Morgunblaðið - 08.04.2004, Síða 4
4 B FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
NVIÐSKIPTI SJÁVARÚTVEGUR HNATTVÆÐING hefur aukist til muna
undanfarin ár. Þó svo að fólk almennt van-
meti þau hnattvæddu ferli sem voru til
staðar fyrr á öldum (fyrri heimstyrjöld og
kreppan mikla á fjórða áratugnum drógu
mjög úr samtengingu heimsins) þá hefur
tæknin gert það kleift að upplýsingastreymi
er stöðugt að aukast. Þegar áhrif netbylt-
ingarinnar náði hámarki í upphafi þessarar
aldar var mikið rætt um að þróun heimsins
væri á þá leið að um eitt nokkurskonar al-
heimsþorp væri að ræða þar sem allir væru
meira og minna tengdir. Þetta tengdist
bæði menningu og félagslegum áhrifum.
Einn af þeim mönnum sem hafa veitt
hnattvæðingu sérstaka athygli er hinn
þekkti fjárfestir George Soros. Bakgrunnur
hans sem ungverskur gyðingur sem upplifði
þá ógnaröld sem ríkti í Evrópu á fjórða og
fimmta áratug síðustu aldar endurspeglar
hans líf: Mikil útsjónarsemi og áhætta í við-
skiptum, sem hefur veitt afskaplega góða
ávöxtun í gegnum tíðina, og vilja til að láta
gott af sér leiða. Soros hefur ekki aðeins
skapað miklar fjárhæðir í gegnum fjárfest-
ingar sínar, hann hefur einnig verið einn af
mestu styrktaraðilum heimsins til góðgerð-
armála, meðal annars þróunarmála. Hann
ætlaði sér upphaflega að verða heimspek-
ingur og hefur kallað sjálfan sig misheppn-
aðan heimspeking. Það er því ef til vill ekki
furða að hann hafi myndað sér skoðanir á
því hvernig best væri að láta gott af sér
leiða með tilliti lögmála fjármálamarkaða,
enda hefur hann bæði reynslu við öflun fjár,
að ávaxta það með frábærum hætti og
hvernig best sé að eyða því í verkefni tengd
þróunarhjálp.
Slíkar vangaveltur er kjarni bókar hans
sem hann nefnir án minnimáttarkenndar
George Soros on Globalization. Fyrsta hluta
bókarinnar ver Soros að mestu, eins og
flestum heimspekingum er tamt, til að út-
skýra helstu forsendur sem hann vinnur
rök sín út frá auk skýringa á hugtökum
sem hann telur séu nauðsynleg. Fyrsta
skýringin lýtur einmitt að hugtakinu hnatt-
væðing; en Soros takmarkar það við frjálst
flæði fjármagns og aukin völd hagkerfa
með aðstoðar fjármálamarkaða og alþjóð-
legra fyrirtækja. Hann bendir á að flæði
fólks sé í reynd enn takmarkað á milli landa
og ef menning og samskiptatækni sé bætt
við skilgreininguna verði hún fullvíðtæk.
Soros leggur áherslu á þá skoðun sína að
hnattvæðing sé af hinu góða; hún eykur
hagvöxt betur en miðstýring stjórnvalda
(sem oft eru spillt) getur gert og leiðir auk
þess til frekara frjálsræðis meðal þegna
heimsins. Soros bendir hins vegar einnig á
þá þætti hnattvæðingar sem eru neikvæðir.
Vanþróuð ríki hafa oft verið helstu fórn-
arlömb neikvæðra áhrifa hnattvæðingar,
bæði hvað varðar veikburða stöðu þeirra í
alþjóðasamfélagi og þá staðreynd að þau
lenda almennt í mestu hremmingunum þeg-
ar fjármálakreppur ríða yfir. Hnattvæðing
hefur einnig stuðlað að misskiptingu auðs
milli sérstakra hópa og almennings í heild.
