Morgunblaðið - 15.01.2004, Side 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2004 11
TILBOÐ - TILBOÐ
30-50% AFSLÁTTUR AF VALINNI VÖRU
TÖSKUR - DÖMU- OG HERRAHANSKAR
Stærsta töskuverslun landsins,
Skólavörðustíg 7, sími 551 5814.
FERÐANÁMSKEIÐ INGÓLFS
Fegurstu - frægustu staðir heims.
Einstakir - kynntir í máli og myndum.
Fullskipað! Þú lærir að skoða heiminn
á mánud.kvöldum 5x2 st. hefst 9. feb.
kl. 20.15 á Grand Hoteli.
Vegna sífelldrar eftirspurnar:
Bætum við 10 sætum! S. 861 5602.
Síðasti innritunard.! Heimskringlan Ferðakl.
VEÐUR mbl.is
VIÐSKIPTI mbl.is
Vilja reka ÚA áfram
eins og verið hefur
Valgerður Sverrisdóttur, þingmað-
urFramsóknarflokksins á Norðaust-
urlandi og viðskipta- og iðnaðarráð-
herra, sagði að það væri ekkert
launungarmál að
það væri meiri
trygging fyrir
framtíðina að
norðanmenn
hefðu keypt ÚA,
en hún hefði átt
fund með nýjum
eigendum og þeir
hefðu sannfært
hana um að þeim
gangi ekkert annað til en að reka
þetta fyrirtæki áfram í þeirri mynd
sem verið hefði. ÚA væri öflugt fyr-
irtæki og vel rekið og hún tryði þeim.
„Þarna er um gríðarlega mikilvægt
fyrirtæki að ræða á Norðurlandi, ekki
bara á Akureyri heldur á minni stöð-
um eins og Grenivík, Raufarhöfn,
Laugum og Húsavík, þannig að það er
náttúrlega augljóst að þetta er stór-
mál fyrir íbúa þessa svæðis að þarna
verði haldið vel á málum,“ sagði Val-
gerður.
Hún sagði að það mætti gagnrýna
Landsbankann að því leyti til að þar
hefði verið sagt af forsvarsmönnum
bankans að það yrðu teknar upp við-
ræður við heimamenn í sambandi við
söluna á þessum fyrirtækjum og í til-
felli Akureyrar hefði það ekki gengið
eftir, sem væri slæmt. Hins vegar
þekkti maður kannski ekki alla sög-
una þannig að erfitt væri að meta það
nákvæmlega. „En það eru vonbrigði
með framgöngu Landsbankans í sam-
bandi við þessi viðskipti af hálfu
KEA,“ sagði Valgerður.
Aðspurð hvort það skapaði ekki
óöryggi í byggðarlaginu að jafn mik-
ilvægt fyrirtæki og ÚA gengi kaupum
og sölum með skömmu millibili, benti
Valgerður á að þar til bær yfirvöld á
Akureyri hefðu tekið ákvörðun um að
selja ÚA og þar með hefði boltinn ver-
ið gefinn upp og ekki sama öryggið
eftir að sú ákvörðun hefði verið tekin.
Engu að síður hefði reksturinn geng-
ið vel í eigu Eimskips og ekkert út á
það að setja. Maður yrði að gefa nýj-
um eigendum tækifæri og hún vildi
bjóða þá velkomna í kjördæmið og
treysti því að þetta fyrirtæki yrði
áfram mikilvægt atvinnufyrirtæki í
kjördæminu.
Aðspurð hvort henni fyndist þetta
gefa tilefni til þess að endurskoða
kvótakerfið og tengsl þess við
byggðalög, sagðist hún ekki telja það.
„Það er ekki verið að fara með fyr-
irtækið burt. Þetta gengur kaupum
og sölum og það er bara nýi tíminn
sem við erum að horfast í augu við,“
sagði Valgerður ennfremur.
