Morgunblaðið - 05.01.2004, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2004 33
DAGBÓK
Frá nemendasýningu í Borgarleikhúsinu
Innritun og upplýsingar
í síma 561 5620
frá kl. 14-17
Kennsla hefst
12. janúar
Gleðilegt ár!
ÁRNAÐ HEILLA STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þú býrð yfir vandvirkni og
staðfestu og átt auðvelt með
að vinna með öðrum. Þrátt
fyrir glaðlegt fas áttu einnig
þínar alvarlegri hliðar. Fjöl-
breytt og spennandi félagslíf
mun einkenna þetta ár.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert sérlega næm/ur fyrir
þörfum annarra og ert því
tilbúin/n að aðstoða vin þinn í
dag.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú munt hugsanlega öðlast
nýjan skilning á einhverju og
það mun með einhverjum
hætti breyta langtímamark-
miðum þínum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú munt njóta þess að vinna
með öðrum í dag. Þetta á sér-
staklega við um störf á
sjúkrastofnunum og í þágu
þeirra sem minna mega sín.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú munt hafa gaman af því að
kynna þér eitthvað óvenju-
legt í dag. Þig langar til að
auka skilning þinn og bæta
þekkingu þína.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þig þyrstir í nýjar hug-
myndir. Þú gætir hugsalega
fundið svölun í því að kynna
þér heimspeki og framandi
trúarbrögð. Þú leitar dýpri
skilnings á heiminum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Ef þú þarft aðstoð einhvers
þá er þetta góður dagur til
þess. Fólk er tilbúið að leggja
lykkju á leið sína til að að-
stoða þig. Þetta á sérstaklega
við um vinnufélaga þína.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú vilt gera allt sem þú getur
til að styðja við bakið á börn-
um og öðrum ástvinum þín-
um í dag. Þú átt auðvelt með
að láta þarfir annarra ganga
fyrir þínum eigin þörfum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ert ekki jafn upptekin af
sjálfri/sjálfum þér og þú hef-
ur verið að undanförnu. Þetta
ætti að greiða fyrir hvers
konar samvinnu. Þú sérð
hluti sem þú hefur hingað til
látið framhjá þér fara.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Sköpunargáfa þín er með
mesta móti. Þú munt njóta
listsköpunar, samvista við
börn og skemmtana með vin-
um þínum í dag.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þig langar til að hjálpa ein-
hverjum í fjölskyldunni. Þú
hefur þörf fyrir að bæta þig
og að verða betri manneskja.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Gefðu þér tíma til að vera
ein/n með sjálfri/sjálfum þér í
dag og til að velta fyrir þér lífi
þínu og því hvert þú stefnir.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ert tilbúin/n að verja pen-
ingum í annarra þágu í dag.
Þetta gætur bæði átt við um
góðgerðarstarf og fólk sem er
náið þér.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 6. september sl. í
Fríkirkjunni í Hafnarfirði af
sr. Einari Eyjólfssyni þau
Íris Davíðsdóttir og Bald-
vin Elíasson.
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 19. júlí sl. í Fríkirkjunni í
Reykjavík af sr. Hirti Magna Jóhannssyni þau Emma
Björnsdóttir og Sephane Frappatt.
MÖRG spil eiga sér
þungamiðju, eins konar
miðpunkt, sem allt snýst
um. Spaðagosinn er
þungamiðjan í þessu
spili:
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠K1074
♥Á7
♦10862
♣KG5
Suður
♠D92
♥K83
♦ÁD7
♣ÁD64
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 grand
Pass 2 lauf Pass 2 tíglar
Pass 3 grönd Allir pass
Vestur kemur út með
hjartafimmu, fjórða
hæsta. Hver er áætlun-
in?
Samningurinn er
sterkur, en ekki öruggur.
Ef hjartað er 5-3 og
sagnhafi finnur ekki
spaðagosann, gæti vörnin
fengið tvo slagi á spaða
og þrjá á hjarta. En til
að byrja með er sjálfsagt
að gefa fyrsta slaginn.
Austur fær á hjarta-
drottningu og spilar tí-
unni til baka á ás blinds.
Nú er eðlilegt að spila
spaða á drottninguna.
Hún heldur. Einhverjar
hugmyndir?
Það virðist rökrétt að
spila næst spaða á tíuna,
en auðvitað er ekki loku
fyrir það skotið að vestur
hafi dúkkað spaðadrottn-
inguna með ásinn þriðja:
Norður
♠K1074
♥Á7
♦10862
♣KG5
Vestur Austur
♠Á65 ♠G83
♥G9652 ♥D104
♦G3 ♦K954
♣1072 ♣983
Suður
♠D92
♥K83
♦ÁD7
♣ÁD64
Það væri vont ef aust-
ur fengi næsta slag á
spaðagosa. Hann myndi
brjóta hjartað og nú þarf
sagnhafi að gera upp við
sig hvort hann spilar enn
spaða eða svínar tígul-
drottningu.
Þá ágiskun má losna
við með því að bíða með
spaðann og svína strax í
tígli. Sem sagt; eftir að
spaðadrottningin heldur,
er best að fara inn í borð
á lauf og spila tígli á
drottningu. Í þessu til-
felli skilar það níunda
slagnum, en ef vestur
hefði átt kónginn mætti
enn reyna við spaðann.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6
4. e5 Rfd7 5. Rce2 c5 6. f4
Rc6 7. c3 Da5 8. Rf3 b5 9.
