Morgunblaðið - 08.04.2004, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.04.2004, Blaðsíða 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B  – traustur samstarfsa›ili í fjármögnun Sér›u atvinnutæki› sem flig langar í? Glitnir er sérfræ›ingur í fjármögnun atvinnutækja. Rétt val á fjármögnun getur skipt miklu um heildarkostna› vi› fjárfestingu. Glitnir b‡›ur fjórar ólíkar lei›ir vi› fjármögnun atvinnutækja. Umsóknir eru afgreiddar á skjótan hátt flegar nau›synleg gögn liggja fyrir. Haf›u samband vi› rá›gjafa Glitnis e›a kíktu á www.glitnir.is og fá›u a›sto› vi› a› velja flá fjármögnunarlei› sem hentar best. Tala›u vi› sérfræ›ing! Glitnir – traustur samstarfsa›ili í fjármögnun atvinnutækja. HAGNAÐUR Íslandsbanka, KB banka og Landsbanka Íslands samanlagður mun slá fyrri met og nema samtals 11,5 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi ef afkomuspár greiningardeilda bankanna ná fram að ganga. Þess má geta að allt árið í fyrra nam samanlagður hagnaður bankanna 16,3 milljörðum króna og 10,8 milljörðum árið 2002. Greiningardeildirnar eru sam- mála í afkomuspám sínum um að afkoma stærstu fyrirtækja á hlutabréfamarkaði verði með betra móti á fyrsta ársfjórðungi. Greiningardeild KB banka segir til að mynda að samanlögð af- koma fyrsta ársfjórðungs verði líklega sú besta fyrr og síðar hjá þeim fyrirtækjum sem deildin gerir afkomuspá fyrir. Gerir KB banki ráð fyrir að hagnaður þeirra fyrirtækja nær þrefaldist miðað við sama fjórðung í fyrra. Aukn- ingin er að hluta rakin til hærri veltu og EBITDA-framlegðar, eins og t.d. sölu Pharmaco á sam- heitalyfinu Ramipril. „En allra helst er hagnaðurinn til kominn vegna gengishagnaðar banka,“ segir KB banki og vísar til 5,8 milljarða hagnaðaraukningar bankanna sem að mestu hefur myndast vegna gengishagnaðar. Bætt arðsemi útrásar Greiningardeild Landsbankans reiknar með ríflega tvöföldun hagnaðar milli ára hjá þeim fé- lögum sem deildin gerir spá fyrir. Í afkomuspá bankans segir að þrátt fyrir methagnað bankanna á síðasta ári þá sé gert ráð fyrir að hagnaðurinn aukist á milli ára. Ytri vöxtur og innleystur gengis- hagnaður skýri þá aukningu. Landsbankinn gerir einnig ráð fyrir 84% aukningu hagnaðar Pharmaco frá fyrra ári vegna sölu á Ramipril-lyfinu, auk þess sem Opin kerfi og Og fjarskipti muni skila hagnaði á fjórðungnum í stað taps í fyrra. Greiningardeild Íslandsbanka telur bankana eiga gott ár fram- undan og þeir muni leiða verð- hækkun hlutabréfa. „Bankarnir munu njóta góðs árferðis mark- aða í miklum gengishagnaði á fyrsta ársfjórðungi, umbreyting- arverkefni hafa verið áberandi og þeim fylgt mikill útlánavöxtur. Útlit er fyrir bætta arðsemi útrás- ar þeirra sem hefur til þessa ekki skilað miklum hagnaði. Efnahags- umhverfið er gott, úr vanskilum hefur verulega dregið og hagvaxt- arhorfur eru góðar,“ segir í spá Íslandsbanka. Burðarás hagnast mest Burðarás mun samkvæmt með- alspá bankanna skila mestum hagnaði af fyrirtækjum í Úrvals- vísitölunni, eða 5,7 milljörðum króna, vegna mikils gengis- og söluhagnaðar sem hefur myndast á fyrsta ársfjórðungi, fyrst og fremst vegna sölunnar á Brimi. Bankarnir skipa næstu þrjú sætin yfir mestan hagnað á fjórð- ungnum. Íslandsbanka er spáð mestum hagnaði af bönkunum á fyrsta ársfjórðungi, eða að með- altali 4,9 milljörðum króna, sem er að mestu vegna söluhagnaðar af Straumi. Landsbankanum er spáð að meðaltali 4,1 milljarðs hagnaði, mest vegna rúmlega 40% gengis- hækkunar hlutabréfa bankans í Burðarási, og gert er ráð fyrir að KB banki skili 2,5 milljarða hagn- aði. Í