Vísir - 28.04.1981, Síða 24

Vísir - 28.04.1981, Síða 24
r ► i veðurspá dagsins Við Færeyjar er 1000 mb lægð, sem hreyfist suðaustur og nálægt suðurodda Græn- lands er 998 mb lægð, sem hreyfist austnorðaustur i dtt til Islands. Yfir norðvestur Grænlandi er 1026 mb hæð og langt suður i hafi er 1035 mb hæð. Suðurland til Breiðafjarðar: Vestan eða suðvestan gola, skýjað og vfða þokusúld i dag, en sfðan suðaustan kaldi og súld eða rigning. Vestf.i'rði r: Austan og norðaustan kaldi til landsins. Strandir og Norðurland vestra og eystra: Norðaustan gola og viða slyddu- eða þoku- súld i dag, en austan gola eða kaldi, en skýjað og þurrt að mestu með kvöldinu. Austurland að Gfettingi: Norðaustan gola og slydduél á stöku stað i dag, en hæg breytileg átt og skýjað og úrkomulítið með kvöldinu. Austfirðir: Norðaustan gola og viða löttskýjað. Suðausturland: Norðvestan gola og viða skýjað, hægviðri eða norðaustnan gola og skýj- að með köflum i kvöld. Veöpiö hér og par Akureyri súld, Bergen skýjað -rl, Helsinki snjókoma 0, Kaupmannahöfn léttskýjað 5, Osló léttskýjað 2, Reykjavlk rigning4, Stokkhólmurskýjað 2, Þórshöfn skýjað 6. Aþena léttskýjað 19, Berlfn rigning 7, Chicago mistur 23, Feneyjar súld 10, Frankfurt rigning 3, Nuuk skýjað 3, London léttskýjað 7, Luxem- burgsnjókoma 0, Las Paimas skýjað 18, Mallorka skýjað 15, Montreal skýjaðl5, New York alskýjað 19, Paris rigning 5, Rómskýjaðl4 Malagaskýjað 18, Vinþrumur9, Winnipegal- skýjað 9. LoKI segir „Þessar aðgerðir eru fjár- magnaðar úr rikissjóði” segir yfir þvera forsiðu Tfmans f morgun um nýjustu áform rikisstjórnarinnar. Ég ætla ekki að lýsa þvi, hvað mér létti — þá þarf almenningur ekki að borga neitt! unnið að sðlu eigna Or dánarbúi Sigurliða Kristiánssonar: GLÆSIBÆR VERÐUR AUGLÝSTUR AFTUR Það ætlar að ganga vand- ræðalaust að selja Glæsibæ, ánaaffasteignunum úr dánarbúi Siguriiða Kristjánssonar. Fast- eignin var auglýst fyrir nokkru og hafa allmargir sýnt áhuga á kaupum. Að sögn Sveins Snorra- sonar, hæstaréttarlögmanns, sem sæti á i skiptanefnd vegna dánarbúsins, verður fasteignin auglýst aftur á næstu dögum og er stefnt að þvi að ganga i söl- una um eða upp úr mánaðamót- um. „Margir af þeim, sem eru þarna meðstarfsemi sem leigu- takar núna, hafa lýst áhuga á að kaupa það, sem þeir hafa, eða jafnvel meira”, sagði Sveinn i viðtali við Visi, „en það hafa ekki verið gerðir neinir samn- ingar”. SagðiSveinn, að nú væribeðið eftir útreikningum á hlutfalla- skiptingu á eignarhlutum i Glæsibæ. Yrði þeim væntanlega lokið alveg á næstu dögum, og þá yrði gengið i að selja hús- eignina. Aörar fasteignir úr dánarbú- inu hafa ýmist verið seidar eöa verða seldar innan skamms. Eignarhlutinn á Háteigsvegi 2 hefur veriö seldur svo og hluti i Laugavegi 82. Eftir mánaðamót verður svo hafist handa um sölu á Hringbraut 49, Ásgarði 22-24 svo og Glæsibæ, eins og áður Skákbing isiands: Helgi með titillnn innan seilingar Allar likur banda til þess að Helgi Ólafsson sigri á Skákþingi íslands að þessu sinni og verði þannigSkákmeistari Islands öðru sinni, en Helgi hreppti titilinn lika árið 1978. Helgi á að visu óteflda biðskák við Ásgeir Þ. Arnason, en Helgi hefur skiptamun yfir og fróðir main telja að hann eigi vinning i stöðunni. Elvar Guðmundsson var jafn Helga að vinningum fyrir tiundu umferðina i' gærkvöldi, en Elvar gerði þá jafntefli við Braga Krist- jánsson eftir að báðir höfðu lent i ævintý ralegu timahraki i lok skákarinnar og kusu að þráleika. önnur úrslit i tiundu umferð- inni urðu þau að Jóhannes