Morgunblaðið - 16.12.2003, Side 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BÆKUR
Safn samískra
ljóða, Undir norð-
urljósum, í þýð-
ingu Einars Braga
er komið út.
Í bókinni eru
birt ljóð 14 sam-
ískra sam-
tímaskálda, hið
elsta fætt 1936
og hið yngsta 1974. Öll eru þau
kynnt með æviágripi. Þýðandi ritar
bæði formála og eftirmála að bók-
inni.
Í kynningu þýðanda segir að með
þessari bók ljúki sjö bóka flokki með
þýðingum á samískum skáldskap.
„Ég vænti þess að þetta megi telj-
ast breið kynning á ljóðum allra
samískra samtímaskálda sem gefið
hafa út eina eða fleiri ljóðabækur
auk nokkurra skálda sem ekki hafa
gefið út bók ennþá en eiga vegna
ótvíræðra hæfileika heima í verki af
þessu tagi. Í fyrstu bókinni eru auk
samtímaljóða sýnishorn jojktexta,
þjóðsagna og ævntýra frá fyrri öld-
um.“
Útgefandi er Ljóðbylgja og er bók-
in 161 bls., í kiljubroti, prentuð í
Steinholti.
Ljóð
Saga kvikmynda-
listarinnar er eft-
ir David Park-
inson. Þýðandi er
Vera Júlíusdóttir.
Ritstjóri er Guðni
Elísson.
David Park-
inson rekur þró-
un hreyfimynda
frá fyrstu skuggasýningunum til
kvikmynda samtímans. Hann gerir
grein fyrir undirstöðuatriðum og lyk-
ilpersónum í listrænni og tæknilegri
þróun greinarinnar og bókin er ein-
staklega tæmandi yfirlit yfir kvik-
myndagerð heimsins.
Bókin er hluti af ritröð Bók-
menntafræðistofnunar Háskóla Ís-
lands.
Útgefandi er Bókmennta-
fræðistofnun Háskóla Íslands og
Háskólaútgáfan. Dreifing: Háskóla-
útgáfan. 306 bls. Verð: 3.990 kr.
Saga
„Hvar eru konurnar?“ er spurning
sem öðru hvoru hefur heyrst í
þessu jólabókaflóði. Hún heyrist í
einkasamtölum þeirra sem eru
áhugamenn um samtímabók-
menntir og kjósa að lesa bækur eft-
ir bæði karla og konur og hún
glumdi víða í fjölmiðlunum í tilefni
af tilnefningum til íslensku bók-
menntaverðlaunanna. „Nú eiga
þeir sem telja konur eftir að fara af
stað“ sagði Eiríkur Guðmundsson í
útvarpsþættinum Víðsjá (enn sár
eftir athugasemdirnar sem hann
fékk í fyrra þegar bókin sem hann
ritstýrði, Skáld um skáld, þar sem
birtar voru greinar eftir sautján
karla og þrjár konur kom út). Já
hvar eru bækur kvennanna um
þessi jólin, frumsamdar skáldsögur
þeirra má telja á fingrum annarrar
handar og sama gildir um ljóða-
bækurnar. Í báðum þeim bóka-
flokkum er að finna verk sem hefðu
sómt sér vel meðal bóka tilnefndra
til bókmenntaverðlauna.
En það var ekki ætlunin að fetta
fingur út í tilnefningar til íslensku
bókmenntaverðlaunanna, nennir
því nokkur lengur? Hins vegar
langar mig að svara spurningunni
sem sett var fram hér í upphafi:
„Hvar eru konurnar?“ Það eru
nefnilega ekki færri konur en karl-
ar sem koma að bókaútgáfunni um
þessi jólin, líklega eru þær fleiri
þegar allt er talið. Konurnar skrifa
barnabækur, konurnar mynd-
skreyta barnabækur og konurnar
þýða. Af barnabókum segi ég
kannski fréttir síðar en nú langar
mig að tala um þýðingar.
Með ritdómi um skáldsöguna
Hálfbróðurinn eftir Lars Saabye
Cristensen í Lesbók
Morgunblaðsins 29.
nóvember síðastliðinn
birtist ljósmynd af
skáldinu og hinum ís-
lenska þýðanda þess.
