Vísir - 09.01.1981, Síða 8

Vísir - 09.01.1981, Síða 8
Vtsm Köstudagur 9. janúar 1981 Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Blaöamenn: Axel Ammendrup, Arni Sig- fússon, Frlða Astvaldsdóttir, Gylfi Kristjánsson, lllugi Jökulsson, Jóhanna Sig- þórsdót+ir, Kristln Þorsteinsdóttir, Páll Magnússon, Sigurjón Valdimarsson, Sveinn Guðjónsson, Sæmundur Guðvinsson, Þórunn Gestsdóttir, Blaöamaöur á Akureyri: Gísli Sigurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sigmundur O. Steinarsson. Ljósmyndir: Bragi Guðmundsson, Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrésson. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Olafsson. Safn- vöröur: Eirlkur Jónsson. Auglýsingastjóri: Páll Stefánsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Ritstjórn: Siðumúli 14, slmi 86411, 7 Itnur. Auglýsingar og skrifstofur: Stðumúla 8, Slmar 86611 og 82260. Afgreiösla: Stakkholti 2-4, simi 86611. Askriftargjald kr. 70 á mánuði innanlands og verð I lausasölu 4 nýkrónur eintakið. Visir er prentaður I Blaðaprenti, Siðumúla 14. Skini á siáiiu Verkalýösforystan á tslandi, vinnur umbjóðendum sinum ómetanlegt gagn. Hvaö eftir annaö hefur henni tekist aö „skipta á sléttu” siöustu misserin. t dag er þaö rakiö hvern- ig þessi viöskipti fara fram. VlSIR utgefandi: Reykjaprent h.f. Ritstjóri: Ellert B. Schram. Það er mála sannast, að hinn venjulegi launamaður á Islandi fær litlu sem engu ráðið um kjör sín og kaup. Um árabil hefur til- tölulega fámennur hópur svo- kallaðra verkalýðsrekenda söls- að undir sig öll völd þessara f jöl- mennu hagsmunasamtaka og hreiðrað svo um sig að sumir þeirra eru orðnir múr- og nagl- fastir í stöðum sínum. Þeir tala gjarnan í náfrvj f jöld- ans en eru þó f ulltrúar fámennra klíku. Þeir þykjast heyja faglega baráttu en eru þrælar flokksræð- is. Kosningar til stjórna í verka- lýðsfélögum heyra sögunni til og félagsfundir eru haldnir til að sýnast. Gleggst kom þetta spil- verk allt í Ijós á síðasta alþýðu- sambandsþingi þar sem fámenn- ur hópur réði ráðum sinum og launþegahreyf ingarinnar bak við tjöldin og notaði þingf ulltrúa eins og strengjabrúður. Til þess að allt sé f ínt og fágað á yfirborðinu, er heitið samráð- um í bak og fyrir. Verkalýðs- vinsamlegar ríkisstjórnir skrá samráðin i stjórnarsáttmála sína og verkalýðsrekendur hrópa húrra yfir glæsilegum áfanga- sigri í kjarabaráttunni. I ólafslögum voru samráðin lögfest, og það þótti svo merki- legur árangur, að verkalýðsfor- ystan samþykkti yfir sig skerð- ingar á útreikningi framfærslu- vísitölunnar, m.a. á þann veg, að versnandi viðskiptakjör, skyldu koma til frádráttarj launaverð- bótum. Þeir,, skiptu á sléttu". Þetta skerðingarákvæði hefur verið í gildi síðan 1978 og upplýst er að þaðhafi á þeim tíma sem liðinn er frá gildistöku laganna skert kjörin um 16,6%. Því var það, eftir að ríkis- stjórnin hafði haft lögbundin og yfirlýst samráð sín við verka- lýðshreyfinguna að engu, við gerð bráðabirgðalaganna nú um áramótin, að þægir og flokks- hollír