Morgunblaðið - 04.02.2004, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2004 B 3
bílar
FORNBÍLAKLÚBBURINN hyggst
reisa hús undir starfsemi sína, bíla-
safn og félagsheimili, í Elliðaárdaln-
um. Klúbburinn hefur um nokkurra
ára skeið átt í samskiptum við
Reykjavíkurborg um málið en um
miðjan janúar var nýtt deiliskipulag
fyrir Elliðaárdalinn samþykkt. Forn-
bílaklúbburinn hyggst því ljúka end-
anlegri hönnun á húsi sínu í dalnum
og er ætlunin sú að húsið verði reist
á þessu ári.
Bílasafn og
félagsheimili
fornbílamanna
INGVAR Helgason, umboðsaðili
Nissan á Íslandi, á von á fyrstu
sendingu af Nissan Kubistar í apríl
næstkomandi.
Nissan Kubistar tilheyrir minni
gerð sendibíla. Bíllinn er framdrifinn
með tvískiptri afturhurð og mögu-
leiki á að velja um að hafa hlið-
arhurð vinstra megin eða bæði
vinstra og hægra megin. Gott er að
hlaða og afhlaða bílinn því hurðir
eru stórar og gólfið lágt.
„Þegar er farið að taka niður
pantanir í þessa fyrstu sendingu.
Þetta er góð viðbót við Nissan Int-
erstar og Primastar sem kynntir
voru fyrir nokkru. Með útvíkkun á
tegundum innan Nissan er mun
auðveldara að fá heildarlausn fyrir
fyrirtæki og stofnanir á einum
stað,“ segir Hannes Strange hjá
Ingvari Helgasyni.
Kubistar er í flokki lítilla sendibíla.
Kubistar verður fáanlegur með renni-
hurðum báðum megin.
Fjölgar í
sendibílalínu
Nissan
NÝIR bílar hafa streymt frá Toyota síðustu misserin og
ráðgert var að enginn nýr bíll kæmi fram á þessu ári. Á
þessu verða þó þær breytingar að von er á nýjum Toyota
Corolla Verso og hann verður nú sjö sæta í stað fimm
sæta áður. Bíllinn verður framleiddur í Englandi. Hann er
tilkominn vegna óska frá umboðsaðilum Toyota víða um
heim sem hafa óskað eftir bíl til að keppa við sjö sæta
Opel Zafira og Renault Scenic í lengri gerðinni.
Í sjö sæta gerðinni af Corolla Verso verða sem sagt
sæti fyrir sjö manns en lítið sem ekkert farangursrými
þegar öll sætin eru í notkun. Stóra spurningin er sú hvort
mikil eftirspurn sé eftir sjö manna bílum án farang-
ursrýmis. Peugeot hefur framleidd 307 SW í sjö sæta út-
færslu. Lítil sala hefur verið í þeirri útfærslu víðast hvar.
Sjö sæta bíllinn er væntanlegur hingað til lands í vor.
Sjö sæta
Corolla Verso
Corolla Verso verður nú fáanleg með sjö sætum. Með öll sjö sætin í notkun er lítið farangursrými í bílnum.
LJÓSMYNDIR
mbl.is