Morgunblaðið - 10.06.2003, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 2003 C 43Fasteignir
533 4300 564 6655
VINNA SAMAN - HEILSHUGAR UM ÞINN HAG
Salómon Jónsson | Löggiltur fasteignasaliwww.husid.is www.smarinn.is
OPIÐ: MÁNUD. TIL FÖSTUD. KL. 9:00-18:00 - SMÁRINN LAUGARD. OG SUNNUD. KL. 13:30-17:00
Verslunarmiðstöðinni
SMÁRALIND
201 Kópavogur
smarinn@smarinn.is
Bláu húsin
v/Faxafen
Suðurlandsbraut 50
108 Reykjavík
husid@husid.is
HÖFUM ÖFLUGA ATVINNUHÚSNÆÐIS- OG FYRIRTÆKJADEILD
Vilhjálmur Bjarnason - sölustjóri - Húsið
Hrafnhildur Helgadóttir - sölumaður - Húsið
Tryggvi Kornelíusson - sölumaður - Húsið
Gunnar Sverrir Harðarson - sölumaður - Húsið
Jens Ingólfsson - sölustjóri fyrirtækjasölu - Húsið
Arnfinnur Daníelsson - sölumaður fyrirtækja - Húsið
Agnar Agnarsson - sölustjóri atvinnuhúsnæðis - Húsið
Óskar Sigurmundason - sölumaður. atvinnuhúsnæðis - Húsið
Hallmundur Hallgrímsson - sölumaður - Smárinn
Þórunn Gísladóttir - sölumaður - Smárinn
Kirkjustétt - Rvík Sökklar og palta
fyrir 203,6 fm einbýlishús á tveimur hæðum
ásamt innbyggðum 35,3 fm bílskúr á góð-
um stað í Grafarholti. Selst í því ástandi
eins og það er í dag. Möguleiki að fá upp-
sett verð lánað. Teikningar á skrifstofu.
Verð 7,9 m.
Marbakkabraut - Kóp. Tvö ný
136 fm parhús á tveimur hæðum í vestur-
bæ Kóp. Húsin skilast fullbúin og hraunuð
að utan, glerjuð með opnanlegum fögum
og hurðum en fokheld að innan og lóð
tyrfð. Húsin verða tilbúin til afh. 1.06. 02.
Möguleiki að fá afhent lengra komið. Verð
13,8 m.
Roðasalir 16 - Kóp. Mjög glæsileg
og vel skipulögð 3ja herbergja 150 fm neðri
sérhæð, þar af ca 25-30 fm innbyggður bíl-
skúr, stærð bílskúrs getur verið frá 25 fm
og allt að 35 fm. Mögulegt er að fjölga her-
bergjum. Tveir sérinngangar. Verð 18,9 m.
Gullsmári - Kóp.
Falleg 4ra herbergja 91,7 fm íbúð á annarri hæð í snyrtilegu fjölbýli, þar sem öll þjón-
usta er í göngufæri. Forstofa með flísum á gólfi. Herbergi með parket á gólfum. Baðher-
bergi flísalagt. Björt og rúmgóð stofa með parketi, útgangur á góðar suðursvalir. Eldhús
opið í stofu, parket á gólfi. Verð 13,6 m.
Engihjalli - Kóp.
Björt 2ja herbergja 62,2 fm íbúð á fjórðu hæð í lyftublokk, fallegt útsýni til suðurs og
vesturs. Gengið er inn um snyrtilegan inngang. Verð 9 m.
Breiðavík - Rvík
133,7 fm falleg og vönduð 4ra herbergja
íbúð í góðu fjölbýli ásamt 17 fm bílskúr.
Mjög stórt eldhús með fallegri kirsuberjainn-
réttingu. Rúmgóð borðstofa og stofa með
parketi á gólfi. Baðherbergi með flísum á
gólfi og veggjum. Allt parket er gegnheilt
eikarparket, allir skápar og innrétting í eldhúsi er úr vönduðum og fallegum kirsuberja-
við. Verð 18,5 m.
Krummahólar - Rvík
2ja herbergja íbúð á fyrstu hæð ásamt stæði
í bílskýli. Eldhús með dúk á gólfi og viðar-
innréttingu. Herbergi með dúk á gólfi og
skápum, útgangur í garð. Baðherbergi með
dúk á gólfi, baðkar og sturtuaðstaða. Stór
sérgeymsla með hillum í sameign. Þvotta-
og þurrkherbergi ásamt hjóla- og vagna-
geymslu. Húsvörður og séð er um þrif. Verð
7,7 m.
