Vísir - 29.05.1981, Blaðsíða 2

Vísir - 29.05.1981, Blaðsíða 2
Hvað finnst þér um kröfu Palestinuaraba um eigið sjálfstætt riki? Jón Jónsson, loftskeytamaöur: Mér finnst þær alveg sjálfsagö- ar, en Israelsriki á rétt á sér lika. Anna Jónsdóttir, húsmóöir: Þeir eiga sinn rétt eins og lsra- elsmenn en þetta verður erfitt mál að leysa. Björgvin Olafsson, vélstjóri: Það má ræða við þá aö minnsta kosti. Magnús Sólmundarson, hús- vörður: Landið var jú tekið af þeim á sinum tima. En við- skilnaður Breta var til skammar. Börkur Skúlason, rannsóknar- lögregluþjónn: Þetta er hlutur sem ég velti ekki fyrir mér. Vandamálin eru nóg heima fyrir. vísm Föstudagur 29. maf, 1981 „Hlýtur að teijast J plús fyrir pá” - segir Þröslur Ólafsson aðstoðarmaður flármálaráðherra yfirvinna læknanna Við höfum ekki fengið staöfest að þær kröfur sem læknar gera núna séu þær sömu og þeir gerðu I samningaviöræðunum i haust, en við höfum grun um að þær hljóði upp á 25-30% hækkanir. Það finnst mér ósanngjarnt, miðað við margar aðrar stéttir i þjóö- félaginu”, sagði Þröstur ólafs- son, aðstoðarmaöur fjármálaráð- herra i viðtali við Visi. Skv. útreikningum Læknaþjón- ustunnar fá aðstoðarlæknar á fyrsta stigi ca. 6500 krónur á mánuði fyrir um það bil 100 stunda aukavinnu, telst þetta hátt? Kaupið sjálft er kannski ekki hátt, en það er óvenjulegt að rikisstarfsmönnum gefist kostur á svo mikilli yfirvinnu. Eru það forréttindi? Það eru kannski engin forrétt- indi að fá að puða lengi og mikið, en þó held ég að flestar aðrar stéttir kvarti einna mest yfir þvi að fá ekki tækifæri til að afla sér aukatekna, svo það hlýtur að telj- ast mikill plús. Nú sagöi i tilkynningu rlkis- stjórnarinnar aö fyrirsjáanlegt -------------------------■> tslenskir læknar eru það margir að við getum þvi miður ekki tekið þá alla inn á markaðinn hér. neyðarástand sé á sjúkrahúsun- um, snúi læknar ekki aftur til starfa eða aðrir i þeirra stað. Verður farið að flytja inn lækna? Ekki eins og málin standa i dag, hins vegar vitum við að margir islenskir eru i námi og starfi erlendis og ef þessi deila leysist ekki hljótum við að leita ein- hverra annarra ráða. Fást þeir til að koma heim? Ég held að kjaramál hafi skipt minna máli i seinni tið fyrir þá sem hafa starfað á Norðurlönd- unum, heldur hefur litið stöðu- framboö fælt menn úr landi. Er offramboð á læknum? Miðað viö islenskan markað, já. Við getum ekki skaffað öllum þessum mannskap vinnu. Verður gengið til samninga fljótlega? Ég reikna með að menn biöi rólegir fram eftir næstu viku, en sennilega verður reynt þá að tala eitthvað saman. Þröstur er menntaður i hag- fræði, en þá menntun sótti hann til A-Þýskalands þar sem hann dvaldi i sex ár. Aöur en hann tók við starfi sem aðstoðarmaður Ragnar; var hann frkvstj. Máls og Menningar, og hafði einnig starfað við BSRB, Seðlabankann o.fl. Kona hans er Þórunn Klemensdóttir, einnig hagfræð- ingur, en húsmóöir sem stendur og eiga þau tvö börn saman. —JB san&kom flsgeir iorstlóri áfram Starf forstjóra Bruna- bótafélags tslands var auglýst laust til umsókn- ar fyrii; nokkru. Haföi As- gcir ólafsson núverandi forstjóri sagt starfinu lausu og því var það aug- lýst. Allmargar umsóknir bárust, cn trúlega hlýtur enginn þeirra, sem sóttu, hnossið. Skýringin er sú, að framkvæmdastjórn Brunabótafélagsins hefur eindregið mælst til þess við Asgeir að hann sitji áfram, að minnsta kosti fyrst um sinn, en að öllu óbreyttu hcfði hann liætt 1. júll næstkomandi. Hcf- ur Asgeir fallist á ósk stjórnarinnar um að Svavar hefur síðasta orð- ið um endurráðningu As- geirs. gegna cnibætti forstjóra dt næsta ár. En þetta mál cr þó ekki I höfn enn, þar sem Svavar Gestsson hcilbrigðis- og