Morgunblaðið - 15.01.2004, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2004 59
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert hugsjónamanneskja
en kannt þó einnig að meta
lífsins lystisemdir. Þú leggur
mikið upp úr sannri vináttu
og hleypir ekki hverjum sem
er nálægt þér.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þetta er góður dagur til að
leita eftir samþykki yfirvalda
eða stórra stofnana við áform
þín. Hikaðu ekki við að koma
hugmyndunum á framfæri.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ert sérlega sannfærandi í
dag og átt því auðvelt með að
fá vini þína til að hjálpa þér.
Mál sem tengjast lögfræði,
útgáfustarfsemi, framhalds-
menntun og ferðalögum ættu
að ganga sérstaklega vel.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þér ætti að ganga vel að
vinna alls konar rannsókn-
arvinnu. Leitaðu svara við því
sem þig langar til að vita. Þú
munt hugsanlega finna lausn
á gömlu vandamáli.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Notaðu daginn til að njóta
samvista við vini þína. Þú hef-
ur næmt auga fyrir fegurð-
inni í kringum þig.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Leggðu þig fram um að sýna
öðrum umhyggju. Hikaðu
ekki við að segja ástvinum
þínum hve mikils virði þeir
eru þér. Við göngum allt of
oft að þeim, sem skipta okkur
mestu máli, sem vísum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Sköpunargáfa þín er með
besta móti í dag. Hikaðu ekki
við að gera breytingar í
kringum þig. Þú ert uppfull/
ur af góðum hugmyndum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þig langar til að verja deg-
inum við lestur eða skriftir
eða til samvista við vini þína.
Þú hefur þörf fyrir að njóta
þess að vera til.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Dagurinn í dag hentar vel til
hvers kyns samningavið-
ræðna um kaup og sölu. Fólk
er jákvætt og því eru mestar
líkur á að viðskiptin muni
koma báðum aðilum til góða.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þetta er góður dagur til fjár-
öflunar. Vertu óhrædd/ur við
að koma hugmyndum þínum
á framfæri í vinnunni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ert í óvenju góðum tengsl-
um við tilfinningar þínar.
Láttu þína nánustu vita hve
miklu máli þeir skipta þig.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú munt njóta þess að vera
ein/n með sjálfri/sjálfum þér í
dag. Þú þarft að taka þér
hvíld frá amstri hversdagsins.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Njóttu samvista við einhvern
sérstakan í dag. Farðu í mat
eða kaffi með vini þínum. Þú
ert félagsvera og þarft því á
félagsskap annarra að halda.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
KONAN MEÐ SJALIÐ
Hún kom eins og draumur,
konan með sjalið,
og hlustaði í kyrrðinni
á kvöldbylgjuhjalið.
Hún brosti með sjalið
um brjóstin vafið ...
En eg var blærinn,
sem barst um hafið.
- - -
Og nú er hún horfin ...
En nóttin er fögur
og segir hjartanu
helgisögur.
Og enn syngur blærinn
og bylgjuhjalið
um hvítasta brjóstið
og svartasta sjalið.
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
SIGURBJÖRN Haraldsson
í sveit Orkuveitu Reykjavík-
ur velti lengi vöngum yfir
bestu leiðinni í fjórum spöð-
um. Setjum okkur í spor
Bessa:
Vestur gefur; NS á hættu.
Norður
♠ÁD95
♥9532
♦D1097
♣8
Suður
♠G108764
♥D6
♦Á8
♣ÁK3
Spilið kom upp í fjórðu
umferð Reykjavíkurmótsins
í leik OR og Essosveit-
arinnar. Sigurbjörn var í
suður, Anton bróðir hans í
norður, en AV voru Ás-
mundur Pálsson og Guðm.
