Vísir - 27.07.1981, Síða 35

Vísir - 27.07.1981, Síða 35
35 Mánudagur 27. júli 1981 Byriað að pétta: Sigðldulðn bétt (sumar „Okkur hefur miðaö ágætlega við rannsóknirnar og búumst við að geta hafið þéttingarfram- kvæmdir i sumar”, sagði Páll Ólafsson, staðarverkfræðingur Landsvirkjunar við Hrauneyjar- foss. Þar hafa nú i tvö sumur far- ið fram athuganir á þeim leka sem er I Sigöldulóni og er mark- visst unnið að þvi að finna veik- ustu punktana. „Við beitum bæði geislamæl- ingum og litarefnum eriendra raðgjafa, auk Raunvisindastofn- unar Háskólans. Lónið sjálft er alltaf að þétta sig með árfram- burði og okkar markmið fyrst og fremst er að flýta þeirri sjálfþétt- ingu. Þéttingarframkvæmdir eru mjög dýrar og mælingarnar eiga að geta sparað kostnað við þær framkvæmdir, þar sem þær leiða i ljós hvaða staðir þurfa helst þéttingar við”, sagði Páll. Það kom fram i samtalinu við Pál að þeir Landsvirkjunarmenn vonast tilað þessar aðgerðir byrji að skila sér að einhverju leyti i vetur. Lágt vatnsborð i Sigöldu- lóni hefur verið vandamál frá upphafi virkjunarframkvæmda þar. En þó unnt sé að flýta að ein- hverju leyti sjálfþéttingunni, verður náttúran sjálf að fá að ráða ferðinni og þvi varla von á varanlegum bótum fyrr en eftir nokkur ár. Andófsnefndin fagnar afstððu Frlðriks islenska andófsnefndin hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún fagnar drengilegri og hyggi- legri framkomu Friðriks Ólafs- sonar í máli Viktors Kortsnojs. Andófsnefndin harmar hins vegar, að íslenskir verkalýðsleið- togar skuli ekki sýna sömu ein- beitni og Friðrik Ólafsson. Andófsnefndin telur að þeir hafi lagt blessun sína yfir hina rikis- reknu „verkalýðshreyfingu i Raðstjornarrikjunum með þvi að þiggja boð hennar i ferðir og veislur”. —ÓM VÍSIR Menn og vélar i hvildarstööu. (Vlsism. G.S. Akureyri) Fvrsta islandsmótíð i flugi fjarstypöa vélflugmódela Jðn Pétursson tvðfaldur melstari ..Þetta var fyrsta ís- landsmótiö i flugi á fiarstvrðum vélflugu- módelum og frumraun okkar Akureyringanna i sliku mótshaldi”, sagði Björn Sigmunds- son i samtali við Visi, en hann var mótsstjóri á umræddu móti, sem haldið var á Þverár- eyrum um helgina. I heild þótti mótið takast vel, — „Við lærðum af mistök- unum”, — sagði Björn, „og veðurguðirnir voru flugmönn- unum hliðhollir”. A slíkum mótum er keppt i tveim flokkum. Annar nefnist „Scale” og þar eru modelin ná- kvæmar eftirlíkingar af raun- verulegum flugvélum. Fær keppandinn stig, bæði fyrir handbragðið d smiði módelsins og leikni i að fljúga því. í hinum flokknum er flogið flugmódelum og þá fær keppandinn eingöngu stig fyrir flugið. Sigurvegari ibáðum flokkum, Jón Pétursson sigraði I báðum flokkunum — og þar með tvöfaldur Islands- meistari, — varö Jón Pétursson frá Reykjavik. Hann flaug Acro Sport vél í „Scale”, en i hinum flokknum var hann með módel, sem hann hafði hannaö og smið- að sjálfur. t „Scale” flokknum varö Kristján Vikingsson i 2. sæti i Miles Magister og Einar Páll Einarsson varð i 3. sæti á Buck- er Student. Einar Páll náði hins vegar 2. sætinu i módelfluginu og Gylfi Magniisson varö i 3. sæti. Flug fjarstýrðra vélflug- módela á vaxandi vinsældum að fagna. Er módelunum flogið rétt eins og fullsköpuðum flug- vélum, nema hvað flugmaður- inn er af skiljanlegum ástæðum ekki um borð. Hann stendur á fósturjörðinni með radiótæki á maganum — og venjulegast glápandi til himins. Með radio- tækinu stýrir hann módelinu, sem er knúið mótor er gengur fyrir sérstökum „metal”. Helsti munurinn frá raunverulegu flugi er sá, að „slys” munu tið- ari i' módelfluginu. Alla vega fara ekki sögur af þvi alvöru- fiugi, að flugvél hafi