verkalýðsrekendur Alþýðubandalagsins fengu nýtt hálmstrá sem skiptimynt. Við- skiptakjaraskerðingin var af- numin, og nú fá menn fullar verðbætur ef tir 1. mars. Enn einu sinni gátu sjálfskipaðir umbjóð- endur launþegasamtakanna fagnað góðum sigri. Samráðin höfðu að vísu verið virt að vett- ugi, en þeim hafði tekist að „skipta á sléttu". I nafni alþýð- unnar gekk verkalýðsforystan f ram fyrir þjóðina og tilkynnti að launafólkið í landinu væri ánægt með bráðabirgðalögin. Ríkis- stjórninni voru færðar kveðjur og „skiptin" þökkuð. En viti menn. Ekki hefur blek- ið fyrr þornað á bráðabirgðalög- unum en upplýst er að viðskipta- kjörin fari batnandi! Það lá meira að segja fyrir í október s.l. að viðskiptakjaraákvæði Ólafs- laga myndi hafa áhrif til hækk- unar á launum 1. mars n.k. um 0.5%. Hvað þýðir þetta? Jú, ríkis- stjórnin leggurá ráðin um afnám þessa ákvæðis Ólafslaga, þegar hún veit með vissu að það kemur launþegum til góða! Svona gerast kaupin á eyrinni hjá þeirri góðu stjórn. Verkalýðs- hreyfincþn er höfð að háði og spotti. Henni er hringsnúið til að gleypa hvaðeina. Hún kaupir samráð út á viðskiptakjara- skerðingu, en er ekki virt viðlits. Hún gleypir 7% kaupskerðingu út á afnám þessarar sömu við- skiptakjaraskerðingar, án þess að vera virt viðlits. Og nú kemur í Ijós, að viðskiptakjörin hefðu bætt launin en ekki skert, og er þá auðmýking verkalýðsforystunn- ar endanlega kórónuð. Um næstu áramót taka síðan Ólafslög gildi sitt á nýjan leik — og sjá, þá munu viðskiptakjörin fara versnandi. Þá er aftur hægt að „skipta á sléttu", og allir una glaðir við sitt. Þetta eru jú viðskipti sem borga sig. Stríðið gegn frjálsum rithðfundum Grein Ingimars Erlendar SigurBssonar um menningar- ástandiö d tslandi i blaðinu,. Núna, hefur vakiö athygli. Meöal annars hefur ritstjóri Þjóöviljans Arni Bergmann tek- iö upp hanskann Tyrir kollega sinn Matthias á Morgunblaöinu og réttilega bent á að Ingimar gagnrýni Morgunblaösmenn fyrir kommadekur. Hér er hár- rétt með fariö. Þaö er verk Jóhanns Hjálmarssonar, Matthiasar og fleiri Morgun- blaðsmanna aö koma kommún- istum aftur til valda i Rithöf- undasambandinu. Við siöustu kosningar þar skrifaöi Matthias upp á alla frambjóðendur Njaröar P. Fyrir þaö fær hann og Jóhann aö fljóta með i erlendum þýðingum Islenskra ljóöa, þar sem kommar ráöa öllu um val á höfundum. Sú var tiðin, þegar Njöröur P. Njarövlk var formaður útvarps- ráös aö hann var frjálslyndur vinstri sinni. M.a. leyfði hann lestur útvarpssögu eftir undir- ritaöan þar sem bæöi hægri og vinstri öfl i þjóðfélaginu voru tekin til bæna. Þá má segja að hann hafi á sinum valdaferli þar ýtt undir opna umræðuum þjóö félagsmál. Ég hygg þvi að margir frjálslyndir rithöfundar hafiveriö Niröi vinveittir, þegar hann tók við Rithöfundasam- bandinu einmitt meö hliðsjón ai reynslu þeirra af honum I út- varpsráöi. En vonbrigöin hafa oröiö hrikaleg. Njöröur er til- tölulega valdalltill sem formaö- ur en fólk á borö viö Vilborgu Dagbjartsdóttur ræöur lögum og lofum. En hún og