Fyrir miðri mynd
blasir skáldið við, eins
og eðlilegt er. Til hlið-
ar við það stendur
þýðandinn, Sigrún Kr.
Magnúsdóttir, en ekki
er hægt að greina
andlitsdrætti hennar
því hún snýr andlitinu
að skáldinu en frá
þeim sem ljósmyndina
tekur. Þetta sjón-
arhorn á skáldið og þýðanda þess
segir í raun alla söguna um stöðu
þess síðarnefnda, við vitum að hann
er inni í myndinni en andlit hans er
okkur ókunnug, ósýnilegt og í fæst-
um tilvikum höfum við áhuga á því
að þekkja þýðandann. En í slíku
viðhorfi er að sjálfsögðu fólgið stór-
kostlegt vanmat á starfi þýðandans
sem er þegar best tekst til ekkert
ómerkilegri listræn sköpun en starf
þess höfundar sem þýddur er – get-
ur meira að segja stundum tekið því
fram.
Þýðingar á erlendum bók-
menntaverkum hafa oft átt undir
högg að sækja á íslenskum bóka-
markaði, enda kannski skiljanlegt
að frumsamdar íslenskar bækur
veki meiri forvitni í bókaflóðinu. En
það er eins og eitthvað sé að gerast
á sviði íslenskra bókmenntaþýðinga
núna, eftir nokkurra ára lægð. Á
markað streyma nú nýjar úrvals-
þýðingar á úrvals bókmenntaverk-
um (og endurútgáfur á öðrum) og
sérstaka athygli vekur
hversu konur eru að
koma sterkt inn sem
þýðendur. Á þetta er
vert að benda núna
þegar nöfn kvenna
heyrast lítið í bóka-
umræðunni fyrir jólin.
Þegar bókatíðindum er
flett kemur í ljós að
hlutfall kvenna og
karla meðal þýðenda
fagurbókmennta er
jafnt og ef þýðingar á
barna- og unglinga-
bókum eru teknar með
skjótast konurnar
fram úr.
Af athyglisverðum þýðingum
sem koma út núna fyrir jólin má
nefna Glerhjálminn eftir Sylviu
Plath, en þessi fertuga skáldsaga er
gott dæmi um nútímaklassík, verk
sem á skilið skilgreiningu sem
brautryðjandaverk í ýmsum skiln-
ingi. Verkið þýðir Fríða Björk
Ingvarsdóttir. Glerhjálminn má vel
skilgreina sem feminíska skáldsögu
og í þann flokk fellur einnig saga
hinnar sænsku Marianne Fredriks-
son um Maríu Magdalenu, en þýð-
andinn Sigrún Ástríður Eiríks-
dóttir hefur á undanförnum árum
þýtt margar af skáldsögum þessa
höfundar á íslensku. Einnig mætti
fella skáldsögu Michaels Cunn-
inghams, Stundirnar, sem kemur út
í íslenskri þýðingu Þorbjargar
Bjarnar Friðriksdóttur (sem áður
hefur þýdd Búddenbrooks-
fjölskyldusögu Thomasar Mann) í
flokk með feminískum skáldsögum.
Skáldsaga Cunninghams byggist að
verulegu leyti á ævi (og dauða)
Virginiu Woolf og skáldsögu henn-
ar Frú Dalloway og margir þekkja
kvikmyndina sem gerð var eftir
sögunni nýverið. Eins og í þeim
þremur skáldsögum sem þegar eru
nefndar er kona í miðju frásagn-
arinnar í öðru klassísku nútíma-
verki sem kemur út nú fyrir jólin,
Mannorðsmissi Katrínar Blum, eft-
ir hinn þýska Heinrich Böll í ís-
lenskri þýðingu Baldurs Ingólfs-
sonar. Sú ádeila sem þar er á
ferðinni á miskunnarleysi fjölmiðla
og sókn í æsifréttamennsku á ekki
síður við í dag en þegar verkið kom
fyrst út.
Af nýjum þýðingum má nefna
þrjár sem allar fjalla um ferð ein-
staklings til framandi menningar-
heima, þótt þær séu ólíkar að flestu
öðru leyti. Hér er um að ræða
fræga skáldsögu Edgars Allans
Poe, Ævintýri Arthurs Gordons
Pym, í þýðingu Atla Magnússonar,
sem gerist m.a. um borð í hval-
veiðiskipi og á Suðurheimskautinu.
