Morgunblaðið - 16.12.2003, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 16.12.2003, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2003 B 7 BÆKUR Ævintýri dýranna hefur að geyma ævintýri frá ýms- um löndum eftir Bob Hartmann. Hreinn S. Há- konarson hefur ís- lenskað. Brúðgumi mold- vörpunnar, Þrír dagar í lífi drekans og Montna kartan eru meðal sagna í bókinni. Sögurnar eru valdar með það í huga að þær geti hvatt börn til dáða og vakið samúð þeirra og elsku með þeim sem minna mega sín. Á hverri opnu eru litmyndir eftir eftir Susie Poole. Útgefandi er Skálholtsútgáfan. Prentað á Spáni. Verð: 1.780 kr. Ævintýri Beðið eftir fram- tíð hefur að geyma ljósmyndir Jóns Ásgeirs Hreinssonar. Jón Ásgeir Hreinsson hefur unnið sem graf- ískur hönnuður í mörg ár. Í bókinni eru svart/hvítar ljósmyndir unnar með hefðbundinni tækni. Jón Ásgeir segir um þessa bók: „Þarna birtist það sem ég ann mest og hefur haldið í mér lífinu og líka það sem ég óttast mest og gerði næstum út af við mig.“ Myndirnar og textinn urðu til í Að- aldal og nágrenni á tólf mánuðum árin 2000 og 2001. Filmurnar voru fram- kallaðar í eldhúsinu á Staðarhrauni í Aðaldal en myndirnar litu síðan dags- ins ljós í austurherberginu í sama húsi. Útgefandi er JPV útgáfa. Bókin er 48 bls., prentuð í Odda. Verð: 2.980 kr. Ljósmyndir Í BÓKINNI Krummi segir sögur eftir Sigurð Örn Brynjólfsson eru ævintýri Leifs heppna rakin. Söguna segir hrafninn Krummi sem kveðst hafa þvælst með Leifi í öllum hans ævintýrum. Áheyrandi Krumma er munkurinn Goddur sem hyggst skrásetja söguna. Krummi segir frá uppvaxtarárum Leifs og rekur sögu hans fram yfir landafundina. Frá- sögn Krumma er þó eilítið frábrugð- in þeirri útgáfu sögunnar sem finna má í flestum sögubókum. Til að mynda er mikil áhersla lögð á ein- skæra heppni Leifs sem einkum felst í fordæmislausri fundvísi hans. Ekki er þó allt sem sýnist. Fundvísi og heppni Leifs stafar fyrst og fremst af því að hinir ýmsu dauðu hlutir, svo sem rúmstólpar, steinar og örvar, tala til hans og hjálpa honum við alla hans leit. Þegar Leifur er staddur á Grænlandi talar til hans skip sem segist geta hjálpað honum að finna ný lönd og er það með hjálp talandi skipsins sem hann finnur Ameríku. Bókin Krummi segir sögur hefur burði til að vera skemmtileg mynda- saga. Hverja síðu prýða fjórar ferhyrnd- ar myndir sem minna um margt á línulega og myndræna framsetn- ingu teiknimynda- sagna. Þrátt fyrir oft fjörugar og litskrúðug- ar myndir og persónur sem eru efni í hressi- lega sögu mynda teikn- ingarnar og textinn ekki þá heild sem góð myndasaga þarf að hafa til að bera. Skýr- ingarinnar kann að vera að leita í þeirri staðreynd að bókin er sögð vera unn- in upp úr teiknimynd. Flestar mynd- anna líta út fyrir að vera rammi klipptur úr kvikmynd. Í myndirnar vantar alla hreyfingu og líf. Við kvik- myndagerð er hreyfingin vopn til að miðla atburðarás, umhverfi, aðstæð- um og tilfinningum. Þegar hreyfing- ar nýtur ekki við þarf að grípa til annarra ráða til að tjá framgang sög- unnar. Því er lögð áhersla á að gæða tvívíðar og kyrrstæðar teikningarn- ar lífi og hreyfingu með hinum ýmsu listrænu tilburðum þegar bækur eru myndskreyttar. Stakur rammi