Morgunblaðið - 15.01.2004, Blaðsíða 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2004 41
Fallinn er frá einn af
frumherjum íþrótta-
mála á Austurlandi,
Gunnar Ólafsson.
Hann kom víða að
íþróttamálum, þótt
hans verði fyrst og síðast minnst fyr-
ir aðkomu sína að málefnum skíða-
íþróttarinnar, en þar var hann einn
fyrsti kennari sem við fengum hing-
að austur auk þess að vera aðal-
hvatamaður að byggingu Skíðamið-
stöðvar Austurlands í Oddskarði.
Hann var í stjórn Ungmenna- og
íþróttasambands Austurlands um
skeið og formaður þess um tíma.
Stjórn Ungmenna- og íþróttasam-
bands Austurlands vill, fyrir hönd
íþróttahreyfingarinnar á Austur-
landi, votta aðstandendum samúð og
honum virðingu með þessum fátæk-
legu orðum.
F.h. stjórnar UÍA
JóhannTryggvason.
Gunnar Ólafsson skólastjóri er
látinn níutíu og tveggja ára gamall.
Sú fregn kom mér á óvart, því þótt
aldur hans væri orðinn hár þá varð
hann í raun aldrei gamall. Það er
ekki svo langt síðan við sáum hann á
sjónvarpsskjánum sveifla sér á
skautum og gera þar ýmsar kúnstir
sem fáir skautaiðkendur geta leikið
eftir. Þá sögðu allir „þetta er alveg
ótrúlegt, svona gamall maður“. En
það er eins og hann sagði við mig,
síðast þegar við hittumst, „ellin kem-
ur eins og allt í einu“. Þá eitthvað
farinn að finna fyrir glímunni við ell-
ina. Glímu sem við að lokum töpum
öll.
Þegar ég nú lít yfir farinn veg og
rifja upp kynni mín og samstarfið við
Gunnar Ólafsson er svo margs að
minnast að ef um það ætti að fjalla að
einhverju marki þá yrði það efni í
heila bók. Gunnar Ólafsson var eng-
inn meðalmaður í verkum sínum
heldur einn þeirra sem skilja eftir
sig mörg þau verk sem þjóna munu
langt inn í framtíðina.
Ég man vel þegar ég fyrst heyrði
talað um Gunnar en það var veturinn
1939. Ég var þá nemandi á Héraðs-
skólanum að Laugarvatni. Þann vet-
ur var haldið námskeið í skíðaíþrótt-
um í Hveradölum á Hellisheiði.
Leiðbeinandinn var sænskur og
minnir mig hann heita Töveson.
Nema hvað Guðjón Ingimundarson,
þá íþróttakennari á Laugarvatni, fór
á þetta námskeið. Þegar hann kom
til baka spurði ég hann hver hefði nú
verið snjallasti skíðamaðurinn á
þessu námskeiði og ég man að Guð-
jón sagði: „Það var þarna íþrótta-
kennari sem heitir Gunnar Ólafsson,
sem Töveson sagði vera þann Íslend-
ing sem kynni mest í skíðaíþróttum,
af þeim sem hann hefði séð.“ Fáum
árum seinna fékk ég að sjá með eigin
augum hvað Gunnar var snjall skíða-
maður bæði í skíðagöngu og svigi.
Í 50 ára afmælisriti Íþróttafélags-
ins Þróttar, segir svo í kaflanum um
skíðaíþróttir: „Það var ekki fyrr en í
byrjun árs 1939 að skíðakennsla
hefst á vegum Þróttar. Kennari var
Gunnar Ólafsson, en hann ferðaðist
þá um á vegum fræðslumálaskrif-
stofunnar og hélt skíðanámskeið á
nokkrum stöðum á Austurlandi.“
Það var sem sé Gunnar Ólafsson,
sem fyrstur ferðaðist um Austur-
landi og kenndi okkur nútíma skíða-
íþróttir. Hann fylgdi svo eftir breyt-
ingum og þróuninni á þessari
glæsilegu íþrótt, sem lengi mun
minnst og ég kem betur að síðar í
þessari grein minni.
Ég kynntist Gunnari fyrst sumar-
ið 1940, en það sumar var hann
íþróttakennari hjá Íþróttafélaginu
GUNNAR
ÓLAFSSON
✝ Gunnar Ólafssonfæddist á Efra-
Núpi í Miðfirði 21.
júní 1911. Hann lést
á Landspítalanum í
Fossvogi 29. desem-
ber síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Háteigskirkju 6.
janúar.
