Morgunblaðið - 15.01.2004, Side 53
AFMÆLI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2004 53
SVANBERG Már Pálsson, Tafl-
félagi Garðabæjar, sigraði í barna-
flokki á Skákþingi Íslands 2004 og
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, Tafl-
félaginu Helli, er Íslandsmeistari
stúlkna. Íslandsmót barna fór nú
fram í ellefta skipti og voru þátttak-
endur 25, en þátttökurétt áttu börn
fædd 1993 og síðar. Yngsti keppandi
mótsins var aðeins fimm ára. Tefld-
ar voru níu umferðir og var um-
hugsunartíminn 20 mínútur fyrir
skákina. Röð efstu keppenda varð
eftirfarandi:
1. Svanberg Már Pálsson 8 v.
2. Hjörvar Steinn Grétarsson 7 ½ v.
3. Guðni Fannar Kristjánsson 7 v.
4. Jóhann Eiðsson 6½ v.
5. Andri Steinn Hilmarsson 6 v.
6. Alexander Arnar Þórisson 5½ v.
o.s.frv.
Baráttan um sigurinn á mótinu
stóð allan tímann á milli þeirra
Svanbergs og Hjörvars Steins, sem
varð Íslandsmeistari í þessum flokki
í fyrra. Eins og áður segir sigraði
Jóhanna Björg í stúlknaflokki en
baráttan um næstu sæti var tvísýn
og þurfti að grípa til stigaútreikn-
ings til að skera úr um röðina:
1. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir 5 v.
2. Ingibjörg Ásbjörnsdóttir 4 (34,5 st.)
3. Hrund Hauksdóttir 4 (33 st.)
4. Hulda Hrund Björnsdóttir 4 (31 st.)
5. Auður Eiðsdóttir 4 (30,5 st.)
o.s.frv.
Það er Skáksamband Íslands sem
skipuleggur Íslandsmót barna.
„Heimsmeistari“
lætur í minni pokann
Síðustu vikur hefur umræða um
notkun gæsalappa skekið íslenskt
samfélag og er við hæfi þegar rætt
er um Vladimir Kramnik sem
heimsmeistara að settar séu slíkar
lappir um hann enda hefur FIDE,
alþjóðasamtök skákhreyfingarinn-
ar, ekki viðurkennt hann sem slíkan.
Í fyrstu umferð á Corus-ofurmótinu,
sem nú stendur yfir í Wijk aan Zee í
Hollandi, atti hann kappi við Arm-
enann Vladimir Akopjan.
Hvítt: Vladimir Akopjan
Svart: Vladimir Kramnik
Sikileyjarvörn – Najdorf-afbrigð-
ið
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 Rg4 7.
Bg5 h6 8. Bh4 g5 9. Bg3 Bg7
Sjá stöðumynd
Einkenni flestra ofurmóta er að
meistararnir hafa grandskoðað
byrjunina sem upp kemur hverju
sinni og fylgja þá troðnum slóðum
langt fram eftir skák. Þessi skák er
engin undantekning en Kasparov
gerði afbrigði þetta vinsælt fyrir
nokkrum árum. Hann er hættur að
beita því sjálfur en krónprinsinn
reynir að feta í hans fótspor.
10. h3
Hvítur getur leikið hér 10. Be2
eða 10. Dd2 en textaleikurinn mið-
ast að því að koma svartreita bisk-
upi hans í gagnið með f2-f3 og
þrýsta svo hægt og sígandi á peða-
stöðu svarts á kóngsvæng.
10. … Re5 11. f3 Rbc6 12. Bf2
Be6 13. Dd2 Rxd4 14. Bxd4 Da5 15.
a3 0–0!?
Svartur hefur að jafnaði kosið að
hafa kónginn á miðborðinu í þessu
afbrigði en þar getur staða hans
einnig orðið ótrygg. Með hróker-
ingu tengjast hrókarnir og þar með
er liðskipan svarts lokið á meðan
hvítur hefur ekki lokið sinni. Vegna
peðaveikleika sinna á kóngsvæng
reynist svörtum hins vegar erfitt að
færa sér frumkvæði sitt í liðskipan í
nyt.
16. h4! Rg6 17. hxg5 hxg5 18.
b4!? Dc7 19. Re2!?
Hvítur hefur með síðustu tveimur
leikjum sínum endurskipulagt liðs-
afla sinn. Markmiðið með texta-
leiknum er að koma riddaranum á
d4. Allt þetta ráðabrugg hefur þó
þann galla að taka langan tíma en
svo virðist sem hvítur geti gert
þetta vegna fyrrnefndra peðaveik-
leika svarts á kóngsvæng.