úr kvikmynd og myndskreyting í bók þurfa að uppfylla ólík skilyrði og virðist eitt því vart geta komið í stað annars. Myndirnar bæta litlu sem engu við texta bók- arinnar. Þær eru oftar en ekki hálfmerkingar- lausar og gjarnan er sama myndefni nánast óbreytt á öllum fjórum myndum síðunnar. Fyrir kemur að sama myndin birtist tvisvar á sömu blaðsíðunni. Einnig má finna í bók- inni myndir sem virð- ast hafa slysast á síður hennar því þær tengj- ast ekki með neinu móti atburðarásinni. Persónurnar sýna oft og tíðum und- arleg svipbrigði sem erfitt er að ráða fram úr og eru ekki í neinu samhengi við textann. Að manni læðist sá grunur að um sé að ræða eitthvað sem gerðist í teiknimyndinni en hefði mátt missa sig í bókinni. Nefna má dæmi um blaðsíðu þar sem texti og myndir virðast ekki fara vel sam- an. Á blaðsíðu 31 er að finna söng- texta sem bátsmenn Leifs heppna eiga að vera að syngja á leið sinni til Ameríku og er viðlagið eftirfarandi: „Fundum löndin/fundum löndin/ fundum löndin/öll þessi lönd“. Án efa hefði þessi bragur farið betur sem söngur með undirleik í kvikmynd en sem kvæði á blaði. Á fyrstu mynd síðunnar má sjá Leif glaðan í bragði í stafni skips síns. Menn hans eru hins vegar fremur brúnaþungir. Þeim virðist ekki vera söngur í hjarta. Næsta mynd sýnir hrafninn Krumma flögra við framskut skips- ins. Þriðja myndin sýnir skip Leifs heppna að því er virðist í miklum háska. Illvíg alda skellur á skipinu og lesa má skelfingarsvip úr andlitum áhafnarinnar. Enn gefst ekki tilefni til söngs. Fjórða og síðasta mynd blaðsíðunnar er torlesin. Storminn virðist hafa lægt. Leifur baðar út höndunum og félagar hans eru hálf- óttaslegnir á svip. Hvenær gafst til- efni til söngs á blaðsíðu 31 er erfitt að segja til um. Krummi segir sögur hefur hvorki trúverðugleika til að bera sem myndasaga né sem myndskreytt barnabók. Svo kann að vera að ástæðan sé sú að þessari sögu var ekki ætlað að vera sögð á blaði held- ur í kvikmynd. Sagan og myndirnar eru efni í hina bestu skemmtun sé þeim miðlað með öðru móti og er ástæða til að ætla að hægt sé að hafa mikla ánægju af teiknimyndinni „Leifur heppni og hvernig hann fann Ameríku“ sem bókin Krummi segir sögur er byggð á. Tengsl mynda og texta BARNASAGA Krummi segir sögur Sigurður Örn Brynjólfsson Myndskreytingar: Sigurður Örn Brynjólfs- son. Prentun: Delo tiskarna, Slóveníu. 44 bls. Pjaxi ehf., 2003 Sif Sigmarsdóttir Sigurður Örn Brynjólfsson UNDRAHEIMUR dýranna er óþrjótandi uppspretta makalausrar fjölbreytni, fegurðar og furðusagna. Löngum hafa ungir sem aldnir hrifist af eðli og lífsháttum dýra, eins og ótal margar dýrasögur eru gleggst til vitnis um. Þegar þar við bætist listileg frá- sögn, einstæðar mynd- ir og skepnur hvaðan- æva úr heiminum er ekki að undra, að úr verði mikið hagleiks- verk. Höfundurinn, David Attenborough, er enda víða þekktur fyrir hnýsilega þætti um náttúrufræði í útvarpi og sjónvarpi. Að auki hefur hann skrifað margar bækur um sama efni, og hafa þær ekki síð- ur notið mikilla vinsælda. Engum þarf að koma það á óvart, því að geipileg vinna liggur hér að baki, og Attenborough nýtur aðstoðar margra sérfræðinga vítt og breitt um heiminn. Þeir hafa kannað í þaula hátterni dýranna og miðla þeim fróðleik til hans, myndatöku- menn undirbúa tökur í langan tíma og alls kyns aðstoðarmenn eru á hverju strái. Síðast en ekki sízt er einstakur frásagnarhæfileiki Atten- boroughs sjálfs. Hann er ekkert að gaufa við hlutina, heldur gengur óhikað til verks og reiðir fram efnið af miklum myndarskap. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að hegðun dýra er með mikl- um ólíkindum frá sjónarhóli okkar mannanna, enda er hún árangur af miljóna ára aðlögun að hinum margbreytilegustu aðstæðum í um- hverfinu eða þróun í tímans rás. Höfundurinn er einkar laginn við að tína til hið forvitnilegasta í fari dýr- anna, en oft fer hann nokkuð fljótt og vítt yfir en hefur einstakt lag á að fleyta rjómann ofan af. Orðalag- ið er ef til vill ekki ætíð í fullu sam- ræmi við vísindin, en sjaldnast kemur það að sök. Rétt er að árétta, að hér er ekki um að ræða kennslubók um spendýr, enda legg- ur hún engan grunn að fræðunum sem slíkum. Á hinn bóginn er bókin kjörin sem ítarefni. En hin síðari ár gætir einmitt tilhneigingar í þá átt að skrifa kennslubækur í anda Attenboroughs. Slíkt er hin mesta flónska, því að þá tapast hin fræðilega uppbygging greinarinnar og nem- endur fara á mis við kjarnann. Mjög brýnt er að gera glöggan mun á kennslubók og fræðsluriti. Hér á ár- um áður var kennd al- mennileg dýrafræði eftir Bjarna Sæ- mundsson, sem flestir kannast við. Nú er öldin önnur og engin sómasamleg kennslu- bók til, sem veitir inn- sýn í heim dýranna. Hins vegar hafa komið út allmargar bækur undanfarin ár um lifnaðar- hætti einstakra dýrahópa. Þessi bók skipar veglegan sess í þeim hópi. Um þýðinguna er það að segja, að hún er nostursamlega gerð. Mál- far er mjög gott og augljóst, að vandað hefur verið til verksins. Á stöku stað er ruglað saman aldinum og fræjum, og ávallt vekur það furðu, að forliðir í metrakerfinu eru iðulega rangt stafsettir (senti-, milli- í stað sentí-, millí-). Sjálfsagt flokkast athugasemdir sem þessar undir smámunasemi, en furðulegri er sú þýðingarvilla að kalla af- kvæmi ljónsins hvolpa, því að teg- undin er af kattarætt og afkvæmin því rétt nefnd kettlingar. Óhætt er að mæla með bók þess- ari við hvern sem er, því að hún er hvort tveggja í senn fróðleg og skemmtilega skrifuð. Hagleiksverk um spendýrin NÁTTÚRUFRÆÐI Heimur spendýranna DAVID ATTENBOROUGH Þýðing: Helga Guðmundsdóttir. 320 bls. Iðunn Reykjavík 2003 Ágúst H. Bjarnason David Attenborough EDGAR Allan Poe er og hefur verið mörgum ráðgáta. Hann er talinn meðal helstu ljóðskálda en hef- ur ekki síst vakið athygli fyrir sögur sínar og æv- intýri. Sumar þeirra eru sannkallaðar hryllings- sögur, aðrar leynilög- reglusögur eða ævintýri eins og Ævintýri Artúrs Gordons Pym. Hryll- ingssaga má líka segja. Sagan er frá þeim tíma þegar Poe vann fyr- ir sér með því að skrifa í tímarit og birtist hún fyrst í bók 1838. Saga þeirra Artúrs og Ágústusar um borð í hvalveiðiskipinu Grampusi er dæmigert ævintýri um villi- mennsku á hafi úti. Artúr gerist laumufarþegi til þess að fá svalað löngun sinni til að lenda í ævintýrum og sjá ókunn lönd og höf. Lýsingin á lífinu um borð er með miklum ólíkindum. Poe gerist braut- ryðjandi í slíkum lýsingum