Þrótti hér í Neskaup-
stað. Þótt kynni okkar
yrðu stutt það sumarið
þá fundum við strax að
áhugamálin voru lík og
snerust mikið um
æskulýðs- og íþrótta-
mál sem og pólitík.
Þegar hér var komið
sögu í lífi Gunnars var
hann kvæntur eftirlif-
andi konu sinni Ingi-
björgu Magnúsdóttur
og þau flutt austur á
Fáskrúðsfjörð þar sem
hann réðst sem kennari
við barnaskólann. Þar
lét Gunnar fljótlega til sín taka í
æskulýðs- og íþróttamálum sem og í
sveitarstjórnarmálefnum almennt
og vil ég meina að Fáskrúðsfirðingar
búi þar enn þá að verkum hans.
En svo urðu þáttaskil í lífi Gunn-
ars og Ingibjargar því sumarið 1946
flytja þau hingað til Neskaupstaðar
og hann gerist skólastjóri við barna-
skólann.
Þetta var á tímum mikilla átaka í
pólitík og um þetta starf sem og flest
önnur opinber störf varð nokkur
ágreiningur og átök. Ég sem þessar
línur rita sat þá í skólanefnd Nes-
skóla og á fyrstu fundum skóla-
nefndarinnar með þessum unga og
nýskipaða skólastjóra skynjaði ég
strax að þar fór góður stjórnandi.
Öðrum eins æsingi og árásum á ein-
stakling, af hálfu sumra sem þar
sátu, hef ég aldrei orðið vitni að.
Ungi óreyndi skólastjórinn hlustaði
rólegur og óbifaður á svívirðingarn-
ar og svaraði þeim engu og þá skynj-
aði ég strax þetta var maður sem gat
stjórnað.
Sá sem getur stjórnað skapi sínu
getur stjórnað öðrum.
Vissulega sannaðist það vel á far-
sælli skólastjórn Gunnars í þau 26 ár
sem hann var skólastjóri Nesskóla.
Fljótlega eftir komuna til Nes-
kaupstaðar er Gunnar orðinn for-
ystumaður í íþrótta- og æskulýðs-
málum. Árið eftir komuna var hann
kosinn formaður Íþróttafélagsins
Þróttar og gegndi því starfi í 11 ár,
eða lengur en nokkur annar.
Formaður Ungmenna- og íþrótta-
sambands Austurlands 1956.
Var einn af stofnendum Skóg-
ræktarfélags Neskaupstaðar 1948
og varð formaður þess félags 1961 og
gegndi því starfi til margra ára.
Eitt af því sem Gunnar Ólafsson
tók að sér var að skipuleggja og
stjórna sumarvinnu unglinga, sem
árlega fer fram á vegum sveitarfé-
lagsins. Með stjórn hans urðu alveg
þáttaskil í þessu starfi. Bæði var að
hann gjörþekkti unglingana og svo
það að hann kunni vel til verka.
Hafði m.a. verið flokksstjóri í vega-
vinnu í mörg ár.
Unglingarnir undir stjórn Gunn-
ars afköstuðu ótrúlega miklu. Lögðu
m.a. nýja vegi í bænum, hlóðu upp
áhorfendasvæðin við íþróttavöllinn
o.m.fl. Aldrei erfiði um of. Alltaf
leikhlé eftir vel unnið verk. Þetta
varð því öllum þátttakendum góður
skóli.
Eitt af því sem Gunnar tók að sér
fyrir okkur íbúa Neskaupstaðar var
formennska í stjórn sem sá um
byggingu félagsheimilisins Egils-
búðar. Þetta var um margt mjög
vandasamt verk. Bæði vegna þess
hve margir komu þar við sögu og
hvað erfitt var að fjármagna þessa
stóru byggingu. En verkið komst þó
farsællega í höfn og er öllum sem að
því stóðu til sóma fyrir glæsibrag og
stórhug á erfiðum tíma.
Hér að framan gat ég þess að ég
myndi síðar í grein þessari minnast
frekar á afskipti Gunnars að þróun
og uppbyggingu skíðaíþróttarinnar
hér, því engum einstaklingi eigum
við jafn mikið að þakka og virða fyrir
þá uppbyggingu sem orðið hefur í
þeirri íþróttagrein.
