Vísir - 06.08.1981, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 6.' ágúst 1981
C*X ‘
Llömarall:
VlSIR
Stærsta rall árslns
Stærsta rall ársins, Ljómarallið
hefst i Reykjavik, 19. ágúst, kl. 9.
Þetta er fimm daga keppni, sem
BIKR sér um framkvæmd á, en
Smjörliki h.f. kostar, að þvi er
örn Stefansson formaður BIKR
tjáði Visi.
Fyrsta daginn verður ekið
norður Kjöl og gist á Sauðár-
króki. Þaðan verður farið til
Húsavikur annan daginn, en á
þeirri leið eru margar skemmti-
legar sérleiðir, sem ekki verður
sagt nánar frá að sinni. Þriðja
daginn verður ekið til Reykjavik-
ur og sagði örn að það verði erfið-
ur dagur, en skemmtilegur. Sið-
ustu tvo dagana verður siðan ekið
frá Reykjavik að morgni og kom-
ið til baka að kvöldi, en mikil
leynd hvilir yfir leiðunum, sem
farnar verða.
örn sagði að búast megi við að
um 40% leiðarinnar, sem verður
farin verði sérleiðir.
Skráningu i keppnina er ekki
lokið, en nú þegar hafa niu
keppendur verið skráðir. Þar á
meðal er einn Norðmaður, John
Haugland, sem keppir fyrir
Skoda og ekur sérsmiðuðum
Skoda rallbil með 130 hestafla vél
Din og er bill Hauglands þegar
kominn til landsins.
Haugland keppti i stóra rallinu i
fyrra og datt út á næst siðustu
sérleið og var þá i forustu i
keppninni. Reyndar höfðu Ómar
og Jón Ragnarssynir orðið að bita
i sama súra eplið fyrr i keppninni,
að vera i forustu en detta út. Þeir
bræður eru meðal þeirra, sem
hafa skráð sig nú og telja má vist
að þeir séu öruggir með Islands-
meistaratitilinn i ár, ef þeir sigra
i þessu ralli.
Aðrir,sem hafa skráð sig eru til
dæmis Gunnlaugur og Ragnar
Bjarnasynir, sem náðu öðru
sætinu iHúsavikurrallinu nýlega,
og Dalaböndinn örn Ingólfsson,
sem lengst af hefur keppt á Tra-
bant, og oftast skilað sér i mark.
-SV
Rallskodinn hans John Hauglands er þegar kominn til landsins til að
venjast islenskum aðstæðum og var þessi mynd tekin af honum í
Sundahöfn á dögunum. ‘ (Vlsism. KÞS)
Frambjóðendur
eiga að vera
helmamenn
- segir vaifreisi
Framkvæmdarnefnd stjórn-
málasamtakanna Valfrelsis
samþykktu eftirfarandi ályktun á
fundi nefndarinnar sem haldinn
var fyrir skömmu.
„Stefnt skal að þvi að fram-
bjóðendur eigi og hafi átt heima 3
ár eða lengur i þvi kjördæmi sem
þeir eru i framboði fyrir.”
Með þessu álitur fram-
kvæmdarnefnd Valfrelsis að
„heimamenn” hafi betri aðstöðu
til að þjóna umbjóðendum sinum
og þeir geta þannig haft nauðsyn-
legt aðhald að fulltrúum sinum.
í framkvæmdarnefndinni eru
þeir Hilmar Guðjónsson, Lárus
Loftsson, Marias Sveinsson,
Smári Stefánsson og Sverrir
Runólfsson, ábyrgðarmaður.
—HPH
148/ K kr. 399.-
255/1 kr. 563.
178/3
1.162.-
645/1 kr. 295.-
645/Al kr. 192.-
Grensásvegi 24 — Reykjavík
— Sími 82660.
Vönduðu ftölsku luktirnar
komnar aftur. 16 gerðir
Sendum i póstkröfu
Komiðog fáið mikið fynr lítið