maður hennar Þorgeir Þorgeirsson vilja hóstalaust reka alla þá rit- höfunda, sem gagnrýndu pólitiska úthlutun Sveins Skorra úr launasjóði rithöfunda i vor. t grein sinni bendir Ingimar Erlendur á ægivald kommún- ista í fjölmiðlum. Þeirra menn sitji á dagblööum, i útvarpi og sjónvarpi og ráöi skrifum um bækur og menningarmál. Ég ætla að tilfæra eitt dæmi um aö- feröirnar, sem viöhaföar eru: Jónas Arnason var þingmaöur Alþýöubandalagsins. Hann er lika dágóöur leikritasmiður- einn sá besti sem við eigum. 1 ritverkum sinum er Jónas rómantiskur húmanisti. Slikan mann viöurkennir háskólaliö Alþýöubandalagsins ekki sem rithöfund. I siðasta leikriti sinu: Valmúinn spryngur út á nótt- unni, dregur Jónas þessa póten- táta sundur og saman I háöi, einkum fær eiturlyfjadekriö og Megas ómældan skerf af gríni. Hver voru viðbrögð hans manna við þessu verki? Sverrir Hólmarsson eiginmaður Guörúnar Helgadóttur alþingis- manns skrifaöi i Þjóðviljann dúndrandi niö um sýninguna, svo mergjað aö Stefán Jónsson alþingismaður Alþýðubanda- lagsins bað blaðið aö hlifa Jónasi viö frekari árásum á meöan hann stæði I miöri kosn- ingarbaráttu. Sýningin á Valmúanum vakti verðskuldaða athygli en háskólalið Alþýöu- bandalagsins gerði sitt til aö koma henni á kné, meðal annars voru sendir út hópar tíl aö hrópa hana niöur. í. úthlutunarnefnd listamannalauna 1978 gerði einn nefndarmanna tillöguum Jónas I efri flokk listamanna. Sú til- laga fékk einungis stuöning til- lögumanns. Báöir fulltrúar Alþýðubandalagsins sátu hjá. En I þessum hamförum brotn- aöi Jónas. Hann ákvaö aö draga sig i hlé frá pólitlk. Hins vegar gengust pólitiskir andstæðingar Jónasar meöal rithöfunda fyrir aö honum var veitt viöurkenn- ing fyrir ritstörf. Þegar þvillk- um aðferöum er beitt við skoöanabræöur, hvernig er þá farið meö andstæðinga? Aldurhniginn rithöfundur meðai lýöræöissinna sagöi viö mig fyrir nokkrum árum: — Nú eru þeir hættir. Tveir komu til mfn I gær fullir og til- kynntu mér aðofsóknum I minn _garð væri hætt. Þetta var maö- ur, sem skipulega haföi verið skrifaö nið um. Þetta reyndust -orö aö sönnu. Hann hefur verið látinn I friði. Hverjir eru höfuðpaur- arnir i þessum skipu- lögðu ofsóknum? Ég hygg þá vera I þessari röö: Ólaf Jónsson, Arna Bergmann og Jóhann Hjálmarsson. Ólafur er þeirra harðastur og illvlgast- ur. Hann skrifar aldrei um verk heldurmenn. Hann mætir blind- fullur á leiksýningu eins og dæmin sanna og skrifar samt um þá sýningu. Hvernig? Júm, eins og ég sagði áðan þá skrifar Ólafur fyrst um manninn slöan verkið. Það skiptir ekki máli aö maöur sjái leiksýningu, þegar maöur er fyrirfram ákveðinn hvað á aö segja. Hvaða blaö get- ur haft slíkan mann I sinni þjón- ustu? Það getur Jónas Dag- blaðsritstjóri. Svona blaða- mennska þjónar vel hans bisness-snónarmiðum. Einu mennirnir sem aö hans dómi láta sig varða menningarmál, er hlandfor Alþýöubandalags- ins. Þess vegna læt ég skrifa fyrirþá. Þeir kaupa blaðiö. Hin- ir hlæja, þegar óli er að nlöa rit- höfunda. Arni Bermann er