elt uppi flugmann sinn. Það kom hins vegar fyrir á Þveráreyrum um helgina, þegar eitt modelið tók stefnuna beint á flugmann sinn. Var það Kristján Vikingsson, sem álli fótum fjör að launa. Brotlenti modelið án þess aö nokkurhlytimein af þessu sjálf- stæði þess. Sögðu áhugamenn, að slíkar uppákomur væru bara til að gera sportið ennþá meira spennandi. G .S./Akureyri FRIDRIK JAFNAN BESTUR I TIMAHRAKINU Ekki verður skákin af lslend- ingum skafin. Við erum á góðri leið með að eignast Utitafl sem i allri gerð verður á við önnur undur veraldar, ekki sist ef Sig- urjón Pétursson stendur við það að láta tyrfa yfir það þegar þvf veröur að fullu lokið. Nd stendur yfir norrænt stórmót i skák hér á landi og eigum við góðar vonir um verðlaun. Skandinavar hafa ekki riðið feitum hesti frá tafl- borðum veraldarinnar, enda hefur skákin aldrei verið iþrótt félagsfræðinga og sálfræðinga heldur fremur lögfræöinga, verkfræðinga og bankamanna. Danska skáksambandið varð nýlega að viðundri I málefnum þeim sem snerta skáksnillingin Kortsnoj, sem er óumdeilan- lega einn af þrem mestu skák- mönnum, sem nú eruuppi. Mál- staður hans hefur óneitnanlega samuð allra góðra manna og friðelskandi og er þá svo sann- arlega ekki átt við þau menn- ingar- og friöarsamtök Sem Sovétmenn kosta, né heldur þá sem sjá aðeins I gegnum sovét- skipulagið á miövikudögum en eru jafnsteinblindir og forðum alla hina vikudagana. Ekki er hægt annað en að fyll- ast aödáun á framkomu og frammistööu Friöriks Ólafsson- ár f málefnum Kortsnojs. Hann fór með löndum i fyrstu og varð að báa við ásakanir um að fylgja málinu ekki eftir af nægj- anlegri festu og einurð. Var jafnvel látið að þvf liggja, að þar sem Sovétmenn höfðu átt stóran þátt í að tryggja honum formennsku i FIDE mundi hann eiga bágt með að sækja fast á Moskvuvaldið i máli Kortsnojs. En nd virðist komið á daginn að hver leikur hins islenska forseta alþjóða skáksambandsins hafi verið hnitmiðaður og raunsær. Hann hefur haldiö þannig á málum að frá því komist aöilar með sæmilegri reisn eftir þvi sem það er hægt, I jafnógeð- felldu máli og ofsóknirnar I garð flóttaskáksnillingsins og fjölskyldu hans er. Þaö er lenska i þjóðskipulög- um sem hafa ljóta mynd að fela, að þau sækjast m jög eftir því að koma upp hópum listamanna og fþróttafólks, sem með árangri f grein sinni geta varpað ljóma á þjóöskipulag það sem það býr i'í við. Ekkert er til sparað og börn sem biia yfir sérstæðum eigin- leikum eru beilinis ræktuð upp I frá unga aldri I þessum tilgangi. Slikt fólk nytur ýmissa forrétt- inda f „stéttlausu” landi eins og Sovétrikjunum. Að visu er eitt og annað af þvi sem telst til for- réttinda þar hluti af daglegum vörum almennings á vestur- löndum. Enþar sem vörur eins- og sápa, kjöt, og klósettpapplr, sem ekki er eins og sandpappir, eru iðulega ekkitilsvo vikum og mánuðum skiptir verða þær fljótt að láxusvörum, sem for- réttindi eru aö komast yfir. En þrátt fyrir að þetta fólk bái bet- ur en samlandar þess er þaö gjarnt á að flýja sæluna. Því er það venja þegar afburðafólk austantjaldslanda er sent vest- ur á bóginn I áróðursferðir fyrir fööurlandið þá eru gislar ár f jöl- skyldunni hafðir eftir til trygg- ingar. Það gislamál sem fræg- ast hefur oröið á siðustu timum og snerist um nokkra tugi m anna I sendiráöi I Teheran er I raun smámunir I samanburði við þau gislamál þásundanna I austantjaldslöndunum, sem aldrei koma upp á yfirborðiö Friðrik Ólafsson viröist hafa upp á eigin spýtur leyst eitt slikt mál, sem snýst um eina þekkta en hrakta fjölskyldu og hlýtur heiöur fyrir. Svarthöfði

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.