Vísir - 13.06.1981, Síða 6
6
Laugardagur 13. júnl 1981
vtsm
ORKUÞING
Orkuþingi ’81 lauk með
kve&juskál að Hótel Sögu á
fimmtudaginn og þá höfðu um
200 fulltriíar, hvaðanæva af
landinu, setiö i þrjá daga og rætt
um orkumál Islendinga og mál
er þeim tengjast. A þinginu voru
flutt 40 erindi eftir 39 höfunda,
sem f jölluðu um nær allar hliöar
þessara mikilvægu mála.
Til Orkuþings ’81 boöuðu
eftirtaldir aöilar: Iðnaöarráöu-
neytið, Oh’ufélögin, Orkustofn-
un, Rannsóknarráö ríkisins,
Samband Islenskra rafveitna,
Samband íslenskra hitaveitna
og Verkfræöingafélag íslands.
Kostnaðaráætlun Orkuþings
hljóðaði upp á um 50 þúsund
krónur en llklegt er aö þing-
haldið hafi kostaö rúmlega þá
upphæö. Þinggestir voru sam-
mála um aö sú upphæð væri fljót
að skila sér til baka. Þá er
sennilegt að innan fárra ára
verði boðaö til svipaös þings á
ný.
Vi'sir ræddi við nokkra full-
tnia á Orkuþingi um starfsemi
þingsins og birtir úrdrátt úr
erindi Vilhjálms Lúðvikssonar,
sem í þinglok fjallaði um
athyglisverðustu umræðuefni
og niðurstöður Orkuþings 81.
Ágúst Valfells, framkvæmdastjóri
,,Vcrdum ad virkja
af myndarskap”
,,Ég held aö þingið hafi tckist
vonum framar og allt gekk eftir
áætlun. Þau vandamál, sem við
bjuggumst við að kæmu upp,
voru auðleyst, og ég er þess full-
viss að Orkuþingið hafi skilaö
þvi sem vænst var,” sagði Agúst
Valfells, framkvæmdarstjóri
Orkuþings, þegar Vlsir spjallaöi
við hann I þinglok.
,,Einu vonbrigöin voru þau aö
þrátt fyrir að þinginu hafi veriö
frestað um mánuð að ósk þing-
manna, sem töldu sig ekki geta
tekið þátt I Orkuþingi vegna
anna á Alþingi I mai, sáu mjög
fáirþeirra ástæöu tilað mæta á
þingi nú I vikunni. ,,Um ástæöur
þessa skal ég ekki fullyröa.”
Hverjar uröu helstu niður-
stöður þingsins?
,,Þaö er erfitt að draga þær
saman I örstutt mál en augljóst
er að alþjóðarhorfur I orkumál-
um benda til þess aö olluverö
mini sifellt fara hækkandi þó
að olian muni ekki klárast á
næstu áratugum. Þessi þróun
ætti að vera hagur okkar
Agúst Valfells, framkvæmda-
stjóri Orkuþings.
tslendinga þegar til langs tima
er litiö, þ.e.a.s. ef við kunnum
að nota þau tækifæri, sem okkur
standa til boða. Það þýðiraö viö
verðum að virkja af myndar-
skap. Við verðum aö athuga vel
hvernig best er að nýta þá orku,
sem viö eigum, og einnig verð-
um við aö huga aö þvi hvernig
við seljum hana út. Það er aug-
ljóst að við verðum aö selja
hana sem full unna iönaöarvöru
þvi að með þvl móti getum við
best nýtt hagkvæmnina, sem
felst I hinni ódýru, innlendu
orku. Min skoöun er sú að heppi-
legast sé að stefna að þvi að
vera ávallt með eitt stóriðjuver
og eina virkjun I smlðum á
hverjum ti'ma.”
Þá sagði Agúst að fram heföi
komið að stjórnmálaflokkarnir
hefðu allir verið sammála um
aö nýta orkuna þó uppi væru
mismunandi skoðanir meðal
þeirra um hve hratt ráðast ætti i
virkjanirnar. Einnig mun hafa
komiö fram i máli fulltrúa
stjórnmálaflokkanna að þeir
væru allir fylgjandi samvinnu
við erlenda aöila i stóriðjumál-
um ef 501(1 væri hagkvæmt.
„Ég tel eðlilegt að sömu aöil-
ar haldi annaðOrkuþing áöur en
langt um liður og jafnvel hefur
veriö rætt um að halda slik þing
á þriggja ára fresti,” sagði
Agúst Valfells að lokum. —TT.
Kristmundur Halldórsson,
iónaóarráduneytinu:
,, Auöveldar mjög
ákvaröanatökur”
„Þetta hefur verið mjög fróð-
legt og merkilegt þing. Hér hef-
ur verið safnað saman gifurleg-
um fróðleik og upplýsingum,
sem koma munu að miklu gagni
á næstuárum, og koma sérfræð-
ingum, st jórnmálamönnum,
embættismönnum og almenn-
ingi til góða,” sagði Kristmund-
ur Halldórsson, frá iönaöar-
ráðuneytinu, um Orkuþingið.
„Ráðuneytiö hefur aö sjálf-
sögöu fylgst grannt meö öllum
umræöum og erindum, sem hér
hafa farið fram, ekki sist i sam-
bandi við stóriðjumálin en þau
heyra undir okkur og tengjast
óhjákvæmilega orkumálunum.