Geta selt burtu
aflaheimildirnar
„Ég sagði það í kosningabaráttunni
og hef margsagt það að einn af verstu
ókostum núverandi kvótakerfis er
það að menn geta selt í burtu afla-
heimildir og skilið
heilu og hálfu
byggðalögin eftir í
rúst, þess vegna
að loknum nætur-
fundi meðan aðrir
sofa rótt. Nú sýn-
ist mér það hafa
gerst þarna á Ak-
ureyri,“ sagði
Kristján Möller,
þingmaður Sam-
fylkingarinnar á Norðausturlandi.
Hann sagðist auðvitað harma, úr
því að Eimskip hefði ákveðið að selja
þetta, að heimamenn og þá KEA í
þessu tilfelli sem hefði verið í viðræð-
um skyldi ekki hafa geta keypt fyr-
irtækið.
„En þetta er greinilega þannig að
þetta er bara uppboðsmakaður, hver
býður best, og það leiðir til að þessi
aðili kaupir fyrirtækið en ekki heima-
aðilarnir eða KEA. Það auðvitað
harma ég og ég ætla rétt að vona
vegna þess að sporin hræða að það
séu ekki einhver Básafellsmódel not-
uð að þessu sinni í framhaldinu,“
sagði Kristján ennfremur.
Hann bætti við að þetta væri ekki
eina sjávarútvegsfyrirtækið sem
hefði verið keypt og selt upp á síð-
kastið. Í því sambandi mætti benda á
erfiðleikana á Raufarhöfn vegna þess
að aflaheimildirnar hefðu farið í burtu
og hetjulega baráttu sveitarstjórnar
Vopnafjarðarhrepps við það að kaupa
aftur stóran hluta af hlutabréfum í
Tanga til þess að freista þess að halda
fyrirtækinu og atvinnu heima. Hann
benti einnig á kaup á stórum hlut í
Þormóði ramma fyrir 3,4 milljarða á
síðasta ári af aðila sem hefði verið að
safna sér upp í meirihluta. Það væri
alveg með ólíkindum hvernig væri
verslað með þennan óveidda fisk.
„Ég bíð spenntur eftir því að heyra
nú hvað stjórnarþingmenn ýmsir eins
og til dæmis Halldór Blöndal, Val-
gerður Sverrisdóttir og hvað bæjar-
stjórinn á Akureyri segja núna þegar
ég hugsa aftur til okkar kosningabar-
áttu. Og hvað segir til dæmis forstjóri
ÚA sem gagnrýndi sjávarútvegs-
stefnu okkar og málflutning í síðustu
kosningabaráttu,“ sagði Kristján.
„Ég set mörg spurningarmerki við
þessa aðferð Eimskipafélagsmanna
að selja þetta og finnst það sárt að
heimaaðilarnir, KEA, skuli ekki hafa
fengið að kaupa til þess að tryggja
eignarhaldið á svæðinu,“ sagði Krist-
ján ennfremur.
Stangast á við fyrri
yfirlýsingar
Halldór Blöndal, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins á Norðausturlandi,
sagði að það væri óhætt að segja að
þessi sala hefði komið Akureyringum
í opna skjöldu.
„Þeir höfðu lýst
því yfir bæði í
Landsbankanum
og hjá Eimskipa-
félaginu að þeir
myndu leggja
áherslu á að Út-
gerðarfélagið yrði
selt heimamönn-
um ef til kæmi og
þess vegna finnst
mér þessi skyndi-
lega sala stangast á við það sem þeir
höfðu áður sagt. Það er auðvitað mjög
slæmt fyrir lánastofnun eins og
Landsbankann ef mönnum finnst að
þeir geti ekki treyst því sem forustu-
menn hans segja,“ sagði Halldór.
Hann sagði að á hinn bóginn hefði
hann ekkert nema gott um Guðmund
Kristjánsson og þá feðga að segja.
Þeir væru duglegir útgerðarmenn og
þrautseigir. „Ég efast ekki um að vilji
þeirra standi til þess að byggja upp
Útgerðarfélag Akureyringa og nýta
þá verkþekkingu og mannauð sem
þar er,“ sagði Halldór.
Hann bætti því við að hann hefði átt
stutt tal við Guðmund í gær og ráð-
gert væri að þeir myndu hittast á
fundi í dag.
