Morgunblaðið - 08.04.2004, Síða 2
2 B FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
NVIÐSKIPTI
01
0
0
0
002
001
34 3
10 1
0
04
0
00
0
5
2
! 678" 24 1 24 1
390
39
195
192
193
!
" #
!!
! 678" 10 1
5
2
3
1
:
4
$% Viðskiptablað Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, netfang
vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri,
olafur@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110
Prentun Prentsmiðja Árvakurs hf.
● LANDSBANKINN hefur fest kaup á
Spaki, viðamiklu safni hugbún-
aðarkerfa sem gerir bankanum kleift
að styrkja sam-
skipti við við-
skiptavini sína og
auka þjónustu við
þá til muna, að því
er fram kemur í til-
kynningu frá bank-
anum.
Spakur er sérhannaður hugbún-
aður fyrir fjármálafyrirtæki, upp-
haflega þróaður af norska hugbún-
aðarfyrirtækinu EDB Bank & Finans
A/S. Tölvumiðstöð sparisjóðanna
keypti kerfið fyrir nokkrum árum og
hefur bæði aðlagað það íslenskum
aðstæðum og bætt við það ýmsum
einingum.
Guðmundur Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs
Landsbankans, segir í tilkynningunni
að þetta sé mikið framfaraskref fyrir
Landsbankann.
Sæmundur Sæmundsson, fram-
kvæmdastjóri Tölvumiðstöðvar spari-
sjóðanna, segist í tilkynningunni vera
afar ánægður með kaup Landsbank-
ans og segir þau fela í sér mikla við-
urkenningu, bæði á þeirri heilsteyptu
aðferðafræði sem kerfin byggjast á og
þeirri þróunarvinnu sem átt hefur sér
stað í Tölvumiðstöðinni undanfarin ár.
Spakur til
Landsbankans
● KAUPHÖLL Íslands, kauphallirnar í
Kaupmannahöfn og Ósló og HEX Int-
egrated Markets, sem er stærsti
verðbréfamark-
aður Norður-
Evrópu, hafa und-
irritað nýjan
NOREX-samning.
Samkvæmt
samningnum
munu HEX
Integrated Mark-
ets, fyrir hönd kauphallanna í Stokk-
hólmi, Helsinki, Riga og Tallinn,
ganga inn í núverandi NOREX-
samstarf.
Í frétt frá Kauphöll Íslands segir að
með HEX Integrated Markets innan-
borðs nái NOREX yfir öll Norð-
urlöndin og tvo þriðju hluta Eystra-
saltsríkjanna. Sjö kauphallir og
fjögur uppgjörshús tilheyri því sam-
starfinu. Gert er ráð fyrir að kauphall-
irnar í Helsinki, Tallinn og Riga taki
hið sameiginlega viðskiptakerfi SAX-
ESS í notkun undir lok september og
opnast þá aðgangur að verðbréfum á
sjö mörkuðum í einu kerfi. Á sama
tíma munu aðildarreglur NOREX taka
gildi í Kauphöllinni í Helsinki og þær
teknar upp sem viðauki í reglubókum
kauphallanna í Tallinn og Riga.
Sjö kauphallir komnar
í NOREX
● HAGNAÐUR af rekstri Sparisjóðs
Vestmannaeyja á árinu 2003 nam
123 milljónum króna. Gekk rekst-
urinn með ágætum, að því er segir í
tilkynningu.
Rekstrartekjur sparisjóðsins
námu 635 milljónum og rekstr-
argjöld námu 483 milljónum að með-
töldum afskriftum. Innlán og verð-
bréfaútgáfa voru í árslok 3,2
milljarðar króna og höfðu aukist um
0,7% á árinu.
Útlán að meðtöldum fulln-
ustueignum voru í árslok 2,9 millj-
arðar og höfðu aukist um 5,7% á
árinu. Langstærstu útlánaflokkarnir
voru, eins og áður, til einstaklinga og
íbúðalána eða tæplega 54%. Hlutur
sjávarútvegs í heildarútlánum var
26,1% í árslok.
