Morgunblaðið - 21.01.2004, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 21.01.2004, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2004 B 3 bílar Hjólið er töluvert þyngra eftir breytinguna og fer upp í 511 kíló. Stærsta þríhjól landsins væntanlegt GUNNAR Rúnarsson í Keflavík er að flytja inn eitt veglegasta mót- orhjól landsins í næsta mánuði, en þá kemur til landsins Goldwing 1800 þríhjól sem hann hefur fest kaup á fyrir konu sína, Maríu Haf- steinsdóttur. Hjólinu er breytt af Lehman Trikes í Bandaríkjunum og byggist á framleiðsluhjólinu en í stað afturdekks er nú komin Ford hásing og tvö afturdekk. Búið er að smíða nýjan afturenda með breið- um afturbrettum utan um hjólin, en taska og hnakkur eru að mestu leyti látin halda sér eins og sést á myndinni. Hjólið er töluvert þyngra eftir breytinguna og fer upp í 511 kíló án bensíns og olíu. Farangursrými er nú í heildina 178 lítrar með breytingunum og snúningshringur þess er tæpir sjö metrar. Gunnar á von á hjólinu um miðjan febrúar og býst hann við að það verði komið strax á götuna því ekki mun snjórinn stoppa þetta hjól. ÞEIM fjölgar stöðugt bílunum sem eru búnir loftkælingu. En jafnvel loftkæling af bestu gerð getur orðið ónothæf vegna þess að stækan óþef getur lagt frá henni ef viðhaldi er ekki sinnt. Sá misskilningur er útbreiddur að eftirlit með loftkælingu sé ávallt innifalið í reglubundnum þjón- ustuskoðunum. Svo er þó ekki alltaf. Oft þarf bíleigandinn að fara sérstaklega fram á að bún- aðurinn sé skoðaður. Lélegt við- hald á loftkælingunni leiðir ekki einungis til þess að vond lykt kemur inn í farþegarýmið heldur getur það líka leitt til kostn- aðarsamra bilana í búnaðinum. Loftkælingin er í raun stöðugt ígangi svo lengi sem bíllinn er í gangi og það er því eðlilegt að búnaðurinn slitni. Ýmsar slöngur og pakkningar þorna upp með ár- unum og það getur orsakað leka. Þannig getur myndast raki í kerfinu sem dregur úr afkasta- getu loftkælingarinnar og veldur óþef. Ef menn verða varir við óþefinn er hægt að athuga hvort nægur kælivökvi er í tanknum. Sé farið að ganga á hann bendir það til þess að loftkælingin þarfnist eftirlits eða viðgerðar. Yfirleitt er tankurinn staðsettur nærri vélinni. Ráðlegast er samt að eftirláta fagmönnum að kanna ástand sjálfs loftkælikerf- isins. Vond lykt frá loft- kælingu TOYOTA jók söluna í Evrópu á síð- asta ári og seldust samtals 834.661 bíll, þar af 21.651 Lexus, í álfunni. Þetta er sjöunda árið í röð sem Toyota eykur söluna í Evrópu. At- hyglisvert er að á sama tíma og heildarbílasalan dróst saman um 2% í Evrópu jók Toyota söluna um 10%. Markaðshlutdeild Toyota í Evrópu er nú 4,7%, sem er sú mesta sem fyrirtækið hefur nokkru sinni náð í álfunni. Toyota fram- leiddi tæplega 466.000 bíla í Evrópu á síðasta ári, tæplega 431.000 vélar og 117.000 gírskiptingar í verk- smiðjum sínum í Bretlandi, Frakk- landi, Tyrklandi og Póllandi. Toyota hefur sett sér það mark að selja 850.000 Toyota- og Lexus-bíla í Evrópu á þessu ári. Toyota eyk- ur söluna 7. árið í röð BMW M5, innfluttur nýr af umboði, 400 hö, nýskráður 08/00, ek. aðeins 37þ. Km., leðuráklæði, 18” álfelgur, ABS, stöðugleikakerfi, spólvörn,affelg- unarbúnaður, dekkjaloftþrýsingsviðvörun, Xenon ljós, geislaspilari, fjarst. samlæsingar, þjóvavörn, hiti í sætum, kastarar, átta öryggispúðar, loftkæling, rafdrifin sæti, spoil- er, sími og handfrjálsbúnaður, sjónvarp og margt, margt fleira. Verð aðeins kr. 5.900.000 Verð 5.900.000 400 Hö Einstakur bill - M5!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.