P. Arnarson:
Vestur Norður Austur Suður
Guðm. Anton Ásmundur Sig-
urbjörn
Pass Pass 1 hjarta 1 spaði
Pass 2 grönd * Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
* geimáskorun í spaða
Út kemur hjartaás og
hjartatía í öðrum slag, sem
austur tekur með kóng og
spilar hjartaáttu. Hvernig
myndi lesandinn spila?
Ein augljós hugmynd er
að henda tígli og leyfa vestri
að trompa. Taka svo ákvörð-
un í trompinu síðar – svína
eða reyna að fella kónginn
blankan fyrir aftan. En
Bessi taldi líklegt að spaða-
kóngurinn væri í austur
(vestur sagði ekki eitt
grand) og sá möguleika á
vinningi þó að austur ætti
Kx. Hann stakk frá með
spaðagosa. Síðan var mein-
ingin að spila trompi á ás-
inn. Ef kóngurinn kæmi
ekki, væri enn góð vinnings-
von með því að hreinsa upp
lauf og hjarta og spila austri
svo inn á spaðakóng. Hann
yrði þá að spila frá tíg-
ulkóng eða í tvöfalda eyðu.
Góð áætlun, en Bessi var
óheppinn með leguna, því
trompkóngurinn var í vest-
ur:
Norður
♠ÁD95
♥9532
♦D1097
♣8
Vestur Austur
♠K32 ♠--
♥Á10 ♥KG874
♦432 ♦KG65
♣109654 ♣DG72
Suður
♠G108764
♥D6
♦Á8
♣ÁK3
Það hefði dugað að henda
tígli í þriðja hjartað og svína
svo fyrir trompkóng. Svona
er lífið við bridsborðið.
Eftir 11 umferðir er sveit
OR efst með 216 stig, sveit
Eyktar er í öðru sæti með
212 og Essosveitin þriðja
með 207. Tvær umferðir
verða spilaðar í kvöld.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 g6
4. d4 cxd4 5. Rxd4 Bg7 6. Be3
Rf6 7. Bc4 0–0 8. Bb3 d6 9. f3
Bd7 10. Dd2 Rxd4 11. Bxd4
b5 12. a4 a6 13. 0–0 Bc6 14.
axb5 axb5 15. Ra2 Bb7 16.
Rb4 Rd7 17. Bxg7 Kxg7 18.
Hae1 Db6+ 19. Kh1 Rf6 20.
Bd5 Hac8 21. He3 Hc5 22.
Ha3 Hd8 23. Hfa1
Hd7 24. Bxb7 Dxb7
25. c3 Hc4 26. De3
Dc8 27. Ha5 Hb7 28.
Ha8 Dd7 29. Dd3
Dc7 30. g3 h5 31. Kg2
Dc5 32. Dd2 h4 33. g4
Rxe4 34. fxe4 Hxe4
35. Rd5 Hxg4+ 36.
Kh3 He4Corus-
ofurskákmótið stend-
ur nú yfir í Wijk aan
Zee í Hollandi og
hægt er að fylgjast
með gangi mála á
Netinu á www.skak-
.is. Í stöðunni hafði
Vladimir Kramnik (2.777)
hvítt gegn Loek Van Wely
(2.617). 37. Hh8! f6 svartur
yrði mát eftir 37. … Kxh8 38.
Dh6+ Kg8 39. Ha8+. Í
framhaldinu reynist svarta
staðan töpuð. 38. Hxh4
Hxh4+ 39. Kxh4 e6 40. Rb4
Hb8 41. Kg3 d5 42. Kg2 Hh8
43. Rd3 Db6 44. Rf4 g5 45.
Dd4! og svartur gafst upp
enda taflið gjörtapað eftir
45. … Dxd4 46. Rxe6+.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Ljósmynd/Inga Rannveig
BRÚÐKAUP. Gefin
voru saman í Dóm-
kirkjunni í Reykja-
vík hinn 31. maí 2003
af séra Jakobi
Hjálmarssyni þau
Helga Bergmann og
Sveinn Kr. Sveins-
son. Með þeim á
myndinni eru börn
þeirra: Carl Andr-
eas, María Rún og
Viktoría Ýr.
