Morgunblaðið - 05.03.2004, Qupperneq 11
Það eru til mótorhjól og það eru til Harley Dav-
idson. Þessi voldugu tryllitæki bera höfuð og
herðar yfir önnur í vélhjólamenningunni og þeir
eru ófáir sem telja þau hina einu, sönnu ímynd
karlmennskunnar. Í Bandaríkjunum eru vít-
isenglar nútímaímynd knapa villta vestursins.
Þú finnur ekki útlaga samtímans á Trigger eða
Rock of Gibraltar. Ef hann er kominn af byssu-
bófum að langfeðgatali geysist hann um víðátt-
urnar miklu sem öngstræti slömmhverfanna á
Harleynum sínum. Torque fjallar um þessa
mótorhjólatöffara og sprengikraftinn í ofurhjól-
unum. Handritshöfundur spinnur ásta- og
spennusögu í kringum nokkra ískalda náunga,
sem heita gömlum og góðum vestranöfnum:
Cary Ford (Martin Henderson), Trey (Ice Cube),
Shane (Monet Mazur), Henry James (Matt
Schulze) og Dalton (Jay Hern-
andez).
Shane er, vel að merkja,
ekki arftaki nafna síns sem Alan
Ladd gerði ódauðlegan í sam-
nefndum vestra á síðustu öld.
Heldur ljóshærð kynbomba, sem
fer ákaflega vel að klæðast að-
skornu, skínandi svörtu leð-
urdressi frá toppi til táar.
Torque snýst á fullri ferð
um stræti og torg Los Angel-
es, Palm Springs og víðar í
sólbökuðu Kaliforníufylki.
Cary á í blóðugri baráttu við
að þvo nafn sitt og sleppa við
líflátsdám vítisengla undir for-
ystu skrattakollsins Trays.
Hraðbrautin Interstate 101 kemur talsvert við sögu
– sem leiðir hugann að mikilfenglegum Harley Dav-
idson-myndum. Þessar eru bestar:
The Wild One László Benedek
(’53). Fyrsta, umtalsverða mót-
orhjólagengjamyndin er rómantísk harð-
jaxlamynd um tvo flokka sem lenda í úti-
stöðum í smábæ í Kaliforníu. Forsprakkarnir
ekki af verri endanum: Marlon Brando og Lee
Marvin.
Easy Rider Dennis Hopper (’69). Sú
frægasta segir af vinum (Hopper og Pet-
er Fonda), sem leggja hraðbrautir hippa-
tímanna undir undir HD „Chopperana“,
og fara í örlagaríka skoðunarferð um
Ameríku.
Mask Peter Bogdanovich (’85).
„Gleymda“ gæðamyndin hans Bogdano-
vich kemur með nýja sýn á vélhjólamenn-
inguna. Sam Elliot leikur töffara með tilfinn-
ingar. Gerist verndari afskipts og vanskapaðs
sonar vinkonu sinnar (Cher) í genginu.
|saebjorn@mbl.is
Leður, króm og blóð
Forsprakki mótorhjólagengis segir vélhjólaknapann
Cary (Martin Henderson) morðingja eins félaga þeirra –
sem var bróðir Trey (Ice Cube). Hann er foringi hrikaleg-
asta vítisenglagengis landsins og hyggur á hefndir. Cary
er dauðans matur ef hann finnur ekki rétta morðingjann.
FRUMSÝNINGAR HELGARINNAR:
Sambíóin Reykjavík og Akureyri:
Torque. Leikstjóri: Joseph Kahn. Með Martin Henderson, Ice
Cube, Monet Mazur.
Smárabíó, Regnbogi, Borgarbíó Akureyri: Out of Time. Leikstjóri:
Carl Franklin. Með Denzel Washington, Evu Mendes, Dean Cain.
Laugarásbíó, Sambíóin, Borgarbíó Akureyri: School of Rock.
Leikstjóri: Richard Linklater. Með Jack Black, Joan Cusack, Mike
White.
Jack Black stendur hlutverkinu nær en marga grunar því þessi
frábæri gamanleikari er í raunveruleikanum harður rokkari og
einn af stoltum meðlimum hljómsveitarinnar Tenacious D. Hann
er því á heimaslóðum í hlutverki Deweys í Rokkskólanum sem
bæði naut mikilla vinsælda og hlaut frábæra dóma gagnrýn-
enda í Bandaríkjunum á síðasta ári.
Meginástæðurnar fyrir fyndninni og velgengninni eru kostu-
legur leikur þeirra Jacks Black, Joan Cusack (sem er alltof fáséð
en stórfengleg gamanleikkona) og Mike White, og ekki síður
handrit þess síðastnefnda.
White er einn frumlegasti og meinfyndnasti penninn í Holly-
wood, og maðurinn á bak við nokkrar af óvæntustu og óvenju-
legustu myndunum sem þaðan hafa komið upp á síðkastið.
White er hvergi banginn við að fara
nýjar og ótroðnar slóðir, eins og kem-
ur skýrt fram í The Good Girl, Orange
County og Chuck & Buck. White er
jafnframt þrælskemmtilegur leikari
sem kemur fram í flestum mynda
sinna.
Jack Black kemur næst fram í Öf-
und – Envy, nýjustu mynd Barrys Lev-
insons, sem verður frumsýnd í byrjun
apríl.
Á myndbandinu Tenacious D: The
Complete Masterworks, blasa við
ótvíræðir hæfileikar Blacks sem rokk-
ari af guðs náð. Leikstjórinn er Spike
Jonze, sem á m.a. að baki ekki
ómerkari myndir en Adaptation og
Beeing John Malkovich, auk fjölda
tónlistarmyndbanda með Björk,
R.E.M., Beastie Boys o.fl. af þekkt-
ustu poppurum samtímans.
Black of, félagar hans í „bestu
hljómsveit í heimi“ – að eigin mati,
hyggjast frumsýna tónlistarmyndina Tenacious D in: The Pick of
Destiny, árið 2005.
Í gegnum tíðina hefur mikill fjöldi dægurtónlistarmanna reynt
fyrir sér á hvíta tjaldinu með misjöfnum árangri. Sjálfsagt kemst
enginn í hálfkvisti við „Kónginn“ sjálfan, Elvis Presley (1935–
1977) sem lék í rösklega 30 myndum. Flestar auðgleymdar, ut-
an lög og tilþrif söngvarans sem hörðustu aðdáendurnir telja
ekkert minna en ódauðleg.
Þær bestu: Flaming Star, Jailhouse Rock og King Creole – all-
ar gerðar fyrir 1960.
|saebjorn@mbl.is
Rokkarar
af guðs náð
Í grín- og tónlistarmyndinni Rokkskólinn
– School of Rock fer Jack Black með
hlutverk snargeggjaðs gítarleikara sem
ofmetur greinilega hæfileikana því hann
er rekinn úr eigin bandi. Fullur örvænt-
ingar um yfirvofandi atvinnuleysi villir
Dewey á sér heimildir og kemst í stöðu
afleysingakennara. Og er búinn að um-
turna lúsiðnum fimmtubekkingum í harð-
soðna þrumurokkara áður en skóla-
meistarinn nær að þurrka af
gleraugunum.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5|3|2004 | FÓLKIÐ | 11
4 4 4
a l i n a n . i s
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s
TILBOÐSMIÐAR
15% a
fslát t
ur
á ma
t
Gildi
r fyri
r tvo
Laugavegi 3
S: 552 0077
www.bakarameistarinn.is