Morgunblaðið - 19.03.2004, Side 31

Morgunblaðið - 19.03.2004, Side 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 31 STOFNUN Sigurðar Nordals gengst fyrir málþingi um útflutning á ís- lenskri sögu(endur)skoðun í Þjóðar- bókhlöðunni kl. 13.30 á morgun, laug- ardag. Rætt verður hvernig nýjar rannsóknir á sögu Íslands hafa náð inn í yfirlits- eða kynningarrit, kvik- myndir og sýningar um íslenska sögu, sem einkum eru ætlaðar út- lendingum. Hvað gerðist, hvernig er þess minnst, hvað hefur komið fram í rannsóknum, hvernig er það sett fram hér á landi, ekki aðeins til „land- kynningar“ heldur sem framlag til upplýsingar og fræðslu? Leitast verð- ur við að svara þessum spurningum. Þingið er ætlað fræðimönnum, kennurum, ferðamálafrömuðum og öðrum sem hafa áhuga á efninu. Flutt verða fjögur stutt framsöguerindi. Fyrirlesarar verða sagnfræðingarnir Hilma Gunnarsdóttir, Helgi Skúli Kjartansson, Ólafur Rastrick og Þor- steinn Helgason. Að framsöguerind- um loknum verða almennar umræð- ur. Frekari upplýsingar um dag- skrána er að finna á vefsetri Stofn- unar Sigurðar Nordals: www.nor- dals.hi.is. Málþing um útflutning á íslenskri sögu Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina 23. mars til Kanaríeyja á hreint ótrúlegu verði. Beint flug og þú getur valið um eina eða tvær vikur í sólinni. Það er um 28 stiga hiti á Kanarí um miðjan mars, og hér er auðvelt að njóta lífsins við frábærar aðstæður. Þú bókar ferðina núna og tryggir þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir brottför, færðu að vita hvar þú gistir. Á meðan á dvölinni stendur nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar allan tímann. Síðustu sætin Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 49.950 Verð fyrir mann, m.v. 2 í íbúð, gisting, skattar. 23. mars, 7 nætur. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Alm. verð kr. 52.450. Bókunargjald kr. 2.000. Val um 1 eða 2 vikur. Stökktu til Kanarí 23. mars frá 39.995 Verð kr. 39.995 Verð fyrir manninn, m.v. hjón með 2 börn, 2- 11 ára, flug, gisting og skattar. 23. mars, 7 nætur. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Alm. verð kr. 41.994. M.v. að bókað sé að www.heimsferdir.is Bókunargjald kr. 2.000. Málarinn Veturliði Gunnarsson semí dag verður kvaddur var af stórahópnum svonefnda við myndlist-arnám í Kaupmannahöfn fyrstu árin eftir seinni heimsstyrjöldina. Flestir á Konunglegu listakademíunni við Kongens Ny- torv, aðrir við skóla Rostrup Boyesen í Rík- islistasafninu. Aldrei í sögunni munu jafn margir Íslend- ingar hafa verið samtíða í hinni virðulegu og þá nær 200 ára gömlu stofnun. Þótt umdeild væri taldist drjúg upphefð að vera þar í náðinni, margir kallaðir en fáir útvaldir og inntaka nemenda mikið mál. Þetta segir nokkuð af þeim stórhug, eldmóð og metnaði sem var ríkjandi með nýfrjálsri þjóð, í stríðslok nokkra stund fyrir skikkan óheppilegrar atburðarásar í álfunni með þeim aflögufærustu um matföng og eyðslueyri. Þessi sókn framsækinna listnema til fyrri höfuðborgar þjóðarinnar hafði fjarað út er mig bar að haustið 1950, var eina nýliðunin það ár- ið, örfáir enn viðloðandi og Ólöf Pálsdóttir á fullu í höggmyndadeild. Nokkur spurn