Morgunblaðið - 05.01.2004, Síða 8
Janica
Kostelic úr
leik í vetur
JANICA Kostelic, skíða-
drottningin frá Króatíu,
verður ekkert með í heims-
bikarnum í vetur. Hún veikt-
ist í haust af skjaldkirtils-
sjúkdómi en hóf þó æfingar í
desember. Þá var hún und-
anfari á heimsbikarmóti á
Ítalíu, en við það ágerðust
gömul hnémeiðsli. Hún hefur
gengist undir fjórar aðgerð-
ir á hné undanfarna tíu mán-
uði, síðast í október. Tals-
maður hennar skýrði frá því
á laugardaginn að nú væri
ljóst að hún myndi ekkert
keppa í vetur, bæði vegna
sjúkdómsins og hnémeiðsl-
anna.
Janica Kostelic er 21 árs
og varð fyrsti skíðamaðurinn
til að vinna fern verðlaun á
sömu Ólympíuleikum. Hún
hlaut þrenn gullverðlaun og
ein silfurverðlaun á leik-
unum í Salt Lake City fyrir
tveimur árum.
CELTIC er komið með ellefu stiga
forskot í skosku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu eftir öruggan sigur á
erkifjendunum í Rangers, 3:0, á
laugardaginn. Stilian Petrov, Stan-
islav Varga og Alan Thompson
skoruðu mörk Celtic sem nú er
komið með 55 stig en Rangers er í
öðru sætinu með 44 stig.
Celtic hefur unnið báða leikina
gegn Rangers í vetur en félögin
eiga eftir að mætast þrisvar í deild-
inni. Rangers hefur nú aðeins tekist
að sigra einu sinni í síðustu 12 við-
ureignum liðanna.
Þetta var 18. sigurleikur Celtic í
röð í úrvalsdeildinni. Liðið byrjaði
á að gera jafntefli við Dunfermline í
fyrstu umferðinni í ágúst en hefur
unnið alla leiki sína síðan. Þar með
féll félagsmetið en Celtic vann 17
leiki í röð árið 1968.
Celtic
stingur af í
Skotlandi
SIMEN Muffentangen hefur lík-
lega leikið sinn síðasta handboltaleik
– alltént fyrir AaB í Danmörku. Hinn
32 ára gamli Norðmaður fótbrotnaði í
leik með liðinu um helgina og var
skorinn upp og verður að taka sér
langt hlé.
MUFFENTANGEN á 109 lands-
leiki að baki með Norðmönnum og
var fenginn til AaB í október frá
Hamborg í Þýskalandi. Hann hefur
verið frekar óheppinn í Danmörku,
nefbrotnaði fljótlega eftir komuna
þangað og nú var það slæmt fótbrot.
ROBERT Archibald, fyrsti Skotinn
sem spilar í NBA-deildinni í körfu-
knattleik, fór um helgina frá Orlando
Magic til Toronto Raptors, í skiptum
fyrir Kínverjann Mengke Bateer.
Archibald hafði aðeins verið í röðum
Orlando frá því á jóladag en félagið
fékk hann þá frá Phoenix í skiptum
fyrir valrétt í nýliðavali deildarinnar.
BENJAMIN Raich frá Austurríki
vann sinn fyrsta heimsbikarsigur á
skíðum í tvö ár þegar hann varð fyrst-
ur í stórsvigi karla á heimavelli í aust-
urríska bænum Flachau á laugardag-
inn. Hann náði efsta sætinu af hinum
ítalska Massimiliano Blardone með
glæsilegri síðari ferð en Blardone
eygði þar sinn fyrsta sigur í heimsbik-
arnum.
HERMANN Maier náði sér ekki á
strik þótt hann væri svo sannarlega á
heimavelli. Skíðabrekkan í Flachau
er skírð eftir honum, Hermann Maier
Weltcupstrecke, en það dugði honum
skammt. Maier hlekktist á í fyrri
ferðinni og náði ekki að vera meðal 30
fyrstu.