Halldór sagði aðspurður að frysti-
hús ÚA væri meðal þeirra fremstu
sem þekktust og hann væri ekki í vafa
um að það yrði rekið áfram. Annað
kæmi ekki til greina og menn gætu
verið rólegir þess vegna.
Hann sagði einnig aðspurður ekki
telja að þetta væri áfellisdómur yfir
kvótakerfinu sem slíku. Yfirburðir
þess fram yfir önnur kerfi sem reynd
hefðu verið í þessum efnum væru
ótvíræðir. Það hefði meðal annars
komið fram hjá grænfriðungum að
þeir teldu okkur ganga betur um mið-
in en aðrir og einnig lægi ljóst fyrir að
sú sterka stjórn sem hægt væri að
hafa á veiðunum og skipulagi þeirra í
samræmi við þarfir vinnslunar og
kröfu markaðarins hefði sannað sig
og sýndi að við hefðum náð meiri
framleiðni út úr sjávarveginum en
hægt hefði verið að vonast eftir.
„Það hefur verið talað um að tengja
kvótann byggðarlögum, en þá spyr ég
við hvað á að miða. Við vitum að aflinn
er ekki endilega lagður upp þar sem
kvótinn er skráður og ég held að það
verði mjög erfið þraut að leysa að átta
sig á því hversu mikið eigi að koma í
hlut hvers byggðalags. Ég sé ekki
hvernig menn geta leyst það, enda
yrði slíkt gagnslaust nema menn
legðu þá kvöð á skipin um leið að þau
yrðu að leggja upp í sínum höfnum og
fiskurinn að vinnast þar. Þetta getur
aldrei gengið upp,“ sagði Halldór
ennfremur.
Skilgetið afkvæmi
kvótakerfisins
Steingrímur Sigfússon, þingmaður
Vinstri grænna á Norðausturlandi,
sagði að sér kæmi mjög á óvart að
þetta hefði gerst svona snöggt og það
vekti undrun að
þeir heimaaðilar
sem hefðu sýnt
málinu áhuga
skyldu vakna upp
að morgni og allt
væri búið og gert.
„Ég skil vel að
það sé uggur í
mönnum. Þegar
svona sviptingar
eiga sér stað um
mikilvæg fjöregg í
atvinnulífinu fer ekkert hjá því að
menn að séu uggandi um sinn hag,“
sagði Steingrímur.
Hann sagði að það væri rétt að hafa
það í huga að þetta væri skilgetið af-
kvæmi þessa kerfis, fiskveiðistjórn-
unarkerfis með frjálsu framsali veiði-
heimilda í markaðsvæddum
sjávarútvegi.
„Ég held að þetta sé bara einn at-
burður af mjög mörgum sem hefur
skekið samfélög vítt og breitt við sjáv-
arsíðuna og mun halda áfram að gera
það á meðan þetta kerfi er við lýði
óbreytt. Það staðfestir bara enn frek-
ar í mínum huga þessar sviptingar
sem nú eru að ganga yfir og þann óró-
leika sem þetta skapar á stórum stöð-
um eins og Akureyri, Akranesi og
Skagaströnd. Svona verður þetta
þangað til að búið er breyta þarna um
stefnu og að minnsta kosti byggða-
tengja að einhverju leyti þennan mik-
ilvæga afnotarétt, þennan aðgöngu-
miða að sjávarauðlindinni,“ sagði
Steingrímur.
Hann sagði að enginn vissi hversu
lengi þeir sem væru að kaupa þessar
eignir í dag myndu kjósa að halda
þeim eða reka þær í óbreyttri mynd
án þess að hann væri að fella einhveja
dóma um þá sem væru að kaupa þetta
nú. Fólk ætti hins vegar að spyrja sig
að því hvort það vildi þetta fyrirkomu-
lag.
Þingmenn Norðausturlands um söluna á ÚA
Halldór
Blöndal
Valgerður
Sverrisdóttir
Steingrímur J.
Sigfússon
Kristján
Möller