Vísir - 29.05.1981, Blaðsíða 22

Vísir - 29.05.1981, Blaðsíða 22
22 Föstudagur 29. maí, 1981 VtSIR mcmntíf Magnús Kjartansson sýnir hvernig keppendur eiga aö bera sig aö viö hamborgaraátiö. Með honum á myndinni eru Guögeir Leifsson um- boðsmaður Superia-reiöhjóla og Tómas Tómasson i Tommahamborg- urum. (Visismynd: ÞL) Meistarakeppni i hamborgaraáti —■ hjá Tommaborgurum á sunnudaginn Efnt veröur til meistarakeppni i hamborgaraáti hjá Tomma- hamborgurum viö Grensásveg á sunnudaginn n.k. og mun þaö vera i fyrsta sinn sem efnt er opinberlega til slfkrar keppni hér á landi. i verölaun veröur Superia-reiðhjól af fullkomnustu gerö, sem metið er á 8600 krónur. Stjórnandi keppninnar verður hinn landskunni hljómlistarmað- ur Magnús Kjartansson og sagði hann á fundi með fréttamönnum, þar sem keppnin var kynnt, að væntanlega yrði „Superia kapp- átið” árlegur viðburður hér á landi enda væri þessi „iþrótta- grein” stunduð meðal allra sið- menntaðra þjóða. Þeir sem hafa hug á að taka þátt i keppninni verða að mæta i Tommahamborgara við Grensás- veg fyrir klukkan 14.00 á sunnu- dag þvi að skrásetja verður kepp- endur áður en keppnin hefst, stundvislega á þeim tima. Keppn- in stendur siðan til klukkan 18.00 og fer hún þannig fram, að hver keppandi fær þrjá Tommahám- borgara og eina Pepsi, og sigrar sá sem getur komið þessu ofan i sig á skemmstum tima. Magnús Kjartansson sýndi fréttamönnum hvernig keppend- ur eiga að bera sig að og náði hann millitimanum 46 sekúndum á hvern hamborgara, en Þráinn Lárusson, ljósmyndari Viiis, sem taldi sig geta náð betri tima en Magnús varð að láta sér nægja millitimann 56 sekúndur. Það verður þvi fróðlegt að sjá hver verður timi væntanlegs Islands- meistara i hamborgaraáti á sunnudaginn. Hvítasunnurokk í Laugardalshöll Breska hljómsveitin An'y Trouble er væntanleg hingað til lands i næstu viku og mun hljóm- sveitin spila á nokkrum stöðum i Reykjavik og nágrenni. Aðal- hljómleikarnir verða i Laugar- dalshöll, laugardaginn 6. júni en auk Any Trouble koma þar fram hljómsveitirnar Start, Tauga- deildin og Bara-flokkurinn frá Akureyri. Hljómsveitin Any Trouble samanstendur af þeim Clive Gregson, Phillip Barnes, Christ- opher Parks, Martin Hughes en auk þeirra mun hljómborðsleik- arinn Nick Coler vera með i för- inni. Hljómsveitin hefur gefið út eina /LP plötu sem hlotið hefur góða dóma i Englandi og mun annarrar plötunnar að vænta nokkrum dögum eftir hljómleika þeirra hér. Any Trouble er nú tal- in i hópi efnilegri hljómsveita i Englandi og ætti þvi koma þeirra hingað að verða lyftistöng fyrir islenskt rokktónlistarlif. Hljómsveitina Start, sem er með hressilegri rokkhljómsveit- um hér á landi, er óþarfi að kynna og Taugadeildin og Bara-ílokkur- inn eru af sérfræðingum taldar i hópi efnilegustu hljómsveita semhér hafa veriö að koma upp að undanförnu. Þaö bendir þvi allt til, að „Hvitasunnurokkið” i Höll- inni verði með meiriháttar við- burðum i rokktónlistarlifinu hér á landi. Miðaverð er 75 krónur og hefst forsala aðgöngumiða i hljómplötudeildum Karnabæjar og Falkans mánudaginn 1. júni n.k. Any Trouble er ein af þeim hijómsveitum Breta sem hvaö mestar vonir eru bundnar viö i næstu framtiö. Söngvari hljómsveitarinnar „Taugadeildin”, sem talin er i hópi hinna efnilegri hér á landi. Hljómsveitin Start á hijómleikum á Borginni nú nýveriö. 