KAUPENDALISTI VIÐSKIPTAVINA
• Vantar 2ja til 3ja í hverfum 101 til og með 108. VB
• Vantar einbýli, rað- eða parhús með bílskúr í Mosfellsbæ. ÞG
• Vantar 5-6 herb. par- eða raðhús. Verð 20-22 m. TK
• Vantar 2ja og 3ja í Kópavogi. VB
• Vantar 4-5 herb. íbúð eða hæð í Fossvogi, má vera í Kóp. TK
• Vantar sérhæðir, parhús og raðhús í Rvík og Kóp. VB
• Vantar 3-4 herb. íbúð í góðu húsi í vesturbæ Kóp. GA
• Vantar 2ja, 3ja og 4ra í Grafarvogi og Árbæ. VB
• Vantar einbýli í Rvík með a.m.k. 4 svefnherb. Verð allt að 30 m. VB
• Vantar einbýli í Breiðholti, Skógar/Sel. Verð 25 m.TK
• Vantar 3ja herb. íbúð á 1. hæð í austurbæ Kópavogs. GA
• Vantar 4ra herb. íbúð í Arahólum 2-4 eða Blikahólum 2-4. AA
• Vantar einbýli eða raðhús í Gbæ, 120+ fm fyrir Ernu. GA.
• Vantar 2ja herb. íbúð á jarðhæð í Smára eða Hjallahverfi. GA
• Bráðvantar 2ja og 3ja herb. íbúð í Hraunbæ. HH
• Vantar einbýli með bílskúr í hverfi 104-105. HH
• Bráðvantar einbýli með lágmark 4 svefnherb. í grennd við Hvassaleitisskóla. Allt að
32 m. VH
• Vantar 3-4 herb. íbúð í Lindahverfi. VH
SÖLUSKRÁ
300 ÍBÚÐIR - 200 FYRIRTÆKI -
700 ATVINNUHÚSNÆÐI - 300 TIL LEIGU
Sigtún - Kjalarn. Sveit í borg. Einb.
á 2 hæðum, byggt 1995, nýr bílsk. og hest-
hús á 2.500 fm lóð á ströndinni fyrir innan
byggðina á Kjalarnesi. Ný suðurtréverönd
með heitum potti og skjólv. Flott útsýni yfir
borgina, sundin og Esjuna. Verð 23,8 m.
Melsel - Rvík Gott 268,4 fm einb. á
2 hæðum ásamt kj. og 49 fm sérbyggðum
tvöföldum bílskúr, samtals 317,4 fm. 2 eld-
hús, 4 svherb. og 2 stofur. Baðherb. flísal.
Eikarhurðir. Góður garður í góðri rækt með
skjólvegg. Stutt í verslun, skóla og leik-
svæði. Rólegt og gott hverfi. Verð 26,7 m.
Gnitaheiði - Kóp. Glæsilegt 124,3
fm raðhús ásamt 24,8 fm bílskúr á einum
eftirsóttasta stað í suðurhlíðum Kóp. Vand-
að hefur verið til allrar byggingar og inn-
réttingar. Merbau-parket á gólfum. Glæsi-
legt sérsmíðað eldhús úr kirsuberjaviði.
Stór borðstofa og stofa, útg. á rúmgóðar
suðursvalir með fádæma útsýni. Glæsilegt
baðherb., flísalagt með Versace-flísum.
Útg. neðri hæðar í garð. Verð 24,9 m.
Engjasel - Rvík Rúmgóð og björt 5
herb. 105,2 fm endaíbúð á 1. hæð í 4ra
hæða fjölbýli ásamt 30,7 fm stæði í bíl-
geymslu. Þvottahús innan íbúðar. Eignin
skiptist í 3 herb., sjónvarpshol, borðstofu
og stofu. Vestursvalir. Húsið er með
klædda gafla og hitt nýmálað. Laus við
samning. Verð 12,9 m.
Kristnibraut - Rvík Ný og glæsi-
leg, fullbúin og flott 5 herb. 141,2 fm enda-
íbúð á miðhæð í 3ja hæða fjölbýli ásamt
góðum 39,4 fm bílskúr, samtals 180,6 fm.
Eikarinnrétting, skápar, hurðir og vandað
eikarparket. Frábært útsýni í vestur og
norður yfir borgina, Sundin, Esjuna og á
Snæfellsjökul. Íbúðin er laus. Áhv. 9 m.
