Morgunblaðið - 05.01.2004, Qupperneq 3
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2004 B 3
Ármúla 36 108 Reykjavík
sími 588 1560
Smelltu þér í boltann. St. 32-38 og 39-47
Nike Air Zoom Noventa
St. 39-47 verð kr. 12.490.-
Nike Zoom Total 90
St. 32-38.5 verð kr. 4.990.-
St. 39-47 verð kr. 6.490.-
Mitre Turbo
St.28-38.5 verð kr. 3.990.-
St. 39-47 verð kr. 4.990.-
Adidas Gammanova/Funkster
St. 32-38.5 verð 3.990.-
St. 39-47 verð 5.490.-
Frammistaða Watford, sem er ífjórða neðsta sæti 1. deildar,
kom verulega á óvart og hið dýra lið
Chelsea mátti þakka sínum sæla fyr-
ir að sleppa með jafnteflið og fá ann-
an leik á sínum heimavelli þann 14.
janúar. Reyndar eru forráðamenn
Watford ekki sérlega óhressir með
þá niðurstöðu, þeir fengu gífurlegar
tekjur af leiknum á laugardag og
eiga von á öðru eins vegna síðari við-
ureignarinnar við stórliðið, sem er í
þriðja sæti úrvalsdeildarinnar.
Heiðar skallaði boltann upp í
markvinkilinn og þaðan niður á
marklínuna, strax á 5. mínútu. Dóm-
arinn benti á miðju eftir að hafa ráð-
fært sig við aðstoðardómarann en
ljóst var af sjónvarpsmyndum að
boltinn fór aldrei yfir marklínuna.
Eiður jafnaði úr vítaspyrnu á 32.
mínútu eftir að Jesper Grönkjær var
felldur en Gavin Mahon svaraði, 2:1,
100 sekúndum síðar - með skalla eft-
ir fyrirgjöf, en Mahon og Heiðar
virtust reyndar báðir reka höfuðið í
boltann samtímis. Markið kom eftir
aukaspyrnu sem Watford fékk þeg-
ar brotið var á Heiðari rétt utan víta-
teigs. Frank Lampard jafnaði fyrir
Chelsea rétt fyrir hlé og þar við sat.
Ray Lewington, knattspyrnu-
stjóri Watford, var hvergi banginn
þrátt fyrir að hans mönnum tækist
ekki að leggja stórliðið á sínum
heimavelli. „Það er aldrei að vita
hvað gerist þegar við mætum þeim
aftur. Við vorum afskrifaðir áður en
þessi leikur hófst, og við eigum enn
erfiðara verkefni fyrir höndum á
Stamford Bridge. En það hafa oft
orðið óvænt úrslit í bikarnum og
kannski getum við átt hlut að einum
slíkum til viðbótar. Það er enga
áberandi veikleika að finna í liði
Chelsea, en við höfðum þá tilfinn-
ingu að ef þeir væru einhvers staðar
viðkvæmir fyrir, þá væri það í fyr-
irgjöfum og uppstilltum atriðum,“
sagði Lewington, en þar kom einmitt
mest til kasta Heiðars Helgusonar
sem vann hvað eftir annað návígi við
þá Marcel Desailly og William
Gallas.
Reuters
Sean Dyche og Gavin Mahon fagna Heiðari Helgusyni, eftir að hann kom Watford á bragðið.
Íslensk mörk í óvæntu jafn-
tefli Watford og Chelsea
HEIÐAR Helguson og Eiður Smári Guðjohnsen voru í sviðsljósinu á
laugardaginn þegar lið þeirra, Watford og Chelsea, skildu jöfn, 2:2,
í 3. umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu. Sérstaklega
Heiðar sem skoraði mark, reyndar afar umdeilt, strax á 5. mínútu,
en hann gerði varnarmönnum Chelsea lífið leitt allan tímann. Eiður
Smári skoraði fyrra jöfnunarmark Chelsea, úr vítaspyrnu.
RAY Lewington, knattspyrnustjóri
Watford, hrósaði Heiðari Helgusyni
mjög fyrir frammistöðu hans í bik-
arleiknum Chelsea á laugardag. Heið-
ar var einn í framlínu Watford en var
ógnandi allan tímann og vann fjölmörg
einvígi við Marcel Desailly, fyrirliða
Chelsea og lykilmann í heims- og Evr-
ópumeistaraliði Frakka á und-
anförnum árum.
„Það hefði enginn annar í okkar liði
getað verið einn frammi í þessum leik.
