Vísir - 08.10.1981, Side 8

Vísir - 08.10.1981, Side 8
8 VÍSLR Fimmtudagur 8. október 1981 Útgefandi: Reykjaprenth.f. Ritstjóri: Ellert B. Schram. Fréttastjóri: Sæmundur Guðvinsson. Aðstoðarfréttastjóri: Kjartan Stefánsson. Auglýsingastjóri: Pail Stefansson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammen- Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson drup, Arni Sigfússon, Herbert Guðmundsson, Jóhanna Birgisdóttir, Jóhanna Ritstjórn: Síðumúli 14, sími 86611, 7 linur. Sigþórsdóttir, Kristin Þorsteinsdóttir, Magdalena Schram, Sigurjón Valdi- Auglýsingar og skrifstofur: Síðumúla 8, simar 86611 og 82260. marsson, Sveinn Guðjónsson, Þórunn Gestsdóttir. Blaðamaöur á Akureyri: Gísli Afgreiðsla: Stakkholti 2—4, simi 86611. Sigurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sigmundur O. Steinarsson. Ljósmynd- Áskriftarqjald kr. 85 á mánuði innanlands ir: Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrésson. . °9 ver^ 1 lausas°lu6 kronur eintakið. útlitsteiknun: Magnús Olafsson, Þröstur Haraldsson. Vísir er prentaður i Blaðaprenti, Síðumúla 14. Safnvörður: Eiríkur Jónsson. Tap á tap ofan Hvað er eiginlega að gerast í sjávarútveginum? Ekki er nóg með að frystihúsin kvarti sáran undan 6-10% taprekstri, heldur hafa einnig verið lagðar fram opinberar skýrslur um ennþá meira tap útgerðarinnar. Fisk- verðshækkun er framundan, og þar er talað um að 9% hækkun sé lágmark. Slík hækkun mundi að sjálfsögðu enn auka vanda frystihúsanna, en bætir engan veginn upp tapið á togurunum. Vítahringurinn blasir við. Einhver kann að halda því fram, að ekki sé mark takandi á bölmóði útgerðar- og frysti húsamanna. Sá harmagrátur haf i heyrst áður og sé aðeins ár- viss atburður, sem hljóðni fljótt. Út af fyrir sig má vel reikna með því, að rekstraraðilar f sjávarútvegi séu ekki öðru vísi en aðrir þrýstihópar i landinu,og ef laust kunna þeir að krydda eins og aðrir. En mikill misskilningur er að halda, að hér sé ekki alvara á ferðum. Opinberar skýrslur, þjóðhagsstofnun og ráðherrarnir sömuleiðis hafa staðfest tap- reksturinn. Að því er varðar frystihúsin hlýtur það að valda verulegum áhyggjum, að þrátt fyrir styrk- ingu dollarans og hagstætt mark- aðsverð vestra, þá dugar það ekki á móti hækkandi rekstrarút- gjöldum hér innanlands. Ekki ber það vott um trausta efna- hagsstjórn, að höfuðatvinnuveg- ur landsmanna riði á barmi stöðvunar vegna bullandi taps. Forsætisráðherra kemur fram fyrir alþjóð og lýsir yfir því, að þjóðin sé á leið út úr ógöngunum, slær sér á brjóst yfir fullri at- vinnu og hjaðnandi verðbólgu. En hvernig geta stjórnvöld glaðst yf ir velgengni og hossað sér í há- sæti, þegar hriktir i undirstöð- um: þegar fiskvinnslan í landinu riðar til falls, og togaraútgerðin sýnir tap á tap ofan. Háværar raddir hafa verið uppi að undanförnu um nauðsyn gengisfellingar. Þeirri lausn hafa ráðherrar vísað á bug hver af öðrum. Það er rétt, að gengisfelling leysir engan vanda, ef ekki eru jafnframt gerðar hliðarráðstaf- anipsem koma í veg fyrir sjálf- virkni vítahringsins. Gengisfell- ing kemur þá aðeins að gagni, að komið sé í veg fyrir afleiðingar hennar í innlendum rekstrar- kostnaði. Það er hægara sagt en gert og hefur reyndar verið stjórnmálamönnum ofvaxið hingað til. Eins og íslenska rikisstjórnin er nú samansett er ekki við því að búast að hún búi yfir því þreki eða kjarki, sem dugar til svo harðra aðgerða. í stað þess berast þær f réttir að ráðherrar hyggist