Verð 22,9 m.
Veghús - Rvík SELJANDI LÁNAR
ALLT AÐ 90% AF KAUPVERÐI. Góð 101
fm 4ra herb. íbúð á 7. hæð í lyftuhúsi
ásamt stæði í bílageymslu. Stofa með dúk
á gólfi, útg. á stórar suðaustursvalir, glæsi-
legt útsýni. Eldhúsinnrétting er hvít og
beyki, flísar á gólfi, inn af eldhúsi er þvotta-
hús með flísum á gólfi. Baðherb. með flís-
um á gólfi. ÍBÚÐIN ER LAUS. Verð 13,2 m.
Kleppsvegur - Rvík 4ra herb.
100,8 fm íbúð á 3. hæð í 4ra hæða fjölbýli.
Rúmgóð herb. og stofur. Flísalagt baðherb.
með sturtuklefa. Útsýni úr herb. og eldhúsi
yfir Sundin og Esjuna. Stórar suðursvalir
með plastflísum. 2 sérgeymslur. Frystihólf.
Húsið virðist í ágætu ástandi. Áhv. 4,2 m.
Verð 11,2 m.
Kjarrhólmi - Kóp. Vorum að fá í
sölu á þessum góða stað 4ra herbergja
89,5 fm íbúð á fjórðu hæð. Frábært útsýni í
norður og suðursvalir. Snyrtileg sameign.
Líklegt er að geymslan sé ekki talin með í
fermetratölu íbúðarinnar. Þvottahús innan
íbúðar. Verð 11,9 m.
Hrísrimi - Rvík 3ja herb. rúmgóð og
björt 93,1 fm endaíbúð á jarðhæð í góðu
litlu nýmáluðu fjölbýli ásamt 35,1 fm stæði í
bílageymslu, samtals 128,2 fm. Stór og
góð herb. Þvottahús innan íbúðar. Mögu-
legt að bæta við einu herb. í viðbót. Falleg
innrétting í eldhúsi með gegnheilu graníti á
bekkjum. Áhv. 7,6 m. Verð 13,6 m.
ATHUGIÐ - ATHUGIÐ - ATHUGIÐ
Vegna mjög mikillar sölu undanfarið vantar okkur íbúðir
af öllum stærðum og gerðum í sölu. Fasteignasalan
Smárinn og fasteignasalan Húsið hafa sameiginlegan
opnunar- og símatíma um helgar í Smáranum sem stað-
settur er í verslunarmiðstöðinni Smáralind. Opnunartím-
inn hjá okkur um helgar er frá klukkan 13.30-17.00. Þegar
þú setur eign á sölu hjá okkur færðu tvær fasteignasölur
sem vinna fyrir þig, á verði einnar.
Skálaheiði - Kóp. Sérlega falleg og
björt 3ja herb. 88,4 fm efri sérhæð í góðu
fjórbýlishúsi ásamt 19,7 fm bílskúr sem er
með fjarstýringu og 3ja fasa rafmagni.
Þvottahús inn af eldhúsi. Stórar flísalagðar
suðursvalir með frábæru útsýni. Húsið er í
góðu ástandi, nýlega málað og snyrtilegt.
Áhv. 6 m. Verð 13,8 m.
Skipasund - Rvík Góð 50 fm ris-
íbúð í 4ra íbúða húsi í fallegu og grónu
hverfi. Saml. inng. með einni íbúð. Nýleg
innrétting, tæki og gólfefni í eldhúsi. Svefn-
herb. eru rúmgóð. Snyrtileg og nokkuð
stór lóð. Ath. þar sem íbúðin er undir súð
er gólfflötur hennar stærri en fasteignamat
segir til um. Ásett verð 8,4 m.
strax ákveðið að skipta rýminu í
bragganum niður og hafa hesthús í
öðrum endanum. Það er voðalega
notalegt að hafa dýrin í kringum sig
og svo spillir ekki að fá ný egg á
hverjum degi.“
Þóra segist frá upphafi hafa haft
ákveðnar hugmyndir um efnisval í
braggann og bætir við: „Hann er ein-
angraður að innan eins og venjuleg
einbýlishús, að utan var svo tyrft.
Það er þannig gert að þakið er klætt
með gúmmídúk sem er með holum.
Ofan á gúmmídúkinn er svo sett torf
á hvolf og svo annað á móti svo að
það myndist grip. Braggaveggirnir
eru klæddir að utan með viði.