trygginga- ráöherra þarf að stað- festa „endurráðningu” Asgeirs, þar scm hann hafði formlega sagt starfi sinu lausu. Létt leiktimi Siggi sifulti kont nötr- andi af timburmönnum inn til læknisins og baö hann að hjálpa sér. — Við skulum byrja mcð létta leikfimi”, sagði læknirinn. — þú getur til dæmis byrjaö meö því að hrista höfuöiö. — Hvenær og hversu oft? spurði Siggi. — t hverl sinn sent ein- Itver býöur þér I glas. • spurningunni svarað Fyrir nokkru var sýnd- ur I sjónvarpinu þáttur Það kemur heimsendir, segir Einar. unt áhrif nútimatækni i hernaði, svo sem atóm- sprengjur og önnur ámóta meðöl. Þótti fólki þetta ekki fögur sjón, eins og gefur að skilja. Þannig segir Einar Gislason rit- stjóri Afturcldingar, blaös Hvitasunnusafn- aðarins, I leiöara, að hann hafi ekki farið varhluta af áhrifum þcssa þáttar. „Fólk Itefur talað um þetta sin á mílli”, skrifar Einar. „Landsimasam- töl, rándýr og löng hafa stilast til Filadelfiusafn- aðarins og það hefur ver- iðspurt: Hvaðsegir Ritn- ingin um þessa hluti?” Liklega heföu fyrir- spyrjcndur átt að sieppa þessurn simtölum og eyða aurunum i annað, ineöan timi cr til. þvi svar rit- stjórans er: „Nútiminn þarf ekki að spyrja um hvort heimsendir verði. Heldur hvenær?” • Hjálpsöm kennslukona Kcnnslukonan fór i vet- ur mcð bekkinn sinn I heimsókn á reiöskóla. Krakkarnir fengu gos á leiðinni og þurftu að létta á sér á áfangastaö, eins og gengur. Kennslukonan var þvi upptekin viö að aðstoöa þau, til að allt gengi seni best, og þurfti að renna óteljandi renni- lásum, niður, upp, niður upp. Þegar hún var langt koinin meö að hjálpa ein- um ungum manni, stundi hann eins og ögn afsak- andi: — Nú skal ég sjálfur. Ég er nefnilega að verða of/seinn i kennsluna. Siúkralið- arnir llka? Enn cr ekkcrt lát á þeirri hörku kjaradeilu, sem tröllriðiö hefur rikis- spítöiunum undanfarnar vikur. Fóstrur riðu á vaö ið. sem kunnugt er, og fór starfsemi spitalanna þá strax nokkuö úr skorðum. Ekki skánaði ástandið. þegar læknar hófu barátt- una. sem enn st'endur í hámarki, þegar þetta er skrifað. Þá hefur heyrst aö sjúkraliðar séu farnir að hugsa sér til hreyfings, þótt engar fregnir hafi borist af uppsögnum þeirra enn. Loks biða lög- fræðingar i þjónustu rikisins spenntir eftir úr- slitum læknadeilunnar. • Slæm pvottavél Miðaldra frú var I sinni fyrstu ferð með farþega- skipi. Eftir tveggja daga siglinu kom hún skeiðandi til skipstjórans og sagði fokill: — ftg ætla aö bera fram kvörtun vegna þvotta- véiarinnar i klefanum minum. t hvert skipti sem ég set i hana hverfur þvotturinn. ' • Að gefnu liieinl Adrepa sú, scm Kjart- an L. Pálsson landsliðs einvaldur flutti yfir golf- mönnum á Hvaieyrinni um helgina vakti mikla athygli og umræður. Þar gagnrýndi Kjartan nokkra kylfinga fyrir ósæmilega hcgðun á vell- inum og sagði þá'sem þetta átti við um ekki þurfa að telja daga sina i landsliöinu, ef þeir héldu uppteknum hætti. Og svona til að undirstrika þetta birtist á sama tiina iþróttaþáttur i sjónvarp- inu. Þar var gðlf á dag- skrá og sást einn lands- liðsmanna „pútta” eins og það nefnist i golfinu. En i stað þess aö bevgja sig eftir kúlunni. krakaði Itann með kylfunni i hol- una og veiddi boltann upp. Þættu þetta trúlega ekki finir taktar i stórum kcppnum crlendis. • Brandararnlr sem öiómslra Enn blómstra Hafnar- fjarðarbrandararnir, enda komiö vor, með fuglasöng I mó. Þennan rakst ég á I sjómanna- blaöinu Vikingi: —6g þekkti hafnfirskan strák, sem fór meö hund- inn sinn með sér f grunn- skólann [ mörg ár. En nú gctur hann þaö ekki leng- ur. — Hvers vegna ekki? — Hundárinn útskrifaö- ist. Jóhanna Sig- þórsdóttir.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.