Sparisjóður Vestmannaeyja á tæp-
lega 77% alls stofnfjár Sparisjóðs
Hornafjarðar og nágrennis.
Rekstur Sparisjóðs
Vestmannaeyja
með ágætum
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness féllst í
gær á kröfur danska fyrirtækisins
Pharma Nord og dæmdi að lyfjafyrirtæk-
inu PharmaNor í Garðabæ væri óheimilt
að nota heitið PHARMANOR í atvinnu-
starfsemi sinni. Jafnframt felldi héraðs-
dómur úr gildi skráningu Einkaleyfastof-
unnar nr. 120/2003 á vörumerkinu
PHARMANOR sem orðmerki. Þá dæmdi
Héraðsdómur Reykjaness að PharmaNor
skuli láta afmá firmanafnið PharmaNor
úr hlutafélagaskrá innan 15 daga að við-
lögðum 100.000 króna dagsektum, sem
renni til stefnanda, Pharma Nord.
Loks var PharmaNor gert að greiða
danska fyrirtækinu tæplega 1,3 milljónir
í málskostnað.
PharmaNor
þarf að skipta
um nafn
FJÖLMIÐLARISI Ruperts Murdochs,
News Corp, hyggst flytja höfuðstöðvar
sínar frá Ástralíu til Bandaríkjanna, að
því er fram kemur í frétt Reuters-
fréttastofunnar. News Corp hóf starfsemi
með útgáfu á einu dagblaði í áströlsku
borginni Adelaide, en er nú eitt stærsta
fjölmiðlafyrirtæki í heimi. Fyrirtækið mun
flytja aðalskráningu bréfa sinna til kaup-
hallarinnar í New York og segir að með
flutningnum muni það fá betri aðgang að
fjármagnsmörkuðum í Bandaríkjunum,
en þaðan komi 75% tekna þess og hagn-
aðar. Reuters segir að Murdoch, sem
fæddur er í Ástralíu en hefur búið í
Bandaríkjunum frá því á áttunda ára-
tugnum, hafi sótt um og fengið banda-
rískan ríkisborgararétt til að uppfylla
lagaákvæði um eignarhald á fjölmiðlum.
News Corp flytur
til Bandaríkjanna
RÚSSNESKU ólígarkarnir og stærstu fyrir-
tækin í efnahagslífinu í Rússlandi ráða yfir meira
en þriðjungi iðnaðarins í landinu, þegar miðað er
við sölu, og um 16% vinnuaflsins. Þá ráða þeir jafn-
framt yfir um 17% af eignum bankakerfisins. Þetta
kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóðabankans sem
gefin var út í vikunni. Þar segir að þeir ólígarkar
sem um ræðir séu einungis 23 talsins en í Rússlandi
búa um 144 milljónir manna.
Fram kemur í skýrslunni að samantektin sé ekki
fullkomin því erfitt sé að fá nákvæmar upplýsingar
um eignarhald á fyrirtækjum í Rússlandi í mörgum
tilvikum. Ýmiss konar sjóðir í útlöndum séu skráðir
fyrir töluverðum hluta eignarhaldsins, sem erfitt
sé að fá upplýsingar um hverjir standi að.
Í frétt í Financial Times í gær segir að þau nöfn
sem eru efst á blaði yfir umsvifamestu auðjöfrana í
Rússlandi komi ekki á óvart. Þar séu nöfn sem séu
þekkt úr umfjöllum fjölmiðla á umliðnum árum,
menn sem hafi raðað sér á lista yfir ríkustu ein-
staklinga í heiminum.
FT segir að í úttekt Alþjóðabankans hefði verið
kafað dýpra en áður hefði verið gert til að finna
raunveruleg völd ólígarkanna. Í úttektinni komi vel
fram hverjir hefðu hagnast af einkavæðingunni í
Rússlandi á tíunda áratug síðustu aldar. En ýmis
önnur nöfn komi einnig í ljós sem ekki hefði verið
fjallað svo mikið um áður.
