Vísir - 08.10.1981, Síða 15
14
VÍSIR
Fimmtudagur 8. október 1981
Fimmtudagur 8. október 1981
VÍSIR
15
Veturinn hefur gengið óvenju snemma og harka-
iega i garð viða á landinu og til dæmis fyrir norðan
er klofhár snjór og mikil hálka. Þar sitja margir
bilar fastir eða hafa farið út af veginum, þar sem
þeir hafa ekki verið nægilega vel undir veturinn
búnir.
Gagnvart eigendum þessara bila er það kannski i
| seinna lagi að birta upplýsingar um það hvernig
! menn skuli búa bila sina undir vetrarakstur. Sunn-
lendingar og Reykvíkingar hafa þó enn að mestu
sloppið við snjó og háiku og eru ekki almennt farnir
að huga að vetrarbúningi bila sinna, og þvi ættu
þessar upplýsingar að koma þeim að nokkrum not-
um.
velrarundirbúningur bifreiða:
„Hægt að spara um tvd púsund kr.
með eigin athafnasemi”
- segir Birgir Blörgvinsson áhugamaður um ökutæki
„í fyrsta lagi ætla ég að kaupa
góð og ónegld snjódekk,” sagði
Birgir Björgvinsson áhugamaöur
um ökutæki þegar blm. spurði
hvernig hann ætlaði að búa bil
sinn undir vetrarumferðina.
„Sóluð ónegld snjódekk eru
ódýr, kosta um 350 - 500 kr. eru
hávaðaminni en negld og i raun
alveg jafn góð nema i mikilli is-
ingu sem er frekar sjaldgæf inn-
anbæjar.”
„Ennfremur er gott að hafa tvo
sandpoka yfir drifhjólum. Bif-
reiðin gripur þá betur og ef maö-
ur lendir i hálku er hægt að taka
sand úr pokunum og setja undir
dekkin.”
„Hvernig má hafa kostnaðinn
við vetrarundirbúninginn i lág-
marki?”
,,Ég spara um 150 kr. með þvi
að taka felgurnar sjálfur af og
láta siðan skipta um dekk á verk-
stæði. Það borgar sig að láta stilla
bilið milli framhjólanna og hall-
ann á hjólunum.”
„Getur þú sjálfur stillt vélina?”
„Já, það er ekki nauðsynlegt að
fara með bifreiðina á verkstæði
til að stilla vélina. Með timaljósi
er hægt að stilla kveikjuna og
vacummæli þarf til aö stilla
blöndunginn. Sjálfurgetur maður
svo skipt um kerti og platinur,
stillt vélina og innssogið.” A
þennan máta er hægt að spara sér
um 400 kr.
Með þvi aö smyrja sjálfur er
hægt að spara um 300 kr. og svo
getur maður lika sjálfur skipt um
oliu og oliusiu.”
„Það er nauðsynlegt að hafa
góðan frostlög á bilnum. Ef hann
er blandaður til hálfs með vatni
ætti vélin að þola 20 - 25 stiga
frost. Hætt er við að vatnsmynd-
un í bensinleiðslum valdi frosti og
þvi til varnar skyldu menn setja
eina dós af isvara i þriðja hvern
bensintank.”
„Ef menn ætla að aka þægilega
i vetur er eins gott að hafa mið-
stöðina i lagiog góðan blástur upp
á framrúðuna. „Lásasprey” ætla
ég að hafa við höndina og lika
svokallað „startspray” sem hægt
er með hjálp annarra að úða ofan
i blöndunginn meðan startað er ef
billinn er erfiður i gang á köldum
vetrarmorgnum. Þetta eru nokk-
ur atriði sem gott er að hafa i
huga i vetur til að spara sér
óþarfa erfiðleika og halda góöa
skapinu.”
— gb.
Birgir Björgvinsson við bifreið sina, Ford Falcon. Visismynd: EKS.
Starfsmenn borgarinnar munu vinna við snjómokstur og saltdreitingu frá kl.4 árdegis til miðnættis dag-
lega i vetur.
„Saltið skapar
umferðaröryggi”
segir ingl ð. Nlagnússon gatnamálasti.
„Þótt saltið geti valdið
skemmdum á götum og bifreiðum
þá er þaö eina ráðið til að skapa
umferöaröryggi, — f önnur hús er
ekki að venda”, sagði Ingi ó.
Magnússon gatnamálastjóri.
„Salt- og sanddreifing verður
þvi eins og undanfarna vetur. Við
höfum fengið betri tæki til salt-
dreifingarinnar og komumst þvi
af meðminna magn. Annars leys-
irsaltiðekki upp malbikið heldur
sigur saupæKiuinn niour par sem
malbikið er skemmt og sprungið
og veikir burðarlögin. Með góðum
ryðvörnum ætti að vera hægt að
koma i veg fyrir skemmdir á bil-
um.