Ég segi frá því hér að framan þeg-
ar hann fyrstur manna leiðbeindi
Austfirðingum í nútíma skíðaíþrótt-
um. Síðar þegar hann fluttist til Nes-
kaupstaðar og hafði forystu um upp-
byggingu skíðaíþróttarinnar hér.
Hér er ekki rúm til þess að rekja þá
sögu í smáatriðum. Þó aðeins geta
þess að eftir að Norðfjarðará var
brúuð varð Oddsdalurinn okkar aðal
skíðasvæði. Gunnar og Ingibjörg
áttu þar lítinn sumarbústað á yndis-
legum stað í dalnum og þar fengum
við inni fyrstu árin. Síðan byggði
Þróttur, upp úr viðum gamals húss,
allstóran skíðaskála og þangað var
farið um hverja helgi yfir veturinn,
nema þegar veður og færi var mjög
slæmt og var farartækið oftast vöru-
bíll og mannskap og búnaði staflað á
pallinn. Hamast var á skíðum fram í
myrkur. Þá haldnar fjörlegar kvöld-
vökur með sögum, söng og dansi. Og
um hverja páska fór stór hópur strax
á miðvikudegi inn í skíðaskálann í
Oddsdalnum og var alla páskahelg-
ina og var þá stundum messað þar.
Þetta var dásamlegur tími.
Svo koma Oddsskarðsgöngin og
rafmagnið þar með. Þá fórum við
Gunnar fljótlega að bollaleggja stór-
framkvæmdir í skíðamannvirkjum
þar. Gunnar var raunsærri en ég.
Hann sá að allmiklar rannsóknir
yrðu að fara fram á svæðum þeim
sem þarna kæmu til greina og þess
vegna vann hann að því í tvo vetur að
mæla snjóinn og huga að ýmsum
öðrum aðstæðum. Það fannst mér
langur tími, en hann hafði rétt fyrir
sér.
Við urðum svo sammála um það að
svæðið sunnan við Oddsskarðið væri
það skynsamlegasta sem framtíðar
skíðasvæði fjarðabúa. Bæði vegna
þess hve það var skjólsælt og lá vel
við sól og auðsótt fyrir allar ná-
grannabyggðir og svo helsta svæðið
til þess að fá fleiri sveitarfélög með í
uppbygginguna.
Og þá hófst það verk hjá Gunnari
sem ég tel að hafi verið diplómatískt
afrek, en það var að fá sveitarstjórn-
ir þeirra byggðarlaga sem nú mynda
Fjarðabyggð til samstarfs og sam-
eignar um þetta mannvirki. Var
þarna kannski lagður hornsteinninn
að myndun Fjarðabyggðar? Hvort
sem það er eður ei þá hefur þessi
samvinna gengið stórkostlega vel og
þetta mannvirki er eitt af því sem
sættir fólkið við sína búsetu í Fjarða-
byggð. Maðurinn lifir jú ekki á
brauði einu saman. Hann þarf líka
aðstöðu til tómstundaiðkana og
óvíða líður manni betur en á þessu
tignarlega og fagra skíðasvæði. Það
eigum við fyrst og fremst Gunnari
Ólafssyni að þakka.
Þau Gunnar og Ingibjörg fluttu til
Reykjavíkur árið 1984. Síðan þá hef-
ur verið langt á milli endurfunda.
Það er bara í draumum mínum sem
við höfum haldið áfram að brasa
saman. En margs er að minnast og
margt er að þakka. Minningar eru
líka fjársjóðir. Enn þá ylja minning-
arnar um sumardagana þegar börn-
in okkar beggja voru ung og við
heimsóttum ykkur í litla kofann við
tjarnirnar í Oddsdalnum og krakk-
arnir léku sér á prömmum og flek-
um. Svo og margra góðra stunda,
fyrst í Heiðabýli, svo í skólastjórabú-
staðnum og síðast í húsinu ykkar við
Nesgötuna. Þetta er geymt en ekki
gleymt.
Að lokum, elsku Ingibjörg og syn-
ir og þeirra fjölskyldur, við Guðrún
og börn okkar sendum ykkur inn-
legar samúðarkveðjur og þökkum
ykkur allar góðar stundir.
Stefán Þorleifsson.
Við fráfall Gunnars Ólafssonar, fv.
skólastjóra, kemur mér í hug:
Vinátta hans og föður míns og
samstarf þeirra að ungmenna- og
íþróttamálum á Austurlandi en faðir
minn mat Gunnar mjög mikils. Þá
var einnig gott samband milli móður
minnar og Ingibjargar, konu Gunn-
ars.