Litlir hluthafar eru litlir
Fram kemur í úttektinni að litlir hluthafar séu til í
félögum í Rússlandi, jafnvel í þeim félögum sem
ólígarkarnir ráði yfir, en þeir séu einmitt það, þ.e.
litlir. Dreift eignarhald á félögum eigi langt í land í
Rússlandi. Að jafnaði eigi ólígarkarnir um 80%
hlutafjár í þeim félögum sem þeir koma að.
Rússneska ríkið ræður yfir um 20% af iðnaðar-
framleiðslunni í landinu, miðað við sölu, og um 8%
af vinnuaflinu. Því til viðbótar ráða héraðsstjórnir
eða landsstjórnir um 5% framleiðslunnar og um 3%
vinnuaflsins.
Aðrir stjórna betur
Alþjóðabankinn reynir að leggja mat á hin efna-
hagslegu áhrif af eignarhaldi ólígarkanna í efna-
hagslífinu í Rússlandi. Segir FT að almenningur
líti svo á að ólígarkarnir hefðu náð yfirráðum yfir
hinum ýmsu eignum ríkisins með óheiðarlegum
hætti. Ýmsir sérfræðingar haldi því hins vegar
fram að ólígarkarnir hefðu skapað það samkeppn-
isumhverfi sem nauðsynlegt hefði verið.
Alþjóðabankinn kemst að þeirri niðurstöðu að
fyrirtækjum sem ólígarkarnir eiga sé betur stjórn-
að en fyrirtækjum í eigu ríkisins eða landsstjórna.
Hins vegar segir bankinn að minni fyrirtækjum í
eigu einkaaðila sé betur stjórnað en fyrirtækjum í
eigu ólígarkanna.
Ólígarkarnir eða fyrirtæki á þeirra vegum
standa fyrir um 30% meiri fjárfestingum í Rúss-
landi en aðrir fjárfestar eða fyrirtæki í einkaeigu.
Segir Alþjóðabankinn að þetta komi ekki á óvart
því ólígarkarnir stýri þeim geirum atvinnulífsins
sem skapi mestar útflutningstekjur.
Tími fyrir taumhald
Niðurstöður Alþjóðabankans eru þær að þó svo
sterkt eignarhald ólígarkanna hefði hjálpað til við
að koma á endurbótum í efnahagslífinu á síðustu
árum, þá sé kominn tími til að koma taumhaldi á
hlutverk þeirra. Nauðsynlegt sé að koma á aukinni
samkeppni í Rússlandi og hvetja til aukinnar þátt-
töku minni fyrirtækja í efnahagslífinu. Til þess að
af þessu geti orðið þurfi Pútín forseti og ný ríkis-
stjórn hans að vinna að því að koma á sanngjarnara
regluverki fyrir atvinnulífið og hætta að eltast við
tilgreinda pólitíska andstæðinga. Ólígarkarnir
verði einnig að sætta sig við breytingar sem geti
dregið úr völdum og áhrifum þeirra.
Ólígarkarnir ráða yfir
þriðjungi iðnaðarins
Alþjóðabankinn segir að rússnesku ólígarkarnir þurfi að sætta sig við skertan hlut í framtíðinni
AP
Einn af 23 Mikhail Khodorkovsky er einn af
þeim 23 ólígörkum sem samkvæmt úttekt Al-
þjóðabankans ráða sameiginlega yfir meira en
þriðjungi alls iðnaðar í Rússlandi.
EFTIR páska er ætlunin að ganga
af krafti í það að renna Granda og
Haraldi Böðvarssyni saman í eitt fé-
lag, sagði Árni Vilhjálmsson, stjórn-
arformaður Granda, í ræðu sinni á
aðalfundi félagsins í gær. Hann
sagði mikið verk að koma rekstrar-
afkomunni í viðunandi horf. Starfs-
mönnum, stjórnendum og stjórn-
armönnum félagsins yrði að vera
ljóst að rekstrarafkoma eigin starf-
semi hafi verið algjörlega óvið-
unandi. Hagnaðurinn hafi skýrst að
stórum hluta af söluhagnaði eigna,
en reksturinn sjálfur hafi litlu skilað.
