Vísir - 09.01.1981, Síða 19

Vísir - 09.01.1981, Síða 19
Föstudagur 9. janúar 1981 VÍSIR 19 99 Hotvard Hughes reyndi od kaupa ást mína” — segir Elisabeth Taylor í nylegu vidtali Elizabeth Taylor skýrði nýiega frá þvi i viðiali, að milljarða- mæringurinn Howard Hughes hefði eitt sinn boðiðsér milljón dollara fyrir að giftast honum og hafi reyndar látið i veðri vaka að greiða þrjár milljónir dollara ef hún gæfi kost á sér. Þetta tilboð auðjöfursins var siðasta örvæntingarfulla tilraun hans til að ná leikkonunni frá leikaranum Michael Wilding, en þau höfðu þá ráðgert að ganga i hjónaband innan tveggja vikna. En Beta, sem þá var aðeins 19 ára gömul og yfir sig ástfangin af Wilding, hafnaði hoði hins 47 ára gamla Hughes, án þess að hugsa sig um tvisvar. „Howard hélt að hægt væri að verðleggja alla hluti og auður hans nægði til að komast yfir það sem hann vildi", — sagði Elizabeth i viðtalinu og bætti þvi við, að hún hefði haldið þessu vandlega leyndu þar til nú. Það var hins vegar vitað, að Hughes reyndi á sinum tima að vinna ástir hennar og þegar þetta gerðist, árið 1952, höfðu flestar frægustu kvikmyndastjörnur þeirra tima verið orðaðar við hann. Þegar Hughes gerði siðustu til- raunina til að kaupa ástir hennar segist Elizabeth hafa sagt við hann: „Enégelska þig ekki og ég ætla mér að giftast Michael eftir tvær vikur.” — Hughes á þá að hafa svarað þvi til, að ef til vill yrði hún ástfangin af sér innan tveggja vikna. En Elizabeth hafnaöi honum og milljónunum hans. Walter Kane, sem eitt sinn vann fyrir Hughes, hefur staðfest að milljarðamæringurinn hafi á timabili verið sjúkur af ást til Betu og hafi viljað giftast henni. 1 áðurnefndu viðtali neitaði Elisabeth að ræða þetta giftingartilboð nánar, en maður nokkur, sem vann með henni að gerð kvikmyndarinnar „Cleopatra” árið 1961, minnist þess, að hún hafi rætt þetta i þröngum vinahópi, þegar unnið var að gerð myndarinnar á ltaliu. „Við vorum i kvöldverðarboði i ibúð hennar i Róm, þegar einhver Auðjöfurinn lloward Hughes. Myndin er frá árinu 1952, en þaö ár reyndi hann að kaupa ástir Eiisabetar Taylor. um, eins og hún lengi fyrir að leika i „Cleopötru". Siðan sagöi hún okkur söguna: Þetta var árið 1952 og Hughes hafði boðið henni út nokkrum sinnum en hún sagöi honum að hún elskaði Wilding og vildi gift- ast honum. Hughes var gripinn örvæntingu, að sögn Betu. Hughessagði henni aö ef hún gift- ist sér myndi hann gera hana að ódauðlegri gyðju, hún þyrfti ekki einu sinni að sot'a hjá sér, — „Sem ég hefði auðvitað aldrei gert", segir Beta. Elisabeth sagði, aö Hughes hefði njósnað um sig. — „Hann sagði mér, að hann vissi um allar minar gjörðir, hvenær ég færi i rúmið, með hverjum ég færi út og hvað ég borðaði. Hann vissi allt. Hann vissi að ég haföi gaman af hestum og eitt sinn ætlaði hann að gefa mér heilt stóð." Elisabeth sagði að hún hefði aldrei hugsað alvarlega um þetta Sigurvegarinn 1 baráttunni um Betu, unni skömmu eftir brúðkaup þeirra Michael Wilding, ásamt leikkon- árið 1952. fór að tala um Howard Hughes. Elisabeth byrjaði þá að hlæja og eiginmaður hennar á þeim tima, Eddie Fisher, spurði hana hvers vegna. Elisabeth svaraði þá, að Hughes hafi eitt sinn boðið sér eins mikið fé fyrir að giftast hon- Anja Jacobscn, sem kjörin var „Ungfrú Vetrarsóí (t mióju) asamt helstu keppinautum sinum Gitte Broderscn (t.h.) og Ann Larsen. tilboð Hughes, að kaupa sig fyrir milljón eða þrjár milljónir doll- ara. Hún hafði einfaldlega ekki áhuga á honum. „1 þau fáu skipti, sem ég fór út með honum, glápti hann þegjandi út í bláinn og svaraði aldrei neinu sem ég spurði hann um. Oft var hann svo „sjabbý" og óhreinn að hann hefði haft gott af að fara i bað. Hann var alltaf i krumpuð- um fötum og buxurnar héngu á honum eins og tjald. Stundum var hann berfættur i skitugum striga skóm og tærnar stóðu út um götin. Og þetta var sagður vera rikasti maður heims”. Elisabeth hló aftur og bætti við: „Hann var svo leiöinlegur að ég hefði ekki gifst honum þótt allur hans auður hefði verið i boði”. — Og það var greinilegt að Beta sá ekki eftir að hafa hafnað boði hans.” Þegar núverandi eiginmaður Betu, öldungadeildarþingmaður- inn John Warner, heyrði þessa sögu sagðist hann hafa náð mun betri samningi en Hughes hefði reynt að gera. — „Ég þurfti að- eins að borga fimm dollara, — þ.e. verðið á leyfisbréfinu." Sven-Oleog Anniqa veröa fulltrúar Danaveldis á parameistaramót- inu i Kaliforniu. Parameistaramót Vöðvafjallið Sven-Ole Thorsen og kona hans Anniqa æfa nú stift fyrir heimsmeist- aramót para i likamsra*kt sem haldið vcröur i Kaliforniu á vori komanda. Þau verða fulllrúar llanaveldis i keppninni og eru Danirsagðir vongóðir um góðan árangur og þeir bjartsýnustu spá þeim sigri. Ilinn :!(> ára gamli Sven-Ole hefur stundað likamsrækt i mörg ár og rekur nú kiúbb fyrir likamsræktarmenn. Anniqa er liins vegar ný i grcininni cn hef- ur náð ótrúlcgum árangri á stuttum tima. En þótt Anniqa sé nýgræðingur er bún þegar farin að þjálfa aðrar konur i likams- rækt og nú sækja um 50 konur tinia hjá henni. „Það cr i tisku núna að vera með stæltan kropp”, — segir Anniqa. „Hin vcgar er ekki ætl- unin að konur stæli karlmenn á þcssu sviði heldur þurfa þær að þróa meösér sérstakan stfl”, — segir likamsræktarstúlkan og hún bætir þvi við, að ræktunin hafi nú tekið hug hennar og hjarta og sé sá miðdepill sem tilvera liennar snúist um. Tuttugu armbeygjur með Anniqu á bakinu er liöur i æfingunum fyrir keppnina.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.