hví bókmenntaþjóðin hefur ekki gert þessari miklu sókn til náms í myndlist sem öðrum list- greinum á fjórða áratugnum nein skil, útrásin náði til fleiri átta, einkum Parísar og London. Veturliði Gunnarsson var einn þessara hug- umstóru og vonglöðu frjósprota, jafnframt um skeið einn hinn aðsópsmesti í hópi framsæk- inna myndlistarmanna á sjötta áratugnum. Ennfremur með þeim umdeildustu sökum þess að hann var einn fárra listamanna af yngri kynslóð sem héldu tryggð við hið hlut- vakta á árum holskeflu óhlutlægra viðhorfa er enginn þótti maður með mönnum sem ekki var hér meðvitaður og innvígður. Sjötti og sjöundi áratugirnir eru mér afar minnisstæðir, skilj- anlega einkum hinn fyrri, og þá voru samskipti okkar Veturliða einmitt nánust. Í upphafi ára- tugarins var ég einhvern tíma staddur í Engla- borg, húsi Jóns Engilberts, okkar sameig- inlega kennara og velunnara, er Veturliði kom aðvífandi og vorum við snarlega kynntir. Gust- aði af honum og lifnaði veggja á milli við komu hans. Tove spúsa Jóns bar okkur fljótlega kaffi og meðlæti, otaði brosandi að mér einhverju sem hún nefndi Veturliðakökur, þó líkast til fyrir það eitt að málarinn var sólginn í þær. Næst skeður að ég var kominn í nám við listakademíuna í Osló haustið 1950 ásamt með Guðmundi Guðmundssyni (Erró), vorum þó hvor hjá sínum prófessornum; Jean Heiberg og Aage Storstein. Fengum þá óvænt orð frá Veturliða, stöddum á einhverju fínu hóteli í miðborginni ásamt róðu sinni Unni Aðalheiði, um innlit og spjall, vildi líka sjá hvað við vær- um að gera. Eftirminnileg og stormasöm sýn- ing í Listamannaskálanum í Reykjavík að baki og maðurinn nánast heimsfrægur í höfuðborg unga lýðveldisins á norðurhjaranum. Heim- sóknin í hótelsvítu listamannsins afar upplífg- andi og minnisstæð, er fullviss um að Erró muni hana jafn vel og ég. Mikill hugur í Vet- urliða sem var á upphafsreit ferðalags til fleiri borga Evrópu. Eins og persónugervingur metnaðar og mikilleika stóð voldug ferðakista á miðju gólfi, þannig að líkast var sem rúss- neskur stórfursti úr fortíð eða sjálfur Einar Benediktsson væri á ferð. Hér ungur og vilja- fastur listamaður á flakki, á meintri leið með að takast á við dýpri lífæðar verundarinnar, sigra heiminn. Innlitið hafði mikil áhrif á okk- ur Guðmund, lítilsigldar og óþekktar listspír- urnar, ýmislegt vænlegt til upplits og eft- irsóknar, bjuggum enda við aðrar og frumstæðari aðstæður sem og sparlegan kost, hleypti kappi í kinn, var sem þotueldsneyti til átaka. Eitthvað hefur Veturliða hugnast við okkur, minni spámennina, því á ferð með aka- demíunni á leið til Spánar með stuttri viðkomu í París vorið 1953, hvar listamaðurinn var þá staddur, vakkaði hann okkur eina dagstund milli safna og listhúsa. Var hvergi banginn við stórmenni þar sem við óðum yfir, vorum til að mynda um stund í miðri upphengingu verka Victors Vasarelys á einhverri mikilsháttar vor- sýningu Nútímalistasafnsins með sjálfan meistarann í snertifjarlægð. Alls óvelkomnir en sluppum um horn fyrir bragðvísi æskunnar. Nokkrum árum seinna vildi svo til að við Veturliði voru samtímis teknir inn í Félag ís- lenzkra myndlistarmanna, sem á þessum löngu liðnu árum var ungum