Morgunblaðið - 09.02.2004, Side 4
ÍÞRÓTTIR
4 B MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
„Ég var ekkert hrifinn af okkar leik
því við spiluðum 80% af honum illa,“
sagði Hjörtur Harðarson, þjálfari
kvennaliðs Keflavíkur, eftir leikinn.
„Sóknir okkar voru hræðilegar og við
fengum ekki frí skot auk þess sem KR
spilaði góða vörn en vörn okkar var
reyndar í lagi. Ég skammaði stelp-
urnar fyrir að vera of staðar lengi vel
en það lagaðist ekki fyrr en á síðustu
fjórum mínútunum. Síðan erum við
níu stigum undir þegar rúmar fimm
mínútur eru eftir en þá loks fórum
við að gera það sem við vorum að
reyna að gera allan leikinn, að vera
ákveðnari í sókninni og taka betri
skot auk þess að skila boltanum inn í
teiginn. Við höfum mörg kerfi til að
bregðast við hvort sem er svæðisvörn
eða maður-á-mann vörn en hins veg-
ar fór verst með okkur að skotin okk-
ar rötuðu ekki rétta leið því við vor-
um að skjóta úr erfiðri stöðu þegar
leikmenn aðstoðuðu ekki hver annan.
Við spilum oft á móti svæðisvörn og
það á engin vörn að slá okkur útaf
laginu,“ bætti þjálfarinn við og sagði
spennuna eiga þar hlut að máli. „Við
brugðumst ekki vel við spennunni í
byrjun og börðumst ekki svo það fór
að ganga illa. Keflavíkurstúlkur
spiluðu fæstar eins þær eiga að sér en
það er hluti af svona bikarúr-
slitahelgi að hafa stjórn á stressinu.
Það sýnir síðan styrk liðsins að vinna
upp svona mikið forskot á stuttum
tíma í lokin en á þeim tíma spiluðum
við mjög góða vörn auk þess sem
sóknin var mun beinskeyttari. Auð-
vitað var pressa á okkur fyrir leikinn
og ég vissi að þetta yrði hörkuleikur
en vonaðist til að við kæmum beittari
til leiks. Það gerðist ekki en við náð-
um samt að vinna og það skiptir öllu
máli þegar upp er staðið en margt
hefði mátt fara betur.“
Ekki hrifin af okkar leik
„FÆRIN komu upp úr kerfinu okkar
og voru góð svo að ég hikaði ekki við
að skjóta,“ sagði Svava Ósk Stef-
ánsdóttir, sem skoraði tvær þriggja
stiga körfur í fyrsta leikhluta og
kom þannig Keflavík inn í leikinn
eftir góða byrjun KR. „Það var mikil
stemmning í liðinu fyrir leikinn og
mest hugsað um að hefna fyrir tapið
í fyrra og það mátti ekki endurtaka
sig en það var ekki verra að hafa
unnið KR þrisvar í vetur. Við æfðum
vel fyrir þennan leik og komum upp
góðum liðsanda og hittumst fyrir
leikinn til að gera okkur fínar. Það
fór ekki eins og við ætluðum okkur
með að stöðva Hildi og Katie en það
verður að halda svona úrslitaleik
spennandi og við unnum.“
Sætasti sigurinn
„Þetta er einn sætasti sigur sem
ég hef upplifað,“ sagði Erla Reyn-
isdóttir úr Keflavík. „Við vorum
hreinlega hundlélegar en náðum
loksins þegar fimm mínútur voru eft-
ir að sýna hvað í okkur býr. Það kom
hik í leik okkar þegar KR spilaði
svæðisvörn því við komum boltanum
ekki inn í teiginn en þegar þeir fóru
í maður-á-mann-vörn gekk betur að
koma boltanum inn í teig á Önnu
Maríu og Erlu Þorsteinsdóttur. Við
hittum ekkert lengi vel og það gekk
ekkert að stöðva Katie, sem er mjög
góður íþróttamaður og í raun miklu
betri en við. Það er samt ekki nóg að
hafa tvo leikmenn til að gera út um
svona leik, við höfum tíu og getum
látið fleiri spila. Við sýndum góðan
keppnisanda með því að gera út um
leikinn og ég held að græðgi í sigur
hafi þá haft mikil áhrif enda töpuðu
stelpurnar þessum leik svo illa í
fyrra og ætluðu ekki að láta það ger-
ast aftur.“
„Hikaði ekki við að skjóta“
Morgunblaðið/Eggert
Erla Reynisdóttir.
ÍSLENSKT frjálsíþróttafólk var í
eldlínunni á mótum erlendis um
helgina.
Björn Margeirsson úr FH gerði
það gott á móti í Gautaborg. Hann
varð í 3. sæti í 800 metra hlaupi á
nýju Íslandsmeti en tími hans var
1,53,03 mín. Björn stórbætti árangur
sinn í 1500 metra hlaupi á sama móti.
