Vísir - 08.10.1981, Blaðsíða 18
18
Fimmtudagur 8. október 1981
VÍSIR
mannlíí
Sigurinn
er
sætur
Sigurinn er sætur, en
ekkert er því til f yrirstöðu
að menn geri sér glaðan
dag, þótt þeir tapi stöku
sinnum. Tveir framá -
menn breska verkamanna-
flokksins, börðust í síðasta
mánuði fyrir varafor-
mannsembættinu í flokkn-
um. Dennis Healey sigraði,
eins og sjá má á meðfylgj-
andi mynd. Hann fagnaði
ákaft með félögum sínum
á Grand Hótel, á meðan
hinn sigraði Tony Benn,
snæddi fisk og franskar
með fjölskyldu sinni og
nánasta stuðningsliði.
Þótt sigurinn væri sætur
fyrir Healey, þá er alls
óvíst að hinn sigraði sitji
sem þægur rakki og styðji
kjörinn varaformann, en
við skulum ekki gerast
spámenn í þeim efnum.
Umsjón:
Árni
Sigfússon
Saivador Dali fékk aösvif á leiöinni inn á veitingastaö f Paris.
Hann var borinn á hótel þar sem hann bjó og sföan hefur litiö til
hans spurst.
Fátt
spyrst
af
Dali
Salvador Dali, hinn 77
ára gamli heimsfrægi
listmálari, fékk aðsvif
fyrir skömmu, er hann
gekk inn á veitingastað í
París, til þess að snæða
þar hádegísverð ásamt 87
ára gamalli eiginkonu
sinni. Eftir þetta hefur
lítið heyrst af Dali og
óljóst er um líðan hans.
Arið 1979 veiktist Dali
og hlaut af lömunarein-
kenni. Ári siðar hafði
hann náð sér full vel og
hélt þá upp á batann með
því að bjóða í heimkynni
sín hundrað blaðamönn-
um. Þar tilkynnti hann
blaðasnápunum að þeim
„bæri" að skrifa um sig
„því meira því betra",
sagði Dali og bætti því við
að allt í lagi væri þótt inn
á milli slæddust sann-
leikskorn.