Dvöl mín á heimili Gunnars og
Ingibjargar um sumardaga á miðri
síðustu öld þegar ég var til náms í
sundi í Neskaupstað en þar hafði ég
hinn besta aðbúnað er ég í fyrsta
skipti var einn að heiman ungur að
árum.
Samskipti við þau er ég síðar bjó í
Neskaupstað, m.a. starf Gunnars að
snjóflóðavörnum með reglubundinni
könnun fjallshlíðarinnar og fór hann
þá á skíðum kominn á áttræðisald-
urinn og röskleiki hans er hann á
sama aldri sló eitt sinn bæjarfógeta-
garðinn. Mér er minnisstætt að-
fangadagskvöld á heimili þeirra
hjóna, góður hátíðarmatur og
ánægjuleg samverustund.
Það er bjart yfir minningu Gunn-
ars Ólafssonar. Með honum er geng-
inn merkur maður, einn þeirra sem
voru í fylkingarbrjósti í skóla-, upp-
eldis-, menningar- og íþróttamálum
á Austurlandi á liðinni öld.
Ég votta Ingibjörgu og fjölskyld-
unni samúð mína.
Þorsteinn Skúlason.
Gunnar Ólafsson var maður lágur
vexti og vel limaður, snar í hreyf-
ingum og fylginn sér og varð þar lítil
breyting á fram á níræðisaldurinn.
Rætur átti hann á landinu vestan-
verðu en Austurland varð starfsvett-
vangur hans lungann úr ævinni og
kennsla og skólastjórn meginvið-
fangsefni. Undir það var hann vel
búinn eftir nám í Flensborg og kenn-
arapróf og bætti litlu síðar við sig
íþróttakennararéttindum. Eftir
fyrstu sporin sem kennari á ýmsum
stöðum suðvestanlands á árum
heimskreppunnar réðst hann til
kennslu að Búðum í Fáskrúðsfirði
haustið 1939, þá nýkvæntur lífsför-
naut sínum Ingibjörgu Magnúsdótt-
ur. Sjö árum síðar fluttu þau með
stækkandi barnahóp til Neskaup-
staðar þar sem Gunnar tók við stjórn
barnaskólans.
Skólastjóri var hann í aldarfjórð-
ung, rækti það starf af stakri alúð og
bjó fjölda ungmenna undir lífsstarf
og frekara nám.
Skólinn undir hans stjórn var ótví-
rætt í fremstu röð og kom þar til
samvalinn hópur vel menntaðra og
áhugasamra kennara.
Sá sem þetta skrifar náði korn-
ungur að kynnast lítillega forystu
ungmennafélaganna eystra um
miðja síðustu öld. Það var glæsilegur
hópur sem þar fór fyrir og þar mun-
aði um Gunnar Ólafsson sem þá var
um fertugt og orðinn reyndur í starfi
að æskulýðsmálum og íþróttum.
Ásamt Stefáni Þorleifssyni var hann
helsti merkisberi æskulýðsstarfs í
Neskaupstað, þeir félagar samhentir
og skiptust á um forystu heima og á
víðari vettvangi, m. a. var Gunnar
formaður ÚÍA um árabil. Íþróttir og
útivist voru á dagskrá árið um kring,
starfið fjölþætt og snerist um fleira
en fótbolta, því að á dagskrá voru
einnig frjálsar íþróttir, sund, skíði og
skautaferðir eftir því sem aðstæður
frekast leyfðu. Skíðaskálinn á Odds-
dal var reistur og litlu ofar á dalnum
byggði Gunnar sér lítinn bústað þar
sem fjölskyldan undi oft langdvölum
yfir sumarið. Skíðaferðir voru Gunn-
ari sérstaklega hjartfólgnar, þar á
meðal langar göngur um páska, jafn-
vel allt til Snæfells. Eftir að Gunnar
lét af skólastjórn sökum aldurs en í
fullu fjöri gafst tími til að sinna enn
frekar hugðarefnum. Af mikilli
framsýni gerði hann tillögu um
skíðamiðstöð sunnan Oddskarðs og
vann málinu fylgi þvert á allan
byggðaríg.
Ræktun lands og lýðs voru ein-
kunnarorð ungmennafélaga og
Gunnar í hópi þeirra sem létu sig
dreyma um landvernd og ræktun
skóga. Með Eyþóri Þórðarsyni og
fleirum gekkst hann 1948 fyrir stofn-
un Skógræktarfélags Neskaupstað-
ar og var formaður þess um áratugi.