Píanóstillirinn eftir Daniel Mason
er frumraun ungs bandarísks
læknanema sem byggir söguna á
rannsóknarferð sinni inn í Myan-
mar-frumskóginn á landamærum
Búrma og Taílands, en þangað fór
hann til að rannsaka malaríu. Það
er Halla Sverrisdóttir sem þýðir
verkið. Bóksalinn í Kabúl eftir
norsku blaðakonuna Åsne Seier-
stad fjallar hins vegar um dvöl höf-
undar hjá afganskri fjölskyldu í
Kabúl vorið eftir fall talíb-
anastjórnarinnar. Bókin sem þegar
er mjög umdeild er þýdd af Ernu
Árnadóttur.
Þá er skemmtilegt að sjá að nor-
rænar samtímabókmenntir eru að
öðlast sinn fasta sess meðal ís-
lenskra þýðinga. Auk verðlauna-
verks Saabye Christensen, Hálf-
bróðurins, og Maríu Magdalenu
eftir Fredriksson má nefna Elling.
Paradís í sjónmáli eftir hinn norska
Ingvar Ambjørnsen í þýðingu Ein-
ars Ólafssonar; Dýrðlegt fjölda-
sjálfsmorð eftir hinn finnska Arto
Paasilinna í þýðingu Guðrúnar Sig-
urðardóttur og Ristavél eftir hinn
danska Jan Sonnergaard í þýðingu
Hjalta Rögnvaldssonar. Það sem er
sérstaklega skemmtilegt við þessar
bækur er hvernig sérkenni hverrar
þjóðar fyrir sig kemur fram í þeim
(eða á ég að segja: goðsagan um
þjóðareðlið?). Einnig er vert að
geta um endurútgáfur á íslenskum
þýðingum Steinunnar Briem á bók-
unum um Múmínálfana eftir hina
finnsku Tove Jansson. Þær eru
klassík sem ekkert barn má fara á
mis við. Íslenskir lesendur ættu að
taka þýðingum á norrænum sam-
tímaskáldskap tveimur höndum, þó
ekki væri nema bara vegna þess
hversu fjölbreytilegur hann er – og
ólíkur breskum og bandarískum
samtímaskáldskap.
Hér hafa ekki verið taldar upp
allar þær erlendu bækur sem komu
út í íslenskum þýðingum þetta árið,
ótaldar eru til að mynda nokkrar
spennusögur sem margar hverjar
eru af háum gæðaflokki. En af því
sem hér hefur verið talið fram má
vera ljóst að útgáfa á íslenskum
þýðingum virðist í uppsveiflu og
hlutur kvenna er þar mikill. Hvort
tveggja finnst mér góðar fréttir.
Um konur og þýðingar
Soffía Auður Birgisdóttir
Soffía Auður Birgisdóttir
MIKIÐ bar á síðustu skáldsögu
Hallgríms Helgasonar, Höfundur Ís-
lands, enda mun sú bók vafalaust telj-
ast, þegar litið verður um öxl, lyk-
ilverk í skáldsagnagerð síðustu ára. Í
nýjustu bók sinni, Hr. Alheimur, eru
áherslur hins vegar aðrar og skyldi
bókin heldur borin saman við sumar
eldri skáldsögur höfundar, verk á
borð við Þetta er allt að koma og 101
Reykjavík, hvað óbeislaða gaman-
semi og áherslu á dægurmenningu
varðar. En óhætt er einnig að segja
að Hallgrímur ítrekar hér stöðu sína í
íslenskum bókmenntum sem allt í
senn, ruslakista og endurvinnslustöð
þjóðlegrar jafnt sem alþjóðlegrar há-
og lágmenningar, sem og eins manns
nýsköpunarsjóður tungumálsins.
Það sem fyrst fangar athygli
væntanlegs lesanda bókarinnar eru
frumlegar umbúðir: kápuhönnun
dregur dám af myndbandahylkjum
og auglýsingaplakötum kvikmynda.
