Morgunblaðið - 05.01.2004, Qupperneq 5
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2004 B 5
þá, það varð hins vegar þeirra hlutskipti í
kvöld,“ sagði Eggert Maríuson, þjálfari
ÍR-inga, að leik loknum.
Auðvelt hjá Haukum
Ísfirðingar, án tveggja tveggja metra leik-manna, áttu lítið erindi í klær Hauka á
Ásvöllum í gærkvöldi enda þróaðist leikur-
inn þannig að áherslan var
lítil á varnarleik og allt
kapp lagt á að skora.
Haukar unnu örugglega
118:71.
Með þremur þriggja stiga körfum tókst
gestunum frá Ísafirði að ná 11:10-forystu en
lengra komust þeir ekki. Jafnt og þétt náðu
Haukar öllum völdum á vellinum, í þriðja
leikhluta héldu Ísfirðingar sjó en héldu það
ekki út. „Við fórum í leikinn vitandi að Ísfirð-
ingar væru vængbrotnir en þeir hafa alltaf
getað skorað og við ætluðum að halda þeim
undir ákveðnum stigafjölda en leikurinn
þróast út í hálfgerða vitleysu,“ sagði Reynir
Kristjánsson, þjálfari Hauka, eftir leikinn.
„Allir vildu fá góðan bita af kökunni og menn
hugsuðu meira um hvenær þeir kæmust í
næstu sókn en að spila vörn.“
Tveir erlendir leikmenn Ísfirðinga náðu
ekki til landsins í tæka tíð og munar um
minna, Serbinn Darko Ristic og nýr leik-
maður, Shon Eilenstein, misstu af flugi.
Pétur Sigurðsson var drjúgur þegar hann
skoraði úr öllum 14 vítaskotum sínum en
Ísfirðingar skoruðu einmitt úr öllum 23 vít-
um sínum.
Morgunblaðið/Sverrir
iðabliksmaðurinn Uros Pilipovic á fullri ferð gegn KR-ingum í gærkvöldi.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Ull/Kisa kemur frá bænum Jess-heim við Gardemoen-flugvöll,
rétt utan við Ósló. Liðið vann 22 af
26 leikjum sínum í 2. deildinni í
fyrra en komst samt ekki í úrslita-
keppni um sæti í 1. deild.
„Mér skilst af það hafi aldrei
gerst áður í þessari deild að lið með
66 stig hafi ekki komist í úrslit.
Liðið er með ágætan leikmanna-
hóp, missti reyndar lykilmenn við
það að komast ekki upp í 1. deild-
ina, en það er mikill efniviður fyrir
hendi og aðstæður hjá félaginu eru
frábærar. Það er mikill metnaður
og áhugi fyrir því að ná langt og
markmiðið er að koma liðinu upp í
1. deild og festa það þar í sessi. Ull/
Kisa er ekki með mikinn fjárhags-
legan stuðning og í bæjarfélagið
vantar hefðina fyrir því að vera
með fótboltalið í fremstu röð, en
það myndi væntanlega breytast ef
við færum upp um deild,“ sagði
Teitur.
Skagamaðurinn kvaðst hafa átt
möguleika á að fara annað. „Mér
stóð til boða að þjálfa lið í úrvals-
deildinni og jafnframt að þjálfa er-
lendis, en mér fannst Ull/Kisa mjög
spennandi kostur og sló því til.
Þetta er ekki ósvipað því þegar ég
fór til Eistlands á sínum tíma og
vann við að byggja upp fótboltann
þar í fjögur ár. Ég samdi til eins
árs með opinn möguleika á að
framlengja samninginn, og svo
kemur í ljós hvernig mér líkar hjá
félaginu og hvernig þeim líkar við
mig,“ sagði Teitur Þórðarson.
Teitur verður 52 ára í næstu viku
og hann hefur þjálfað erlendis frá
1987, í Svíþjóð, Noregi og Eist-
landi, þar af ellefu ár í norsku úr-
valsdeildinni. Áður var hann at-
vinnumaður í tíu ár og lék í
Svíþjóð, Frakklandi og Sviss.
„Spennandi að taka
þátt í uppbyggingu“
TEITUR Þórðarson samdi um helgina við norska 2. deildarliðið Ull/
Kisa um að þjálfa það á komandi keppnistímabili. Teitur er með
mikla reynslu úr norsku úrvalsdeildinni, var síðast með Lyn en áður
með Brann og Lilleström. Hann sagði við Morgunblaðið í gær að
það væri mjög spennandi verkefni að taka að sér lið Ull/Kisa og
áskorun fyrir sig að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem þar ætti sér
stað.
Teitur Þórðarson tekinn við norsku 2. deildarliði
Árni Gautur sagði við Morg-unblaðið í gær að hann hefði
aðeins heyrt af
áhuga Fredrikstad
en ekkert frá Våle-
renga.
