Vísir - 08.10.1981, Síða 1
Fíolbrautaskólinn í BreiOhollí:
Kennarar f öidunga-
deild boða verkfali
Verknámskennarar við
öldungadeild Fjölbrautaskólans i
Breiöholti hafa boðað vinnustöðv-
un frá og með 19. október næst-
komandi, hafi þeir ekki fengið
leiðréttingu á kjörum sinum fyrir
þann 16. sama mánaðar. Þetta
tilkynntu þeir RagnEu-i Amalds,
fjármálaráðherra, er þeir gengu
á fund hans i gærmorgun.
Þetta er i annað sinn á skömm-
um tima sem þessi staða kemur
upp, þvi að siðastliðið vor fóru
verknámskennaramir i verkfall,
til að ýta á eftir gerð heildar-
kjarasamninga við kennara við
öldungadeildir. Leystist það með
bráðabirgðasamkomulagi, þar
sem meðal annars var kveðið á
um, að búið yrði að semja við
kennara áður en kennsla hæfist i
ár.
Þær samningaviðræður
strönduðu hins vegar i júlimánuði
siðastliðnum, og siðan hefur ekk-
ert gerst i málinu fyrr en nú, að
kennarar boða vinnustöðvun.
Visir náði i morgun tali af Inga
Þor Asmundssyni formanni
nemendafélags <Ö.F.B. og sagði
hann, að nemendur i deildinni
væru mjög heitir vegna þessa
máls. Teldu þeir, að það hefði
verið farið aftan að þeim, þar
sem þeir hefðu ekki verið látnir
vita um stöðuna áður en þeir hófu
nám i haust.
„Það var búið að lofa okkur, að
samið yrði fyrir haustið”, sagði
hann, ,,en nú eru allar likur á að
þetta nám verði eyðilagt fyrir
okkur”.
Ekki tókst að ná i fjármálaráð-
herra né forsvarsmenn kennara i
morgun. En þessir aöilar munu
ræða málið á fundi, sem haldinn
verður á morgun.
—JSS
ASV selur fram kröfu um 15% grunnkaupshækkun:
.Það getur tekið nokkrar byltur og bægslagang að ná leikninni frá f fyrravetur eins og þessir Akureyrarpiltar fá þarna aö reyna. Sjáif-
sagt 1 itur margur skiðamaðurinn sunnanlands öfundaraugum noröur yfir heiðar, þar sem allt er nú á kafi I snjó og viöa komiö frábært
skíðafæri. JB/mynd GS-Akureyri.
„Ekkl luegl að hækka kostnað-
arliðl, begar vá er fyrir dyrum"
- segir Elnar Oddur Kristjánsson í Vinnuveifendafélagl Vestfjarða
„Það, sem skiptir máli i þessu,
er krafan um grunnkaupshækk-
unina,” sagði Einar Oddur
Kristjánsson, framkvæmdastjóri
á Flateyri, og stjórnarmaður i
Vinnuveitendafélagi Vestfjarða,
um kröfur Alþýðusambands
Vestfjarða, sem lagðar hafa verið
fram.
„Það efast enginn um að það sé
æskilegt ef hægt væri að bæta kjör
launafólks, um það er-ekki deilt.
Það hörmulega fyrir okkur er, að
meginframleiðslan hér á Vest-
fjörðum, fiskurinn, sem vinnan
hér byggist fyrst og fremst á, er
nú rekin með svo stórkostlegu
tapi, ab þab er voði fyrir dyrum
fyrir byggðina hér i heild, ef svo
heldur áfram. Og meban svo er,
sé ég ekki hvernig ætti að fara að
þvi að hækka kostnaðarliði eins
og vinnulaunin,” sagði Einar
Oddur.
ASV varð fyrst launasamtaka
til að setja fram kröfur sinar að
þessu sinni. Meginkrafan á hend-
ur vinnuveitendum er um 15%
hækkun á almenn laun, að yfir-
vinna með 100% álagi á dagvinnu
taki við strax að dagvinnu lok-
inni, að samningarnir taki gildi
fráog með 1. nóvember næstkom-
andi, útkall verði minnst fjórir
timar og orlof lengist i 27 daga hjá
þeim, sem hefur unnið 10 ár hjá
sama vinnuveitanda. Auk þess
eru gerðar kröfur á rikisstjórn-
ina. Þar ber hæst kröfu um jöfnun
búsetukostnaðar á landinu, með
m.a. niðurfellingu söluskatts á
flutningsgjöld og jöfnun orku-
verðs um landið. Til vara er kraf-
ist sérstakrar framfærsluvisitölu
fyrir landsbyggðina. _sv
- Sjá bls. 14-15
- Sjá íbróttír 6-7
- Sjá bls. 12
- Sjá bls. 18-19
Bíllinn
búinn
unúir
veturinn
Víkingar
með brjár
nýjar stór-
skyttur
ístirðingar
í heims-
meta-
bókina?
•4