Vísir - 09.01.1981, Síða 1
Föstudagur 9. janúar 1981, 8. tbl. 71. árg.
Ný iðg um kaupskyldu íbúðarhúsnæðis á félagslegum
grundvelli setja bæjarfélðg í vanda:
Skyldug aö kaupa DúNr
langt umlrani markaösverð
Bæjaryfirvöld á Siglufirði eru
nú mjög uggandi um sinn hag
vegna þeirrar kaupskyldu á
ibúðum, byggðum á félagsleg-
um grundvelli, sem hvilir á
bæjarfélaginu samkvæmt nýj
urn lögum. Bærinn er skyldugur
til þess að kaupa ibúðirnar á
verði, sem miðast við fram-
reiknaðan byggingarkostnað,
og er iangt umfram markaðs-
verð á Siglufirði.
„Við verðum að taka þessu
eins og hverju öðru hundsbiti,
en auðvitað hefur þetta i för
með sér þungar álögur á bæjar-
félagið”, sagði Ingimundur
Einarsson, bæjarstjóri á Siglu-
firði, i samtali við blaðamann
Visis morgun.
Nú standa fyrir dyrum kauþ
bæjarins á einbýlishúsi, sem
menn giska á að muni kosta um
80 milljónir gkir. miðað við
framreiknaðan byggingar-
kostnað, en á frjálsum markaði
fengjust tæplega meira en 40
milljónir gkr. fyrir það. Bærinn
þarf þó ekki að greiða meira en
30-35 milljónir gkr. fyrir húsið,
þvi að afgangurinn er bundinn i
löngum lánum eins og tiðkast
um verkamannabústaði: Sú
staða getur þó hæglega komið
upp, að fyrri eigendur slikra
ibúða væru búnir að greiða lánin
niður i þeim mæli, að kaupverð
bæjarinsfæri fram úr markaðs-
verði.
„Það getur verið mjög erfitt
að selja ibúðir hér á Siglufirði,
þvi að eignamarkaðurinn hér er
mjög þröngur og verð á ibúðum
hér hefur hrapað mikið að
undanförnu” sagði Ingimar
Einarsson.
Hann bætti þvi við, að 15-20
hús væru af ofangreindri gerð á
Siglufirði, og gætu allir séð i
hverjum ógöngum bærinn
myndi lenda ef eigendurnir
tækju upp á þvi að selja i stórum
stíl.
Þvi má bæta við, aö við hliö-
stæð vandamál er að striða i öll-
um bæjarfélögum, þar sem
fasteignaverð hækkar ekki i
samræmi við byggingarvisitölu.
P.M.
Mikill fjöidi fólks vará „Vinartónleikum” Sinfóniuhljómsveitar tslands I gærkvöldi. Margir hljómleikagesta hófu kvöldið með þvi að snæða i veit-
ingahúsinu Nausti, en þaðan var haldið á tónleikana i Háskólabiói. Á myndinni sjást nokkrir gestanna stfga upp I bifreið fyrir utan Naust, sem
flutti þá i Háskóiabió. Visismynd E.Þ.S.
Halldér
lormaöur
Seölabanka
Halldór Asgrimsson alþingis-
maður hefur verið skipaður
formaður bankaráðs Seðlabanka
tslands og Lúövik Jósepsson
formaður bankaráðs Landsbank-
ans.
Það var i gær sem Tómas Árna-
son ráðherra skipaði i þessar for-
mannsstöður. Hins vegar er ekki
búiö að skipa formann bankaráðs
Otvegsbankans, en Albert
Guðmundsson hefur verið nefnd-
ur sem liklegur formaður þar. Þá
á Pálmi Jónsson ráðherra eftir að
skipa formann bankaráðs Bún-
aðarbankans, en Stefán Valgeirs-
son er tilnefndur sem formaður
ráðsins. —SG
Niöurstað-
an éviss
„I aðgerðum stjórnvalda er
ýmislegt óljóst og niðurstaða þvi
óviss. Þetta á enn frekar við um
þauatriði, sem til lengri tima lúta
og af öllu er ljóst að aðgerðirnar
eru tilraun til þess að vinna tima
til varanlegrar stefnumótunar”,
segir i ályktun Alþýðusambands
Islands um bráðabirgðalög rikis-
stjórnarinnar, en um þau var
fjallað á fundi miðstjórnar i gær.
— JSS
HWURSTÖÐUR NEFNDAR UM SYKURVERKSMHIJU:
10 MILUARBA FYRIRTÆKI
Iðnaðarráðuneytið hefur nú
fengiö I hendur skýrslu um
möguleika á starfrækslu
sykurverksmiðju hér á landi, en
nefnd hefur að undanförnu
starfað á vegum ráðuneytisins
til þess aö kanna þaö mál.
Ahugamannafélag um sykur-
ræktun hafði frumkvæði að
þessu máli og eftir að hafa feng-
ið skýrslu finnskra ráðgjafa,
gerði félagið fyrirspurn til ráðu-
neytisins um aðild þess að
málinu. Athugun ráðuneytisins
á málinu liggur nú fyrir.
Samkvæmt upplýsingum Visis
kemur fram I skýrslunni að
gifurlegar sveiflur eru á sykur-
verði á heimsmarkaði sem gera
málið mjög erfitt. Sveiflurnar
eru það miklar að óliklegt þykir
að rikið hlaupi undir bagga
þegar lægstu sveiflur ganga.
Staðsetning verksmiðjunnar,
ef af yröi, var fyrirhuguð i
Hveragerði og fyrir áramót var
stofnkostnaður áætlaður um 10
milljarðar gkróna.
Visir hafði tal af iðnaöarráö-
herra, Hjörleifi Guttormssyn^
vegna málsins en hann vildi að
svo stöddu ekki tjá sig um það,
en kvaö niöurstöður fljótlega
liggja fyrir.
— AS