Við ætlum að bæta þjónustuna
mikið i vetur og hafa vaktir starf-
andi frá kl.4 árdegis til kl.23 með
mokstrar- og saltdreifingartæki.”
„Ég vil leiðrétta þann misskiln-
ing að nagladekk séu bönnuö frá
1. okt. til 1. mai. Það er ekki rétt.
Einu reglurnar eru þær að bif-
reiðar eiga að vera með gróf dekk
með snjómynstri og sömu
dekkjagerð á öllum hjólum.”
— gb
Bílstjórar ætiu líka að
bera endurskinsmerki
- segir 011H. Þóröarson hjá Umferðarráði
„Allir vegfarendur ættu að bera
endurskinsmerki, lika bilstjórar
þvi þeir bregða sér oft úr öku-
tækjum sinum og eru i jafn mikilli
hættu og aðrir vegfarendur”,
sagði Óli H. Þórðarson fram-
kvæmdastj. Umferðarráðs.
„Menn ættu að bera fleiri en
eitt endurskinsmerki þvi slys
geta borið aö úr öllum áttum. Bif-
reiðastjórar skyldu athuga vel
ljósabúnað, útsýni gegnum rúður
og spegla. Þurrkunar verða einn-
ig að vera i góðu lagi.”
„Umferðarráð mun i vetur
minna fólk á hætturnar i vetrar-
umferðinni með innskotsþáttum i
útvarpi og við vonumst til að geta
sýnt fræðslumyndir i sjónvarpi i
vetur.”
— eb.
Búið bflana vel und-
ir vetrarhðrkurnar
Ef vélarnar eru vel stilltar sparast ijót orð og vont skap á köldum vetrarmorgnum. Hér er veriö aö stilla
vél I Lúkas verkstæöinu. Vlsismynd: EÞS
strokka bil og ofan á þaö bætist
söluskattur og efni. Meðalverð
fyrir stillingu er þvi fjögur til
fimm hundruð krónur.
Þessiaðgerður tekur um það bil
þrjá tima engetur þó tekið lengri
tima ef mikilla lagfæringa er
Er nauðsynlegt fyrir bileig-
endur að fara með bila sina i slika
stillingu?
„Já, það tel ég. Ef menn iáta
stilla bila sina reglulegu, þá er
þetta fyrirbyggjandi aðgerð i
leiðinni. Svo á þetta alveg að
koma i veg fyrir gangtruflanir,
sem sérstaklega geta verið leiði-
gjarnar á köldum morgnum”.
— ATA
„Brýnt að láta
stllla vélarnar”
- segir Björn ómar Júnsson hjá Lúkas
„Það er mjög brýnt að láta
stilla vélar bilanna fyrir veturinn.
Sé það gert, þá losna menn við
erfiöleika við að koma bilunum i
gang á morgnana, en gangtrufl-
anir leiða af sér vont skáp, ljót
orö og kostnað við að láta draga
bilana i gang”, sagði Björn Jóns-
son hjá Lúkas verkstæðinu á
Siöumúla.
„Innifalið I vélarstillingu er að
við yfirförum 72 atriöi og gerum
við það, sem aflaga hefur farið.
Aðalatriðið er að rafmagnskerfið
sé i góðu standi.
Við förum yfir hleðsluna og þar
af leiöandi rafgeyminn, mælum
hvað ræsirinn tekur. Við þjöppu-
mælum bilinn, förum yfir kerti og
platinur, blöndung og hreinsum
hann ef þess þarf.
Þessi pakki kostar um þrjú
hundruð krónur fyrir fjögurra
...og elnnlg Ijósini
Alla bila á að vera búið að
ljósaskoða fyrir 31. október ann-
ars eiga menn þaö á hættu að
vera stoppaðir af lögreglunni. Þvi
má segja að ljósaskoðunin sé
hluti af vetrarundirbúningi bil-
eigenda.
Björn Ómar Jónsson hjá Lúkas
verkstæðinu sagði, að ljósaskoð-
un kostaði 50 krónur með sölu-
skatti. Á þessa upphæð bætist svo
perukostnaður og vinnukostnaður
ef mikið þarf að gera.
Hjá Lúkas verkstæðinu þarf að
panta tima og sem stendur er
vikubið eftir plássi. —ATA
ÖSIN BYRJAR FYRSTA
DAGINN SEM SNJÚAR
segir flnúrés Bjarnason verkstjóri hjá Gúmmívlnnustofunnl
Eitt mikilvægasta atriðið, sem
bileigendur þurfa að huga að fyrir
veturinn, eru hjólbarðarnir.
„Sóluð dekk undir fólksbil af
minni gerðinni, eða þrettán
tommu dekk, kosta um 340 krónur
stykkið en ef það eru radialdekk,
þá kosta þau 400 krónur. Þá er
miðað við ónegld vetrardekk”,
sagöi Andreá Bjarnason, verk-
stjóri hjá Gúmmivinnustofunni
h.f. i Skipholti.