Bandarískar kvikmyndastjörnur,
með Marlon Brando í fararbroddi,
skreyta kápuna, „kynningarljós-
myndir“ úr bókinni er að finna á
henni aftanverðri, einkennilega sem
það nú hljómar, og káputextinn
klykkir út með: „Sígild jólamynd frá
Máli og menningu“! Þegar lestur
hefst kemur líka í ljós að undirtitill
bókarinnar, „Hollywood-mynd“, á við
fleira að styðjast en frumlega kápu-
hönnun. Sagan sjálf fær á sig
yfirbragð sem liggur mitt á milli
kvikmyndahandrits og eins konar
kvikmyndaritunar, því að verið sé að
endursegja kvikmynd í orðum. Ekki
er nóg með að handritslegar tilvís-
anir sem kveða á um breytt sögusvið
séu algengar („cut to“ o.s.frv.) heldur
birtast þeir upphafstitlar og enda-
titlar sem maður á að venjast úr bíó á
viðeigandi stöðum í bókinni. Til að
kóróna bíólíkinguna er tekið fram
innan sviga hver leikur hvaða
persónu í fyrsta sinn sem hún stígur
fram á sjónarsviðið.
Þetta er það fyrsta
sem taka verður afstöðu
til. Það næsta er sögu-
þráðurinn. Þar greinir
ekki frá smámennum.
Reyndar er löng leit að
skáldverki sem skartar
jafngöfugum sögu-
hetjum. Guð er hér í aðal-
hlutverki ásamt ýmsum
helstu snillingum (og al-
ræmdum ófétum) mann-
kynssagnanna, en orðið
verður hér að vera í fleir-
tölu þar sem í bókinni er
snert á sögum ýmissa
þeirra sjö hundruð og
fjórtán mannkynja sem finna má á
dreif í smáhreppum og sólarsýslum
geimveldisins. Í upphafi verks stend-
ur Guð á tímamótum, óslökkvandi
þekkingarþrá og tæknihyggja hafa
fleytt mannkyninu á Jörðinni handan
leyfilegra marka í umsköpun sinni á
náttúrunni. Klónun er þar kornið
sem fyllir mælinn. Þegar Guð verður
þess var að maðurinn er farinn að
leika Guð ákveður hann að komið sé
nóg, kyn þetta sé til eintómra vand-
ræða, og hætta beri leik þegar hæst
stendur. Hann ákveður að útrýma lífi
á Jörð, og byggja hana að nýju með
öllu metnaðarlausari lífverum.
Fyrri helmingur sögunnar nýtur
ótvírætt góðs af dæmalausri hug-
myndaauðgi höfundar. Vel má
ímynda sér að Hallgrímur hafi
skemmt sér nær því jafnvel við að
skapa guðshýbýli og lesandi hefur af
því að kynnast þeim. Helstu hug-
myndum kristinna manna um himna-
ríki er öllum er snúið á hvolf. Hér
birtist okkur himnafaðir sem einna
helst líkist góðlegum, íbyggnum en
þó dálítið kaldranalegum gæludýra-
búðaeiganda sem megna óbeit hefur
á tilbeiðslutilburðum skjólstæðinga
sinna. Hann er vissulega dálítið stolt-
ur af verklegum og áþreifanlegum
eiginleikum, ásamt eðlisfræðilegum
lögmálum, sköpunarverksins en
skiptir sér lítið af framvindu atburða
og lífs innan þess umhverfis sem
hann hefur ákvarðað. Þannig lét
hann reyndar undan háværum kröf-
um framliðinna um að
búa sér einhvers kon-
ar líkamlegt eftirlíf, í
ætt við þær hugmynd-
ir sem ríkja á mörgum
hnöttum um verðlaun
á himnum, en gerði
það sérviskulega eins
og allt annað, og lét
sjálfum mönnunum
eftir að ákvarða hverj-
ir skyldu þar fá inn.
Sem gerir það að
verkum að við hlið al-
kunnra góðmenna er
líka að finna fígúrur
eins og Neró, Oswald
og Hitler. Gangvirki
lífsins er svo hin mikla endurholdg-
unarkenning sem, eins og hún starfar
hér, virðist eiga rætur í Platóni en
sálum er skutlað aftur til jarðar eftir
þörfum, og margar þær persónur
sem lesendur kynnast eiga að baki
fleira en eitt sögulegt æviskeið, og
bera merki þess í nöfnum sínum, eins
og t.d. Marteinn Lúther Lúther King
og Genghis Kahn Krupp. Hér líkt og
víðar er Hallgrímur á heljarinnar
flugi – húmorinn og hugmyndirnar á
hverju strái, framrás þeirra í raun
líkt og um beljandi fljót sé að ræða. Í
nöfnum persónanna og því hver leik-
ur þær felast öllu jafnan margvísleg-
ar vísanir og oft bráðfyndið að sjá
hverjum Hallgrímur blandar saman.
