Morgunblaðið - 29.10.2003, Síða 2
2 B MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
PAJERO-KLÚBBURINN stóð fyrir haust-
ferð í Landmannalaugar fyrsta vetrardag. Í
flokknum voru alls liðlega 50 bílar og nærri
200 manns og sögðu Heklumenn það góða
þátttöku. Enginn hefur séð eftir þeirri ferð
því logn og blíða var allan daginn og landið
skartaði sínum fegursta haustsvip.
Áð var á nokkrum stöðum á leið í Land-
mannalaugar, fyrst við Bitru, vegamót
Skeiðavegar og Suðurlandsvegar, við
Hjálparfoss og Stöng, Bjallavað við
Tungnaá og Ljótapoll. Jarðvísindamaður-
inn Ármann Höskuldsson fræddi leiðang-
ursmenn um eldfjöll og jarðfræði og þegar
í Laugar var komið buðu þrír fararstjórar
Útivistar hópnum til skoðunarferða um
Laugahraun eða Bláhnúk eftir kakóhress-
ingu.
Enn var sama blankalognið nema hvað
nokkuð næddi um þá sem héldu á Bláhnúk
þegar komið var upp. Reyndar luku ekki
nema þrír þeim leiðangri, tíu lögðu af stað
en smám saman heltust menn úr lestinni og
tóku af afsaka sig með heimaverkefnum.
Yfir 600 félagar í Pajero-klúbbnum
Pajero-klúbburinn var stofnaður í febr-
úar á þessu ári og eru kringum 600 eig-
endur slíkra bíla skráðir í klúbbinn. Reynd-
ar eru örfáir félagar án þess að eiga slíkan
vagn en það er heimilt; nóg er að hafa
áhuga á Pajero og kannski hafa á döfinni
að eignast jeppa frá Mitsubishi enda af
ýmsu að taka allt frá pallbílum og upp í
lúxusjeppa. Eigendur jeppa frá Mitsubishi
eru um hálft þriðja þúsund. Klúbburinn
stóð fyrir Þórsmerkurferð snemmsumars
og tók einnig þátt í jeppahópferð klúbbsins
4x4.
Blaðamaður fékk til fararinnar svo til
nýjan Pajero með 3,5 lítra og 202 hestafla
bensínvél. Slíkur bíll líður hljóðlaust um
slitlagsvegi sem grófar fjallaleiðir og fjöðr-
unin og þægileg sætin fara mjúkum hönd-
um um farþega sem bílstjóra.
Haustblíða og
logn í Land-
mannalaugum
Blíðuveður var allan daginn og nauðsynlegt að staðnæmast
sem oftast og njóta þess. Hér hlýðir hópurinn á mál Ár-
manns við Hjálparfoss.
Sjá mátti jeppa af öllum stærðum og gerðum í ferðinni.
Morgunblaðið/jt
Það gat teygst úr lestinni enda liðlega 50 bílar á ferð.
joto@mbl.is
Ármann Höskuldsson jarðvísinda-
maður fræddi þátttakendur um eld-
virkni svæðanna sem farið var um.
Einn áningarstaðurinn var við Ljótapoll þar sem sjá mátti í átt að Vatnajökli.
HALLSTEINN Sigurðsson mynd-
höggvari keypti árið 1973 tíu ára
gamlan Willys-jeppa og eftir 30 ára
akstur á bílnum seldi hann Willys-
bílinn aftur sama manninum og hann
keypti bílinn af þremur áratugum
fyrr. Reyndar auglýsti Hallsteinn
fyrst eftir varahlutum í bílinn en fyrri
eigandi hafði þá samband og falaðist
eftir bílnum. Eftir stutta umhugsun
ákvað Hallsteinn að láta bílinn frá sér
eftir langa samvist og góða þjónustu,
enda var jeppinn farinn að brenna
óhóflega miklu af olíu, að sögn Hall-
steins.
Hann segist hafa byrjað að byggja
sér hús í Breiðholti tveimur árum
eftir að hann keypti Willys-jeppann.