Árni sagði að við kaup Granda á
Haraldi Böðvarssyni í janúar í ár,
hafi orðið til samstæða sem sé vel
búin framleiðslutækjum og veiði-
heimildum. Veiðiheimildir innan ís-
lenskrar lögsögu nemi nú 8,2%, 4,0%
frá Haraldi Böðvarssyni og 4,2% frá
Granda, en ef með séu teknar úthlut-
aðar veiðiheimildir utan lögsög-
unnar nálgist hlutdeildin 10%.
Árni nefndi verulega lækkun af-
urðaverðs erlendis sem eina af skýr-
ingum verri afkomu. „Þessar verð-
lækkanir bitnuðu harkalega á
Granda. Þær eru raktar til nokkurra
samverkandi ástæðna. Helst er að
nefna erfitt efnahagsástand í helstu
markaðslöndum okkar, aukið fram-
boð ódýrra tvífrystra fiskflaka frá
kínverskum fiskiðjuverum og aukið
framboð eldisfisks, meðal annars frá
láglaunalöndum,“ sagði Árni Vil-
hjálmsson.
Kostnaður við hvern starfsmann í
fiskiðjuveri í norðurhluta Kína er um
það bil 3% af kostnaði við starfs-
mann hér á landi, að því er fram kom
í ræðu Kristjáns Þ. Davíðssonar, for-
stjóra Granda, á aðalfundi félagsins í
gær. Kristján fjallaði meðal annars
um markaðsaðstæður og samkeppni,
þar á meðal samkeppnina við Kína
og fiskeldi í þróunarlöndum. Hann
sagði að vegna lægri kostnaðar við
starfsmenn í Kína væri miklum mun
minni þörf á tæknivæðingu en hér á
landi. „Og þótt kínverskir keppi-
nautar okkar eigi við ýmislegt að
stríða, ekki síður en við þótt á öðrum
sviðum sé; svo sem langar dýrar og
tímafrekar flutningsleiðir, óstöð-
ugleika og óöryggi í hráefnisöflun og
sölu, mikinn menningar- og tíma-
mun og eflaust margt fleira, þá verð-
um við að bregðast við af öllum
mætti, því þessi ógn er komin til að
vera, fyrirsjáanlega alla vega til
næstu ára,“ sagði Kristján. Hann
sagði að við þessar aðstæður væri
mikils virði að geta lofað kaupendum
föstu magni af ferskri gæðavöru með
stuttum fyrirvara á afhendingu og
síðast en ekki síst með miklu afhend-
ingaröryggi. Dreifiaðilar og selj-
endur fiskafurða séu sífellt stærri
verslanakeðjur og önnur þjónustu-
fyrirtæki sem leggi í dýra markaðs-
setningu og krefjist öryggis á öllum
sviðum. „Og þá er ekki verra að vera
fiskverkandi í því rekstrarumhverfi
og stjórnskipulagi sem við búum við
á Íslandi; fiskverkandi sem getur
með skipakosti og kvótastöðu skipu-
lagt vinnslu- og veiðiáætlanir og
samhæft alla þætti rekstursins til að
sinna kröfuhörðum kaupendum á
sem bestan hátt. Það er ljóst að án
kvótakerfisins væru vopn okkar á
mörkuðunum færri,“ sagði Kristján.
Kraftur settur í sameiningu
Morgunblaðið/Þorkell
Lægra verð Stjórnarformaður Granda segir verðlækkun erlendis, meðal
annars vegna samkeppni frá Kína, hafa bitnað harkalega á félaginu.
Rekstrarafkoma Granda
algjörlega óviðunandi