsson 7.
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Dana: Nikolaj Jacobsen 5/2, Lasse
Andersen 4, Michael Knudsen 4, Jesper
Noddesbo 4, Hans Lindberg 4, Lars Möller
Madsen 3, Bo Spellerberg 3, Rune Ohm 2,
Kristian Back 2, Lars Rasmussen 1.
Varin skot: Kristian Asmussen 7/1, Mich-
ael Bruun 8.
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Peter Hansson og Peter Olsson
frá Svíþjóð, sæmilegir.
Áhorfendur: 1.127.