Vísir


Vísir - 27.07.1981, Qupperneq 19

Vísir - 27.07.1981, Qupperneq 19
18 Mánudagur 27. júll 1981 VÍSIR • KRISTJAN GISSURARSON. Kristján nálgast 5 metrana Kristján Gissurarson stangarstökkvari úr KR setti persónulegt inet á innan- félagsmóti KIl i stangarstökki fyrir helgina. Fór hann þar yf- ir 4,64 metra en átti best áður 4,61. Er þess áreiðanlega ekki langt að bíða að hann brjóti „fimm metra múrinn” þvi hann átti mjög góða tilraun viö 4,75 á þessu móti og rétt felldi þá hæð. Sigurður T. Sigurösson KR sigraði i þessari grein með þvi að fara yfir 5 metrana. Hann reyndi við 5,31 eftir það en tókst ekki að komast yfir þá hæð. — klp — Hallgrimur með helms- met? Kastaði Kulunni 13.34 m Frjálslþróttakappinn góð- kunni, Hallgrimur Jónsson, sem nú er orðin 54 ára gamall er enn i fullu fjöri og æfir af krafti. A móti núna fyrir helg- ina kastaði hann kúlunni 13,34 metra og er það hald manna að það sé heimsmet i kúlu- varpi I hans aldursflokki. Samkvæmt heimsmeta- skránni fyrir „old boys” sem er frá 1978, og er sú eina sem til er hér á landi, er þetta heimsmet hjá honum. Verið er aðkanna þetta betur og reyna að fá nýja heimsmetaskrá, og fæst þá á hreint hvort Hall- grimur á heimsmetið eða ekki. — klp - 1. DEILD Staðan er nú þessi i 1. deild- arkeppninni, eftir leiki helgar- innar: KA-KR..................1:1 Vestm.ey. —Akran ......1:2 Breiðablik — Þór.......3:3 Vikingur —Fram.........1:3 Vikingur... .12 7 3 2 17:10 17 Breiðablik . .12 4 7 1 15:10 15 Akranes ... .12 5 4 3 12:7 14 Fram . 12 4 6 2 16:14 14 Valur .11 5 3 3 21:10 13 KA ,. 12 4 4 4 12:11 12 Vestm.ey .. . 12 4 3 5 18:16 11 Þór . 12 1 6 5 10:24 8 FH .11 2 3 6 13:22 7 KR .. 12 1 5 6 7:16 7 Víkingar réöu ekki viö Framara - sem löku bá i kennsiustund og unnu öruggan sigur 3:i. Vlðar Þorkeisson 16 ára nýlíðl. skoraði tvö gullfaileg mörk fyrir Fram Viðar Þorkelsson — 18 ára nýliöi hjá Fram, opnaði marka- reikning sinn, þegar Framarar unnu sætan sigur (3:1) yfir Vlk- ingum — hann skoraði tvö gullfal- leg mörk og lék mjög vel. Viöar opnaði leikinn, með þvi að senda knöttinn upp I samskeytin hjá Vlkingum og siðan skallaði hann knöttinn upp i bláhorniö. Framarar léku mjög vel gegn Vlkingum og áttu leikmenn Hæðargarðsliðsins ekkert svar við stórleik þeirra. Munurinn gat hæglega orðið mun stærri, þvi að Framarar misnotuðu mörg gullin marktækifæri, þegar þeir stóðu fyrir opnu marki — Guðmundur Steinsson, hinn snaggaralegi sóknarleikmaður Fram, nagaði sig örugglega i handabökin eftir leikinn, þvi að hann gat hæglega skorað fjögur mörk, en honum brást ávalt bogalistin á elleftu stundu. VIDAR ÞORKELSSON.. leik- maðurinn efnilegi. Hann er landsliösmaður i körfuknatt- leik. Glæsimörk hjá Fram Það voru sannkölluð glæsi- mörk, sem Framarar buðu áhorf- endum upp á. Þeir skorðuðu sitt fyrsta mark á 13. min. — Pétur Ormslev tók þá hornspyrnu og sendi knöttinn fyrir mark Vik- ings, þar sem Diðrik Ólafsson, markvörður, sló knöttinn frá — til Viðars Þorkeissonar.sem gaf sér góðan tima og spyrnti laglega með vinstri fæti — knötturinn hafnaði upp i markhorninu. Haiidór Arason skoraði siðan annaö mark (2:0) Framara á 25. min. — komst þá einn inn fyrir vörn Vikings og lét þrumuskot riöa af — knötturinn hafnaði upp i markhorninu — 2:0. Róbert lokar augunum fyrir vitaspyrnu A 28. min. lokaöi Róbert Jóns- son, dómari leiksins, augunum fyrir grófu broti Vikinga á Guðmundi Steinssyni, sem var ekkert annað en vitaspyrna. Ragnar Gislason braut gróflega á Guðmundi, sem var kominn á auðan sjó. Hvað gerðist? — Ró- bert, sem stóð aðeins 5 m frá staðnum sem brotið átti sér stað á.