Morgunblaðið - 09.11.2003, Blaðsíða 9
Ódýrari bílaleigubílar
fyrir Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975,- pr. viku.
Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar.
(Afgr. gjöld á flugvöllum).
Aðrir litlir og stórir bílar 6-7 manna,
minibus og rútur.
Sumarhús og íbúðir.
Norðurlönd og Mið - Evrópa.
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
www.fylkir.is sími 456-3745
Bílaleigubílar
Sumarhús
DANMÖRKU
Á slóðinni www.timeanddate.com
er t.d. hægt að sjá hvað klukkan er
hvar sem er í heiminum.
FARÞEGAR eiga að fá rúmlega 20 þúsund íslenskar
krónur í bætur ef veruleg seinknun verður á flugi eða það
fellt niður, samkvæmt reglum sem Evrópusambandið
hyggst setja. Lággjaldaflugfélagið Rayanair gagnrýnir
boðaðar reglur og segir þær ekki í þágu neytenda.
Talsmaður flugfélagsins segir að nái reglurnar um
bætur fram að ganga muni það auka kostnað flugfélaga
og leiða til hækkunar á fargjöldum.
Líkur eru á að reglurnar taki gildi á næstu misserum
en Ryanair hyggst reyna að telja einstökum aðildarlönd-
um Evrópusambandsins hughvarf og fá þau til að beita
neitunarvaldi. Ef það tekst ekki ætlar flugfélagið að
stefna Evrópusambandinu fyrir dómstóla.
Rökin sem flugfélög beita fyrir sér í málinu eru m.a.
þau að seinkanir á flugi eða niðurfelling flugs verður
stundum vegna atvika sem flugfélög hafa ekki stjórn á.
Það sé ósanngjarnt að flugfélögum verði gert að greiða
bætur vegna seinkunar sem orsakast af veðri, svo dæmi
sé tekið. Ef þessar reglur um bætur vegna seinkana í
flugi verða samþykktar hjá Evrópusambandinu munu ís-
lensk stjórnvöld þurfa að innleiða sambærilegar reglur
vegna aðildar Íslands að EES-samningnum, segir Krist-
ín Helga Markúsdóttir, lögfræðingur í samgönguráðu-
neytinu. Hún bætir við að engar svipaðar reglur og þær
sem getið er um í þessum tillögum Evrópusambandsins
séu nú í gildi hér á landi.
Evrópusambandið boðar
bætur vegna seinkana í flugi
Morgunblaðið/RAX
Ef þessar reglur um bætur vegna seinkana í flugi verða
samþykktar hjá Evrópusambandinu munu íslensk stjórn-
völd þurfa að innleiða sambærilegar reglur.
SÍÐASTLIÐIÐ sumar var nýtt
glæsihótel opnað í Riga, Bergs hótel,
þar sem konur eru við stjórnvölinn.
Hótelið er í gamalli og virðulegri
byggingu í miðbænum og þar er
blandað saman gömlu og nýju.
Búið er að setja glerþak á húsið og
á efstu hæðinni er nú líkamsrækt-
arsalur og fundaraðstaða með útsýni
yfir bæinn.
Hvítir veggir, dökkur gamall viður
og stílhrein ljós húsgögn eru ein-
kennandi og baðherbergin eru
klædd marmara.
Borðið í móttökunni er sérkenni-
legt en uppistaðan í því er hurð sem
áður var í aðalinngangi hótelsins.
Lettnesk listaverk eru á veggjum og
inn á milli er suður-afrískur tréút-
skurður sem eigandinn hefur safnað
á ferðum sínum um Afríku.
Hótelið leggur áherslu á að hafa
herbergin rúmgóð en einnig eru
nokkrar íbúðir á boðstólum. Ekkert
herbergi er minna en 40 fermetrar.
Verðið fer lækkandi eftir því sem
gistinætur gesta eru fleiri.
Á hótelinu eru bæði stór herbergi og íbúðir.Hótelið er í mjög virðulegu húsi við miðbæ Riga.
Hotel Bergs,
83/85, Elizabetes Street,
Riga, LV-1050,
Lettlandi
Sími: 00 371 777 09 00,
Fax: 00 371 777 09 40,
Tölvupóstfang:
hotelbergs@hotelbergs.lv
www.hotelbergs.com
Nýtt glæsihótel í miðborg Riga
FERÐALÖG á ís er heitið á sýningu
sem á sextíu ára sögu að baki í
Amsterdam, Hollandi. Sýningar hóf-
ust nýlega og standa yfir fram til 4.
janúar næstkomandi.
Heiti sýningarinnar vísar til
ferðalaga í tíma þar sem heimsótt-
ar eru veislur og hátíðir á borð við
dansleik í Vínarborg og brasilíska
kjötkveðjuhátíð. Skautadansararnir
klæðast búningum sem eru við hæfi
og tónlistin getur verið eftir Jóhann
Strauss, Kylie Minogue, Daft Punk
eða Bee Gees. Sýningarnar verða
haldnar víðsvegar um borgina.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ísveisla í Amsterdam
Til að fá nánari upplýsingar er
hægt að heimsækja slóðina
www.holland.com/amsterdam/
gb/events/ice.html
ÁRLEG Dickens-jólahátíð verður
haldin í borginni Rochester í Kent
í Englandi dagana 6.–7. desember.
Rithöfundurinn Charles Dick-
ens bjó í Kent frá 1857 og til
dauðadags árið 1870. Sérstök
Charles Dickens-miðstöð er í
Rochester þar sem persónur úr
verkum Dickens eru glæddar lífi
með tónum og tæknibrellum.
Í tilefni hátíðarinnar verður far-
ið í skrúðgöngur, settar upp jóla-
sýningar, boðið upp á tónleika og
jólasöngvar sungnir.
Dickens-
jólahátíð
Charles Dickens Centre
Eastgate House,
High Street,
Rochester,
Kent
Sími 0044 1634 844176