Andrés sagði að væru dekkin
ný, þá kostuðu þau 650 krónur ó-
negld en hægt væri að fá dekk upp
1960 krónur en þá væru þau einnig
mjög góð.
„Fjórtán tommu dekkin eru
heldur dýrari. Sóluð, ónegld vetr-
ardekk kosta 416 krónur en radi-
aldekkin kosta 475 krónur. Ef
dekkin eru ný, þá kosta venjuleg
dekk 770 krónur, en radialdekkin
kosta 790 krónur.”
Ef menn vilja láta negla dekk-
in, þá má geta þesss að hver nagli
kostar 90 aura en meðalnegling i
dekk kostar 80 krónur.
„Fyrir umfelgun á einu dekki
tökum við 24 krónur, en ef við
verðum að taka dekkin undan bil-
unum og setja þau undir aftur þá
tökum við 17 krónur á hvert dekk.
Jafnvægisstilling kostar svo 46
krónur fyrir hvert dekk.”
— Er mikið að gera hjá ykkur
núna?
„Menn eru aðeins farnir að
taka við sér, en yfirleitt byrjar
aðalösin ekki fyrr en fyrsta dag-
inn, sem snjóar. Þá má benda á,
aö ekki er leyfilegt að setja nagla-
dekk undir bilana fyrr en eftir 15.
október.
BDeigendur eru aðeins farnir að taka viO sér, en aOalösin hjá hjól-
barðaverkstæöum byrjar samt ekki fyrr en fyrsta daginn sem snjóar.
Visismynd: EÞS
Af þessu má sjá, að bileigandi
sem þarf að kaupa snjódekk undir
bil sinn, þarf miðað við að hann
eigi litinn fólksbil að kaupa fjögur
dekk á 340 krónur, 420 krónur með
nöglum. 24 krónur þarf að borga
fyrir umfelgun á hverju dekki, 17
krónur fyrir að láta taka það und-
an og 46 krónur fyrir jafnvægis-
stillingu. Samtals gerir þetta
2.028 krónur. Þessa upphæð er að
sjálfsögðu hægt að lækka, allt eft-
ir þvi hvað bileigandinn telur sig
geta komist af með mikinn útbún-
að og eins ef hann umfelgar eða
skiptir um dekk sjálfur”. — ata
Keðjur geta komiö sér vel
Margir spara sér útgjöld við
kaup á vetrardekkjum eða nagla-
dekkjum, með þvi að nota keðj-
ur. Aðrir nota keðjur og vetrar-
dekk jöfnum höndum, og er það
sjálfsagt öruggast. En hvað kosta
keðjur?
„Venjulegar keðjur fyrir
þrettán tommu dekk, kosta 613
krónur parið”, sagði Svavar Sig-
urðsson verslunarstjóri hjá Agli
Vilhjálmssyni á Laugaveginum.
„Þá erum við einnig með svo-
kallaðarskyndikeðjur, en það eru
tvö bönd sem skellt er á dekkin ef
billinn festist i skafli eða á slæm-
um hálkubletti. Parið af þessum
keðjum kostar 160 krónur”.
Svavar sagði að keðjurnar
væru e'kki mjög mikið seldar en
þó væri alltaf nokkur sala. Það
væru ekki allir sem treystu nagl-
adekkjunum fullkomlega hvernig
sem færðin væri. — ATA
Frá Smurstöðinni Klöpp. Þaö borgar sig að smyrja bllinn og setja frostlög I vatnskerfið fyrir veturinn.
„Göngum irú híln-
um fyrir velurinn”
- segir Páll öiafsson,
verksljórl I SmurstöOinni Kiöpp
„Við tökum bilinn inn og göng-
um algerlega frá honum fyrir
veturinn. Eigandinn þarf ekki að
hafa meiri áhyggjur af honum
hvað þessi atriði snertir”, sagði
Páll ólafsson, verkstjóri i Smur-
stööinni Klöpp á Skúlagötu.
„Við tökum bilinn inn til
smurnings, skiptum um oliu, oliu-
siur, loftsiur, bensinsiur, athug-
um girkassa og drif, mælum
frostlög á vatnskerfi og setjum
rúðuvökva á rúðusprauturnar.
Þá setjum við frostvara i ben-
siniö, ef viðskiptavinurinn biður
um það, og svo erum við með
lásaspray en venjulega kaupir
viðskiptavinurinn spraybrúsa
sem hann hefur svo i vasanum.
Menn veröa þó að vara sig á að
læsa spraybrúsann ekki inni i
bílnum þvi þá er takmarkað gagn
af honum”.
— Hvað kostar þessi aögerð?
„Ef viö tökum alla liði með i
reikninginn og skiptum um allar
siur, myndi það kosta eiganda
venjulegs fólksbils um 350 krón-
ur”, sagði Páll Ólafsson.
— ATA