Vísir - 14.05.1981, Side 3
Fimmtudagur 14. mai 1981
flkniefnum
smyglaö hingað
frá Færeyjum
Hingað til hefur þvi verið haldið
fram að innflutningur á fikniefn-
um til landsins sé svo til eingöngu
igegnum Danmörku eöa Holland.
Samkvæmt upplýsingum Guð-
mundar Gigju hjá fikniefnadeild
lögreglunnar í Reykjavik hefur
þó oftar en einu sinni orðiö upp-
vist um smygl á fikniefnum frá
Færeyjum. I færeyska Dag-
blaðinu er til dæmis minnst á
smygl á hassi frá Kristjaniu til
Færeyja og þaðan til tslands. 1
frétt þessari er aðeins minnst á
eitt slikt tilvik, en samkvæmt
upplýsingum Guðmundar reynast
þau vera fleiri sem uppvist hefur
orðið um.
Ferðir frá Færeyjum hingað til
lands eru ýmist loftleiðina,þá,til
Egilsstaða eða Reykjavikurflug-
vallar, eða sjóleiðina með Smyrli
til Seyðisfjarðar, en tollgæslu-
stjórinn i Reykjavik sér um eftir-
lit með þessum málum, varðandi
ferðamenn er koma til landsins.
—AS
Samnorræn könnun
á hlölreiðaslysum
Rannsókn á hjólreiðaslysum
stendur nú yfir á öllum Norður-
löndunum. Rannsóknin hófst
fyrsta mai og stendur yfir út
mánuðinn. Það er norræn em-
bættismannanefnd um neytenda-
mál skipuð af Norrænu ráðherra-
nefndinni, sem stendur að rann-
sókninni.
Könnunin á ekki aðeins við um
umferðarslys heldur öllreiðhjóla-
slys og hérlendis er hún unriiii út
frá slysadeild Borgarspitalans.
Sjúklingur, sem slasast hefur i
reiðhjólaóhappi verður beðinn
um að gefa upplýsingar um til-
drög slyssins. Ef sjúklingurinn er
ófær um það sjálfur er fjölskylda
hans beðin um að veita upp-
lýsingarnar. Spurt er um tildrög
slyssins, útbúnað á hjólinu,
fatnað hjólreiðamannsins, ljós á
götum eða stað, þar sem slysið
varð. Þá verða teknar myndir af
reiðhjólinu og viðgerðarmaður
beðinn að athuga lijólið ef eigand-
inn leyfir.
Tilgangurinn er að gera sér
grein fyrir hvort hægt sé að bæta
hönnun hjóla og eru allir Ibúar
höfuðborgarsvæðisins beðnir um
að aðstoða og gefa upplýsingar,
svo hægt sé að bæta eigið öryggi
og öryggi barna þeirra.
Hérlendis hefur Eirika A. Frið-
riksdóttir umsjón með rannsókn-
inni.
—ATA
Krafia:
Enn er landris
Enn ris land við Kröflu og er
landið nú hærra en það hefur
verið nokkurn tima fyrr, sagði
Armann Pétursson hjá skjálfta-
vaktinni 1 samtali við Visi.
Hann sagði að menn norður þar
byggjust við gosi hvenær sem er
núna, en gerðu sér jafnframt ljóst
að það gæti dregist. Yfirleitt vildu
menn sem minnstu spá þar, um
þessar mundir.
Spurningu um hvort búist væri
við meira gosi nú en áður, svaraði
Armann á sama veg: menn væru
litið fyrir að spá og jarðfræðing-
arnir segðu helst aldrei neitt.
SV
Opinn fundur Þroskahjálpar:
Barnið 09 fjölskylúan
Landssamtökin Þroskahjálp
halda opinn fund um Barnið og
fjölskylduna á ári fatlaðra sunnu-
daginn 17. mai. Fundurinn verður
á annari hæð Hótel Esju og hefst
klukkan hálftvö.
Svavar Gestsson félagsmála-
ráöherra ávarpar fundinn og
siðan flytja foreldrar og fulltrúar
frá ýmsum samtökum og félögum
erindi.
Að þvi loknu verða pallborös-
umræður, sem Margrét Mar-
geirsdóttir, deildarstjóri stjórn-
ar.
SV
Þær eru ekki margar höfuðborgirnar, þar sem Ibúarnir geta gengið niður i fjöruborðið og keypt glænýj-
an fisk i soðið. Hér er verið að afgreiða rauðmaga til viðskiptavinar og auðvitað er hveljunni svipt áf
áður. (Visism. ÞL)
Trímmkeppnln fær góðan
stuðnlng I Hafnarflrði
Norræn landskeppni i trimmi
fyrir fatlaða er nýlega hafin og er
hún ætluð öllum þeim sem á ein-
hvern hátt, andlega eða likam-
lega eru hindraðir frá þátttöku I
almennum iþróttum.
Keppnin hefur gengið vel viðast
hvar fram að þessu og fjölmörg
félagasamtök um allt lapd vinna
að þvi að fá fleira fólk til þátttöku.
Markmiðið er tviþætt, annars
vegar að stuðla að aukinni útivist
og iþróttaiðkun fatlaðra og hins
vegar að fá sem flesta þátttak-
endur og stefna þar með að sigri
íslands.
Hafnarfjarðarbær sker sig
nokkuð úr öðrum bæjar- og
sveitafélögum með framlag til
keppninnar. Þar hefur einum
starfsmanni verið falið að verja
til hennar öllum þeim tima og aö-
stoð sem til þarf, svo að sem flest-
ir geti tekið þátt og einnig eru
iþróttamiðstöðvar bæjarins
opnar fritt ákveðinn tima dagsins
fyrir þátttakendur keppninnar.
JB
18 dagar
Brottför 5. júní
Flogið veröur til Luxemburg og ekið þaðan um:
Þýskaland til Vínarborgar, þar sem dvaliö
veröur í nokkra daga. Þaðan er farið til
Salzburg, Munchen, Heidelberg, Rudesheim og
í gegnum Moseldal til Luxemburg.
Brottför 1. ágúst
Flogiö veröur til Luxemburg og ekið þaðan um:
Þýskaland til Zurich, Luzern, Tyrol á ítalíu,
Múnchen, Heidelberg, Rudesheim og í gegnum
Mcseldal til Luxemburg.
Ekiö veröur í fyrsta flokks langferöabílum meö loftkælingu. Dvaliö veröur
á góöum hótelum og þátttakendum séö fyrir hálfu fæöi, (morgunmat og
kvöldverði) allan tímann. íslensk fararstjórn.
Sérgrein okkar
Mið-Evrópuferðir
FERÐASKRIFSTOFAN
OTC<T<VTH<
lönaöarhúsinu v/Hallveigarstíg — Símar 28388 —
28580
_________/