Nefnir hann til dæmis neikvæð umhverfis-
áhrif sem geta komið til vegna ásóknar í
hagnað sem fáir njóta. Soros er í þessu til-
liti afar gagnrýninn á Bandaríkin sem veita
í dag 0,1% af vergri landsframleiðslu til
þróunarmála, en sem dæmi má nefna að Ís-
land veitir um tvöfalt hærra hlutfall. Nýleg
skýrsla um utanríkismál kveður á um að Ís-
land auki það hlutfall í 0,35% á árunum
2008 til 2009 til að nálgast takmark Samein-
uðu þjóðanna um að iðnríki veiti 0,7% til
málefnisins.
Helstu atriðin sem Soros telur hafi staðið
þróunarhjálp fyrir þrifum eru eftirfarandi:
Þróunarhjálp hefur almennt hagsmuni
þeirra sem veita aðstoð efst í huga, ekki
viðtakendur. Dæmi um slíkt tengist oft
landfræðilegum og pólitískum atriðum.
Þiggjendur þróunarhjálpar eignast sjaldn-
ast það sem framkvæmt er eða hannað við
þróunarhjálp. Þeir sem veita hjálpina fara
oftast fram á það að þeirra fólk sjái um
framkvæmd. Því myndast sjaldnast þekking
á framkvæmdum hjá þiggjendum. Þróun-
arhjálp fer oft í gegnum ríkisstjórnir, sem
sumar hverjar nýta fjármuni illa. Í verstu
tilfellum verður þróunarhjálp þeirra helsta
tekjulind, nýtt í þeirra eigin þágu. Að lok-
um er lítið út úr því að hafa að taka áhættu
við þróunarhjálp samanborið við þá áhættu
sem fylgir fyrirtækjarekstri. Erfitt er að
mæla velgengni en mistök geta fljótt orðið
augljós.
Soros eyðir of mörgum orðum í lausn á
vandanum sem hægt er að draga saman í
nokkrum setningum. Lausn hans felst í því
að auðug ríki leggi fé í púkk. Úr þeim potti
geta fátæk ríki öðlast heimildir til lántöku (í
sumum tilfellum gætu ríki eingöngu fengið
heimild en ekki lán en þá veita heimildirnar
betra lánstraust fyrir ríkin) að því gefnu að
þau fylgi ákveðnum stöðlum og að fjár-
magninu sé aðeins varið í fyrirfram sam-
þykkt verkefni. Slík verkefni yrðu í fyrstu
takmörkuð við málefni eins og heilsugæslu
og menntun. Þessu yrði stýrt af stjórn inn-
an Alþjóða gjaldeyrissjóðsins sem væri kos-
in með hliðsjón af menntun og reynslu
þeirra. Stjórnin væri óháð þeim ríkjum sem
tilnefndu einstaklingana og verkefni hennar
væri fólgið í því að samþykkja verkefni og
benda á forgangsverkefni. Af þeim verk-
efnum sem stjórnin kæmi fram með gæti
hver ríkisstjórn kosið til hvaða verkefnis
hún teldi að framlagi sínu væri best varið.
Soros leggur áherslu á að slík verkefni
væru að mestu gerð í samvinnu við heima-
fólk þannig að þekking og hvati til verkefn-
isins sé fyrir hendi frá upphafi til enda.
Með þessu móti ráða ákveðin markaðs-
lögmál för varðandi nýtingu fjármagns og
mörg vandamál tengd þróunarhjálp minnka
stórum. Soros bendir á sína reynslu varð-
andi mörg verkefni sem hann hefur sjálfur
styrkt þessu til sönnunnar.
Þetta eru áhugaverður tillögur en skortir
ákveðnar útfærslur út frá núverandi að-
stæðum. Sú spurning læðist þó að manni
við lestur bókarinnar af hverju ekki sé fyrir
löngu búið að gera þetta fyrst þetta er
svona einfalt. Soros tekst lítið, til að mynda,
á við þá staðreynd að þróunarhjálp virðist
hafa fengið sitt eigið líf þar sem margir
ólíkir hagsmunir eru í veði. Hvernig ætlar
hann að breyta því? Auðvitað hlýtur það að
vera eðlilegt og skilvirkast að heimamenn
vinni og stjórni verkefnum og furðulegt í
raun að slíkt sé ekki raunin. Það sem vant-
ar að mínu mati hjá Soros er af hverju
þetta hafi ekki verið gert í meira mæli.