23 Föstudagur 29. mai, 1981 TCÝ •' .V 'ViT < * * < »i VISIR < c mrmnlif LÍ7.a Minnelli hefur rauöa inniskó með sér hvert sem hún fer. Bo Derek trúir á töluna „4”. Hjátrúin rædur ríkjum Phyllis Davis óttast hlistur. meóal fræga fólksins íslendingar hafa löngum verið taldir afar hjá- trúarfullir, einkum hér fyrr á öldum þegar einangr- un, myrkur og óáran rugluðu dómgreind þeirra. En hjátrú finnst viðar en á íslandi og meðal skemmti- krafta er hún algengt fyrirbrigði, nánast eins og at- vinnusjúkdómur. í nýlegu bandarisku timariti er fjallað um tyrirbrigði þetta og nefnd nokkur dæmi meðal þekktra kvikmyndastjarna. Leikkonan Shelley Winters hef- ur það til dæmis fyrir sið að kyssa pálmatré i garðinum sinum á hverjum degi, en með þvi trúir hún þvi, að hún firri heimili sitt ógæfu. — „Þetta pálmatré er öryggisvörðurinn minn”, — sagði hún nýlega við kunningja sinn, og bætti við: —Hingað til hefur þetta virkað. Það hefur t.d. aldrei verið brotist inn hjá mér og ég er laus við allan ótta á meðan ég man eft- ir að kyssa tréð.”Bo Derek trúir á töluna 4,enekki „10”. Hún svarar t.d. aldrei i sima fyrr en eftir fjórðu hringingu. Hún þolir ekki þegar hringt er einu sinni og við- komandileggur siðan á. Hún trúir þvi að það sé illur fyrirboði og snertir ekkisimtólið það sem eftir er þann daginn. Meðleikari Bo i kvikmyndinni „10”, Dudley Moore, hefur hins vegar ilian bif- ur á sjúkrabilum. 1 hvert skipti sem hann sér sjúkrabil hættir hann þvi sem hann er að gera og hefur yfir eftirfarandi þulu: „Snertu auga og snertu nef svo aldrei þú farir i einn af þeim...". Sophia Loren er sannfærð um að fjólublátt boði ógæfu. Hun gengur aldrei i ljólubláum fötum og bannaröllum i kringum sig aö klæðast förum i þeim lit. Leikkon- an Phyllis Davis brjálast þegar hún heyrir einhvern blistra. Hun trúir þvi að blistur boði ógæfu. Zsa Zsa Gabor ber aldrei sömu skartgripina tvo daga i röð. Hún trúir þvi að skartgripaskriniö sitt hættiað vaxaef hún gerir það. Og að lokum má nefna að Liza Minn- elli fer aldrei neitt án þess að hafa með sér rauða inniskó. Zsa Zsa Gabor ber aldrei sömu skartgripina tvo daga i röö. Sophia I.oren trúir þvi að fjólu- blátt boði ógæfu. NYTT UTLIT Britt Ekland hefur að undanförnu haft áhyggjur af stöðu sinni ineðal stjarnanna í Hollywood enda ýmis teikn á lofti sem benda til að stjarna hennar sé fallandi Hún hefur að undanförnu staðið i strongu við að endurheimta stöðu sina og meðal annars liresst upp á útlitið með nýrri hárgreiðslu, sem sjá má á meðfylgjandi mynd. Með hjálp vina k L sinna hefur henni tekist að fá hlutverk i Æ Bk sjónvarpsþáttum sem verið er að gera eftir metsölubókinni Jmr ^ ,,Vallev of the Dolls"'.... a Shelley Winters kyssir pálmatré á hverjum degi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.