„Ég flutti allt byggingarefnið í þetta
hús mitt á kerru aftan í jeppanum,
það var rétt stálgrindin og steypan í
sökklana sem ég ekki flutti á bílnum,
annað var flutt á honum. Síðan er ég
myndhöggvari og allt mitt efni hef ég
flutt á bílnum hingað á kerru og síðan
myndir upp í holtið hjá Gufunesi.
Hann er búinn að standa fyrir sínu,
þessi skrjóður, og er nú orðinn fertug-
ur. Aðalvandinn er að hann er farinn
að brenna svo mikilli olíu og vissu-
lega er ég líka fyrir í umferðinni. Það
kemur að því að maður verður
þreyttur á þessu og gefst upp. En ég
hef sparað mér peninga og hef getað
notað þá í staðinn til að kaupa mér
efni til að smíða úr,“ sagði Hallsteinn
í samtali við Morgunblaðið.
Hann hefur nú eignast nýjan bíl í
fyrsta skipti í 30 ár eða frá því hann
keypti Willysinn 5. október 1973.
„Willys-jeppinn var tíu ára gamall
þegar ég keypti hann árið 1973 og nýi
bíllinn, Nissan-pallbíll, er líka tíu ára
en það voru ekki áform um að gera
það endilega aftur. Það var svo mikið
af þessum fjögurra dyra bílum með
stuttan pall, en loks fann ég tveggja
dyra bíl með lengri palli. Það er
ágætt, þá þarf ég sjaldnar að hafa
kerru,“ segir Hallsteinn.
En skyldi honum ekki þykja sem
hann væri að sjá á bak góðs vinar
eftir þessi mörgu ár jeppa og manns?
„Jú, vissulega. Síðan fór ég eitt
kvöldið í Sigurjónssafn og hitti þar
skólasystkini mín, og þau sögðu;
Hallsteinn, þetta gerir þú ekki. Guð
minn almáttugur, það verður ótrúlegt
að sjá þig á nýjum japönskum bíl.“
Willys-jeppi fór á ný til fyrri eiganda eftir 30 ár í Breiðholtinu
Morgunblaðið/Kristinn
Hallsteinn og gamli Willys-jeppinn áður en hann fór til fyrri eiganda á ný.
Jeppi og
maður skilja
eftir 30 ára
sambúð
MERCEDES Benz áformar nú að hefja sölu á lúxusjepplingi á næsta ári
sem framleiddur verður undir heitinu R-týpa. Fyrirheit hafa verið gefin um
að nýi bíllinn setji nýja staðla fyrir 4x4 jepplinga með stórkostlegri blöndu
af nýrri tækni, aksturseiginleikum og innra rými. Bílnum er m.a. ætlað að
keppa við Range Rover í Bretlandi og víðar og verður sannkallaður lúxus-
jeppi.
Ekki hafa ennþá borist nánari útlistanir á fjórhjóladrifi bílsins en búist er
við að vél bílsins verði svipuð og nú þekkist í S-týpunni. Þar er um að
ræða nýja 3,7 lítra V6 vél, en einnig verður í boði 5,0 lítra V8 auk tveggja
öflugra dísilvéla. Sú stærri, sem verður 4,0 lítra V8 og skilar 252 hest-
öflum, mun einnig verða sett í framtíðarútgáfu af E- og S-týpunum, auk
hins nýja CLS Coupé.
Líkt og í öllum bílum frá Mercedes Benz mun tæknin leika stærsta hlut-
verkið í hönnun bílsins. Hátæknibúnaður eins og Keyless Go, Tailback Ass-
ist – en það er búnaður sem virkar á bremsurnar þegar stigið er af bens-
íngjöfinni í hægri umferð – og Distronic Cruise Control verður án efa í nýja
Benz-jepplingnum. Hins vegar mun hönnun bílsins fylgja gamalkunnum
stefjum í hönnun Mercedes-bíla með klassískum framenda. Hins vegar
verður hægt að velja um glerþak í fullri lengd, það er framrúða sem nær
frá vélarhlífinni og aftur í skottið, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Bíllinn verður gríðarlega rúmgóður með sjö sætum og myndir sem náðst
hafa af tilraunabílum benda til þess að hann verði mun stærri en ML-
týpan, sem verður jafnframt seld meðfram nýja bílnum.
Nýr Mercedes R-lúxusjeppi