Vísir - 06.08.1981, Page 2

Vísir - 06.08.1981, Page 2
2 Fimmtudagur 6. ágúst 1981 Ertu hlynntur kvenna- t'ramboði: Hildur Knútsdóttir, kennan: Nei, mér linnst þaö ekki vera i stil viö jainréttislög. Halldóra Jónsdóttir, husmoöir: Já, þvi ekki. Mér tinnst aö karl- mennirnir hali ekki sýnt neinn skörungskap. Stelán B. Stefánsson, banka- maður: Nei, mér finnst að kven- fólk þurli ekki aö skera sig úr. Þær eiga bara aö hasla sér völl innan þeirra stjórnmálaflokka sem hér eru. \'algeröur Jónsdóttir, versl- unarmaöur: Já. ef konan er hæl þá er þetta besta leiðin. Sjálf- sagt að þær séu samtaka. Kriöleifur Helgason, flugþjónn: Nei, ekkert sérstaklega. Þaö á ekki aö vera kvennaframboö eingöngu. Konur eiga að vinna sér nafn innan flokkanna. VÍSIR ..Ferðalðg eru orðin almenningselgn” - segir ingólfur Guðnason hjá Flugferðum Flugferöir er yngsta ferðaskrif- stofa landsins, hún tók til starfa fyrir fimm dögum siðan og i hús- næði hennar hefur, að sögn Ingólfs Guðnasonar, annars eigenda Flugferða, „siminn ekki þagnaði og hurðir varla lokast frá þvi opnað var. Fólk hefur spurst mikið fyrir um ferðir, og tekið ferðaskrifstofunni mjög vel”. Ingólfur Guðnason er i viðtali dagsins i dag, en hann starfrækir ferðaskrifstofuna ásamt með Eyþóri Heiðberg. ,,t rauninni er mitt aðalstarf allt annað,” segir Ingólfur, ,,ég vinn sem leiðbeinandi við Afengisdeildina á Vifilsstöðum, en ferðaskrifstofan fær þann tima sem ég hef aflögu að loknum öðrum skyldustörfum. Eins og málin horfa við núna, þá gengur þetta. Þessu hefur veriö mjög vel tekið, og fjöldi fólks hefur látið bóka sig i ferðir hjá okkur”. Og hvert er þá starfssvið ferða- skrifstofunnar? ,,Við sinnum allri almennri ferðaþjónustu, setjum upp ferðir, núna i fyrstunni m.a. til Evrópu nær, og þá notum við Amsterdam sem nokkurs konar umferðar- miöstöð. Þaðan getum við svo boðið margar ferðir enda mikið úrval ferða einmitt þaðan, og það er þvi völ á mörgum ferða- pökkum, t.d. til Grikklands, Madeiru, vinræktarhéraðanna i Þýskalandi. Það er af nógu að taka. Viö setjum ekki vegalengd- irnar fyrir okkur, þegar við skipuleggjum ferðir fyrir fólk,” — En hefur þú sjálfur gaman af að ferðast? ,,Ég var fararstjóri erlendis i liklega samtals tiu ár, mest á Spáni og Grikklandi, og jú, ég hef virkilega gaman af þvi að ferðast. Og skemmtilegast finnst mér nú - að fara akandi um Evrópu. En eftirminnilegasta ferðin, sem ég hef farið, var liklega ferð sem ég fór fyrir nokkrum árum upp á Sprengisand. Billinn bilaði að visu, en þar er einhver sú mesta náttúrufegurð, sem ég hef upp- lifað.” — En manstu ekki eitthvað úr farastjórninni, sem vert er að segja frá? „Það er nú kannski ekki gott að segja opinberlega sögur af skringilegum atvikum, það er aldrei að vita nema einhverjum sárni það. En mest gaman hafði ég af þvi að upplifa ferðir með fólki, sem hafði greinilega lagt mikið á sig við að komast út, og fór kannski ekki nema örsjaldan i sumarfri til útlanda. Það upplifði ferðina eins og ævintýri, spek- Ingólfur Guðnason. uleraði mikið i, hvert það ætti að fara og ferðin varð þvi eins og hugljómun. Það tók ferðalaginu ekki eins og hversdagsleik- aunum.” — En svo við vikjum okkur að öðru: Er ekki orðið allt of mikið af ferðaskrifstofum hér á landi? „Nei, ég býst nú ekki við þvi. Það er frekar að það væri pláss fyrir fleiri. Islendingar ferðast mikið, vegna þess að við erum þannig i sveit sett, að við njótum ekki sömu veðurbliðu og fólk i suðlægari löndum. Eins vinnum við mikið hér á landi, og viljum fá afþreyingu frá þvi. Ferðalög innanlands geta lika oft verið kostnaðarsamari og umfram allt fyrirhafnarsöm og erfið, þó þau séu auðvitað afar heillandi. En mesta áhyggjuefn- inu, skipulagningunni, er létt af fólki i hópferðum, og það getur hvatt til þess aö menn skreppi frekar til útlanda. Fólk fær ferðina að meira eða minna leyti tilbúna upp i hendurnar. Ferðalög eru orðin meiri al- menningseign á íslandi en nokkurn timann áöur — ekki sist fyrir tilstilli þeirra Ingolfs Guðbrandssonar og Guðna Þórðarsonar sem unnu braut- ryðjendastarf að þessum, málum. Þær feröaskrifstofur, sem siöan hafa komið upp, hafa að mestu leyti reynt að halda i þvi horfi, sem markað var i upp- hafi.