þorði greinilega ekki að dæma vítaspyrnu — á óskiljanlegan hátt lét hann leikinn halda áfram. Annað glæsimark Viðars Heimir Karlsson náði að minnka muninn (1:2) fyrir Viking á 50. min., með góðu skoti frá vltateig. Viðar Þorkelsson svarar fyrir Fram á 55. min. — 3:1, með glæsilegu marki. Pétur Ormslev tók þá aukaspyrnu og sendi knött- inn fyrir mark Vikings, þar sem Viöar kom á fullri ferð og skallaði hann knöttinn glæsilega upp i markhornið hjá Vikingum. Sigur Fram var i höfn og hefði hann hæglega getað oröið stærri — þaö miklir voru yfirburðir Fram. Víkingar áttu ekkert svar Það sem vakti mesta athygli i leiknum, var að Vikingar áttu ekkert svar við rangstæðuleikað- ferð Fram — hvað eftir annað voru margir leikmenn Vikings rangstæðir i leiknum og var það oft broslegt. Það er einkennilegt að Vikingar, sem eru á toppnum i 1. deildarkeppninni, breyttu ekki leikaðferð sinni, þegar þeir sáu hvernig Framarar fóru með þá á rangstæðuleikaöferðinni. Vikingar notuðu langspyrnur fram völlinn allan leikinn. Það er oft hættulegt að leika rangstæöuleikaðferö, þegar linu- veröir eru ekki vakandi — t.d. munaði ekki miklu að Lárusi Guðmundssyni, besta leikmanni Vikings, tækist að skora tvö mörk, eftir að annar linuvörður- inn sofnaði á verðinum — veifaði ekki rangstæöur á Lárus, sem var langt fyrir innan vörn Fram, þegar hann fékk knöttinn. Framarar léku mjög vel gegn Vikingi — besta leik, sem islenskt lið hefur sýnt i sumar. Þeir fóru oft illa með Vikinga — létu knött- inn ganga manna á milli og var sóknarleikur þeirra beittur. Pétur Ormslev var mjög góður og einnig Halldór Arason. Viðar Þorkelsson er stórefnilegur leik- maður. Marteinn Geirsson stjórnaði vörn Fram eins og her- foringi og Guðmundur Bald- ursson, markvörður, sýndi að hann er okkar besti markvörður. Allir leikmenn Fram léku mjög vel. Það sama er ekki hægt að segja um Vikinga — þeir fengu aldrei frið og féllu ofan i þá gryfju, að reyna langspyrnur fram völlinn i tima og ótima. Lárus Guðmunds- son var besti leikmaður þeirra — skapaði alltaf hættu, þegar hann var með knöttinn. —SOS Elias tryggði KR iafntefli Eiias Guðmundsson tryggði KR-ingum jafntefli (1:1) gegn KA á Akureyri — á elleftu stundu. Elias skoraði jöfnunarmark KR þegar 3 min. voru tii leiksloka. Þaö var Elmar Geirsson sem skoraði mark KA Páll bjargaðl IBV frá „Skagaskellí” Markahæstu menn: gurlás Þorleifs., Vestm.ey. 8 irus Guðmundss., Vik....8 jrsteinn Sigurðss., Val.7 æsti leikur: — Valur og FH ika á Laugardalsvellinum . 20.00 i kvöld. Ef ekki hefði komið til frábær markvarsla hjá Páli Pálmasyni i „blómaieik” hans með ÍBV—iið- inu I leiknum gegn Akranesi i 1. deildinni á laugardaginn er öruggt að Eyjaskeggjar hefðu fengið að sjá enn stærri tölur en þeir sjálfir byggðu upp i bikar- leiknum á Akranesi i siðustu viku. Þar sigruðu Vestmannaeying- ar 5:0 en i 1. deildarleiknum i Eyjum á laugardaginn töpuöu þeir 2:1... Páll sem þá hélt upp á sinn 350 leik með IBV liðinu og var nær kaffæröur I blómum af þvi tilefni áður en leikurinn byrjaöi, var I banastuöi i leikn- um. A fyrstu minútunum fengu Akurnesingar 3 dauöafæri og bjargaði Páll þá strax i tvigang. En það voru heimamenn sem voru fyrri til að skora. Hlynur Stefánsson nýliði i IBV-liöinu og einn sá besti i leiknum á lauear- daginn vann þá návigi við varn- armann 1A og renndi knettinum á Sigurlás Þorleifsson, sem