enda er talið að hann hafi verið fyrirmynd þeirra Hermans Melville og Roberts Louis Stevensons. Hungur, þorsti og grimmd sem endar í mannáti einkennir lífið um borð í skipinu. Artúr horfist í augu við mannlífið í sinni auvirðilegustu mynd en fær líka að kynnast hetjuskap eins og vera ber. Það sem bjargar honum er viljinn til að lifa af og óbugandi þrautseigja. Sama kemur á daginn þegar hann er á meðal alvöru villimanna suður- skautslanda og stendur að lokum frammi fyrir hvítri mannveru með stærri líkamshlutföll en nokkurs sem lifir í mannheimum: „Og litblærinn á hörundi verunnar var fullkomlega hvítur eins og snjórinn.“ Dulmálshneigð höfundarins kem- ur fram í bókarlok. Poe hefur verið kunnugur veðrum og vindum og skipstjórn þótt oft beiti hann ýkjustílnum af mikilli íþrótt. Við lestur Ævintýra Artúrs Gord- ons Pym var ég þrásinnis minntur á lestrarefni bernsku- og unglingsára. Ekki get ég sagt að það hafi verið ætlun mín. Á eftir náði ég í þýðingu Einars Benediktsson- ar á Hrafninum og las einu sinni enn þetta einkennilega kvæði sem hefur alltaf sitt aðdrattarafl. Atli Magnússon sem á lof skilið fyrir margar þýðingar úr ensku skrifar að lok- um um Edgar Allan Poe og lýsir hinu raunalega lífi hans sem mótaðist af drykkjusýki og ann- arri fíkn. Atli hefur þýtt bókina lipurlega, trúr þeirri hugsjón að ævintýrabækur skuli þýða vel jafnt og aðrar bækur. Villimennska á sjó og landi BÆKUR Ævintýri ÆVINTÝRI ARTÚRS GORDONS PYM eftir Edgar Allan Poe. Atli Magnússon þýddi. Prentuð í Lettlandi. Skjaldborg 2003 – 189 síður. Jóhann Hjálmarsson Edgar Allan Poe Hvar? er mynda- bók handa börn- um eftir Guðrúnu Hannesdóttur. Áður hafa kom- ið út bækurnar Einhyrningurinn og Sagan af Pomperi- possu með stóra nefið. Bókin, sem er ætluð börnum á aldr- inum 3–7 ára, geymir sögu um stúlk- una Nönnu og orminn Hallorm sem leita svara við því hvers vegna lífsins gæðum er misskipt í heiminum. Þau leggja af stað í ævintýralegt ferðalag og hitta á leiðinni snjóhlébarða, pró- fessor, hispursmeyju og tvíhöfða fugl. En ef til vill eru þau að leita langt yfir skammt. Guðrún Hannesdóttir hefur áður sent frá sér fjölda barnabóka með eigin myndskreytingum og hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín. Út- gefandi er bókaútgáfan Bjartur. Bókin er 36 bls., prentuð í Danmörku. Verð: 1.880 kr. Myndabók Magnús Ólafsson ljósmyndari „Magnús var ljósmyndari Reykjavíkur og hann veitti okkur fjölþættari sýn á Reykjavík heldur en aðrir ljósmyndarar.“ Inga Lára Baldvinsdóttir, Magnús Ólafsson og framlag hans til íslenskrar ljósmyndunar, 2000. „...grein Eiríks um ljósmyndarann og heim hans heyrir til tíðinda í íslenskri menningarrýni. ... Hann dregur saman ólíka þræði tilvísana og kenninga, undirbyggir hugmyndir sínar jafnt á vísunum í Gröndal, Barthes og Sontag, og spinnur úr listavel skrifaðan vef.“ Einar Falur Ingólfsson, Mbl. „...tvímælalaust einn merkasti þátttakandinn í íslenskri ljósmyndasögu“ Einar Falur Ingólfsson, Mbl. Yfir 100 myndir af gömlu Reykjavík er að finna í bókinni ásamt vönduðum greinum á íslensku og ensku eftir Eirík Guðmundsson útvarpsmann og Guðmund Ingólfsson ljósmyndara.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.