Morgunblaðið - 08.04.2004, Síða 6

Morgunblaðið - 08.04.2004, Síða 6
6 B FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ NVIÐSKIPTI                 !  !" #       $  %   !!    '     !   ' " (   & '  !  )   !  !"   (!  *  +"   +,--.'//.0          ● FYRR í vikunni heimsóttu börn starfs- manna Deloitte vinnustað foreldra sinna. Samkvæmt frétta- tilkynningu er markmiðið með þessu, sem kallað er „Börnin með í vinnuna“, að gefa börnunum færi á að upplifa vinnustaðinn líkt og þau væru starfsmenn fyrirtækisins. Börn á öllum aldri, bæði piltar og stúlkur, heimsækja fyrirtækið. Byrjað er á sýnisferð en að henni lokinni vinna börnin raunveruleg verkefni. „Börnin með í vinnuna“ ● FLUGFÉLÖGIN British Airways og KLM hafa bæði tilkynnt um mikla fjölgun farþega í mars miðað við sama tíma á síðasta ári þegar far- þegafjöldi var í lágmarki vegna átaka í Írak og útbreiðslu bráðalungna- bólgu. Í FT.com kemur fram að farþegum British Airways hafi fjölgað um 12,7% í marsmánuði miðað við sama tíma árið áður og sætanýting félagsins hafi verið 4,5% betri en fyr- ir ári síðan, eða 74%. Farþegum KLM fjölgaði um 8% á sama tíma. Flugfélög rétta úr kútnum ● ÍSLENSK fyrirtæki ehf. hafa inn- leitt nýjan vef fyrir SÍF-samstæðuna, að því er segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækjunum. Um er að ræða heild- arveftorg sem knúið er af vefstjórn- arkerfinu ecWeb, en í framhaldinu munu Íslensk fyrirtæki taka að sér vinnslu á innri vef fyrirtækisins. Vef- torginu tengjast 13 vefir sem reknir eru í höfuðstöðvum SÍF og í útibúum fyrirtækisins í 15 löndum. Nýr SÍF-vefur með ecWeb ● ÞÝSKA bílafyrirtækið Daimler Chrysler er sagt ætla að leggja af um- deilda kaupréttasamninga sem æðstu yfirmenn félagsins hafa notið og skipta þeim út fyrir langtíma bónusgreiðslukerfi sem tengt verður hlutabréfaverði félagsins. Frá þessu segir í Ft.com. Heimildir vefritsins herma að Hilm- ar Kopper, formaður launanefndar fé- lagsins, muni skýra frá nýrri áætlun þessa efnis á árlegum fundi félagsins með almennum hluthöfum í Berlín á morgun. Daimler hefur verið gagnrýnt fyrir ríf- lega kaupréttarasamninga stjórnenda en félagið hefur á síðustu fjórum ár- um gefið æðstu stjórnendum kost á að kaupa allt að 10% af hlutafé fé- lagsins. Kaupin hafa reyndar ekki komist í framkvæmd, að hluta til, að því er Ft.com segir, vegna lélegrar frammistöðu hlutabréfa félagsins á markaði frá árinu 2000 þegar samn- ingarnir voru gerðir. Daimler hyggst afnema kaup- réttarsamninga ● FRAMKVÆMDASTJÓRN Samtaka auglýsenda (SAU) hefur veitt Sverri Agnarssyni, sölustjóra á Skjá Einum, viðurkenningu fyrir framúrskarandi vinnu í þágu auglýsenda. Þetta er í fyrsta skiptið sem viðurkenning af þessu tagi er veitt en mun framvegis verða árlegur viðburður, að því er segir í tilkynningu. Sverrir er sagður ötull talsmaður stuttra auglýsingatíma inni í þáttum sem leiði til þess að fleiri taki eftir auglýsingum auglýsenda. Hann hafi verið iðinn við að afla sér þekkingar í birtingafræðum og miðlað henni til birtingafólks og auglýsenda. Auk þess hafi hann verið óþreytandi tals- maður aukinnar fagmennsku í aug- lýsingabirtingum, kaupum og sölu á auglýsingaplássi og fjölmiðlarann- sóknum. Loks hafi Sverrir verið frum- kvöðull í því að gera svokallaða dekk- unar- og tíðnisamninga sem geti lækkað birtingarkostnað verulega. Sverrir Agnarsson fékk viðurkenningu frá SAUÞ að hlýtur að heyra til nýj- unga á sviði ráðgjafar- þjónustu að ábyrgjast árangur ráðgjafar með þeim hætti að ekki þurfi að greiða fyrir þjónustuna nema hún skili viðskiptavininum mælanlegum ábata. Ráðgjafarstofan Stjórnun ehf. í Mosfellsbæ býður fyrirtækjum og stofnunum upp á svokallaða rekstrargreiningu þeim að kostnað- arlausu, að því tilskildu að greining- in skili þeim engum ábata. „Sé hins vegar sýnt fram á hagnað eða rekstrarbætur af rekstrargrein- ingunni þá greiðir fyrirtækið fyrir,“ segir Jóhann Pétur