skor- aöi. Skagamenn jöfnuöu skömmu siöar en þá var Páll búinn að bjarga vel hvað eftir annaö. En hann réöi ekki við skalla frá Arna Sveinssyni sem fékk að vera einn og óvaldaöur i markteignum þeg- ar knötturinn kom fyrir markiö. Bæði liðin reyndu aö brjóta sér leiö I gegnum varnarmúr hvorts annars af miklum eldmóði það sem eftir var hálfleiksins og allan siðari hálfleikinn. Sóknir Skaga- manna voru mun þyngri og fleiri en Páll sá um að þeir kæmu knettinum ekki i netiö. Tók meira að segja boltann af tánum á Arna Sveinssyni sem fékk að fara einn upp að marki eftir að „rangstööu- taktik” heimamanna haföi mis- tekist. Allt útlit var fyrir aö leiknum ætlaði að ljúka með 1:1 jafntefli. En þegar 2 minútur voru eftir af honum kom sigurmarkið og var þaö ægi tilviljannakennt. Tveir leikmenn ætluðu aö sparka i boltann inn á miðjum velli þeir geröu það lika, og það samtimis. Boltinn þaut eftir þetta mikla spark út I loftið og endaði hjá Guðbirni Tryggvasyni sem átti ekki minnstu von á honum. En hann var fljótur að átta sig og óö með hann áfram að marki IBV og renndi honum fram hjá Páli I markið. Skagamenn voru betri I þessum leik og áttu sigurinn fyllilega skil- iö. Bestur þeirra var Guöbjörn Tryggvason en hjá IBV var þaö Páll Pálmason og var hann svo sannarlega maður leiksins. Þá var Sigurlás ágætur svo og nýlið- inn Hlynur Stefánsson. GÞBÓ/klp—. • HAFÞÓR SVEINJÓNSSON..átti góðan leik með Fram gegn Vikingi. (Visismynd Þráinn) Valbjðrn fer ekki til Larvlk Útséð er nú með að Valbjörn Þorláksson keppi á Norðurlandamótinu i frjálsum iþrótt- um fyrir „old boys” sem vera átti I Larvík i Noregi um næstu helgi. Hann tognaði það illa i læri á tugþrautamóti um fyrri helgi, að hann treystir sér ekki til að fara á mótið. Er það bagalegt þvi þessi marg- faldi heiinsmeistari „öldunga” I frjálsum iþróttum var talinn öruggur með að sópa að sér verðlaunum á Norðurlandamótinu. — klp PALL PALMASON „fékk margar gjafir fyrir leikinn gegn Skagamönnum. (Visis- mynd Guðm. Sigf.) Mánudagur 27. júii 1981 19 SSii‘2U> Vt-rð kr. 224-*”- - úar stærði __ M5 80 erð kr. r kl®ðnaður ka art/hvitt átt/hvitt ruU/hvWt . 280.- — ——*T*7T|r (*•'*' ol^ °g ,0% Æ Rautt/hvítt U blátt/hviR Verð frá kr. '«»>•- Póstsendum Sportvöruvers/un Ingólfs Óskarssonar Klapparstíg 44 — Sími 11783 Byggingavörur h.f. Armúla 18 — Byggin SÉRTILBOÐ Húsbyggjendur, húseigendur, verktakar Til 1. september seljum viö öll efni til glerjun- ar á tilboösverði. Kiso gúmmílisti 5 x 10 mm á rúllum m. kr. 2.00 Kiso gúmmilisti 3 x 9mmárúllum m. kr. 1.70 Kisogúmmílisti 4 x Smmárúllum m kr. 1.80 Kisof lex 1—k kitti 320 cc kr. 30.00 Kisokon 1—k (Silicone) 320 cc kr. 34.00 Koparskrúfur, hálfkúptar . 200 stk. i pk. 4 x 40 kr. 58.00 Koparskrúfur 4 x 30 kr. 48.00 yggingavörur h.f. Ármúla 18, s. 35697. VÍSIR hlýlur að fá skeytí irá Bllkunum”... Cít-t-l j Einar Jóhannsson — ókrýndur Blikarnlr máttu sætta sig vfð iafntefii 3:3 gegn Þör i tslandsmeistari i hjólreiðum. „Þessi dómari hiýtur iika að fá skeyti frá Breiðablik — hann gaf Akureyringunum annaö stigið með þessum vítaspyrnu- dómi sinum” sagði einn alvöru- gefinn áhorfandi eftir leik Breiðabliks og Þórs 11. deildinni á Kdpavogsvellinum á laugar- daginn. Með skeytinu átti hann að sjálfsögðu við hið mikla hávaðamál sem varð eftir sið- asta tapleik Blikana I 1. deild- inni, þar sem þeir lentu i úti- stöðum við Magnús V. Péturs- son. I þessum leik var það Sævar Sigurðsson sem var með flaut- una, og þótt vitaspyrnudómur hans sem