leita annarra leiða. Það á að heita, að þeir séu að greiða fyrir lausn fiskverðs- ákvörðunar, en ætla verður að þeir geri sér grein fyrir að fisk- verðið eitt sér er aðeins lítið brot af stórum vanda. Ekkert er enn vitað um ráða- gerðir stjórnarinnar, en flogið hefur fyrir, að henni komi til hugar að færa fé á milli verð- jöfnunarsjóða sjávarútvegsins. Sú lausn er skammvinn, óheil- brigð og meingölluð. Millifærslur af því taginu eru aðeins til þess fallnar að blekkja sjálfan sig um skamman tíma, hugsanleg frest- un á vanda, en f jarri því að koma rekstri frystihúsanna á réttan kjöl. Er þá ekki talað um taprekstur togaranna. Hann stendur eftir ó- leystur, hvort heldur litið er til lengri eða skemmri tíma. Það er gömul saga og ný, að stjórnmálamenn rífist fram og aftur um fjölbreytilegar efna- hagsráðstafanir. En sá kompás, sem gleggstur reynist er kompás sjávarútvegsins. Hann sýnir svo ekki verður um villst að það er óveður í aðsigi. Fyrir nokkru kom upp mál á Keflavikurflugvelli, sem fyrst og fremst vakti athygli vegna þess að þaö snerti einn af máttarstólpum stjórnkerfisins. Leitað var að eiturlyfjum á ungri konu og manni hennar en faðir stúlkunnar reyndist hátt settur stjórnarráösstarfsmaður og brást ókvæða viö þeim að- ferðum, sem hann telur hafa verið beitt. Nú er þaö hvort tveggja ljóst að löggæslumenn hafa fullt leyfi til þess aö leita að þessum ófögnuði á hverjum sem er, hvar sem er og hvenær sem er og almenningur ætlast yfirleitt til þess, og svo hitt að þeim ber aö sýna þeim, sem á er leitað, fulla virðingu. Kvartanir stjórnarráðsmannsins, sem er dugmikill og algerlega vamm- laus embættismaöur, munu ein- mitt byggjast á þvi siöarnefnda en það er kannski talandi tákn um ástandið I þessum málum aö það viröist hafa gleymst og menn rugla þvi saman við and- stöðu gegn góðri löggæslu. Allt úr böndum farið l Þetta mál leiðir hins vegar . hugann að þvi hve gjörsamlega yfirvöld i þessu landi hafa klúðrað eiturlyfjamálunum. Ar- um saman barðist Kristján Pétursson deildarstjóri I toll- gæslunni á Keflavikurflugvelli, að þvi er virtist einn sins liös innan löggæslukerfisins gegn eiturlyfjunum, sem þá voru að byrja að flæöa yfir landiö. Aö þvi er best varö séð gerði hann þaö I óþökk „æðri máttar- valda”, aö minnsta kosti fyrst I staö og fyrir rúmum áratug hældist einn fulltrúi þeirra um það i Danmörku, einhverju mesta vandræöalandi á þessu sviði á noröurhveli jaröar, að is- lensk yfirvöld hefðu fundið snjallt ráð i baráttunni viö ófögnuðinn. Ráðið var fólgiö I þvi að reyna aö kæfa alla um- ræðu um eiturlyfjadreifingu, neöanmals Magnús Bjarnfreðsson f jallar um sölu og neyslu fíkniefna og blöskrar sú linkind sem sýnd er gagn- vart þessari alvarlegu meinsemd. Hann telur ábyrgðarmenn dóms- mála hafa klúðrað þess- um málum svo, að sú flóðbylgja eiturlyfja, sem flæðir yfir landið verði ekki stöðvuð að sinni. þvi allt umtal um slikt i blöðum myndi bara gera illt verra! Siöar, þegar séð varð að eitur- lyfin flæddu yfir landið var reynt að kióra i bakkann. Þá var sett á stofn sérstök deild innan lögreglunnar, sem skyldi fást við eiturlyf og stofnaður „fikni- efna”dómstóll, svo ekki þyrfti þó að nefna hlutina réttu nafni. Allan timann hefur þessi hlið löggæslunnar þó verið gersam- lega svelt um fé. Yfirvöld hafa ekki einu sinni tímt aö gefa hundi aö éta allan timann svo unnt væri aö nota hann til toll- gæslu og annars eftirlits. Eitur- lyfjalögreglan hefur hvorki fengið þann