Morgunblaðið - 18.12.2003, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 2003 B 9
NVIÐSKIPTI BILL Gates, stofnandi og stjórn-
arformaður bandaríska tölvufyrir-
tækisins Microsoft, segir að tölvu-
og upplýsingatæknigeirinn sé núna
fyrst að verða spennandi, en sé ekki
dottinn úr tísku eins og sumir hafa
látið í veðri vaka eftir að tækni/net-
bólan sprakk eftir aldamótin síð-
ustu.
Bill Gates, eða William H. Gates
eins og hann heitir fullu nafni, er 48
ára gamall. Hann er kvæntur Mel-
indu French Gates og eiga þau þrjú
börn, Jennifer Katherine Gates, sjö
ára, Rory John Gates, 4 ára, og
Phoebe Adele Gates, eins árs.
Samkvæmt lista Forbes-tímarits-
ins bandaríska er Bill Gates ríkasti
maður í heimi og er auður hans met-
inn á 40,7 milljarða Bandaríkjadala
eða um 3.000 milljarða íslenskra
króna.
Í samtali við bandaríska tímaritið
Newsweek á dögunum sagði hann
að tölvutæknin væri á tímamótum,
en framundan væru nýjar uppfinn-
ingar og Microsoft ætlaði að draga
vagninn í þeim efnum.
Í viðtalinu við Newsweek kemur
fram að Microsoft sjái ýmsa
tímamótaáfanga framundan í hug-
búnaðargerð sem einkum snýr þá að
því að leysa eitthvað af hinum svo-
kallaða landamæravanda á milli not-
andans og vélarinnar, hvernig not-
andinn notar vélina. Hlýðir vélin
rödd hans, man hún hvernig hann
vill gera hlutina o.s.frv. „Svo á ým-
islegt eftir að leysa varðandi mörkin
á milli ýmissa tækja og búnaðar.
Aldrei nokkurn tíma hefur neitt
hugbúnaðarfyrirtæki eytt 6,9 millj-
örðun Bandaríkjadala (506 milljarð-
ar íslenskra króna) í að reyna að
leysa þessi vandamál, eins og Micro-
soft er að gera. Þannig að það á eftir
að koma í ljós hvort efasemdar-
mennirnir sem telja að allt sé komið
fram í þessum efnum, hafi rétt fyrir
sér, og þá verð ég að biðja hluthafa
Microsoft afsökunar, eða að þessar
tímamótaframfarir munu í stórum
dráttum verða eins og ég held fram.
Fyrir notendur búnaðarins þýðir
það stórt skref fram á við og það er
frábært fyrir þá að Microsoft skuli
vilja taka áhættuna af því að standa
að þessari framþróun.“
Hvað skilur á milli tímamótaupp-
götvunar og hefðbundinnar
framþróunar í hugbúnaðargerð,
spyr blaðamaður Newsweek.
„Tímamótauppgötvun er eitthvað
sem breytir hegðun hundraða millj-
óna manna sem myndu rísa upp og
segja ef breytingin yrði tekin aftur
frá þeim: „Þú getur ekki tekið þetta
af mér. “
Tímamótauppgötvanir eru mikil-
vægar fyrir okkur hjá Microsoft.
Það eina sem við fáum greitt fyrir
eru tímamótauppgötvanir, því fólk
sem er með hugbúnað okkar í dag
getur haldið áfram að nota hann út í
hið óendanlega án þess að greiða
okkur nokkurntíma eina einustu
krónu til viðbótar.“
Í janúar árið 2002 sagðirðu að þú
ætlaðir að leggja allt kapp á að gera
vörur Microsoft öruggar. Samt eru
enn að koma upp vandamál í hug-
búnaði ykkar. Þýðir það ekki að
kerfin virka ekki nógu vel, spyr
blaðamaður Newsweek Gates.
„Nei. Í öllum tilfellum voru til
lausnir. Ef fólk hefði sett upp eld-
veggi á tölvur sínar eða uppfært vír-
usvarnir og hlaðið inn öryggisvið-
bótum þá hefði það ekki átt í neinum
vandræðum.
Við þurfum að koma fólki betur í
skilning um nauðsyn þess að verja
tölvur sínar með þessum hætti.