KALLE Palander frá Finnlandi
sigraði í svigi í heimsbikarnum í
Flachau í gær. Hann var rúmlega
hálfri sekúndu á undan næsta manni,
sem var Manfred Pranger, Austur-
ríki, og Giorgio Rocca, Ítalíu, var
þriðji.
AUSTURRÍKI átti þrjár efstu
stúlkurnar í heimsbikarmóti í risa-
svigi sem fram fór í Frakklandi í gær.
Alexandra Meissnitzer sigraði, Ren-
ate Götschl varð önnur og Michaela
Dorfmeister þriðja. Dagný Linda
Kristjánsdóttir frá Akureyri var
skráð í mótið, en mætti ekki til keppni
þar sem hún meiddist lítillega í upp-
hitun.
FÓLK
Mark Viduka skoraði fyrir Leedsstrax á 8. mínútu gegn Arsen-
al, stökk fyrir þegar Jens Lehmann
markvörður ætlaði að spyrna frá
marki og boltinn þeyttist af Viduka
og í netið. Leikmenn Arsenal voru
ekki lengi að jafna sig á þessu,
Thierry Henry og Edu höfðu komið
þeim yfir þegar rúmur hálftími var
liðinn og Robert Pires og Kolo Toure
bættu við mörkum undir lokin.
Arsene Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, bar mikið lof á Henry,
sem ekki átti að spila þennan leik.
„Ég ætlaði að hvíla Henry þar sem
við eigum deildaleik gegn Everton á
miðvikudag og Jeremie Aliadiere
átti að vera í framlínunni með Kanu.
En Aliadiere var veikur svo ég varð
að breyta liðinu í morgun,“ sagði
Wenger, en Henry lét mikið til sín
taka, jafnaði og lagði síðan upp
mörkin fyrir Edu og Pires.
Scholes kom United til bjargar
Tvö mörk frá Paul Scholes um
miðjan síðari hálfleik, færðu Man-
chester United 2:1 sigur gegn Aston
Villa á Villa Park í gær. Heimamenn
voru sterkari aðilinn framan af leik
og Gareth Barry kom þeim yfir á 19.
mínútu. Roy Keane og Ruud van
Nistelrooy komu inn á sem vara-
menn hjá ensku meisturunum þegar
10 mínútur voru liðnar af síðari hálf-
leiknum.
„Það skipti sköpum að fá Ruud og
Roy Keane inn á völlinn. Ég varð að
fara varlega þar sem við eigum mik-
ilvægan deildaleik á miðvikudaginn,
og þetta var upplagt tækifæri til að
nýta þessa tvo á þennan hátt. Roy
spilar aldrei alla leiki og það hefur
verið mikið álag á Ruud. Það var
mikið öryggi að hafa þá á vara-
mannabekknum og geta gripið til
þeirra í þessari stöðu. En Scholes
var eftir sem áður sá sem gerði út-
slagið – hann er snillingur og hefur
þennan ótrúlega eiginleika að birtast
skyndilega þar sem mest liggur við,“
sagði Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Manchester United.
Liverpool þurfti að hafa virkilega
fyrir því að sigra 3. deildarlið Yeovil
á útivelli, 2:0, og Jerzy Dudek hafði í
nógu að snúast í marki úrvalsdeild-
arliðsins. Emile Heskey braut ísinn
með marki 20 mínútum fyrir leikslok
og Danny Murphy bætti öðru við úr
vítaspyrnu skömmu síðar, eftir að
Harry Kewell var felldur.
„Við vissum að leikurinn yrði mjög
erfiður og mínir menn geta verið
mjög stoltir af sinni frammistöðu.
Þeir stóðust pressuna og mættu í
leikinn með réttu hugarfari. Ég skil
vel að Yeovil sé þekkt fyrir að slá út
sterk lið í bikarnum eftir að hafa
komið hingað,“ sagði Gerard Houll-
ier, knattspyrnustjóri Liverpool.
