Vísir - 27.07.1981, Blaðsíða 12
Mánudagur 27. júli 1981
irfcm
Matseðill heimillsins
Leið okkar lá i Breið-
holtið i leit að matseðl-
inum fyrir vikuna.
Susie Bachmann hús-
móðir i Breiðholtinu
varð við beiðni okkar
og hér kemur matseðill
sem verður á hennar
heimili þessa viku.
Mánudagur
Blómkalssúpa
Soöin ýsa meö tómatbátum
og agiirkusneiöum
Kartöflur og smjör
Þriðjudagur
Svikin önd
Kartöflumús
Rabarbaragrautur
Uppskrift: Svikin önd
450 g kindahakk
450 g nautahakk
75 g hveiti
2 egg
3 súputeningar (Maggí)
rjómabland
Blandiö saman kjöthakkinu,
hveitinu, eggjunum, bleytiö
súputeningana i rjómablandi og
setjiö f deigiö. Kryddiö vel meö
season-all, pipar og salti. Helm-
ingurinn af kjötdeiginu er lát-
inn i eldfast form (helst ilangt)
Myndið dæld i miöjuna og fyllið
með eplum og sveskjum, síöan
er afgangurinn af kjötdeiginu
látin yfir og jafnað vel. Ef hug-
myndaflugið er „normalt” þá
myndið önd úr deiginu. I öllum
bænum látið ekki hugfallast,
þetta er jú bara „Svikin önd”.
Steikist i ofni i' 30 - 45 minútur.
Boriö fram með kartöflumús og
sósu sem búin er til úr kjötsoð-
inu.
Miðvikudagur
Djúpsteiktur fiskur (ýsa)
Laukhringir, djúpsteiktir
franskar kartöflur
Cocktail-sósa
Avextir: Epiíi, appelsinur
Fimmtudagur:
Framhryggur
þunnar sneiðar
penslaöar meö kryddlegi
og grillaöar f ofni
Kartöflur
Hrásalat
Melóna eða grapealdin
Föstudagur
Spergilssúpa
Heimatilbúnar fiskibollur
Kartöflur
Gulrófu-eplasalat
Uppskrift: Gulrófu-
eplasalat
2 rófur
3 epli
2 msk. sykur
safi ur einni sitrónu
Laugardagur
Grjónagrautur með miklum
rúsinum og kanelsykri
Slátur
Sunnudagur
Sykurhjúpaöur hamborgara-
hryggur
með rauðvinssósu
og hrásalati
Ananasfromage
Uppskriftir:
Reyktur svinahryggur
1 1/2 kg hamborgarahryggur
soðinn i potti i ca. klukkustund.
Látið vatnið fljóta vel yfir
hrygginn. Sjóðið með saxaðan
lauk, gulrætur og 8 stykki heilan
pipar.
Sykurhjúpurinn á hrygginn
200 g tómatsósa
75 g súrt sinnep
1 dós sýrður rjómi
2 dl rauðvin
1 dl coca cola
Allt er þetta hrært vel saman.
Brúnið 150 g sykur i smjöri á
pönnu. Þegar sykurinn freyðir
er raunvinsblöndunni bætt út I.
Hryggurinn settur i ofnskúffu og
penslaður að ofan með sykur-
blöndunni 2 - 3 sinnum.
Hafið eingöngu yfirhita á ofnin-
um, þannig brúnast sykurhjúp-
urinn fallega.
Rauðvinssósan
Soöið af hryggnum sett i pott.
Bragðbætt með kjötkrafti,
þriðja kryddinu og piþar. Sósan
bökuð upp með smjörbollu 100 g
mjúkt smjör og 100 g hveiti
hrært saman. Soðið sett smám
saman út i. Bæúð við hindberja-
sultu, rauðvini, rjóma og af-
ganginum af sykurhjúpnum.
Hrásalat
1/2 hvitkálshöfuð
4 stk. gulrætur
2 tómatar
1 agúrka
1/2 dós ananas
Saxað smátt
Salatsósa:
100 g majones
Ananassafinn
súrt sinnep
1 tsk karrý
Tabasco sósa nokkrir dropar og
HP sósa
Season-all krydd og sitrónupip-
ar bætt i' eftir smekk. Hrærið
sósuna vel saman og blandað úti
grænmetið. Borið fram kalt.
Óþarft er að taka fram að
þetta er veislumatur, rikur af
hitaeiningum.
En....góða veislu gjöra skal!
Verökönnun í
stærstu matvöru-
verslununum
t nýútkomnu ritiNeytendasam-
takanna er skýrt frá verökönnun
sem unnin var i samstarfi Verð-
lagsstofnunar og Neytendasam-
takanna. Fulltrúar Verðlags-
stofnunar fóru I 10 stærstu mat-
vöruverslanir á Stór-Reykjavik-
ursvæöinu 9. júnf s.l.
Skráð voru niður verð á 67
vörutegundum og eru i þessari
könnun birtar þær 51 tegundir
sem til voru i flestum verslan-
anna. Nokkuð mikill verömunur
var á þessum vörutegundum á
milli verslana og nefndar eru
skýringar á þvi svo sem aldur
birgða, mismunandi nýting á
heimilaðri álagningu og fleira.