Við erum með besta fólkið okkar
að vinna í öryggismálunum sem al-
gjöru forgangsmáli, og það er allt
sem við getum gert. Við verðum
metin á næstu árum í samræmi við
það hve vel við leysum þessi mál.“
Bill Gates kom inn á baráttuna
gegn ruslpósti í viðtalinu við News-
week. „Baráttan gegn ruslpósti er
frábær vettvangur fyrir framþróun í
hugbúnaði; að gera fólki auðvelt fyr-
ir að fá einungis póst frá þeim sem
það vill fá póst frá. Sú lausn sem
liggur beint við er að koma sér upp
hvítum lista, þar sem þú færð ein-
ungis póst frá fólkinu í símaskránni
þinni. Svoleiðis listi er þó ekki full-
kominn þar sem viðkomandi vill líka
geta fengið póst frá einhverjum þar
fyrir utan. Þannig að þá eru menn
með hugmyndir um að búa til sönn-
un fyrir því að sá sem sendir póstinn
sé raunverulegur maður, en ekki
ruslpóstsendari. Við erum að vinna
að þessum málum með öðrum fyr-
irtækjum og munum kynna niður-
stöður á næsta ári,“ er haft eftir
Gates í Newsweek.
Næsta stóra verkefni þitt er
Longhorn, nýjasta útgáfan af Wind-
ows. Af hverju heldur þú því fram
að það sé stærra framfaraskref en
nokkurt annað á síðustu 10 árum,
spyr blaðamaður Newsweek?
„Í dag er Windows frekar brota-
kennt. Það hvernig þú sýslar með
skjölin er ólíkt því hvernig þú sýslar
með tölvupóstinn, sem er aftur ólíkt
því hvernig þú sýslar með síma-
skrána. Þannig að við erum að losna
við fullt af sérhæfðum kerfum sem
gera PC erfiðari að vinna með. Við
gerum alla umsýslu aðgengilegri og
auðveldari. Þú getur fundið það sem
þú leitar að, skipst á því við aðra, og
þegar fólk er orðið vant þessu mun
það ekki vilja fara til baka í kerfið
sem það er að nota í dag.“
Nú hefur Microsoft Research
unnið mikið starf í leitartækni. Af
hverju hafið þið leyft Google að ná
yfirburðum í leit á Netinu?
„Af því að fyrir mistök yfirfærð-
um við ekki fullt af háþróuðum hug-
myndum okkar út í gerð vefleitar-
vélar. Við reiddum okkur á birgja
utan fyrirtækisins fyrir hluta af
okkar leit. Þar eru okkar mistök.
Það er mikil þörf fyrir betri leit á
Netinu og ég held að menn eigi eftir
að sjá okkur koma fram með nýj-
ungar á þessu sviði. Við settum
þetta mál ekki í forgang eins og við
hefðum átt að gera, en fyrir ári
sáum við að okkur og erum að vinna
í málinu,“ að sögn Gates í News-
week.
Skattamál Gates bar á góma í við-
talinu við Newsweek og spurði
blaðamaðurinn Gates út í hærri arð-
greiðslur Microsoft.
Microsoft tilkynnti nýlega að það
ætlaði að greiða út meiri arð en
venjan er. Þú sem stór hluthafi í fé-
laginu færð stóran hluta arðsins, og
þar að auki er að verða breyting á
skattalögunum þannig að arðurinn
verður skattlagður lægra en áður.
Hvað finnst þér um að ríkisstjórnin
geri slíkar breytingar sem
eru þér jafn hagfelldar,
spyr Newsweek?
„Ég er nú enginn sér-
færðingur í skattamálum.
Ég var sjálfur enginn tals-
maður þess að skattar
yrðu færðir, hvorki upp né
niður. Ég borga mikla
skatta á hverju ári. Ég
borga svo mikið að tölurn-
ar komast ekki fyrir á
hefðbundnum tölvuskjá
skattayfirvalda, en ég er
ánægður með að greiða
mína skatta,“ var svar Ga-
tes.
Í viðtalinu kemur fram
að faðir Bills Gates hafi
talað opinberlega um að
rétt sé að viðhalda eigna-
skatti, en hann sjálfur hafi
ekki tjáð um málið, þrátt
fyrir að þetta snerti Bill
Gates gríðarlega mikið.