Kristmundur taldi sjálfgefið
að slik þing yrðu haldin aftur á
næstu árum en bætti við að nú
hefði verið safnað saman efni,
sem dygði i nokkur ár.
„Það er enginn vafi að af-
rakstur þingsins verður ráöu-
neytinu mikill styrkur og auð-
Kristm undur Halidórsson, iðn-
aðarráðuneytinu.
veldar m.a. ákvarðanatökur i
þessum erfiðu og viðkvæmu
málum,” sagði Kristmundur að
lokum.
—TT.
Þorvaldur Garóar Kristjáns
son, alþingismaður:
, ,Skipulagsmálin
oröiö útundan”
„Þaö er mui skoöun aö þetta
þing hafi tekist meö miklum
ágætum og það var vel ráðið aö
efna til þess,” sagöi Þorvaldur
Garöar Kristjánsson, alþingis-
maður, þegar Visir ræddi við
hann á Orkuþinginu.
„Ég hef þó gert töluverðar at-
hugasemdir viö dagskrá þings-
ins á þá leið aö ekkert hefur ver-
ið fjallað sérstaklega um skipu-
lagsmálin en þau eru einn
mikilvægasti málaflokkurinn i
öllum orkumálum.”
Þá sagöi Þorvaldur að hinn
mikli fróðleikur og allar þær
hugmyndir, sem komið heföu
fram á þinginu, kæmu að miklu
gagni í meðferö orku- og stór-
iðjumála i framtiðinni.
„Auövitaö hafa menn ekki
veriö sammála um öll atriöi,
t.d. hafa menn lengi deilt um
stóriðjuna og skipulagsmálin,
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
alþingismaður.
en æskilegt er að viötæk sam-
staöa takistum stóru verkefnin,
sem biöa i orkumálunum og ráð
stefna sem þessi er vel fallin til
þessaðreifa misjafnar skoðanir
og bera saman bækur sinar,”
sagöi Þorvaldur Garðar. —tt.
Vilhjálmur Lúðvíksson, forstjóri Rannsóknarráðs rikisins.
Erindi Vilhjálms:
Niðurstöður
Orkuþingsins
I lok Orkuþings flutti Vil-
hjálmur Lúöviksson, forstjóri
Rannsóknarráös rikisins, erindi
um helstu umræöuefni þingsins
og dró fram meginniðurstöður.
Hér á eftir fara glefsur úr erindi
hans.
i fyrsta lagi nefnir Vilhjálmur
„alvarlegar horfur i alþjóða-
málum ogorkumálum heimsins
á næstu áratugum”. Um þaö
segir hann m.a.: „Við stöndum
frammi fyrir umbrota- og á-
takaskeiði, sem er fullt af ó-
vissu og öryggisleysi á meðan
heimurinn leitar aö nýrri skip-
an, sem tryggt geti áframhald-
andi... framfarir”.
1 öðru lagi segir hann: „Mikil
óvissa um aðdrætti og verð á
innfluttu eldsneyti til islands.
Óvissa um hagkvæmni inn-
lendrar eldsneytisframleiöslu.”
Þriöja niöurstaðan er:
„Glæstar vonir um nýtingu inn-
lendra orkulinda, vatnsafls og
jarðvarma”. Þar segir m.a.:
„Þrátt fyrir hatrammar deilur
um stefnuna i þessum efnum ...
á sfðustu árum sést nú örla fyrir
samstööu um meginatriði orku-
og iðnaöaruppbyggingar. ... Við
stöndum frammi fyrir nýju
skeiði i' lifi þjóðarinnar:
ORKUSKEIÐINU.”
Fjóröa niðurstaöa þingsins aö
mati Vilhjálms er að „Áhersla
verði lögð á vandaðan undir-
búning og innlent frumkvæði
meö arðsemi og þjóðarhag að
leiðarljósi. ... Orkunýting er hiö
nýja sviö rannsóknarstarfsem-
innar.”
Og fimmta og siðasta niður-
staða hans er: „Ahersla að
orku- og iðnvæðing samrýmist
óskum um verndun umhverfis
og valdi ekki félagslegri og
menningarlegri röskun og þjóð-
félagsupplausn.”
Jens Tómasson,
jarðfræðingur:
,,Fróðlegt og
gagnlegt þing’
„Ég hef nú ekki getað verið
eins mikið á þessu Orkuþingi
eins og ég hefði kosið en það
sem ég hef komist yfir tel ég að
hafi veriö mjög fróðlegt og
gagnlegt,” sagði Jens Tómas-
son, jaröfræðingur hjá Orku-
stofnun, er Vísir tók hann tali á
Orkuþinginu.
„Persónulega hef ég mestan
áhuga á þeim málum, sem ég
þekki siður, þ.e. hvernig nota
má orkuna, sem viö öflum. En
mér finnst hafa verið gert of
mikið af þvi aö lesa upp langar
og i'tarlegar skýrslur, sem einn-
ig hefur verið dreift fjölrituöum.
Það hefði e.t.v. verið nóg að
dreifa þeim en siöan taka út úr
þeim áhugaverð atriði og ræða
nánar.”
Jens sagði einnig aö þaö væri
skoðun sin að slik þing ætti að
halda meö reglulegu millibili þó
Jens Tómasson, jarðfræöingur
hjá Orkustofnun.
d mikiö væri aö halda það ár-
lega. Að lokum lýsti hann yfir
mikilU ánægju með Orkuþing
81. —TT.