fimmta sæti situr Pharmaco með tæplega 2,5 milljarða hagnað og sem fyrr segir aðallega vegna sölu á Ramipril. Þess ber að geta að enginn bankanna spáði fyrir um afkomu Medcare Flögu, KB banki vegna þess að hann sá um hlutafjárútboð félagsins en hinir treystu sér ekki til þess enda sé almennt gert ráð fyrir að félagið falli út úr Úrvals- vísitölunni strax um mitt árið. Einnig spáði einungis Lands- bankinn fyrir um afkomu Straums en Íslandsbanki hefur nýlega selt þar stóran eignarhlut og KB banki bíður með formlega spá en giskar á 2,5 til 3 milljarða króna hagnað á tímabilinu. Spá bönkunum samtals 11,5 milljarða hagnaði Greiningardeildirnar áætla að afkoma félaga verði með besta móti á fyrsta ársfjórðungi                                          !"  ! #  $ %$ & $ #  '  '()  *    *  +  ,- ("  -     -   -.  )    $ & $ #  $ %$ '                                                                 VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS V E R Ð B R É F KAUPHÖLL Íslands hóf að reikna tvær nýjar hlutabréfavísitölur um sl. mánaðamót. Þetta eru Heildarvísitala heildarafkomu (e. All Shares Total Return) og Úrvalsvísitala heildarafkomu. Vísitölurnar tvær endurspegla verðvísitöl- urnar Heildarvísitölu Aðallista og Úrvals- vísitölu Aðallista. Munurinn liggur í því að í þeim nýju hefur arði verið bætt við verð hlutabréfanna, þ.e. verðið er leiðrétt fyrir arði. Þetta sýnir hver ávöxtunin er af bréf- unum í heildina litið. Tvær nýjar vísi- tölur í Kauphöll S É R B L A Ð U M V I Ð S K I P T I , E F N A H A G S M Á L O G A T V I N N U L Í F Á S A M T S J Á V A R Ú T V E G S B L A Ð I Ólígarkarnir í Rússlandi Ráða þriðjungi iðnaðarins 2 Reksturinn krufinn Enginn ábati – engin greiðsla 6 GRANDI OG SAMHERJI – RISAR Í SJÁVARÚTVEGI BANKARNIR þrír munu hagnast um 22,7 milljarða króna á árinu 2004 samkvæmt spám greiningardeilda þeirra. Ef það gengur eftir mun hagn- aðaraukning á milli ára nema rúmum 39%. Aukningin á milli áranna 2002 og 2003 nam 51%. Að meðaltali er reiknað með að hagnaður Íslandsbanka af árinu í heild verði 7,7 milljarðar, hagnaður KB banka verði 8 milljarðar og hagnaður Landsbankans verði 7 milljarðar króna. Hagnaður bank- anna aukist um nær 40% á árinu ÁVÖXTUNARKRAFA húsbréfa stóð í stað í gær eftir mikla lækkun undanfarinna daga, en krafan hefur lækkað mikið vegna aukins áhuga erlendra fjárfesta í kjölfar skráningar íslenskra skuldabréfa hjá al- þjóðlega uppgjörsfyrirtækinu Clearstream. Yfirverð húsbréfa er nú frá 4,6% upp í 8%, mismunandi eftir flokkum. Það þýðir að t.d. hámarkshúsbréfalán upp á 9,2 milljónir króna er nú um 9.936.000 kr. virði, samkvæmt upp- lýsingum á vef Íslandsbanka. Í markaðsyfirliti bankans er spáð áfram- haldandi lækkun ávöxtunarkrafa verð- tryggðra skuldabréfa á þessu ári. „Í ljósi þess að aðlþjóðlegt uppgjörshæfi íslenskra skulda- bréfa er orðið að veruleika og að gefnum for- sendum um að uppbygging nýrra flokka íbúðabréfa gangi hratt og vel fyrir sig spáir Greining ÍSB áframhaldandi lækkun,“ segir greiningardeildin. Þá segir greiningardeildin að þrátt fyrir þá skörpu lækkun ávöxtunarkröfu hér á landi sem orðið hefur undanfarin misseri þá sé raunvaxtamunur við útlönd enn mikill. „Mun- ur á 10 ára raunvöxtum hér á landi og í Sví- þjóð er til að mynda um 1,5%. Nú þegar al- þjóðlegt uppgjörshæfi er orðið að veruleika má að mati Greiningar ÍSB gera ráð fyrir því að þessi munur minnki nokkuð skarpt.“ Hámarks húsbréf 9,9 milljóna virði Raunvaxtamunur við útlönd enn mikill

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.