Louis Saha skoraði bæði mörk
Fulham sem marði sigur á Chelten-
ham, fjórða neðsta liði 3. deildar, 2:1.
Sigurmarkið gerði hann á lokamín-
útu leiksins þegar allt stefndi í að
Cheltenham hefði nælt sér í heima-
leik gegn úrvalsdeildarliðinu.
Kieron Dyer skoraði tvö marka
Newcastle og Laurent Robert eitt
þegar lið þeirra vann ótrúlega auð-
veldan útisigur á Southampton, 3:0.
Stóru liðin
stóðust álagið
MANCHESTER United og Arsenal, toppliðin í ensku knattspyrn-
unni, komust bæði í 4. umferð bikarkeppninnar í gær - bæði eftir að
hafa lent undir á útivöllum gegn liðum úr úrvalsdeildinni. Man-
chester United bar sigurorð af Aston Villa, 2:1, og Arsenal lagði
Leeds að velli, 4:1, þrátt fyrir að hafa fengið á sig skrautlegt mark á
upphafsmínútum leiksins. Arsenal hefur unnið bikarinn undanfarin
tvö ár og á möguleika á að verða fyrsta félagið í 118 ár til að sigra í
keppninni þrjú ár í röð.
STJARNAN úr Garðabæ varð á
laugardaginn bikarmeistari karla
í blaki þegar liðið lagði ÍS 3:2 í
miklum og spennandi úrslitaleik
þar sem Stjarnan hafði betur,
15:12 í oddahrinu. Leikið var í
íþróttahúsinu Austurbergi.
Stjörnumenn lentu 2:1 undir en
náðu að rétta sinn hlut og sigra.
Athygli vakti að fimm bræður
léku í liði bikarmeistaranna auk
þess sem einn þeirra er þjálfari.
„Við vorum í dálitlum vandræð-
um því uppspilarinn okkar var
erlendis þannig að við náðum í
einn bróðurinn í viðbót og hann
stóð sig vel sem uppspilari,“
sagði Vignir Hlöðversson þjálfari
eftir sigurinn. Geir bróðir hans
hljóp í skarðið sem uppspilari og
gerði það vel. Hinir þrír bræð-
urnir eru Hlöðver, Ástþór og Ró-
bert.
Leikurinn var jafn og spenn-
andi til marks um það má nefna
að ÍS gerði einu stigi meira en
Stjarnan í leiknum í heild, sem
endaði 108:109 í stigum.
Fimm
bræður í
sigurliði
Stjörnunnar
Bikarmeistarar Stjörnunnar úr Garðabæ í blaki karla, eftir sigurinn á ÍS. Aftari röð frá vinstri:
Hlöðver Hlöðversson, Ástþór Hlöðversson, Arnar S. Þorvarðarson, Gissur Þorvaldsson, Óli Freyr
Kristjánsson og Geir Hlöðversson. Fremri röð frá vinstri: Vignir Hlöðversson, Ingvar Arnarsson,
Róbert Hlöðversson, Hannes Ingi Geirsson og Emil Gunnarsson.
Möltubúar leika fimm
leiki á næstunni
MÖLTUBÚAR, sem eru meðal mótherja Íslendinga í undankeppni
HM, ætla að koma vel undirbúnir til leiks þegar keppnin fer af stað
í haust. Þeir hafa þegar tryggt sér fimm vináttulandsleiki fyrri
hluta ársins og vonast til að þeir verði enn fleiri.
Möltubúar halda fjögurra þjóða mót á heimavelli sínum í febrúar
og leika þar við Hvíta-Rússland, Eistland og Moldavíu. Í mars mæta
þeir Finnum og í apríl leika þeir gegn Þjóðverjum í Freiburg.
Til samanburðar hefur íslenska landsliðið aðeins fengið eitt
öruggt verkefni fyrir haustið en það er vináttulandsleikur gegn
Lettum í Riga þann 28. apríl.