Hagsmunir hverra liggja þar að baki? Í
stað þess að takast á við þessi vandamál,
sem eru orðin rótgróin innan þróunarhjálp-
ar, leitast Soros við að ýta þeim til hliðar
með tillögum sínum án þess að lesandinn
sannfærist um endanlegan árangur. Auk
þess má segja að sumar hugmyndir hans
séu ekki raunhæfar. Þróunarhjálp hlýtur
alltaf að snúa að ákveðnu leyti um pólitík
vegna þess að hún snýst um dreifingu auðs
og valds, hvernig á að gera slíkt eru í eðli
sínu pólitísk málefni. Það að hann geti sjálf-
ur stýrt fjármagni sínu í verkefni er tæpast
samanburðarhæft við að kljást við þá póli-
tík sem fylgir alþjóðlegum stofnunum.
George Soros on Globalization er áhugaverð
lesning um þann vanda sem þróunarhjálp
og vanþróuð ríki standa frammi fyrir vegna
aukinnar hnattvæðingar. Betri ritstýring
hefði þó brotið rök Soros betur til mergjar,
bæði kosti og galla, og gert bókina að heil-
steyptara riti.
ll HNATTVÆÐING MÁR WOLFGANG MIXA
Að eyða í þróun
George Soros hefur ritað áhugaverða bók um hnattvæðingu
og þróunaraðstoð sem þó er ekki fyllilega sannfærandi.
mixa@sph.is
Þ
að er orðið fátt um fína
drætti í Kauphöll Ís-
lands fyrir þá sem
vilja fjárfesta í út-
gerðarfyrirtækjum.
Þrjár afskráningar hafa þegar
farið fram á þessu ári og að
minnsta kosti ein stendur yfir.
Þegar henni er lokið verða sjö fyr-
irtæki eftir og hefur þá fækkað
um meira en helming á um hálfu
öðru ári. Með flest fyrirtækjanna
sem eftir verða, nánar til tekið
fimm félög, eru fremur lítil við-
skipti og eignarhald flestra það
þröngt eða félögin það lítil – nema
hvort tveggja sé – að litlar líkur
eru á að þar verði breyting á. Þá
standa tvö félög eftir, Grandi og
Samherji, og óhætt er að segja að
þau beri höfuð og herðar yfir önn-
ur útgerðarfélög í Kauphöllinni.
Og reyndar þarf ekki að einskorða
sig við félög í Kauphöllinni í þessu
sambandi, því þó að Tjaldur og
Útgerðarfélag Akureyringa séu
samanlagt býsna myndarlegt fé-
lag er það engu að síður minna en
þessi tvö.
Sem kunnugt er keypti Grandi
Harald Böðvarsson, HB, af Eim-
skipafélaginu um miðjan janúar
síðastliðinn. Fyrir dyrum stendur
sameining félaganna tveggja og í
þessari umfjöllun er miðað við
sameinað félag nema annað sé
tekið fram.
Velta Samherja 30%
meiri en Granda
Velta Samherja nam 12,4 milljörð-
um króna í fyrra og dróst saman
um 5% frá árinu 2002. Samdráttur
Granda, að HB meðtöldum, var
meiri, 16%, og nam veltan 9,5
milljörðum króna. Þegar horft er
á veltuna er Samherji því rúmum
30% stærri en Grandi, þrátt fyrir
að Grandi hafi nær tvöfaldast við
kaupin á HB, en velta HB á síð-
asta ári var 49% af samanlagðri
veltu. Stækkun Granda er þess
vegna gífurleg og félagið er gjör-
breytt eftir kaupin á HB.
Rekstrargjöld drógust saman
hjá stækkuðum Granda, en þó
minna en tekjurnar og hagnaður
fyrir afskriftir og fjármagnsliði,
EBITDA, dróst saman um 42% og
nam 1,6 milljörðum króna, eða
17,1% af rekstrartekjum. Þetta
framlegðarhlutfall nam 24,5% árið
áður og verður að telja áhyggju-
efni fyrir sjávarútvegsfyrirtæki
þegar framlegðin verður jafnlág
og hún var í fyrra. Grandi er þó
langt í frá einsdæmi að þessu
leyti, því að aðstæður í sjávarút-
arða króna milli ára hjá
um rúmar 400 milljónir
Samherja. Hlutfallslega
drátturinn þó meiri hjá
80% á móti 69% hjá Gra
magnsliðirnir skiluðu G
milljóna króna tekjum,
stök afskrift vegna d
HB er tekin með lækka
í um 350 milljónir kr
magnsliðir Samherja
kvæðir um rúmar eit
milljónir króna.