Það er orðið tiltölulega litið mál að fara heimsálfa á milli.” —js.j. sandkorn Villa annan verslunarskóla i Ijórblöðungnum , Við- skipti og verslun”, sem gefinn var út af sam- nefndri kynningarstofnun verslunarinnar og fylgdi I)egi á Akureyri fyrir verslunarman nahelgina, var viða komið við og margt spjallað. í fjórð- blöðungnum er meðul annars rekinn rnikill áróður fyrir þvi, aö stofn- aður verði verslunarskóli á Akureyri.en litið fjallaö um verslunardeild Gagn- fræðaskólans þar, sem hefur verið til um árabil. Ekki skal gert litið úr þörf Akureyringa fyrir aukna verslunarmennt- un. þótt mér hafi sýnst þeir margir býsna glúrn- ir, en það var svo sem eft- ir þeim að láta sér ekki nægja deild og ekkert minna en sérskóla til þess aö bæta þarna úr. Stór- hugurinn cr samur við sig og ekki að efa að hann fylgi máli. Hins vegar ef- astcg um að Iteykviking- ar samþykki tiliögu Badda Jún., sem vill láta „flytja Verslunarskóla islands i skólabæinn Akureyri”.... Þjóðinnl refsað tyrir elnn syndasei í sambandi við 5% lækkun á verði nýrra bila rifjast það upp, að undan- farin þrjú ár hefur alger- lega verið bannað að flytja inn nýlega, notaða bila, nema fólk flytji þá meö sér eftir búsetu i út- löndum. Astæðan? Fræg- ur innflutningur á notuð- um Bensum, en innflytj- andinn mun hafa dundað við að breyta einkennum bilanna til þess að lækka tollana. Fyrir þetta braskævintýri virðist allri þjóðinni vera refsað með þvi að banna hverj- uin og einum að flytja inn svo mikið sein einn notað- an bil. Þó er vitað að hægt er að fá slika bila á vægu verði og i góðu lagi — og spara talsvert, ef fólk gerir ekki itrustu kröfur og vill aðeins nýtt. Þetta hlýtur að vera með þyngri refsingum. sem beitt er á landi hér... • Nlættu á heimsðknar- tima Þorbjörn og Bessi á Egilsstöðum voru búnir að heyra margar sögur sagðar um Hafnfirðinga og gerðu sér um daginn ferð suður til þess að berja Gaflarana eigin augum. Þeir komu heini aftur sársvekktir. „Við fórum um allan Ilafnarfjörðinn og sáum bara venjulegt fólk úti á gðtum", sögðu þeir við kunningja sinn. ,,Nú, þið hafið þá verið þarna á heimsóknar- tima". Sérfræðingar I að ruglal Keppni nokkur fer nú fram á siðum Dagblaös- ins, sem felst i þvi aö finna þann fljótasta við að raða töfrateningnum svo- kallaða. Metið er sem steudur ein minúta, fjöru- tiu og fimm sekúndur og fimm sekúndubrot, skilst mér. Sá sem setti það er Indriöi Björnsson, 13 ára gamall. i lýsingu sinni á afreki lndriða sagði Dag- blaöið meðal annars: „Þess má geta að ten- ingnum var alltaf ruglað af tveim eða fleiri blaða- mönnum DB og þvi ekkert létt verk að greiða úr þeirri flækju.” Ekki er mér fullljóst, hvort þarna er átt við að æfingin skapi meistarann. alla vega hlýtur að vera tilefni til þess að blaðamenn DB komast nú i eigin annál fyrir að rugla... Englr „snliidar- taktar” Máske kalla ég yfir mig reiði starfsbræðra minna, þeirra sem fást við ritun iþróttafrétta, en þá þaö. Vonandi eru þeir þó þroskaðri en svo, að taka þannig vinsamlegri at- hugasemd. Ég er nefni- lega orðin dauðleiður á fyrirbrigðinu „snilidar- taktar” sem tröllríður iþróttafréttum i flestum ef ekki öllum dagblööun- um. Þess vegna yröi ég þakklátur þeim iþroíta- fréttamanni, sem treysti sér til þess að nota orð eins og tilþrif I staöinn, einstaka sinnum, helst oftar en „snilldartaktar”. Ekki þaö að ég ætlist til þess að iþróttafréttir séu skrifaðar aðallega fyrir mig. En ofnotkun orðs eða lýsingar er til lýta i sæmilegu máli, að ekki sé nú talað um þennan ein- kennilega samsetning... flllar hlóðhetiurnar akkar Fyrst ég er svo farinn að andskotast út i það sem mér finnst betur mætti fara i iþróttafrétt- um, má ég til með aö beina spjótunum að si- byljunni um „lið As- geirs”, „lið Arnórs”, „liö Peturs”, „lið Teits”, „lið Karls”, „lið Jóhannes- ar”, „lið Arnar”, „lið Harðar”, „lið Alberts” — og ég veit ekki hvað, sem er fastur liður i frásögn- um af gengi knattspyrnu- liðanna erlendis, sem islenskir hafa vinnu við að leika með. Sérstaklega er þetta áberandi i inn- gangi frétta i útvarpinu af þessum tilteknu liðum. Siðan fylgir venjulega með hvernig viðkomandi tslendingi hefur vegnaö í leiknum, svo að hreinn óþarfi er að vera meö þessar endalausu útskýr- ingar i upphafi. Ég efast um að nokkrir' aðrir tslendingar séu oftar nafngreindir i útvarpinu en þessir ágætu knatt- spyrnumenn okkar, sem farnir eru af landi brott I framaleit...

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.