Gisli Jónsson vann Jóhann Þóri Jóns- son. Guðmundur Sigurjónsson og JónL. Arnason gerðu jafntefli, en aðrar skákir fóru i bið. —P.M. i gær kom tii la með skipi Hafskips splunkuný langferðabif- rei& sem Norðurleið h.f. hefur fest kaup á. Bif- reiðin er af Scania-gerð/ búinöllum helstu þægind- um, svo sem sætum, sem hægt er að halla aftur. Komin hingað tit lands kostar hún um 13 milljón- ir. Þá hefur Norðurleið h.f. fest kaup á annarri, langferðabifreið af sömu gerð og er hún væntanleg hingaðtil lands eftir hálf- an mánuð. —Visism. GVA) 1111 *11 i' íitiiiSiiiiii'niVft^-~•' Framsóknarmenn deíla um nýja sklpulagið Verulegur ágreiningur var á fundi framsóknarmanna i Reykjavik i gærkvöldi um hin nýju skipulagsmál. Annar frummælanda, Alfreð Þor- steinsson, fyrrv. borgarfulltrúi, hélt þvi fram, að stefna meiri- hlutans um byggð við Rauða- vatn væri bæði röng og hættu- leg og gæti skaðað Framsóknar- flokkinn i næstu borgarstjórnar- kosningum. Kristján Benediktsson og Gylfi Guöjónsson, fulltrúi flokksins i skipulagsnefnd, töldu hinsvegar óhjákvæmilegt að byggja við Rauðavatn, þar sem ekki hefðu náðst samningar við rikið um landið i Keldnaholti. Alfreð Þorsteinsson gagn- rýndi hinsvegar kúvendingu flokksins i skipulagsmálum og taldi það fyrirslátt, að samning- ar næðust ekki við rikið. Nú væri við vinsamlegt rikisvald að eiga, þar sem málið heyrði und- ir Ingvar Gislason, mennta- málaráðherra. Þess má geta að Jón Aðal- steinn Jónasson, formaður full- trúaráðs framsóknarmanna lýsti sig einnig andvigan byggð við Rauðavatn. Fundurinn var haldinn á veg- um hverfasamtaka framsókn- armanna i Breiðholti og var sóttur af um 30 manns. ÁTVR: Eldspýtur uppseldar Talsverðum erfiðleikum hefur verið bundið að undanförnu að fá eldspýtur I verslunum i Reykja- vík og hafa þær á mörgum stöð- um verið uppseldar dögum sam- an. 1 Innkaupadeild Afengis- og tóbaksverslunar rikisins fengust þær upplýsingar, að eldspýtna- sendingar frá Sviþjóð og Rúss- landi hefðu brugðist og þvi hefði Áfengisverslunin aðeins haft kin- verskar eldspýtur til dreifingar, sem nú væru uppseldar. Úrbóta væri þó von-, þvi að næstu daga ætti Afengisverslunin von á send- ingu frá Sviþjóð og I mánaðarlok kæmi sending frá Rússlandi. —KÞ Með jofra” til Færeyja 1 verkfræöideild Orkustofnunar búa menn sig nú undir að fara til Færeyja með gufuborinn Dofra og bora þar i sumar eina kjarna- borholu á vegum Jarðfræðistofn- unar Danmerkur. Tilraunaborun með minni bor var gerð i fyrra- sumar. Þessa viku er Karl Ragnars verkfræðingur ytra, ásamt bor- stjóra frá Jarðborunum rikisins, og vinna þeir að undirbúningi þar. 1 Færeyjum er ekki verið að bora eftir öðru en jarðsýnishorn- um. Dofri er nú á Seltjarnarnesi, þar sem með honum er verið að bora öryggisholu fyrir hitaveit- una þar. Því verki er að ljúka og virðist holan gefa svipað og hola þarna skammt frá, við Bygggarð, eða 20 — 25 sek.l. Annars hefur Dofri aðallega verið notaður við heitavatnsboranir i Reykjavik. HERB Rannveig ófundin Leitin að Rannveigu Jónsdótt- ur, 69 ára gamalli konu, sem týnd hefur verið frá þvi á laugardag, hefur enn ekki borið árangur. Nokkru eftir að farið var að svip- ast um eftirhenni, bárust upplýs- ingar um ferðir hennar fyrir ofán Hafnarfjörð og er nú leitarflokk- um beintá það svæði. Þyrla hefur verið notuð við leitina og mun að likindum leita áfram i dag, ásamt stórum hópi leitarmanna. Rannveig er sjúklingur og hef- ur átt við minnisleysi að striða. —AS

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.