Mesta breytingin í
liðunum er vegna m
gengishagnaðar í fyrr
2002 þar sem krónan
mjög árið 2002. Ge
Granda dróst saman um
arða króna milli ára og
urinn hjá Samherja var
ónir króna. Þrá
vaxtalækkun hækkuðu
Samherja lítillega, en þ
saman um 100 milljónir
Granda, eða um tæpan
Athygli vekur miki
hagnaðar Samherja af
hlutdeildarfélögum og s
að verulegu leyti af
hagnaði Kaldbaks, en
hlutur Samherja var r
milljónir króna vegna
hlutar. Hlutdeildin
Kaldbaks er meira en
hagnaðar Samherja fy
sem var 1,2 milljarðar
lækkaði um 47%, sem
mikil áhrif Kaldbakur g
afkomu Samherja.
Hagnaður dróst
mikið saman
Hagnaður Granda af
hlutdeildarfélögum bre
umtalsvert, ef undan
fyrrnefnd 200 milljóna
stök niðurfærsla vegn
félags, og nam 57
króna. Hagnaður Gra
skatta nam 791 milljón
vegi voru með þeim hætti að sam-
bærileg þróun sást hjá allri grein-
inni. Samherji hélt aðeins betur
sjó að þessu leyti en Grandi og
lækkaði framlegðarhlutfall hans
úr 23,1% í 18,2% milli ára, sem
einnig er minna en viðunandi get-
ur talist til langs tíma.
Nokkrir þættir lögðust á eitt í
fyrra um að draga afkomu fyrir
afskriftir niður. Sterk króna veld-
ur útflutningsfyrirtækjum, þar
með talið sjávarútvegsfyrirtækj-
um, ávallt erfiðleikum. Við þetta
bættist lágt verð afurða og hátt ol-
íuverð, þannig að versnandi af-
koma milli ára kom ekki á óvart,
þó að í sumum tilvikum hafi
reyndar komið á óvart hversu
mikið afkoman versnaði. Hagnað-
ur Granda fyrir afskriftir var til að
mynda 17% undir spám greining-
ardeilda bankanna og hagnaður
Samherja var 8% undir spánum. Í
þessu sambandi verður að hafa í
huga að niðurstöður úr níu mán-
aða uppgjöri lágu fyrir þegar
spárnar voru birtar, auk þess sem
gengisþróun var ljós fyrir allt
tímabilið. Það er því óhætt að
segja að afkoma þessara tveggja
félaga fyrir afskriftir hafi verið
talsvert undir væntingum, ekki
síst þegar miðað er við fjórða
fjórðung ársins einan.
Lakari fjármagnsliðir
Auk þess sem ytri aðstæður höfðu
veruleg neikvæð áhrif á afkomu
Granda og Samherja fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði í fyrra,
höfðu þær neikvæð áhrif á fjár-
magnsliðina sjálfa þegar árið 2003
er borið saman við fyrra ár, en þá
voru fjármagnsliðirnir mjög hag-
stæðir.
Ef dóttur- og hlutdeildarfélög
eru talin með fjármagnsliðum, en
bæði félög áttu umtalsverða eign-
arhluti í öðrum félögum, þá versn-
uðu fjármagnsliðirnir um 1,2 millj-
Sameining
hjá risum í
Hagnaður Granda, að HB meðtöldum, dróst í fyrra saman um
ig mikið saman. Sem hlutfall af rekstrartekjum var veltufé fr
Grandi, eftir kaupin á
HB, og Samherji bera
höfuð og herðar yfir
önnur skráð útgerð-
arfélög. Afkoman var
slök í fyrra en miklar
breytingar eru fram-
undan hjá báðum fé-
lögum. Haraldur Jo-
hannessen skoðaði
reksturinn í fyrra og
horfurnar hjá fyr-
irtækjunum.