var- færnari. Hann byrjaði á Þjóö- viljanum sem algert handbendi Rússa. Frásagnir hans af Mikson-réttarhöldum Rússa eru eitt það ógeöslegasta, sem ég hefi lesið. Siöan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Fyrir ári siöan sendi Arni frá sér bók um Sovétið, sem ég heföi getaö samiö. Hann treystir sér ekki aö verja innrásina i Afganistan eða Tékkóslóvakíu. En honum er mikil árátta að ofsækja frjálsa rithöfunda á tslandi. Vafalaust skapar hann sér vinsældir á Hilmar Jónsson rithöf- undur fer hörðum orð um um vinstri menn og málflutning þeirra. þann veg en varla nafn til lang- frama, eins og hann þó dreymir um. Jóhann Hjálmarsson er furöulegasta sköpunarverkiö I þessum dýragáröi. Sumir segja aö hann sé skáld. Bæöi Matthias á Mogganum og niðurrifsmenn kommúnista fullyröa aö svo sé. Þaö getur vel veriö rétt. Ég finn sjaldnast glóru I þvi sem hann skrifar. Um flesta þá rithöf- unda, sem ég tel góða skrifar hann illa. Mér dettur Kristján frá Djúpalæk I hug I þvi sam- bandi. Kannski er ástæöan sú aö þar fer gott skáld og trúaður maöur. Þaö er ekki undrunar- efni aö illa sé komið fyrir póli- tiskum flokki, sem hefur mann á borö viö Jóhann Hjálmarsson aö leiöarljósi, enda er eyöi- mörkin alger þegar svipast er um eftir menningarvitum úr rööum Sjálfstæöismanna. -Nefndi einhver: Daviö Oddsson eða Hrafn Gunnlaugsson? Ég held varla. Hverjir eru róttækir rithöfundar i dag? Svavar Gestsson ráðherra sagöi annaöhvort á Alþingi eða blaöagrein aö tillaga Ingimars Erlendar um úthlutun Alþingis á launasjóöi rithöfunda væri at- laga gegn róttækum rithöfund- um. Hverjir eru róttækir rithöfr undar idagoghvaða útreiðhafa þeir fengiö hjá Sveini Skorra? Dæmi: Fyrir tveimur árum sendi ákveðinn rithöfundur um- sókn til launasjóðs til samningu leikrits, sem afhjúpa skyldi spillingu á Keflavikurflugvelli. Hver voru viðbrögö Sveins Skorra, sem telur sig hemáms- andstæðing og róttækling? Svar: Höfundurinn fékk ekki krónu. Nei, vinir Sveins Skorra og Njarðar eru ekki róttækir né þjóðfélagsgagnrýnendur. Þvert á móti eru þeir formúluskrifar- ar og framleiöendur eldhúsreyf- ara af lélegustu gráöu. Einn þessara eldhúsreyfara hefur meira að segja verið sendur i Norðurlandakeppni i' bókmennt- um okkur til ævarandi skamm- ar. Nú fyrir jólin komu tvær mjög athyglisveröar skáldsögur um þjóöfélagmál eftir kunna höfunda: Grimur trollarakarl eftir Asgeir Jakobsson og Strið- andi öfl eftir Stefán Júlfusson. Var þessum verkum hampað i fjölmiölum. Nei, þær voru undantekningalitiö skágegnar. Hins vegar dynur i' eyrum lof- rolla um Guöberg og kompani I rikisfjölmiðlum og Morgun- blaði. Hann er á linunni. Þvi hann er hinn sanni niðurrifs- maöur. Ég held að timi sé kominn til aö gá til veðurs I þessum éfnum og ræöa málin I fullri hreinskilni ,,án ótta viö bankastjóra eða pólitiska njósnara.” Sé efnahagsástand þjóöarinn- ar slæmt, þá leyfi ég mér að fullyrða aö ástandið i menning- ar-og skólamálum okkar sé hálfu verra. Hilmar Jónsson.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.