mannafla né fjár- muni til tækjakaupa sem hún hefði þurft, og eftir þvi hvenær dómar falla I málum eiturlyfja- smyglara virðist sama sagan hafa gerst á dómsmálasviöinu. Linkind sem hefnir sin Frá upphafi hefur veriö tekið á þessum málum hérlendis af furðulegri linkind. Sú gryfja viröist ekki til, sem frændur okkar á Norðurlöndum hafa álpast ofan I, án þess að við þyrftum aö ana á eftir þeim. Eru þó noröurlandaþjóðirnar löngu orðnar aö viðundri i þess- um málum. Segja má, að þeir sem smygla eiturlyfjum og dreifa þeim, hafi allan timann gefið löggæslu langt nef og hælst um. Gefin hefur verið út kennslubók i tilbúningi eitur- lyfja til sölu á frjálsum markaöi og fyrir skemmstu hældist eiturlyfjasali opinberlega yfir velgengni sinni á þvi sviði. Nú má enginn taka orð min svo að ég telji að langir og strangir fangelsisdómar séu einhver allsherjar lækning I þessum efnum. Og það er vissu- lega óverjandi afleiöing af kák- inu i þessum málum að senda menn i fangelsi mörgum árum eftir að þeir hafa leiðst i þá freistni að smygla eiturlyfjum til landsins, þegar þeir eru jafn- vel komnir með fjölskyldu á framfæri sitt I millitiöinni. Já — ég sagði freistingu, þvi kannski er þaö einmitt mergurinn máls- ins, að dómar fyrir þessi afbrot hafa verið svo vægir hvað varðar sektir, að það hefur verið á almannavitorði að það væri uppgripa atvinnuvegur að smygla eiturlyfjum til landsins. Upphæöir sektar fyrir eitur- lyfjasmygl hingað til lands hafa veriö hlægilegar, jafnt i augum venjulegra borgara og þeirra sem verknaðinn frömdu. Þvi er gjarna borið við að þeir sem smyglið stunda, eigi ekki bót fyrir boruna á sér, en þvi er þá til að svara að ef vilji er fyrir hendi til þess að beita þungum sektarákvæðum svo vinnings- likur eiturlyfjasalanna minnki þá er það unnt, þótt kannski þurfi lagabreytingar til. óstöðvandi flóð? Sennilega eru ábyrgðarmenn dómsmála búnir að klúðra þess- um málum svo að sú flóöbylgja eiturlyfja sem flæðir yfir landið verður ekki stöðvuð að sinni. Fræðsla kemur þar að litlum notum, þvi frelsi það sem eitur- lyfjasalar njóta gerir þeim kleift að brjóta hana niður jafn- óðum. Það er til dæmis áhuga- vert, að þaö kemur varla fyrir aö visindamenn og heilbrigðis- yfirvöld vari við hættunni af eiturlyfjum opinberlega, án þess að einhverjar sjálfskipaðar vitsmunaverur á þessu sviði láti ljós sitt skina i blööum, ýmist undir nafni eða án þess, þar sem reynt er á allan hátt að gera viöurkenndar niðurstöður lækna og visindamanna torkennilegar. Samband eiturlyfjasala og sumra starfsmanna fjölmiðla virðist raunar vera á þann hátt að varla er einleikið. Alvarlegast er þó kannski það aö þeim, sem viljað hafa vara viö afleiðingum eiturlyfjasöl- unnar, hefur meira og minna mistekist að snúa almennings- álitinu sér i vil. Sú skoðun er rikjandi meðal stórs hluta þjóðarinnar, að sala og dreifing á eiturlyfjum sé eitthvert fikt einhver bernskubrek sem eldist af fólki. Þessi skoðun er studd bæði leynt og ljóst i sumum fjöl- miðlum, og svo brenglað er siö- gæöismat sumra fjölmiöla- manna orðið að sé um þessi mál fjallað virðist nauösynlegt talið að „láta bæöi sjónarmiðin” koma fram, rétt eins og um sé að ræða póíitiskar umræður en ekki alvarlegustu glæpi, sem stundaðir eru — kannski ekki einu sinni að mannvigum undanskildum. En á meðan Róm brennur virðast stjórnvöld aðeins hafa eina stefnu, ýmist yfirlýsta eða i raun: Eigi skal káfa.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.