listamönnum ígildi þess sem fálkaorðan var eldri kynslóð. Tilviljanir réðu því svo rúmum áratug seinna, að enn ein stórsýning Veturliða í Lista- mannaskálanum í október 1966 reyndist fyrsta verkefni mitt nýráðins listrýnis við blaðið. Þá var ég löngum reglulegur gestur á heimili Vet- urliða, en hann skipti oft um vistarverur, bjó um skeið á Hverfisgötu rétt þar hjá sem vatnsþró var áður staðsett. Í húsinu á mótum Skólavörðustígs og Laugavegs þar sem Tóm- asarkjötbúð var í kjallaranum. Loks lengi í húsi Barböru og Magnúsar Á. Árnasonar við Borgartún eftir að þau fluttu þaðan en hann var mikill vinur þeirra og hafði margoft ekið þeim um landið. Minnist þess hve aðkoman var hámenningarleg á öllum stöðunum, aðskilj- anleg skilirí um alla veggi og hlaðar íslenzkra fagurbókmennta á borðum, Veturliði hér með á nótunum og ekki skorti heldur á ferskar listaverkabækur né áhugann á að blaða í þeim og ræða innihaldið. Viðveran jafnaðarlega mikil upplyfting og aldrei neitt siðspilltara í nágrenninu en kaffi og hnallþórur eins og skáldið sem húsráðandi mat svo mikils orðaði það löngu seinna á bók. Svo þróuðust illu heilli hlutir á þessum árum að Veturliði fékk mein sem gerði að verkum, að burtnema þurfti þrjá fjórðu hluta magans, sem gerði þennan tápmikla hugumstóra mann að sjúklingi næstu árin, hafði djúpstæð áhrif á líf hans og lífsviðhorf og kom róti á sálartetrið. Allan tímann var Unnur Aðalheiður hans stóri og sterki bakhjarl, hugsaði frábærlega um heimilið og bæði úti- sem heimavinnandi. Um skeið þerna á Gullfossi og naut ég þess árið sem ég vann á grafíkverkstæði akademíunnar 1955–56, kallaði stundum í mig á landlegum og bauð mér að heimsækja sig í skipið. Eftir að Unnur hætti þernustörfum hafði hún að að- alstarfi að sauma íslenzka fánann fyrir óska- barn þjóðarinnar og var iðulega með nálina á lofti er mig bar að í þeirra rann. Ár liðu og menn og tímar breyttust, en þótt margra hluta vegna strjálaðist á fundum okk- ar Veturliða er leið á öldina var jafnan hlýtt milli okkar, brúnir lyftust og brugðu í leik er við hittumst. Síðast bar fundum okkar óvænt saman í Listasafni ASÍ daginn eftir að opnuð var minningarsýning á verkum Ragnars í Smára og nú stendur yfir. Augljóst að mikið var af honum dregið sem greindist einkum í ásjónu hans og litarafti, átti þó ennþá til þetta fjörlega blik í auga og kankvísa bros sem alla tíð einkenndi hann á góðum stundum. Málverk Veturliða Gunnarssonar áttu lítið upp á pallborð hinna leiðandi á tímum strang- flatalistarinnar, óformlegur, umbúðalaus og hlutvakinn tjáferill fullkomlega utangarðs, passé. Þó má allt eins halda því fram að lista- maðurinn hafi verið á undan tímanum, því vinnubrögðin voru ekki alls óskyld þeim sem áratugum seinna þóttu algild á tímum nýja málverksins. Styrkur og staða hins fljóthuga og örgeðja listamanns verður þó áfram óskrif- að blað þar til bjarmar af heilbrigðari við- horfum, vel undirbúin og mótuð yfirlitssýning á lífsverki hans sett upp, hið gildasta dregið í ljós. Veturliði Gunnarsson eftir Braga Ásgeirsson ALÞJÓÐLEGI barnaleikhúsdag- urinn verður haldinn hátíðlegur á laugardag í þriðja sinn. Af tilefn- inu verður vefsvæði ASSITEJ- samtakanna á Íslandi opnað í Nor- ræna húsinu á laugardaginn kl. 16.30 þann dag. Flutt verða ávörp í tilefni dagsins eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur rithöfund og einnig frá alþjóðasamtökunum. ASSITEJ eru alþjóðleg samtök um barna- og unglingaleikhús sem eiga sér fulltrúa í yfir sjötíu lönd- um. Hinn 15.