Framvindan er síðan knúin af til-
raunum útsjónarsamra jarðarbúa við
að koma í veg fyrir fyrirhugaða alút-
rýmingu mannkyns númer 607.
Reynist þar Napóleón Nixon margra
manna maki (sem hann bókstaflega
er) og tekur sér fyrir hendur ferðalag
niður til Vítis í von um bandalag við
Myrkrahöfðingjann til að steypa al-
föður. Hallgrímur tekst hér á við um-
fangsmikið viðfangsefni þar sem
undir liggur almættið sjálft, himna-
ríki og hel ásamt sköpunarverkinu í
heild. Þess má geta að viðlíka ferða-
lög eru vel þekkt í bókmenntasög-
unni en í gegnum aldirnar hefur
mönnum unnvörpum misheppnast
skáldleg útfærla á himnabústaðnum,
að mestu vegna þess að mál þeirra og
myndir voru færðar í fjötra af hvoru
tveggja, innri trúrækni og ytri valda-
boðum. Sköpunarmátturinn fékk í
slíkum tilvikum aftur á móti að njóta
sín í vandvirknislega smíðuðum pynt-
ingartólum og skipulagðri landafræði
Vítis. Hallgrímur hins vegar lætur
gamlar kreddur sig hvergi trufla,
enda óforskammaður helgimynda-
brjótur, og verð ég að viðurkenna að
mér fannst honum takast með ólík-
indum vel upp með himnaríki: drætt-
ir þessa upphafna íverustaðar eru
skýrir, frumlegir og lífið þar á köflum
bráðfyndið – þar gefur t.d. að líta eit-
urhnyttna senu þar sem kvenskör-
ungur mikill, Rox, húðskammar Guð
fyrir kaldlyndi í garð kvenna. Þá er
atriðið umhverfis fiskitrúarfólkið frá
Nordon afar velheppnað. Sjálfur er
Guð flóknasta persóna bókarinnar,
og sú sem býr yfir mestri dýpt. Hann
er klofinn og kvalinn, dularfullur og
mannlegur í senn, og einhvern veg-
inn fyllir hann yfirskilvitlegt hlutverk
sitt af reisn. Öllu lakari er hins vegar
áferð minni manna – hinir stórsögu-
legu íbúar himnaríkis eru flestir
heldur litlausir og nær engin tilfinn-
ing skapast fyrir jarðneskum „mik-
ilfengleika“ þeirra þar sem flestir
tala eins og nútímalegir Reykvíking-
ar, hvort heldur sem um er að ræða
mikil skáld eða stjórnmálaskörunga.
Þá er Víti í meðförum Hallgríms
heldur hefðbundnari sköpun en
himnaríki, saurugt, dimmt og fjand-
samlegt, og minnti um margt á frum-
stætt teknópartíið í Zion í Matrix 2.
Hr. Alheimur er skáldsaga sem
gengur, líkt og himnaríki í bókinni,
fyrir hugviti höfundar. Ímyndunarafl
og sköpunarþróttur, sem birtist ekki
síst í látlausum orðaleikjum og heil-
mikilli uppfinningasemi hvað um-
hverfi sögunnar varðar, eru einkenni
verksins ásamt frumlegum tilraunum
með form. Flest af þessu virkar
prýðilega, margt ókunnugt ber fyrir
sjónir sem og óvæntar aðferðir. Þetta
er gamanleikur um guðdóminn og
fyrir okkur mennina er um að ræða
fyrirtaks skemmtun sem á köflum
leynir á gagnrýnisbroddum.
Guðdómlegur gamanleikur
SKÁLDSAGA
Hr. Alheimur
Hallgrímur Helgason
287 bls. Mál og menning. Reykjavík.
2003
Björn Þór Vilhjálmsson
Hallgrímur Helgason