19. … f6 20. Bb2 Bf7 21. Rd4 d5
22. exd5 De5+ 23. Be2 Dxd5 24. 0–
0–0 Hfc8?!
24. … Hfd8 hefði verið öflugri
leikur þar sem hvítur hefði átt örð-
ugra um vik að koma riddara sínum
í betri vígstöðu.
25. Bd3 Re5 26. Be4 Da2 27. Rf5
Rc4 28. Dc3 Hc7??
28. … Dxb2 hefði verið betra þó
að hvítur stæði þá töluvert betur að
vígi. Með næsta leik gerir hvítur út
um skákina.
29. Hh7!
Óvenjuleg innrás á sjöundu reita-
röðina sem gerir svartan varnar-
lausan. Svartur yrði mát tæki hann
hrókinn eftir 29. … Kxh7 30. Rxe7+
Kh6 31. Hh1+ Bh5 32. g4.
29. … Dxb2+ 30. Dxb2 Rxb2 31.
Hxg7+ Kf8 32. Hh1! og svartur
gafst upp enda fátt til varnar.
Corus-mótið í Wijk aan Zee er
eitt sterkasta skákmót ársins. Eftir
þrjár umferðir er staðan á mótinu
þessi:
1.–3. Anand, Svidler, Leko 2 v.
4.–11. Akopian, Adams, Bologan, Shirov,
Topalov, Zhang Zhong, Sokolov,
Kramnik 1½ v.
12.–14. Bareev, Van Wely, Timman ½ v.
Kvennaskák í boði Hellis
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Ís-
landsmeistari kvenna í skák, býður
upp á ókeypis skákkennslu fyrir all-
ar stúlkur á grunnskólaaldri einu
sinni í viku í vetur. Vetrarönnin
byrjar föstudaginn 16. janúar og fer
kennslan fram í Austurbæjarskóla á
föstudögum kl. 17:15–18:15.
Allar stúlkur velkomnar – eina
skilyrðið til þátttöku er að stúlkurn-
ar kunni mannganginn.
Taflfélagið Hellir stendur auk
þess fyrir kvennakvöldum annan
hvern miðvikudag. Kvennakvöldin
eru að jafnaði einungis fyrir 20 ára
og eldri nema annað sé sérstaklega
auglýst. Fullorðnir byrjendur eru
boðnir einkar velkomnir og fyrir
þær sem vilja læra betur grundvall-
aratriði skáklistarinnar fer fram
sérstök kennslustund kl. 19:30–
20:00 fyrir hvert mót.
Fleiri kvennaviðburðir verða á
dagskrá Hellis í vetur og verða nán-
ar auglýstir síðar.
Svanberg Már og Jóhanna
Björg Íslandsmeistarar barna
Daði Örn Jónsson
Helgi Áss Grétarsson
dadi@vks.is
SKÁK
Taflfélag Reykjavíkur
ÍSLANDSMÓT BARNA 2004
9.–10. jan. 2004
Að létta öðrum
byrðarnar.
Þessi orð koma mér
í hug þegar Helgi
Seljan fyrrum alþing-
ismaður stendur á sjö-
tugu 15. janúar. Hann
hefur fengist við fjöl-
margt um dagana,
verið kennari og
skólastjóri, bóndi og
verkalýðsforingi,
sveitarstjórnarmaður
og alþingismaður, fé-
lagsmálagarpur af
áhuga og atvinnu,
bindindisfrömuður af
lífi og sál, áhugaleikari og
skemmtikraftur. Er þá aðeins tæpt
á nokkrum af þeim hlutverkum
sem þessi eldhugi hefur tekist á við
um dagana. Hann kom til starfa
galvaskur með kennarapróf upp á
vasann um tvítugsaldur og festi
fljótlega ráð sitt. Jóhanna Þórodds-
dóttir er lífsföru-
nauturinn og fyllti sjö-
tíu árin fjórum dögum
á undan bónda sínum
ef marka má þjóðskrá.
Þannig hafa þau verið
samstiga í hálfa öld,
eignuðust fimm mann-
vænleg börn og af-
komendur nú fleiri en
ég hafi tölu á. Heimili
þeirra á Reyðarfirði
stóð öllum opið og
margur sem þess fékk
að njóta.