Af því starfi spratt Hjallaskógur of-
an byggðar í Neskaupstað, nú skjól-
gott útivistarsvæði. Gunnar lagði ár
hvert fram ómælt starf við gróður-
setningu, viðhald girðinga og síðar
grisjun. Umbunin fólst í að sjá ár-
angur verka sinna en aldrei var
spurt um laun í krónum og aurum.
Þegar Hjallaskógur var orðinn stað-
reynd var sótt fram með gróður-
vernd í öllu landi kaupstaðarins að
markmiði. Einnig tók hann að sér
veðurathuganir og eftirlit vegna
snjóflóða ofan byggðar, enn léttur á
sér kringum sjötugt. Gunnar var í
senn ósérhlífinn hugsjónamaður og
maður framkvæmda, þolgóður með
afbrigðum, léttur í lund og dagfars-
prúður. Hann var sósíalisti að lífs-
skoðun og náttúruverndarmaður,
áhugasamur um þjóðmál og alþjóða-
mál fram í andlátið og aldrei í vafa
um með hverjum hann ætti samleið í
stjórnmálum.
Samstarf og kynni okkar Kristín-
ar við Gunnar og Ingibjörgu og börn
þeirra hafa verið mikil og náin og
héldust eftir að þau fluttu suður. Nú
þegar Gunnar er allur þökkum við
það liðna og sendum fjölskyldu hans
og vandamönnum kveðjur að austan.
Hjörleifur Guttormsson.
Nú ríkir kyrrð í djúpum dal,
þótt duni foss í gljúfrasal,
í hreiðrum fuglar hvíla rótt,
þeir hafa boðið góða nótt.
Nú saman leggja blómin blöð,
er breiddu faðm mót sólu glöð,
í brekkum fjalla hvíla hljótt,
þau hafa boðið góða nótt.
Nú hverfur sól við segulskaut
og signir geisli hæð og laut,
en aftanskinið hverfur fljótt,
það hefur boðið góða nótt.
(Magnús Gíslason.)
Já, elsku frændi minn, nú hefur þú
kvatt okkur en minningin um þig
mun lifa hjá okkur.
Við munum muna þig best þegar
við lítum til fjallatinda og förum um
hálendið um dali og lautir. Þú hafðir
mikla unun af útiveru og ferðum upp
um fjöll og firnindi. Þú vissir um
margar skemmtilegar leiðir og
þekktir vel til, sérstaklega fyrir
austan. Þú fræddir alla sem á vildu
hlusta og smitaðir og vaktir með
manni áhuga fyrir slíkum ferðum.
Skíðaferðir fórstu margar og
stundaðir þá íþrótt og skautaíþrótt-
ina langt framyfir áttrætt. Þér féll
sjaldan verk úr hendi, varst sívinn-
andi og alltaf tilbúinn að hjálpa öðr-
um.
Eitt sinn eyðilagðist bílskúrshurð
hjá mér. Þá komst þú og lagaðir
hana svo hún varð sem ný aftur svo
vandlega var frá öllu gengið og vel
útfært. Það var fallegt handverk en
ég fékk nú ekki að greiða þér fyrir
viðvikið nema bara með því að þakka
þér fyrir. Þannig varst þú. Ég var
stolt af að eiga þig sem frænda, þú
varst og verður alltaf góð fyrirmynd
þeirra sem kynntust þér og muna
þig. Þú varst fljótur til verks, kvikur
á fæti enda alltaf vel á þig kominn
líkamlega nema nokkra síðustu mán-
uðina sem þú lifðir. Fljóthuga
varstu, minnugur og skarpur, það
var alltaf gaman að hitta þig og njóta
þess fróðleiks sem þú áttir svo ríku-
lega af.
Ég bið Guð að blessa þig og fjöl-
skyldu þína.
Af eilífðarljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri en auga sér
mót öllum oss faðminn breiðir.
(Einar Benediktsson.)
Blessuð sé minning Gunnars
Ólafssonar.
Fanný Jónmundsdóttir.
Elskuleg móðir mín,
HULDA HARÐARDÓTTIR,
Kambaseli 85,
frá Austurhlíð, Gnúpverjahreppi,
sem andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans
fimmtudaginn 8. janúar, verður jarðsett frá
Stóra-Núpi laugardaginn 17. janúar kl. 14:00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Samtök sykursjúkra.
Ólafur Steindórsson
og aðstandendur.