„Mitt tilfelli er dálítið
óvenjulegt, þar sem öll
aukning auðæfa minna fer
til góðgerðarstofnunar
minnar, og ég vona það
skili sér til baka til samfélagsins á
áhrifaríkan hátt, þá á ég við til heil-
brigðismála og menntunar. Það er
ekki eins og ég fari að kaupa mér
fleiri hamborgara ef ég eignast enn
meiri pening, eða eitthvað þvíum-
líkt,“ að því er fram kom í viðtali við
Bill Gates í Newsweek.
Bill Gates segir í samtalinu við
Newsweek að viðhorf og tilfinning
manns gagnvart peningum mótist
rétt eftir tvítugsaldurinn. „Pabbi
var lögfræðingur og naut velgengni,
og við vorum þar með líklega í efri
millistétt. Hann gat sent mig í
einkaskóla og í skólanum skilgreindi
ég mig ekkert endilega í millistétt.
Ég vona að viðhorf mitt gagnvart
peningum hafi ekki brenglast svo
mjög síðan þá og þess sjái stað í því
hvað ég læt börnin mín hafa í vasa-
pening. Nýlega vorum við hjónin að
tala við krakkana um börn sem fá
ekki að borða, veik börn og svoleið-
is. Það er áhugaverð umræða enda
hafa börnin margs að spyrja. Þegar
börnin okkar verða eldri getum við
vonandi tekið þau með í ferðalög og
sýnt þeim heiminn, sem verður
mjög gaman.“
Dettur þér aldrei í hug að fara í
ársfrí og ferðast, eða vera meira
með fjölskyldunni, spyr Newsweek.
„Ef það væri ekki alltaf svona
gaman hjá mér í vinnunni væri það
vissulega mjög skemmtilegt að gera
það. Ég mun vonandi finna einhvern
tíma til þess á þessum áratug, að
taka mér nokkra mánuði í frí. En ég
vil leggja mitt af mörkum við Long-
horn og fullvissa mig um að það
verði stórkostlegt í allri gerð. Ég vil
hjálpa til við að leysa öryggisvanda-
mál; og sjá til þess að við náum öðr-
um markmiðum okkar. Nú sértak-
lega, þegar fólk almennt er ekki
trúað á að miklar framfarir eigi eftir
að eiga sé stað í upplýsinga-
tækninni, langar mig að sýna fram á
hið gagnstæða. Þannig að ef ég
stæði ekki frammi fyrir þessum
verkefnum myndi ég líklega fara í
frí,“ að því er fram kom í viðtali við
Gates.
Þú hefur unnið að hugbúnaðar-
gerð í nærri 30 ár núna, ertu enn
jafnspenntur?
Já, það er ég. Núna getur maður
komið meiru til leiðar en áður fyrr.
Það samt margt sem flækir málin
þegar maður er kominn í stórt fyr-
irtæki, en við erum að gera hluti
sem ég hef hugsað um og langað að
gera í næstum 20 ár. Það er frábært
að hafa jafnmikil framlög í rann-
sóknir og þróun og raun ber vitni,
sem og þann vélbúnað sem til þarf,
og geta loksins sagt: Á þessum ára-
tug munum við gera margt af þessu
að veruleika,“ segir Bill Gates í við-
tali við Newsweek.
Spennandi tímar
framundan
Reuters
Bill Gates, stofnandi og stjórnarformaður Microsoft.
Frelsi er
00:01:15
af hamingju
TÍMASETTU ÞÍNAR ÁSKORANIR
…augnablik til eilífðar
KRINGLAN/LEIFSSTÖÐ
SÍMI 588 7230
w w w . l e o n a r d . i s
–
–
–
–
–
–
–
–
–
–
–
Glæsileg karlmanns, títan-
og stálúr.
Svissnesk quartz úrverk með
safírgleri.
Vatnsvarin niður að 100 metrum.
Með dagatali.
Glæsileg stálúr.
Svissnesk quartz úrverk
með hertu gleri.
Vatnsvarin niður að 50 metrum.
Með dagatali.
Glæsileg kvenmanns stálúr.
Svissnesk quartz úrverk með hertu gleri.
Vatnsvarin niður að 50 metrum.