Viðurinn var tjargaður, það er að
segja á hann var borin tjara í staðinn
fyrir fúavörn. Þessi aðferð var alltaf
notuð hérna áður fyrr og eru meðal
annars mörg húsin á Árbæjarsafni
tjörguð. Tjaran er sterkari og betri
vörn en fúavörnin. Það er hins vegar
mjög sterk lykt af henni fyrst. Mér
fannst það vera kostur en ekki galli
því að lyktin minnti mig á sveitina,
frá því ég var ung stúlka.
Þetta byggingarlag kemur afar
skemmtilega út og fólk sem kemur
hingað heldur yfirleitt að bragginn
sé mjög gamall, – og það er einmitt
það sem ég vildi,“ heldur Þóra
áfram.
„Ég var ekki alveg viss um hvern-
ig ég vildi klæða braggann að innan
en að lokum ákvað ég að klæða með
bárujárni, það kemur skemmtilega
út bert og því þarf ég aldrei að mála
hérna inni, bárujárnið er líka svo
samofið byggingarsögu Íslendinga –
því fannst mér það vera í samræmi
við efnisvalið á bragganum að öðru
leyti að nota það hérna inni.
Ég flotaði gólfin hérna inni, mér
finnst það mjög þægilegt því það
safnast saman mikið ryk þegar ég
vinn og það sér ekki á gólfinu.“
Leirlistakona
Þóra útskrifaðist af leirlistabraut
Myndlista- og handíðaskólans árið
1989 og síðan þá hefur hún að mestu
fengist við leirlistina en hefur þó í
gegnum tíðina prófað sig áfram með
ýmis önnur efni. „Ég vinn mest með
steinleir og postulín, það eru lang-
sterkustu leirtegundirnar.
Yfirleitt fer ég af stað með ein-
hverja ákveðna hugmynd sem síðan
þróast og breytist á meðan ég vinn
að henni. Þegar ég hef síðan mótað
stykkið sem ég er að vinna að læt ég
það þorna og set það síðan inn í
brennsluofn og brenni við rúmar
1000°C.
Síðan skreyti ég verkið og glerja
það, að því loknu er stykkið aftur
sett inn í ofn og þá brennt við
1.300°C. Að lokum bæti ég við gyll-
ingu og kopar ef við á og brenni þá
hlutinn í þriðja skipti við 800°C. Ég
hef mjög gaman af því að leika mér
með mannsandlitið og það sést í
mörgum verka minna.
Mér finnst líka afar mikilvægt að
list hafi notagildi. Það má svo sem
segja að list hafi alltaf notagildi – það
er að segja sem konfekt fyrir augað –
en mér finnst gaman að gera tilraun-
ir með hluti sem geta nýst á marg-
víslega vegu og það má segja að það
einkenni verk mín.
Mér finnst mjög gaman að blanda
saman fleiri efnum við leirinn. Til
dæmis hef ég notast mikið við hross-
hár, horn og hvaltennur. Eitt skipti
var ég á göngu með Bjarka mann-
inum mínum meðfram ónefndri
strönd og þar komum við að hval-
kálfi, sem hafði strandað og var
greinilega dauður fyrir þó nokkru.
Ég bað Bjarka að draga úr honum
tennurnar þar sem ég hafði ekki
kjark til þess sjálf. Hann gerði það
og stóð sig eins og hetja við það verk.
Um þessar mundir er ég að leggja
lokahönd á stykki þar sem tennur
kálfsins koma við sögu,“ segir Þóra.
Ánægð með vinnustofuna
Þóra kveðst vera afar ánægð með
vinnustofuna. „Í raun finnst mér ég
vera eins og heimavinnandi húsmóð-
ir, ég get haft hlutina alveg eins og
ég vil, – unnið þegar andinn kemur
yfir mig og þess vegna farið með
þvottinn út á snúru í náttfötunum án
þess að nokkur skipti sér af því,“
segir hún.
„Ég er mjög ánægð með að hafa
prófað að vera með vinnustofu fjarri
heimilinu því þá geri ég mér betur
grein fyrir því hvað þetta fyrirkomu-
lag er yndislegt. Mér fannst ég til að
mynda alltaf missa af sumrinu þegar
ég var uppi á annarri hæð á Álafossi,
– en nú þarf ég ekki annað en að
opna dyrnar og þá leitar sumarið inn
til mín,“ segir Þóra að lokum.
Þóra á vinnustofu sinni.
Afar skemmtilegt verk eftir Þóru.