færði Þór annaö stigið væri umdeilanlegur létu þeir alveg vera að deila um hann við Sævar. Þeirhafa sjálfsagt fundið það og séð eins og fleiri en vita- spyrnan sem þeir fengu frá hon- um i fyrri hálfleik var álika ódýr. „Þetta voru að sjálfsögðu 100 prósent viti bæði tvö” ságði Sævar eftir leikinn. Þaö var farið i hælinn á Sigur- jóni þegar hann ætlaði að skjóta i fyrra vi'tinu og i þvi siðara var Guðjón tekinn en ekki boltinn þegar hann var að brjóta sér ieið aö markinu. Það var ekki hægt annað en að dæma viti á bæöi þessi brot” Leikurinn sem Breiðablik æfl- aði sér sýnilega að vinna „lauf- létt” endaöi með jafntefli 3:3. Þetta var hinn fjörugasti leikur og oft á tiðum boöið upp á þokkalegasta samleik. Um markaleysi þurfti svo ekki að kvarta, en sjálfsagt má deila um hvort mörkin skiptust rétti- lega á milli liðanna. Eftir að Blikarnir voru komn- ir i 3:1 með mörkum þeirra Ómars Rafnssonar, Valdimars Valdimarssonar og Jóns Einarssonar, gáfu þeir eftir. „Við hættum bara að berjast og þeirgengu á lagið. Við áttum þá að vera bunir að rúlla þeim upp” sagði Jón Einarsson eftir leikinn. Þórsararnir gengu jU vissu- lega á lagið. Guðmundur Skarphéðinsson minnkaði mun- inn í 3:2 og Guðjón Guðmunds- son jafnaði siðan metin með markinu Ur vitinu umdeilda þegar 15 mÍnUtur voru eftir. Þegar það var komið fóru Blikarniraftur i gang og áttu þá hvert dauðafærið á fætur öðru. En klaufaskapur þeirra og svo frábær markvarsla Eiriks Eirikssonar á þeim kafla geröu Utslagið og þeir urðu aö sætta sig við annað stigið. Bestu main I liði Þórs voru þeir Guðjón Guðmundsson, NUmi Björnsson og Eirikur Eiriksson, en. hjá Breiðablik þeir Sigurður Grétarsson og „glókollarnir” Vignir Baldurs- son og Jóhann Grétarsson. -klp- I K0PAV0GI ' Einar Jóhannsson varð J ókrýndur islandsmeistari i hjól- I reiðum þegar hann sigraöi i I hjólreiðakeppninni miklu sem I haidin var i gær. Kom hann þá I fyrstur af öllum i mark en hjól- | að var frá Keflavik til Hafnar- | fjaröar. | Einar sem sigraöi einnig i |Grandakeppninni i fyrra og jÞingvallakeppninni I ár var liö- jlega 52 minútur á leiðinni og jkom um 12 sekúndum á undan næsta manni I mark. Þaö var Hafsteinn Óskarsson. Þriðji Ein kona var meðal hinna J 35 keppanda, Björg Erlings- Jdóttir og gaf hún karlmönnun- lum ekkert eftir á Keflavikur- I veginum. Þaö gerði heldur ekki I ólafur ólafsson sem sigraði i I flokki 13—14 ára með miklum lyfirburðum. Þar var Magnús j R. Guðmundsson annar og |Viktor Kjartansson þriðji. I jflokki 15—16 ára sigraði Elvar j Erlingsson, annar varð Sigurjón | Halldórsson og þriðji Hilmar • Skúlason. -klp Sigurður Grétarsson tekur hornspyrnu á 22. min. og sendir inn i teiginn, þar sem Ómar Rafnsson bak- vörður stingur sér á milli tveggja varnarmanna Þórs og skorar. Mjög gott upphlaup Þórs á 28. min. sem byrjar upp við vitateig þeirra og endar með þvi að knettinum er rennt á Nóa Björnsson sem skorar laglega. Sigurjón Kristjánsson „fiskar” viti á 33. min. og Valdimar Vaidimarsson fyrirliöi Breiðabliks skorar örugglega úr þvi. Sigurður Grétarsson gefur góða sendingu á Jón Einarsson sem hleypur vörn Þórs af sér og rennir knettinum fram hjá Eiriki markverði, 52 min. Sigurbjörn Viöarsson tekur aukaspyrnu fyrir Þór á 59. min. Sendir inn að marki og þar skallar Guðmundur Skarphéðinsson knöttinn i netiö. Guðjón Guðmundsson „fiskar” vitaspyrnu á 75. min. sem hann síðan tekur sjálfur og skorar úr af miklu öryggi.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.