„Þetta er allt gal-
opið hjá mér enn sem
komið er. Ég vil
helst fara eitthvað
annað en til liðs í
Noregi, en vonandi
skýrist það sem
fyrst. Annars er
fyrsta mál á dagskrá
hjá mér að komast í
æfingu á ný eftir
uppskurðinn á öxl-
inni sem ég fór í fyr-
ir jólin, þannig að ég
sé tilbúinn í slaginn
ef ég þarf að fara
eitthvað með stuttum
fyrirvara til æfinga,“ sagði Árni
Gautur í gær, nýkominn af sinni
fyrstu æfingu eftir aðgerðina, en
hann æfði þá undir stjórn Guð-
mundar Hreiðarssonar í Fífunni í
Kópavogi. Árni Gautur var að búa
sig undir flutning
til Austurríkis þeg-
ar í ljós kom að
ekkert yrði af fé-
lagaskiptunum til
Sturm Graz. „Þetta
gerðist skyndilega,
tveimur dögum
fyrir áramótin. Það
urðu breytingar á
síðustu stundu, fé-
lagið fékk annan
markvörð ókeypis
og þetta kom mér í
opna skjöldu því
samningurinn minn
hafði nánast legið
á borðinu í nokkra
mánuði. En hlut-
irnir geta verið
fljótir að breytast í
fótboltanum og vonandi þróast
þetta þá þannig að ég fái eitthvað
betra í staðinn,“ sagði Árni Gaut-
ur Arason.
Árni Gautur Arason orðaður
við tvö norsk félagslið
„Vil helst leika
annars staðar
en í Noregi“
ÁRNI Gautur Arason, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, var í gær
orðaður við norsku úrvalsdeildarfélögin Vålerenga og Fredrikstad í
norska blaðinu Adresseavisen. Árni Gautur er sem kunnugt er laus
allra mála hjá Rosenborg í Noregi en ekkert varð af því að hann færi
til Sturm Graz í Austurríki eins og til stóð.
Árni Gautur
VALERO Rivera, þjálfari handknattleiksliðs Barcelona, sem eru núverandi
Spánarmeistararar, hefur ákveðið að hætta þjálfun liðsins í vor þegar leik-
tíðinni lýkur. Rivera hefur þjálfað Barcelona síðastliðin 20 ár en áður en
hann tók við þjálfun var hann leikmaður Barcelona í 17 ár þannig að hann
hefur verið hjá Katalóníuliðinu í tæpa fjóra áratugi og gert það að einu allra
sigursælasta handknattleiksliði heims á þeim tíma.
Rivera hefur ráðið því sem hann hefur viljað ráða, einkum í seinni tíð enda
verið einstaklega sigursæll þjálfari og safnað að liðinu mörgum af fremstu
handknattleiksmönnum Evrópu. Ástæða þess að Rivera hefur ákveðið að segja
upp er afar hörð gagnrýni sem hann hefur fengið síðustu vikur eftir að Barce-
lona mistókst að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu auk
þess sem liðið þykir ekki eins sannfærandi í vetur og oft áður.
Undir stjórn Rivera hefur Barelona unnið 69 titla af ýmsu tagi, meðal þess
eru sex Evrópumeistaratitlar, fimm sinnum hefur hann stýrt liðinu til sigurs í
keppni Stórbikarkeppni Evrópu, þar sem sigurlið Evrópumóta félagsliða mæt-
ast, tólf sinnum hefur Rivera leitt Barcelona til sigurs í spænsku deildinni.
Rivera hættir með Barce-
lona eftir 20 ár í starfi
ÞÓRSARAR úr Þorlákshöfn hafa
fengið til sín tvo nýja bandaríska
körfuknattleiksmenn í staðinn fyr-
ir þá Billy Dreher, leikmann og
þjálfara, og Ray Robins, sem
hættu með félaginu fyrir jól. Það
eru þeir Robert Hodgson, sem
jafnframt er nýr þjálfari Þórsara,
og Nate Brown. Þeir komu til
landsins um áramótin og léku sinn
fyrsta leik í gærkvöldi en Þórs-
arar biðu þá lægri hlut fyrir ÍR í
botnslag í Seljaskólanum, 95:79.
Báðir byrjuðu þeir vel og skoruðu
samanlagt meira en helming stiga
liðsins, en það nægði ekki til að
koma í veg fyrir tíunda ósigur ný-
liðanna í röð í deildinni. Þórsarar
unnu tvo fyrstu leiki sína í haust
en síðan ekki söguna meir og eiga
fyrir höndum erfiða baráttu fyrir
lífi sínu í deildinni.
Þór með
nýjan þjálf-
ara og
leikmann