Morgunblaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 10
10 | FÓLKIÐ | FÖSTUDAGUR 5|3|2004 MORGUNBLAÐIÐ 1 w w w. g u l a KLIPPTU OG SPARAÐU 1 4 4 4 w w w. g u l a l i n a n . i s Erum búin að opna. Mýrargötu 2-8 // 101 Reykjavík símar 534 5577 // 694 5577 Opnunartilboðin í gangi: 1 mán............................. 3 mán........................... 6 mán........................... 1 ár............................... 5.500.- 10.500.- 17.000.- 28.500.- Nú er rétti tíminn!! Styttist í sumar og grill Frábær tilboð föstudag og laugardag Bæjarlind 2, 201 Kópavogur sími 564 2100 vingerdin@simnet.is www.vingerdin.is    15% a fslát t ur á ma t Yfirfærum á DVD og CD 60 mín. efni með 20% afslætti 2.540.- Tilboðið gildir til 10. mars. Sími: 577 1777 • bergvik@bergvik.is Leikstjóri nýjustu hasarmyndar stórleikarans Denzels Washington, er Carl Franklin, vandvirkur og frumlegur fagmaður sem vakti óskipta athygli fyrir One False Move. Hún er gjarnan flokkuð sem ný- rökkurmynd (neo-noir), og ein sú besta af mörgum slíkum. One False Move vakti ekki aðeins athygli á Franklin, heldur leiddi hún fram í sviðsljósið einn virtasta og fjölhæfasta kvikmyndagerðarmann sam- tímans, Suðurríkjamanninn vinsæla, Billy Bob Thornton. Hann fór með eitt aðalhlutverkanna og er að auki annar höfunda handrits- ins sem býr yfir ískyggilegri sögufléttu. One False Move (’92), var sem fyrr segir fyrsta umtalsverða myndin á merkilegum ferli Billys Bobs. Fjórum árum á undan Sling Blade, sem færði honum Óskarsverðlaun fyrir besta handrit ársins og tilnefningu fyrir bestan leik í aðalhlutverki – og varanlegan sess í Hollywood. (BBT var einkar óhepp- inn, því Geoffrey Rush kom fram á sjón- arsviðið sama ár með engu síðri stórleik sem píanóleikarinn ógæfusami, David Helf- gott í Shine.) CARL, DENZEL OG BILLY BOB Leiðir Carls Franklin og Denzels Wash- ington liggja saman í annað sinn í Out of Time. Áður hafa þeir gert í sameiningu spennumyndina Djöfullinn í bláu, eða Devil in a Blue Dress. Denzel leikur Easy Rawl- ins, einkaspæjaraa í Los Angeles, sem kemst að miður gæfulegu leynd- armáli. Myndin er minnisstæð fyrir lýtalausa endursköpun á tíma og rúmi, allt til fínustu smáatriða. |saebjorn@mbl.is  http://sveinn.cartland.net/ „Ég var að komast að því að naflinn minn er breyttur, hann hefur grynnkað. Ég, eins og Konni, á það til að fitla við nafl- ann minn en áðan var þetta eitthvað öðruvísi en venjulega, hann var ein- hvernveginn grynnri. Ég veit ekki alveg hvernig mér á að líða, hvort ég eigi að hlæja eða gráta. Kannski á maður bara að taka breytingunum opnum örmum, þó þær komi í formi grynnri nafla … ég þarf að gera þetta upp við mig sem fyrst.“ 1. mars 21.04  http://gunnare.askja.org/ „Ég er búinn að taka eftir öðrum stórum galla við Laugar. Þessi galli er líka öllu alvarlegri en sá að ekki er hægt að fá al- mennilega kalt drykkjarvatn þarna klukkan 6 á morgnana. Málið er nefni- lega að í massahorninu er áberandi skortur á lóðum til að raða á stöngina í bekkpressunni. Það lúkkar náttúrulega engan veginn að vera með ósamstæð lóð á sitthvorum enda stangarinnar. Maður er eins og fífl þarna þar sem mað- ur liggur undir stönginni og á öðrum end- anum er risastórt 20 kg gult gúmmí lóð en á hinum er pervisið blátt lóð sem þó er jafnþungt. Lóðaskorturinn þarna í Laugum er svo gríðarlegur að það mætti halda að R-listinn stjórnaði þessu batter- íi *búrrúmmtjsss*“ 18. febrúar 15.05. Kæri blogger.com… Kapphlaup við tímann Í spennumyndinni Fallinn á tíma – Out of Time leikur Denzel Washington lögregluforingja sem lendir í hrikalegum ógöngum í starfi. Hann verður að vera nokkrum skrefum á undan lögreglumönnum sínum – annars beinist grunurinn að honum sjálfum í rannsókn á tvöföldu morðmáli í bænum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.