Hann hljóp á 3:47,84 mínútum og
varð í fjórða sæti í A-úrslitum. Þetta
er annar besti tími Íslendings innan-
húss en Íslandsmetið á Jón Diðriks-
son, 3:45,6 mínútur.
Einar Karl Hjartarson úr FH
stökk 2,15 metra og sigraði í há-
stökki á móti í Idaho í Bandaríkj-
unum. Þetta er þriðja mótið sem
Einar Karl sigrar á á skömmum tíma
en Íslandsmet hans í greininni er
2,28 metrar.
FH-ingurinn Silja Úlfarsdóttir
varð önnur í 200 metra hlaupi á tím-
anum 24,43 sek. og fimmta í 60 metra
hlaupi á 7,66 sek., sem er jafnt henn-
ar besta árangri, á móti í Illinois.
Sunna Gestsdóttir keppti á móti í
Malmö í Svíþjóð um helgina. Hún
sigraði í 200 m hlaupi á 24,64 sek.,
varð önnur í 60 m hlaupi á 7,67 sek.
og sigraði í langstökki þar sem hún
stökk 6,01 metra.
Sveinn Elías Elíasson 15 ára úr
Fjölni setti Íslandsmet í 200 m
hlaupi í flokki 15–16 ára innanhúss á
móti í Malmö. Hann fékk tímann
23,71 sek. og dugar sá tími honum
inn í afrekshóp unglinga.
Íslandsmet
hjá Birni
Ljósmynd/Göran Lenz
Björn Margeirsson í methlaupi sínu í 800 m hlaupi í Malmö, er
hann kom í mark á 1.53,03 mín..
„Ég er auðvitað gríðarlega ánægð
með sigurinn því þetta var svakaleg-
ur leikur,“ sagði Keflvíkingurinn
Anna María Sveinsdóttir, sem hefur
marga fjöruna sopið í bikarleikjum.
„Þær hafa mikið spilað maður-á-
mann vörn á móti okkur en við áttum
alveg eins von á svæðisvörn til að
stöðva okkur inni í teignum því Erla
hefur skorað mikið fyrir okkur í vet-
ur og við vissum að KR-ingar myndu
leggja áherslu á að stöðva hana. Við
lögðum upp með að stöðva Hildi Sig-
urðardóttir og Katie Wolfe. Það gekk
ágætlega með Hildi en ekki Katie,
sem skoraði mjög mikið en hún getur
ekki skorað öll stigin ein. Við náðum
að loka fyrir skotin hjá henni í lokin
og þá gerðu hinar ekki neitt. Við náð-
um síðan að snúa leiknum okkur í
hag í fjórða leikhluta en ég veit ekki
hvað gerðist í þriðja leikhluta, ætli
við höfum ekki verið yfirspenntar og
haldið að þetta kæmi af sjálfu sér en
við ræddum fyrir leikinn og í hálfleik
að það gæti vel farið svo að við þyrft-
um að leggja okkur því við værum
með betra lið en KR og myndum
þannig vinna leikinn. Það gekk samt
ekki eftir – ekki fyrr en síðustu mín-
úturnar þegar við spiluðum eins og
við eigum að okkur og sigum framúr.
Við skulum bara segja að reynslan
hafi spilað þar inní.“
Anna María sagði spennuna mikla
fyrir leikinn og það hafi haft áhrif.
„Ég held að spennustigið hafi verið of
hátt í byrjun því við töpuðum í fyrra
og ætluðum ekki að láta það end-
urtaka sig. Okkur var spáð sigri því
við erum með sterkara lið á papp-
írunum en þegar í bikarleik er komið
þá skiptir öllu máli hvernig lið kemur
stemmt til leiks. KR er með mjög gott
lið sem spilar vel saman svo að við
vissum á hverju við áttum von. Við
höfum líka tapað fyrir þeim einu
sinni í vetur svo að við vorum ekkert
of sigurvissar. Svona dagur er alltaf
mjög skemmtilegur og ég held að við
höfum verið of spenntar í byrjun og
því varð leikurinn svona.“
„Reynslan
spilaði inní í
lokin“
HELGI Rúnar Bragason gerði sér
lítið fyrir og vann sér inn 100.000 kr.
á bikarúrslitaleik Keflvíkur og
Njarðvíkur. Það var Lýsing sem stóð
að keppninni og fengu tveir kepp-
endur að spreyta sig á þriggja stiga
skoti. Fyrri keppandinn hitti ekki en
Helgi Rúnar setti knöttinn af nokkru
afli beint í körfuspjaldið og ofaní.
Hann gekk að áhorfendum og fór úr
bolnum sínum og þar undir var hann
klæddur í búning Grindavíkurliðsins
í körfuknattleik. Þess má geta að
Helgi Rúnar lék á sínum tíma með
Grindavík og bróðir hans er Guð-
mundur Bragason úr Grindavík.