Þetta er afar erfitt, stöðug hlaup og
barátta við tvo miðverði, en Heiðar var
stórkostlegur. Hann gerði Desailly líf-
ið leitt hvað eftir annað, skoraði fyrsta
markið með skalla, var hættulegur í
loftinu hvað eftir annað, hljóp og lok-
aði svæðum. Á síðustu mínútu leiksins
hafði hann enn kraft til að vinna okkur
hornspyrnu sem var alls ekki í spil-
unum. Heiðar er okkur geysilega þýð-
ingarmikill og í dag sýndi hann ná-
kvæmlega í hverju það er fólgið,“
sagði Lewington á heimasíðu Watford
eftir leikinn.
„Heiðar
var stór-
kostlegur“
CLAUDIO Ranieri, knattspyrnustjóri Chelsea, var að vonum ekki ánægður
með þá ákvörðun dómara og aðstoðardómara að úrskurða að Heiðar
Helguson hefði skorað mark fyrir Watford á 5. mínútu í bikarleik liðanna á
laugardaginn. Heiðar skallaði yfir Neil Sullivan, boltinn fór upp í sam-
skeytin á markinu og þaðan niður á marklínuna en sjónvarpsmyndir sýndu
að hann fór aldrei yfir hana.
Ranieri krafðist þess að myndavélum yrði komið fyrir í mörkum til að
koma í veg fyrir vafaatriði á borð við þetta. „Ég geri mistök, og það sama
er að segja um leikmenn, dómara og aðstoðardómara. En það hlýtur að
koma að því að á öllum leikvöngum, sérstaklega í úrvalsdeildinni, verði
skylda að koma fyrir myndavélum sem skeri ótvírætt úr í svona tilvikum
um hvort mark sé skorað. Þetta segi ég ekki bara vegna þess að við urðum
fyrir barðinu á þessu í dag,“ sagði Ranieri eftir leikinn, sem endaði 2:2.
Ray Lewington, knattspyrnustjóri Watford, viðurkenndi að heppnin
hefði verið með sínu liði þegar markið var úrskurðað gilt. „En þetta jafnar
sig alltaf út, við teljum að við hefðum átt að fá vítaspyrnu í síðari hálfleik
þegar Gavin Mahon var kominn í gegn og virtist vera felldur,“ sagði Lew-
ington.
Ranieri vill fá myndavélar
vegna marks Heiðars
DAVID Beckham meiddist á fæti á
laugardag þegar Real Madrid sigraði
Real Murcia, 1:0, í spænsku 1. deild-
inni. Sauma þurfti fjögur spor í ökkla
Beckhams sem missir væntanlega af
bikarleik liðsins í vikunni. Það var
Raúl sem skoraði eina mark leiksins.
VICTOR skoraði þrennu fyrir De-
portivo La Coruna sem lék Celta
Vigo grátt, 5:0, á útivelli í nágranna-
slag liðanna í spænsku 1. deildinni á
laugardagskvöldið.
MIGUEL Angel Lotina, þjálfari
Celta Vigo, bað stuðningsmenn fé-
lagsins afsökunar á frammistöðu liðs-
ins. Celta Vigo er meðal neðstu liða
þrátt fyrir að vera komið í 16-liða úr-
slit í Meistaradeild Evrópu.
PORTSMOUTH hefur fengið
finnska varnarmanninn Petri Pas-
anen að láni frá Ajax í Hollandi út
þetta tímabil. Pasanen er 23 ára og
lék um tíma stórt hlutverk í varnar-
leik Ajax en hefur átt erfitt uppdrátt-
ar upp á síðkastið.
DAVID O’Leary, knattspyrnu-
stjóri Aston Villa, sagði í gær að Juan
Pablo Angel væri alls ekki á förum
frá félaginu. Angel, sem hefur skorað
13 mörk fyrir Villa í vetur, vildi vera
um kyrrt en hann hefur verið orðaður
við ensku toppliðin að undanförnu, að-
allega Arsenal. „Ég vona að sem flest-
ir okkar manna verði orðaðir við stóru
félögin því það þýðir að þeir séu orðn-
ir góðir leikmenn,“ sagði O’Leary.
DONOVAN Ricketts, landsliðs-
markvörður Jamaíka í knattspyrnu,
gekk um helgina til liðs við Bolton
Wanderers en hann hefur æft með
liðinu undanfarinn mánuð. Sam All-
ardyce, knattspyrnustjóri Bolton,
segir að Ricketts eigi mikla mögu-
leika og muni veita hinum tveimur
markvörðum félagsins harða keppni.
FORRÁÐAMENN Bayern
München sögðu í gær að þýski lands-
liðsmaðurinn Sebastian Deisler væri
ekki tilbúinn til að hefja æfingar með
liðinu á ný. Deisler dró sig í hlé og fór
í meðferð vegna þunglyndis fyrir
nokkrum vikum. Hann fer ekki með
Bayern í æfingaferð til Dubai síðar í
þessum mánuði og verður því vænt-
anlega ekki með þegar deildakeppnin
hefst á ný um mánaðamótin.
FÓLK