Morgunblaðið - 31.03.2004, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2004 B 3
bílar
Á SPÁNI var leyft á dögunum að
mótorhjól mættu draga eftirvagna
þar í landi, og er þá Ísland eina landið
í Evrópu sem ekki leyfir slíkt. Stjórn-
völd á Spáni létu eftir fyrir þrýsting
Evrópusambandsins og FEMA, Evr-
ópusamtaka mótorhjólafólks, en árið
1998 voru samþykkt lög sem gera
löndum innan ESB og evrópska efna-
hagssvæðisins kleift að leyfa slíkan
búnað á mótorhjólum. Þrátt fyrir ný-
fengið leyfi þurfa þeir sem vilja draga
eftirvagna á mótorhjólum sínum að
uppfylla viss skilyrði, sem eru of
ströng að mati FEMA. Aðeins er
leyft að aka með eftirvagna í dags-
birtu, vagnarnir mega ekki vera
nema helmingur af þyngd hjólsins og
aðeins má aka þeim 10% undir lögleg-
um hámarkshraða. Að sögn tals-
manns FEMA eru engin gögn sem
réttlæta þessar varúðarráðstafanir.
Þetta breytta Honda Pan-European-
ferðahjól er útbúið með krók og ein-
hjóla kerru frá Uni-Go.Nýfengið
krókaleyfi
HÉÐAN í frá hefur verið ákveðið að
uppgjör Renault og Nissan verði
kynnt í einum samstæðureikningi.
Samanlögð sala Renault og dótturfyr-
irtækisins Nissan nemur rúmum 5
milljónum bíla sem skýtur þeim vel
fyrir ofan Volkswagen og skammt á
eftir GM, Toyota og Ford yfir sölu-
hæstu framleiðendur heims.
Tilgangurinn með því að kynna
uppgjörið með þessum hætti er að
gera Renault meira aðlaðandi á fjár-
málamörkuðum, hækka lánshæfis-
mat samsteypunnar og lækka kostn-
að við lánsfjármögnun. En betri
einkunn frá matsfyrirtækjunum
Standard & Poor og Moody’s hefur í
för með sér minni lántökukostnað.
Í fréttatilkynningu frá B&L, um-
boðsaðila Renault, segir að eftir yf-
irtökuna á hinu nær gjaldþrota Niss-
an fyrirtæki árið 1999 hafi Renault
náð frábærum árangri með japanska
bílaframleiðandann og snúið tapi í
hagnað á skömmum tíma. Nissan hafi
undir handleiðslu Renault breyst í
hagkvæmasta framleiðanda í heimi.
Renault/Nissan
í 4. sætið
NJÓSNAMYNDIR hafa sýnt að nýja
Kawasaki KX450F-hjólið, sem vænt-
anlegt er á markað á næsta ári, verð-
ur með ferhyrningslaga álgrind.
Kawasaki var fyrst framleiðenda til
að koma með ferhyrningslaga grind í
mótókrosshjóli árið 1990 en þá voru
þær úr stáli. Suzuki mun einnig nota
álgrind í RMZ450-hjól sitt, þá með
hefðbundnu röralagi. Einnig mun
Yamaha vera um það bil að koma með
álgrind.
Grindin í Kawasaki KX450F.
Álgrindur framtíðin
♦♦♦