Best þekki ég til
stjórnmálamannsins
Helga Seljan þar eð við áttum náið
samstarf um áratugi á Austurlandi
og á Alþingi, en hann raunar kom-
inn á sporið með Lúðvík Jósepssyni
löngu á undan mér. Fáir hafa náð
því í stjórnmálastarfi eins vel og
Helgi að vera einarður málafylgju-
maður en halda vinfengi og góðu
sambandi við pólitíska andstæð-
inga. Þessara eiginleika naut hann
meðal annars í forsetastarfi á Al-
þingi og í félagsmálastörfum sínum
utan þings. Á bak við létta lund og
kímnigáfu býr hugsjónamaður sem
hefur fylgt þeirri köllun að bæta
lífið í kringum sig, beina æskufólki
á farsæla braut, tryggja sem flest-
um mannsæmandi kjör, bóndanum
laun erfiðis, lítilmagnanum réttindi
og öryrkjanum aðstæður sem
sæma vel stæðu þjóðfélagi.
Eftir sextán ára farsælt starf á
Alþingi kaus Helgi að hverfa til
annarra verka. Hann bað ekki um
vegtyllur en valdi sér sjálfur
viðfangsefni. Það var mikið happ
fyrir Öryrkjabandalagið að fá hann
sem liðsmann, fyrst sem félags-
málafulltrúa og síðan fram-
kvæmdastjóra. Einnig þar fylgdi
hann vegvísi sínum að freista þess
að létta öðrum byrðarnar. Það hef-
ur honum sannarlega tekist af fá-
gætri ósérhlífni og þrautseigju og
því berast nú að honum hlýir
straumar frá mörgum. Við Kristín
sendum þeim hjónum árnaðaróskir
á merkum tímamótum.
Hjörleifur Guttormsson.
HELGI
SELJAN
Njörður 6004011519 III
Í kvöld kl. 20.00
Lofgjörðarsamkoma í umsjón
starfsfólks gistihússins.
Allir velkomnir.
Landsst. 6004011519 VIII
Fimmtudagur 15. janúar
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 20:00.
Predikun Vörður Traustason.
Mikill söngur og vitnisburðir.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Föstudagur 16. janúar
Opinn AA-fundur kl. 20:00.
Mánudagur 19. janúar
Biblíulestur í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 19.30.
Þriðjudagur 20. janúar
UNGSAM í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 19:00.
Uppbyggilegt starf fyrir ungt
fólk í bata.
www.samhjalp.is
RAÐAUGLÝSINGAR
Málfundafélagið
Óðinn
Aðalfundur
Málfundafélagið Óðinn heldur aðalfund sinn
fimmtudaginn 22. janúar kl. 20.00 í Valhöll við
Háaleitisbraut.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Kaffiveitingar.
Gestur fundarins:
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi.
Stjórnin.
FÉLAGSSTARF
SAMIK
Samstarf Íslands og
Grænlands um ferðamál
SAMIK auglýsir hér með eftir umsóknum um
styrki til verkefna, sem aukið geta samstarf
Íslands og Grænlands á sviði ferðaþjónustu
og skyldra verkefna.
Styrkirnir geta aldrei numið nema 50% af heild-
arkostnaði viðkomandi verkefnis.
Umsóknir skulu sendar samgönguráðuneytinu
- merktar SAMIK - fyrir 10. febrúar nk. á eyðu-
blöðum sem þar fást. Eyðublöðin er einnig að
finna á heimasíðu ráðuneytisins. Allar upplýs-
ingar þurfa að vera á dönsku eða ensku.
Nauðsynlegt er að leggja fram kostnaðaráætl-
un þess verkefnis, sem sótt er um styrk til, auk
nákvæmra upplýsinga um umsækjendur, verk-
efnið og tilgang þess.
Stefnt er að því að ákvörðun um úthlutun
styrkjanna liggi fyrir í lok febrúar.
Fyrri helmingur styrksins er að jafnaði greiddur
út þegar ákvörðun um styrkveitingu liggur fyrir
og seinni helmingur þegar viðkomandi verk-
efni er lokið.
Eldri umsóknir er nauðsynlegt að endurnýja.
Nánari upplýsingar veitir Birgir Þorgilsson,
stjórnarmaður SAMIK, í síma 553 9799.
SAMIK,
samgönguráðuneytinu,
Hafnarhúsinu v. Tryggvagötu,
150 Reykjavík.
www.samgonguraduneyti.is
ATVINNUAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is
ATVINNA
mbl.is