Bd2 Db6 10. f5 Be7 11. Rf4
0-0 12. Bd3 cxd4 13. cxd4
Rxd4 14. f6 Rxf6 15. exf6
Bxf6 16. Rxd4 Bxd4 17.
De2 Bb7 18. Bc3 Bxc3+ 19.
bxc3 e5 20. Rh5 g6 21. Rg3
Hac8 22. Dd2
Staðan kom upp í
alþjóðlegu móti
sem fram fór í
Belfourt í Frakk-
landi. Sigurvegari
mótsins Mikhail
Gurevich (2.656)
hafði svart gegn
Hichem Hamdo-
uchi (2.588). 22. –
b4! Með þessari
snjöllu peðsfórn
kemur svartur mið-
borðsfrípeðunum
sínum af stað og
við það hrynur
hvíta staðan til
grunna. 23. cxb4 e4 24. Be2
d4 25. Bg4 e3 26. Db2 Hc4
27. 0-0 Hxb4 28. Da3 d3 29.
Kh1 Hxg4 30. Dxd3 Ba6
31. Dd7 Hc4 og hvítur gafst
upp. Lokastaða mótsins
varð þessi: 1. Mikhail Gure-
vich (2.656) 7 vinninga af 10
mögulegum. 2. Laurent
Fressinet (2.654) 6 v. 3.
Christian Bauer (2.602) 5½
v. 4. Pavel Tregubov (2.635)
5 v. 5. Jean-Pierre Le Roux
(2.480) 3½ v. 6. Hichem
Hamdouchi (2.588) 3 v.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
FERÐALAGIÐ
Ríkismanns mig rak að setri,
ráðin engin þekkti betri,
af sulti kominn mjög í mát.
Sá ég vera soðið slátur,
sál mín rak upp skellihlátur,
og gufuna með græðgi át.
Einmitt var það allur greiði,
eg sem hlaut af krásar seyði;
dró ég mig á beizla bát.
Sál mín vön við sultarhaginn
samt af slórði þennan daginn
og vonir sínar allar át.
Hjálmar Jónsson í Bólu
LJÓÐABROT
Skugginn/ Barbara Birgis
Skugginn/ Barbara Birgis
Skugginn/Barbara Birgis
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 4. október sl. í Kópa-
vogskirkju af sr. Ægi Fr.
Sigurgeirssyni þau Hrönn
Traustadóttir og Tómas
Jónsson.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Frjálshyggjufélaginu:
„Frjálshyggjufélagið harmar áform
um lagasetningu varðandi hringa-
myndun í viðskiptum. Slíkar aðgerðir
eru til þess fallnar að setja eigendum
fyrirtækja og einstaklingum skorður
við að finna það rekstrarform og að-
ferðir sem hagkvæmastar eru hverju
sinni. Til lengri tíma litið er líklegt að
slík lagasetning komi niður á neytend-
um, enda hefur hið opinbera ekki þá
hvata né þær upplýsingar sem einka-
aðilar hafa við ákvarðanir sínar. Vald
sem fengið er opinberum stofnunum
til að vinna gegn hringamyndun verð-
ur illa notað, eins og flest opinbert
vald. Hið opinbera hefur of mikil af-
skipti af viðskiptalífinu og tekur af-
stöðu til margvíslegra álitamála án
þess að hafa nokkrar forsendur til.
Athuga skal að mörg íslensk fyrir-
tæki eru í samkeppni við erlend fyr-
irtæki. Fyrirtæki sem þykja stór á ís-
lenskan mælikvarða eru e.t.v.
agnarsmá á aðra mælikvarða.
Íslenskur markaður er lítill og ung-
ur. Lausnin á hugsanlegri fákeppni á
litlum markaði er að opna markaðinn
og tengja við stóra erlenda markaði
um allan heim. Vaxtafrelsi og frelsi í
fjármagnsflutningum hefur nú þegar
sannað gildi sitt. Mikilvægi frjálsra
fjármagnsmarkaða fyrir samkeppni á
öllum sviðum er gjarnan stórlega van-
metið. Stórfyrirtæki eru lítil í saman-
burði við fjármagnsmarkaðinn og geta
illa haldið uppi aðgangshömlum ef aðr-
ir aðilar með fjármagn geta keppt við
þá.
Auka þarf frelsi til fjármagnsflutn-
inga og viðskiptafrelsi almennt. Næsta
skref ætti að vera afnám tolla, aukið
fjárfestingafrelsi útlendinga hér á
landi og rýmri löggjöf sem auðveldar
fjárfestingar og aðkomu erlendra fyr-
irtækja. Ef stór fyrirtæki geta haldið
smáum fyrir utan markaði, er það
venjulega vegna afskipta og hafta rík-
isins. Ef ekki er beinlínis bannað fyrir
vissa aðila að hefja samkeppni á til-
teknum markaði, er það gjarnan gert
erfitt með ýmiss konar kvöðum og
gjöldum.
Frjálsum markaði er ranglega
kennt um ýmiss konar óþægindi sem
hið opinbera skapar neytendum. Hin
svokallaða lausn stjórnmálamanna er
svo að skapa enn frekari óhagkvæmni
og óþægindi með meiri ríkisafskiptum.
Hugsanlega dettur stjórnmálamönn-
um einhvern tíma síðar í hug að leið-
rétta þá galla með enn frekari opin-
berri íhlutun. Þannig halda
stjórnmálamennirnir stöðugt áfram að
telja fólki trú um nauðsyn opinberra
afskipta.“
Harma áform
um lög vegna
hringamyndunar
FRÉTTIR