Vísir - 28.04.1981, Blaðsíða 15
15
Þriöjudagur 28. april 1981
VtSIR
Nokkrir forsvarsmanna íslensku óperunnar voru á staðnum. Hér sitja frá vinstri
Þorsteinn Gylfason. Þorkell Helgason, Helga Ingólfsdóttir, Baldur Simonarson og
Reynir Axelsson.
Heiðursgestir kvöldsins, Barbara Sigurbjörnsson, Þorkell Sigurbjörnsson, Manuela
Wiesler og Sigurður Snorrason.
Med Manuelu
á Hlídarenda
Siðasta klassiska kvöld
vetrarins fór fram á veitinga-
húsinu Hliðarenda á annan dag
páska með pompi og pragt og
eins og önnur slik tókst það
mjög vel. Menn nutu þar ljúf-
fengra rétta við frábæran undir-
leik þeirra Manuelu Wieslers og
Þorkels Sigurbjörnssonar og
fóru þau á kostum. Klassisku
kvöldin hafa verið fastur liöur i
rekstri Hliðarenda i allan vetur
við góðar undirtektir og er
fyrirhugað að taka þau upp að
nýju á hausti komanda.
Manuela kom fram á fyrsta
klassiska kvöldinu og þótti þvi
við hæfi að hún lyki þvi, sem
eins konar punktur yfir i-ið og
ekki brást hún frekar en fyrri
daginn. Meðfylgjandi myndir
tók ljósmyndari Visis, Gunnar
V. Andrésson, i Hliðarenda á
annan dag páska.
Ólafur Jóhannsson, veitingastjóri Hiiðarenda, færði Manuelu blóm-
vönd, en hún kom fram á fyrsta klassiska kvöldinu og þótti þvi við
hæfi að hún kæmi einnig fram á því siöasta.
Kathy Hayden og Pat Hill, — tvær af þremur stúikum úr liði Emerton
sem dæmdar voru i ævilangt keppnisbann fyrir að ráðast á dómarann.
Stúlkur
í ævilangt
keppnisbann
— eftir aó hafa barió
dómarann til óbóta
lega voru þrjár stúlkur í áströlsku
kvennaknattspyrnunni dæmdar i
ævilangt keppnisbann fyrir að
ganga i skrokk á dómaranum og
berja hann svo, að stórsá á hon-
um.
Atvikið gerðist er lið Emerton
og St. Clair leiddu saman hesta
sina og hafði dómarinn, Robert
Rose, dæmt aukaspyrnu á
Emerton. Emertonstúlkurnar
vilduekkisætta sig við dóminn og
mótmæltu kröftuglega. Kom til
átaka og dómarinn flautaði þá
leikinn af og gekk af leikvelli. Þá
hlupu stúlkurnar þrjár, Kathy
Hayden, Pat Hill og Elaine
Cheshire á eftir honum og réð-
ust að honum meðkjafti og klóm.
Rose dómari slapp við illan leik
eftir að valkyrkjurnar höfðu hár-
reitt hann, sparkað i hann og
gefið honum glóðarauga. Við
þetta æstust áhorfendur um allan
helming og fylgir það sögunni, að
þeir hafi flestir verið á bandi
dómarans.
Það er oft heitt í kolunum i
knattspyrnunni og þá ekki siður
hjá kvenfólkinu en körlunum. Ný-
Knattspyrna kvenna á sivaxandi
vinsældum að fagna hér á landi
sem annars staðar þótt enn hafi
ekki hitnað svo hressilega i kolun-
um hér sem i Ástraliu.
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
L
Margir þekktir listamenn koma fram I myndinni eins og sjá má.
„Síðasti valsinn” í Tónabíói
Sérstök ástæða er til að vekja
athygli á kvikmyndinni „The
Last Waltz” sem Tónabió heíur
nú tekið til sýningar. Myndin er
frá kveðjutónleikum hljóm-
sveitarinnar „The Band” sem
um langt skeið var ein virtasta
hljómsveit i heimi. Hljómsveit-
in vakti fyrst verulega athygli
er hún lék undir hjá Bob Dylan
en með timanum skipuðu liðs-
menn hljómsveitarinnar sér
sjálfir á bekk með virtustu tón-
listarmönnum rokktónlistar-
innar.
Auk liðsmanna „The Band”
koma fram i myndinni margir
þekktir listamenn svo sem Bob
Dylan, Paul Butterfield, Eric
Clapton, Neil Diamond, Emmy
Lou Harris, Ronnie Hawkins,
Dr. John, Joni Mitchell, Van
Morrison, The Stalples, Ringo
Starr, Muddy Waters, Ron
Wood og Neil Young. Hér er um
að ræða mynd sem allir áhuga-
menn um rokktónlist verða að
Ringo Starr. sjá. Eric ciapton.