Sturluson, fram- kvæmdastjóri Stjórnunar, og er þess fullviss að fyrirtækið muni ekki koma illa út úr því. „Undantekning- arlaust hafa þau verkefni sem við höfum tekið að okkur skilað tölu- verðum ábata og yfirleitt blasir ábatinn við. Hins vegar er erfiðara fyrir þá sem fá þjónustuna að átta sig á fyrirfram hvað geti komið út úr henni,“ útskýrir hann. Starfsemi Stjórnunar ehf. byggist á stjórnunar-, rekstrar- og fjármála- ráðgjöf og mannauðsstjórnun auk þess sem nýlega er farið að bjóða upp á umhverfisstjórnun fyrir fyr- irtæki jafnt sem sveitarfélög. Fyrirtækið tekur ennfremur að sér hýsingu ýmissa rekstrarþátta þ.á m. hýsingu framkvæmdastjórnar, starfsmannamála og skrifstofu- halds. Reksturinn krufinn Upphafið að Stjórnun má rekja til bókhaldsþjónustu sem eigandinn, Jóhann Pétur, rak frá árinu 1990. Með aukinni menntun Jóhanns á sviði viðskipta, stjórnunar og stefnu- mótunar færðist starfsemi fyrirtæk- is hans hins vegar í það horf sem nú er, að vera ráðgjafarstofa. Jóhann Pétur segir að stærstur hluti þeirra verkefna sem fyrirtækið fáist við hafi með rekstrarráðgjöf að gera, þá sér í lagi svokallaða rekstr- argreiningu þar sem beitt sé mörg- um ólíkum aðferðum stjórnunar- fræða til að efla og styrkja markaðsstöðu tiltekinnar rekstrar- einingar. „Rekstrargreiningin felst í að far- ið er inn í fyrirtæki og reksturinn krufinn m.a. með skoðun á bókhalds- gögnum og aðferðum mannauðs- stjórnunar. Þetta er gert með það fyrir augum að finna þætti sem má færa til betri vegar og vinna út frá til breytinga hjá viðkomandi fyrir- tæki,“ segir hann. Jóhann Pétur er eini eigandi Stjórnunar og annar tveggja fastra starfsmanna. Hann segir markmiðið vera að takmarka fjölda starfs- manna og utanumhald um rekstur Stjórnunar. Hins vegar nýti hann viðamikið tengslanet við sérfræð- inga á ýmsum sviðum með þeim hætti að þegar unnið er í stærri verkefnum eða sérhæfðari verkefn- um, kalli hann til aðstoðar viðeigandi sérfræðinga eftir því sem þurfa þyk- ir. Að sama skapi segir hann ekki þurfa mikla yfirbyggingu um rekst- urinn enda fari starfsemin meira og minna fram inni í þeim fyrirtækjum sem Stjórnun vinnur fyrir hverju sinni. Tekur að sér yfirstjórn Hýsing stjórnunarþátta er nokkuð sem hefur verið að aukast á Íslandi og Jóhann Pétur segir þann þátt vaxandi í starfsemi Stjórnunar. Það byrji gjarnan með hýsingu fjármála þ.e. að Stjórnun taki að sér umsjón fjármála í minni fyrirtækjum eða samningagerð. Í einstaka tilfellum hafi verið um að ræða hýsingu alls skrifstofuhaldsins, t.d. launavinnslu, greiðslu reikninga og þess háttar. En Stjórnun gengur skrefinu lengra og býður upp á hýsingu fram- kvæmdastjórnar, þ.e. tekur að sér yfirstjórn lítilla og meðalstórra fyr- irtækja. Um hvort stjórnendur fyr- irtækja séu tilbúnir að láta stjórn- unina af hendi segir Jóhann Pétur að slíkt gerist ekki nema búið sé að byggja upp traust og reynsla sé komin á samskiptin. Hann segir hýs- ingu framkvæmdastjórnar henta í nánast hvers konar starfsemi en Stjórnun hafi mest starfað á bygg- ingarsviði, með byggingarverktök- um sem vilja einbeita sér að því sem þeir eru sérfræðingar í en hafi litla reynslu af stjórnunarlegum þáttum svo sem samningagerð. Jóhann Pétur kannast ekki við að eiga sér neina ákveðna keppinauta en nefnir þó stórar endurskoðunar- skrifstofur sem hafi á að skipa ýmiss konar sérfræðingum. Hann líti samt ekki á þær sem beina keppinauta. Enginn ábati – engin greiðsla fyrir þjónustuna Rekstrargreining sem ekki er greitt fyrir nema hún skili ábata og hýsing fram- kvæmdastjórnunar er meðal þess sem Stjórnun ehf. býður upp á. Soffía Haralds- dóttir ræddi við fram- kvæmdastjóra Stjórn- unar, Jóhann Pétur Sturluson. soffia@mbl.is Morgunblaðið/Sverrir Yfirstjórn úthýst Jóhann Pétur Sturluson segir hýsingu framkvæmda- stjórnar henta í nánast hvers konar starfsemi. STJÓRNUN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.