Ef neytandi hefði keypt allar
vörur þar sem þær reyndust
ódýrastar, hefði hann þurft að
borga fyrir þær kr. 457.36. Ef
hann hins vegar hefði keypt þær
þar sem þær voru dýrastar, þá
hefði hann þurft að borga kr.
562.45 eða 23% hærra verð.
Samtals voru 19 vörur til I öll-
um verslununum og i töflu hér að
neðan má sjá hvað verð þeirra er
samanlagt i hverri einstakri
verslun. Til að auðvelda saman-
burðinn enn frekar, er i hægra
dálki gerður hlutfallslegur sam-
anburður á veröinu i verslunum
þar sem meðalverðið er sett sem
100 og verð verslananna siðan
reiknuð i hlutfalli við þaö.
Ef neytandinn hefði til dæmis
keypt þessar vörur I þeirri versl-
un sem er með hagkvæmasta
verðið, hefðu þær kostað kr.
201,44. Hins vegar kosta þessar
vörur kr. 223,25, i þeirri verslun
sem er með hæsta verðið eða
10,8% hærra.
Verð þeirra 19 Hlutfallslegur
vörutegunda sem samanburður
til voru i öll- meðalverð
um verslunum = 100
Fjarðarkaup 201,44 94,1
Vörumarkaðurinn 207,85 97,1
Hagkaup 210,30 98,2
Kostakaup 211,35 98,7
Jón Loftssqn 213,70 99,8
Kaupfélag Hafnfirðinga 214,85 100,3
Stórmarkaður KRON 217,30 101,5
Kaupgarður 219,15 102,3
Arbæjarmarkaðurinn 223,20 104,2
SS, Glæsihæ 223,25 104,2
Meðalverð 214,15 100
'*«rrrnrrrnr:
Hússtjórnarskólinn Laugarvatni mun veita heiisárs nusstjornarnam,
en auk þess gefa kost á háifsárs námi fyrir þá nemendur sem kjósa að
taka styttrinámsáfanga annað hvort i hússtjórnar-eða hannyröagrein-
um. Nám i hússtjórnarskólum um landið verður mismunandi eftir að-
stæðum á hverjum stað.
Ny kennslusklpan i
hússljórnarskólum
Megin hlutverk hússtjórnar-
skóla er aö veita hagnýta fræðslu
í hússtjörnar- og hannyrðagrein-
um eftir aðstæðum á hverjum
stað og eftirspurn eftir náminu.
Svo segir i frétt frá menntamála-
ráðuneytinu várðandi starf hús-
stjórnarskóia.
A vegum ráðuneytisins hefur
verið unnið að þvi að undanförnu
að skipuleggja og aðlaga nám i
hússtjórnargreinum og hannyrð-
um, breyttum aðstæðum og kröf-
um um nýja kennsluskipan.
Breytingin er i'þvi fólgin að nú er
unnt að taka ákveðna áfanga i
þessum greinum og tengja þá
öðru námi I fjölbrautaskólum og
sem valgrein til stúdentsprófs i
menntaskólum.
Hússtjórnarskólarnir geta nú
skipulagt kennslu sina með ýmsu
móti, til dæmis með mismunandi
löngum námskeiöum, en gefið
nemendum sinum kost á þvi að
safna sér ákveðnum fjölda náms-
eininga sem að fullu ber að viður-
kenna i fjölbrautaskólum komi
nemendi inn i skólann á hús-
stjórnar- og handmenntasvið. Á
sama hátt á nemandi sem er i
menntaskóla aðgeta nýttsér nám
af þessu tagi til stúdentsprófs, en
þeim sem hygggja á kennaranám
með hússtjórn eða hannyrðir sem
valgrein er þetta nám nauðsyn-
legt.
— ÞG
Notkun öíl-
belta
Á þessu ári hafa farið
fram þrjár kannanir á
notkun bílbelta hér á
landi, að tilhlutan Um-
ferðarráðs. Kannanirn-
ar voru gerðar i febrúar,
tnái og núna I júlimán-
uði og hefur notkun bil-
belta aukist verulega á
þessu timabili.
Júlikönnunin fór fram á 16 stöð-
um á landinu og voru það lög-
reglumenn sem sáu um talning-
una.
Tekið er fram i fréttatilkynn-
ingu frá Umferðarráði að könn-
unin i juli' fór fram nokkrum dög-
um eftir að dreift hafði verið efni
um umferðarfræðslu m.a. um bil-
belti.
Niðurstöður urðu þessar: t bæjum öðrum en Reykjavik: ökumenn: farþegar i framsæti:
lfebrúar 3,1% 0,5%
1 mai 1,8% 1,3%
íjúli 13,0% 19,6%
í Reykjavik:
tíebrúar 9,1% 6,6%
1 mai 9,9% 13,4%
ljúli 17,0% 8,3%
A Suðurlandsvegi, Vesturlands- vegi óg Reykjanesbraut: 1 febrúar 12,7% 17,8%
t mai 16,7% 19,9%
ljúli 24,7% 26,9%
Annarsstaðar i dreifbýli:
1 febrúar 22,1% 25,0%
t mai 19,2% 21,2%
t júli 34,3% 51,6%
Landið alit:
lfebrúar 9,4% 10,9%
Imai 11,7 15,1%
Ijúli 21,5% - 27,8%