Morgunblaðið - 04.02.2004, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 04.02.2004, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2004 B 5 bílar VOLKSWAGEN, sem er þriðja stærsta fyrirtækið í Þýskalandi, er með höfuðstöðvar í Wolfsburg. Þar hefur bílaframleiðsla fyrirtækisins verið síðan á fjórða áratug síðustu aldar og enn er verið að smíða þar einhverja vinsælustu bíla Evrópu. Jafnframt hefur þar á síðustu árum risið annar vinsælasti skemmtigarður Þýskalands, Autostadt, eða Bílaborg- in upp á íslensku. Garðurinn, sem tengist bílaframleiðslu Volkswagen- samsteypunnar órjúfanlegum bönd- um, var opnaður árið 2000 í tengslum við heimssýninguna, EXPO 2000 í Hanover. VW-samsteypan fjárfesti sem nemur 37,5 milljörðum ÍSK á 25 hekturum lands við höfuðstöðvarnar í Wolfsburg til þess að byggja þennan lifandi minnisvarða um bílaiðnaðinn í borginni. Það tók tvö ár að ljúka verk- inu og frá opnun hafa 7,8 milljónir manns heimsótt staðinn. Fyrsta árið sem Bílaborgin var opin voru gestir 2,3 milljónir, eða um helmingi fleiri en VW hafði áætlað. Hús fyrir hvert merki Autostadt samanstendur af fjölda nútímalegra bygginga en sú stærsta kallast KonzernForum og hýsir veit- ingastaði, margmiðlunarsali, 360° kvikmyndahús og ýmsar aðrar tækninýjungar þar sem gestir upplifa bíla og bílaframleiðslu VW-sam- steypunnar. Þá eru í garðinum sjö sjálfstæð hús, hvert öðru sérstæðara í arkitektúr, þar sem hin sjö mismun- andi merki VW-samsteypunnar eru kynnt með aðstoð nýjustu tækni í margmiðlum, þ.e.a.s. Volkswagen, Bentley, Audi, Seat, Lamborghini, Skoda og VW-sendibílar. Nóg fyrir stafni fyrir alla Tveir stórir glerturnar setja svip á landslagið en þeir kallast Auto Turm, bílaturnar, og geta geymt á u.þ.b. tíu hæðum um 400 nýja bíla, samtals 800 bíla, sem gestir Autostadt eru komnir til að sækja. Það er sem sagt gerð há- tíð úr því þegar fjölskyldan kaupir sér nýjan bíl. Hún á kost á því, gegn gjaldi að sjálfsögðu, að sækja bílinn til Autostadt, gista á fimm stjörnu Ritz Carlton hóteli inni á svæðinu og getur um leið fengið leiðsögn um und- ur skemmtigarðsins. Á meðan for- eldrarnir skoða t.d. hið stórkostlega bílasafn VW, þar sem m.a. getur að líta frumgerðina af VW-bjöllunni, geta börnin sótt námskeið í akstri á sérútbúnum bílum fyrir þann aldurs- hóp, fengið tæknifræðslu í gegnum margmiðlunartækni eða skautað á ísilögðum tjörnum innan um nútíma- legan arkitektúr sem á sér vart hlið- stæðu innan bílaheimsins. 6.000 manns á dag Alls hafa verið afhentir í Autostadt um 400.000 nýir VW-bílar síðan 1. júní 2000 og ekkert lát virðist á vin- sældum garðsins. Á hverjum degi sækja um 6.000 manns Autostadt en sú tala fer upp í 15.000 yfir helgar. 39% þeirra sem sækja staðinn heim búa innan við 100 km frá Autostadt en afgangurinn, 61%, kemur hvaðan- æva úr Þýskalandi og heiminum. Spurning er hvenær íslenskar fjöl- skyldur leggja leið sína til Úlfa- og Bílaborgar og sækja nýja fjölskyldu- bílinn sjálfar og gera sér í leiðinni ógleymanlega stund í heimi tækni og arkitektúrs. Heimsókn í Autostadt Volkswagen, annan stærsta skemmtigarð Þýskalands Hátíð við afhendingu bílsins Í Wolfsburg framleiða menn VW-bíla. Í Autostadt afhenda þeir þá og fræða og skemmta um leið kaup- endunum eða þeim sem forvitnin rekur á staðinn. Guðjón Guðmundsson var í hópi þeirra forvitnu. Turnarnir tveir hafa að geyma allt að 800 nýja VW. Eigendurnir sækja þá til Autostadt og njóta lífsins í næststærsta skemmtigarði Þýskalands. Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson Nýir eigendur sækja bíl í Autostadt. Ljósaskiltið í loftinu sýnir nafn kaupandans og hvenær bíllinn er væntanlegur niður á gólf úr turninum. Avensis stendur undir miklum væntingum. Smáatriðin eru stór hvert sem litið er. En upptalning á prenti getur aldrei lýst Avensis fullkomlega - besta tilfinningin fæst með því að aka honum. Komdu í reynsluakstur. www.toyota.is Þegar best lætur upplifir fólk sína villtustu drauma í raunveruleikanum. NÆST EKUR ÞÚ AVENSIS ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 23 00 5 0 1/ 20 04 VAR SVEFNINN SÆTUR?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.