Helgi fékk
100 þúsund
Snemma í fyrrihálfleik var ljóst
að silkihanskar yrðu
ekki
notaðir
því
harkan
var
mikil og tveimur gest-
um vísað af velli áður
en fimm mínútur voru
liðnar. Það dugði samt
ekki dómurum leiksins
til að ná tökum á
leiknum. Grótta/KR
náði forystu og hélt
henni með naumindum
en loks er ÍR tókst að
jafna 8:8 kom Konráð Olavson
inná til að koma heimamönnum
aftur í forystu með tveimur mörk-
um í röð. Rúmri mínútu fyrir
leikhlé var Grótta/KR með boltann
og tók leikhlé en það dugði ekki
betur en svo að ÍR skoraði þrjú
næstu mörk og hafði yfir, 16:14, í
hálfleik.
Fyrstu tíu mínúturnar eftir hlé
var leikurinn í járnum þegar
heimamönnum tókst ekki að nýta
sér þegar Hlynur Morthens varði
fyrir þá 8 skot, þar af eitt víti. Síð-
an brast stíflan og í stöðunni 21:17
fyrir ÍR-inga var tveimur þeirra
vikið af velli eftir ranga innáskipt-
ingu en sem fyrr tókst Gróttu/KR
ekki að nýta sér það. Reyndar
munaði ekki miklu að ÍR-ingar
kæmust upp með brotið, hvorki
dómarar leiksins né eftirlitsdóm-
arar tóku eftir þegar aukaleikmað-
ur hljóp inná og svo aftur útaf
beint fyrir framan þá. Fleiri gullin
tækifæri fékk Grótta/KR ekki en
þá ákváðu leikmenn að gera þetta
sjálfir, bættu duglega við barátt-
una sem dugði til að brjóta baráttu
ÍR á bak aftur og sem fyrr segir
gerðu 8 mörk á móti einu út um
leikinn.
„Við náðum ekki undirtökunum
fyrr en á réttu augnabliki,“ hélt
Hörður áfram ánægð-
ur með baráttu liðs-
ins þar til yfir lauk.
„Undir eðlilegum
kringumstæðum og
miðað við hvernig við
höfum spilað að und-
anförnu, hefði dregið
úr baráttunni en það
gerðist ekki og ég er
ánægður með að við
hættum aldrei og
börðumst allan tím-
ann eins og karlinn í
brúnni sagði okkur að
gera. Það skilaði okk-
ur sigri auk þess að
allir á bekknum hjá
okkur létu heyra í sér og líka
áhorfendur. Við eigum að vinna
alla heimaleiki og ég tel að við eig-
um ekkert að víkja frá því enda
held ég að deildin verði mjög jöfn,
allir geta unnið alla og enginn
öruggur með neitt.“ Hlynur mark-
vörður átti stóran þátt í sigrinum
og Kristinn Björgúlfsson kom
sprækur inná
en í heild skilaði þrautseigja
liðsheildarinnar sigrinum.
Hljóðið var þungt í Fannari Þor-
björnssyni línumanni ÍR eftir leik-
inn. „Við klúðrum þessum leik með
einhverjum tuttugu sóknarmistök-
um eftir hlé því það gengur aldrei
upp á góðum útivelli í úrvalsdeild-
inni. Mér fannst alltaf einhver
vera útaf hjá okkur meirihlutann
af seinni hálfleik og það er erfitt
að spila þannig til lengdar,“ sagði
Fannar eftir leikinn og taldi aldrei
hægt að slaka á. „Þar sem við vor-
um efstir í úrvalsdeildinni héldu
allir að við myndum vinna neðsta
liðið svo að þetta var sérstaklega
slæmt tap en það er ekkert gefið í
úrvalsdeildinni. Þar eru átta bestu
liðin á Íslandi og ekkert öruggt.“
Einar Hólmgeirsson var sprækur
til að byrja með og mikið fór fyrir
Fannari á línunni en megnið af
síðari hálfleik var bara barningur.
ÍR-ingar
sofnuðu á
verðinum
NÓG fékk Grótta/KR af tækifærum til að ná yfirhöndinni gegn efsta
liði úrvalsdeildarinnar í handknattleik á Seltjarnarnesi í gærkvöldi
en það var ekki fyrr en síðustu tíu mínúturnar að Breiðhyltingum
fataðist illilega flugið svo að heimamenn gengu á lagið og með átta
mörkum gegn einu síðustu tíu mínúturnar vann Grótta/KR 29:26.
„Ég hefði viljað koma fyrr inná og þá helst ekki í hægra hornið en
einhvers staðar verður maður að spila og ágætt að prófa það,“
sagði Hörður Gylfason sem kom inná í lokin til að skora þrjú síðustu
mörkin. „Maður verður bara að loka augunum og bomba, einhvern
tímann hlýtur boltinn að fara í markið,“ bætti garpurinn við.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Páll Þórólfsson