Vísir - 08.10.1981, Síða 11

Vísir - 08.10.1981, Síða 11
VÍSIR n Fimmtudagur 8. október 1981 Dómar úr stjórnskipunarrett k GUNNAR G. SCHRA Itók saman Dómar er varða stjórnarskrá — i samantekt Gunnars G. Schram prófessors Úter komin hjá Bókarforlaginu Iðunni Dómar úr stjórnskipunar- rétti eftir Gunnar G. Schram prófessor. í ritinu er að finna ágrip flestra þeirra dóma Lands- yfirréttar og Hæstaréttar er varða stjórnarskrá tslands. Agrip þessi eru lykill að dómum, sem um stjórnarskrána fjalla og þau ágreiningsefni sem risið hafa varðandi skýringar og túlkun á hinum einstöku stjórnarskrár- greinum, eins og segir aftan á bókarkápu. En þessar dómsúr- lausnir hafa bæði fræðilegt og raunhæft gildi, þar sem er i þeim fjallað um grundvallarlög lands- ins og meginþætti islenskrar stjórnskipunar. Alls eru ágripin 387 talsins, en dómarnir nokkru færri, þar sem sumra þeirra er getið oftar en einu sinni. Er elsti dómurinn frá árinu 1877, en þeir yngstu frá 1980. Brian Pilkington gerði bókar- kápu og sá um útlit bókarinnar, Korpus hf. annaðist filmuvinnu, en prentsmiðjan Oddi hf. prentaði Bókin er tæpar 200 bls. að stærð, og eru i bókarlok itarlegar yfir- litsskrár er varða efnið. -jsj. Myndir og lexti eftir Peter Spier Myndabók um fólk Fólk heitir ný myndabók eftir Peter Spier sem IÐUNN hefur gefið út. 1 henni er brugðið upp myndum af fjölbreytilegum lifn- aðarháttum og menningu fólks viðs vegar um heiminn. Bókin er ekki sist ætluð börnum. Höfundurinn, Peter Spier, er hollenskur að uppruna en hefur búið i Bandarikjunum frá 1952 og gefið þar út bækur sinar. Hann hefur hlotið margháttaða viður- kenningu fyrir myndabækur, meðal annars verðlaun i sam- keppni um visindabækur handa börnum sem Visindaakademian i New Yorkefndi til. Ein af bókum hans, örkin hans Nóa, hefur kom- iðútá islenskuenfyrirhana hlaut höfundurinn hin svonefndu Calde- cott-verðlaun árið 1978. Myndir i þeirri bók eru gerðar við kvæði eftir hollenskt sautjándu aldar skáld, Jacobus Revius. Fólker fjörutiu blaðsiðna bók i stóru broti. Jón Gunnarsson þýddi textann. Bókin er gefin út i samvinnu við Angus Hudson i Lundúnum, sett i Odda en prentuð i Bretlandi. Alltsem hugurinn girnist frá Quelie ó$tve YslU^ Quelle pöntunarlistinn með haust- og vetrartískunni ’81 -’82 er nærri þúsund blaðsíður uppfullar af vönduðum þýskum varningi. Úrvalsfatnaður á alla fjölskylduna, skór, töskur, skartgripir, húsbúnaður, heimilistæki, leikföng, - já allt sem hugurinn girnist. Allt gæðavörur á hagstæðu verði. öruggur afgreiðslumáti. Vinsamlegast klippið þennan hluta auglýsingarinnar frá og sendið okkur eða hrlngið - ef þér viljið kaupa Quelle pöntunarlistann. Verð listans er kr. 45.00 auk póstkröfugjaldsins. Quelle-umboðið Pósthólf 39,230 Njarðvík. Slmi 92-3576. Áfgreiðsla í Reykjavík Laugavegi 26,3. h. Slmi 21720. Nafn sendanda heimilisfang ^ sveitarfélag póstnúmer Quelle umboðið sími 21720 Vísis-getraunin » Vertu áskrifandi Vísir sími 86611 Isuzu Gemini Suzuki-jeppi Dregið 26. nóvember n.k. Dregið 25. febrúar. Verð 97.000 kr. Verð 85.000 kr.. Opel Kadett Dregið 27. maí Verð 110.000 kr. UtsöhimaiKoður y Úlput SVH Buxut SVóí hefst í fyrramálíð að Skúlagötu 30 VINNUFATABÚDIN Laugavegi 76 sími 15425 • Hverfisgötu 26 sími 28550 Sokkar

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.