–19. maí næstkom- andi verður haldin hér á landi Norræn barnaleikhúshátíð í sam- starfi við ASSITEJ sem ber yf- irskriftina „Fyrir austan mána og vestan sól“. Þar verða sýnd barna- leikrit frá öllum Norðurlöndunum auk þess sem ástralska listakonan Tamara Kirby kemur og stendur fyrir námskeiði sem mun ljúka með gjörningi í Hljómskálagarð- inum með þátttöku gesta hátíð- arinnar og íslenskra barna. Gjörn- ingurinn er samstarfsverkefni hátíðarinnar og Listahátíðar í Reykjavík. Í stjórn ASSITEJ á Íslandi sitja Hallveig Thorlacius, Helga Arnalds, Eggert Kaaber og Pétur Eggerz. Frítt á sýningar í Möguleikhúsinu Í tilefni dagsins munu Mögu- leikhúsið og Stoppleikhópurinn bjóða börnum og fullorðnum frían aðgang að tveimur leiksýningum í Möguleikhúsinu við Hlemm þann dag. Kl. 13 sýnir Möguleikhúsið leiksýninguna Tveir menn og kassi eftir Torkild Lindebjerg og kl. 15 sýnir Stoppleikhópurinn leikritið Landnámu eftir Valgeir Skagfjörð. Alþjóðlegi barnaleik- húsdagurinn KÓRSTJÓRNARNÁMSKEIÐ á vegum Tónskóla Þjóðkirkjunnar hefst í Norðursal Hallgrímskirkju kl. 17 í dag, föstudag. Tekinn verður fyrir flutningur á tveim kantötum eftir J. S. Bach. Leiðbeinandi er Hörður Áskels- son, organisti í Hallgrímskirkju. Námskeiðið er í þrem lotum, í mars apríl og maí. Í síðustu lot- unni verður einnig unnið með hljóm- sveit og er áætlað að námskeiðinu ljúki með flutningi verkanna með kór og hljómsveit. Meðal virkra þátttakenda í nám- skeiðinu eru nemendur Tónskólans sem eru á öðru ári í kórstjórn, en kórstjórn er nú samkvæmt nýrri námskrá skólans þriggja ára sam- fellt nám. Kennari er Hákon Tumi Leifsson, stjórnandi Háskólakórsins og Vox Academica, en hann er um það bil að ljúka doktorsnámi við Washingtonháskólann í Seattle með kórstjórn sem aðalfag. Upplýsingar um námskeiðið má sjá á vefsvæði Tónskólans, www. tonskoli.is. Kórstjórnar- námskeið Hörður Áskelsson Menningarmálanefnd Reykjavík- urborgar hefur úthlutað 8,2 milljón- um af ráðstöfunarfé nefndarinnar en áður var 45,2 milljónum úthlutað vegna samstarfssamninga til þriggja ára til 23 aðila. 500 þúsund krónur hlutu Annað Svið, Gallerí Kling & Bang, Hugleik- ur, Hugstolinn (The Raven Rhaps- ody), Ólöf danskompaní, Sinfóníu- hljómsveit áhugamanna og Strengjaleikhúsið. 400 þúsund krón- ur hlutu Blásarakvintett Reykjavík- ur og Camerarctica. Styrkir til menningarmála 350 þúsund krónur hlutu Gjörn- ingaklúbburinn og Textílfélagið. 300 þúsund krónur hlutu Baman, Blásarasveit Reykjavíkur, Gallerí Hlemmur, Íslensk Grafík, Listvina- félag Hallgrímskirkju, Samtökin 7́8 v/Hinsegin bíódaga og Söngsveitin Fílharmónía. 200 þúsund krónur hlutu Félag ísl. tónlistarmanna, IBBY á Íslandi, Myndhöggvarafélag Reykjavíkur, Ung Nordisk Musik – Íslandsdeild og Poulenc-hópurinn. 100 þúsund krónur hlaut Agnar J. Jónsson v/Kolosalt. ATVINNA mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.