85 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 15.
janúar, er 85 ára Hall-
grímur Guðjónsson, fyrrv.
bóndi og hreppsstjóri í
Hvammi, Vatnsdal, nú til
heimilis að Þorragötu 5,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Sigurlaug Fjóla Krist-
mannsdóttir. Þau verða að
heiman.
Þetta er í lagi. Fyrri eig-
andi var tryggður fyrir
sveppum …
60 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 15.
janúar, er sextugur Ragnar
Ingi Aðalsteinsson, Fanna-
fold 103, Reykjavík. Eigin-
kona hans er Sigurlína Dav-
íðsdóttir. Þau taka á móti
gestum kl. 17 í Safnaðar-
heimili Fríkirkjunnar, Lauf-
ásvegi 13.
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK Gullsmára spil-
aði tvímenning á fjórtán borðum
mánudaginn 12. janúar. Meðalskor
264. Beztum árangri náðu:
NS
Kristinn Guðm. – Guðmundur Magnúss. 297
Unnur Jónsdóttir – Jónas Jónsson 292
Sverrir Gunnarsson – Einar Markúss. 287
Sigurpáll Árnas. – Sigurður Gunnlaugss.
286
AV
Dóra Friðleifsdóttir – Jón Stefánsson 360
Sigtryggur Ellertss. – Haukur Bjarnas. 334
Guðjón Ottósson – Guðmundur Guðv. 312
Jón Bondó – Ingólfur Viktorsson 300
Spilað mánu- og fimmtudaga.
Mæting kl. 12.45 á hádegi.
Bridsfélag eldri
borgara Hafnarfirði
Spilaður var Mitchell-tvímenning-
ur föstudaginn 9. janúar. Spilað var á
sjö borðum og var meðalskor 168.
Úrslit urðu þessi:
Norður/suður
Sævar Magnúss. – Bjarnar Ingimarss. 200
Jón Sævaldsson – Ólafur Gíslason 199
Þorvarður S. Guðm. – Árni Bjarnason 198
Stígur Herlaufsen – Sigurður Emilsson 167
Austur/vestur
Jón Pálmason – Stefán Ólafsson 209
Jón Ól. Bjarnas. – Ásmundur Þórarinss. 200
Oddur Jónsson – Friðrik Hermannss. 181
Ásgeir Sölvason – Guðni Ólafsson 161
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Það mættu 18 pör til keppni
þriðjudaginn 6. janúar. Eftirtalin
pör skoruðu mest í N/S-riðli:
Jón Stefánsson - Þorsteinn Laufdal 256
Lárus Hermannss. - Þorleifur Þórarinss.224
Eysteinn Einarss. - Hannes Ingibergss. 222
Hæsta skor í A/V:
Haukur Guðmundss. - Valdimar Elíass. 247
Aðalheiður Torfad. - Ragnar Ásmundss. 246
Guðjón Kristjánss. - Magnús Oddss. 243
Sl. föstudag mættu svo 24 pör og
þá urðu úrslitin þessi í N/S:
Eysteinn Einarss. - Kári Sigurjónss. 261
Júlíus Guðmss. - Óskar Karlss. 253
Guðjón Kristjánss. - Magnús Oddss. 243
Vilhj. Sigurðss. - Þórður Jörundss. 243
Hæsta skor í A/V:
Jón Stefánss. - Þorsteinn Laufdal 256
Ólafur Ingvarss. - Sigtryggur Ellertss. 243
Hannes Ingibergss. - Sigurður Pálss. 234
Meðalskor báða dagana var 216.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Laugavegi 54, sími 552 5201
Árshátíðarkjólar
stærðir 36-46
Útsala
Hverafold 1-3 • Torgið Grafarvogi • Sími 577 4949
Útsala
Komið og gerið
góð kaup