Vísir - 08.10.1981, Síða 20
20
Fimmtudagur 8. október 1981
Fyrstu áskriftar-
tónieikar Sinfóníunnar
Fyrstu áskriftartónleikar
Sinfóniuhl jómsveitar tsiands
starfsárið 1981 / ’82 verða i
Háskólabiói fimmtudaginn 8. okt.
og hefjast þeir kl. 20.30.
Efnisskráin verður sem hér
segir: Páll lsólfsson:
Passacaglia. Mozart: Flautukon-
sert I D-dúr. Mozart: Andante.
Berlios: Sinfonia Fantastique.
Stjórnandinn, Jean-Pierre
Jacquillat er fæddur i Versölum
1935, lærði við tónlistarháskólann
i Paris og var margsinnis
sæmdur verðlaunum. I fyrstu
stjórnaði hann sem varastjójm-
andi við Orchester de Paris og
stjórnaði fjölda tónleika heima og
erlendis t.d. I U.S.A, U.S.S.R. og
Mesikó. Siðar varð hann aöal-
stjórnandi við hljómsveitina i
Angers, Lyon og viö óperusýn-
inga i Brussel, Paris, New York,
Buenos Aires og viöar, gert hljóö-
upptökur á vegum EMI, Pathé og
Marconi. Hann á sæti i dómnefnd'
Parisaróperunnar og hefur verið
sæmdur heiðursmerki Parisar-
borgar.
Manuela Wieslar, einleikarinn
á þessum tónleikum, fæddist i
Brasiliu 1955 en er af austurisku
bergi brotin. Eftir að hún útskrif-
aöistsem einleikari frá Tónlistar-
háskóla Vínarborgar hefur hún
sótt einkatlma hjá Alain Marion,
James Galway og Aurele Nicolet.
Hún hefur veriö búsett á tslandi
siöan 1973 og haldiö fjölda tón-
leika bæði hér heima og erlendis
og gert útvarps- sjónvarps- og
plötuupptökur. I vetur mun Man-
úela koma fram sem einleikari
með sinfóniuhljómsveitinni I
Þrándheimi, Bergen og Stokk-
hólmi. Þess má geta að það var
einmitt D-dúr konsert Mozarts
sem hún lék I fyrsta skipti fyrir
islenska áheyrendur I útvarpið
'1972.
Fjðr án áfengis hjá góðtemniurum
Skemmtifélag góðtemplara,
S.G.T., hefur um áraraðir beitt
sér fyrir skemmtikvöldum á
hverju föstudagskvöldi, þar sem
fólk hefur getað komið saman án
áfengis og notið góðra ánægju-
stunda.
Spiluð er félagsvist, og siðan
stiginn dans á eftir. Góð verðlaun
eru i boði I vistinni, bæði kvöld-
verölaun og heildarverðlaun.
Eftir að menn hafa lagt spilin á
borðið hefst dansinn og dunar
hann i vetur til kl. 2.00 I stað kl.
1.00 áður, og er meö þessari ný-
breytni verið að reyna að koma
enn betur til móts við þá, sem
vilja skemmta sér án áfengis.
Fyrsta skemmtikvöld S.G.T.
verður annað kvöld i húsi
I.O.G.T. við Eiriksgötu, og leikur
þá hljómsveitin Drekar fyrir
dansi ásamt söngkonunni Mattý
Jóhanns.
Og eins og gefur aö skilja, þá
eru allir velkomnir, enda er ekk-
ert bil milli kynslóða á þessum
skemmtunum.
—jsj.
PLATTERS ERII KOMNIR AFTUR
- unnu hug og hjörtu landans á tónleíkum I tyrra
Þeir sem unna léttri og
skemmtilegri tónlist, fjörlega
fluttri, fá nú aldeilis eitthvað við
sitt hæfi, þegar „góðkunningjar
Islendinga” i hljómsveitinni
Platters troða upp á sviði Há-
skólabiós. Platters hafa komið
fram hér á landi einu sinni áður
og vöktu þá mikla athygli og
hrifningu fyrir fjörlega sviðs-
framkomu og llflegan flutning
gömlu góðu laganna, sem tán-
ingarnir grétu yfir fyrir tlu til
tuttugu árum.
Hljómleikar Platters verða að
þessu sinni þrlr, og verður sá
fyrsti I kvöld, fimmtudag, og
hinir tveir veröa annað kvöld og á
laugardagskvöldið.
Tónleikarnir hefjast kl. 23.00 á
fimmtudag, en kl. 21.00 báða hina
dagana. Og miðasala verður I Há-
skólabiói frá kl. 16.00 daglega.
—jsj.
utvarpielkri! kl. 21.15:
„AUCE”
Briet Héðinsdóttir stýrir leik-
ritinu „Alice” i kvöid.
1 kvöld kl. 21.15 verður flutt
leikritið „Alice” eftir Kay
McManus. Þýðinguna gerði
Guörún Þ. Stephensen, en Briet
Héðinsdóttir er leikstjóri. Með
helstu hlutverk fara Guðrún Þ.
Stephensen, Þórunn M. Magnús-
dóttir, og Helga Þ. Stephensen.
Leikritið er tæpur klukkutimi i
flutningi. Tæknimaður: Georg
Magnússon.
Alice er gömul kona sem býr
ein sér I litlu húsi. Henni þykir
vænt um það, enda fædd og upp-
alin. Skoðanir hennar og ungu
kynslóðarinnar fara ekki alltaf
saman, en gamla konan veit sinu
viti og tekur til sinna ráða þegar
dóttir hennar og dótturdóttir
reyna að koma henni burt úr kot-
inu.
Guðrún Þ. Stephensen leikur
Alice
Otvarp kl. 22.35:
Þáttur um
ævintýri
Rithöfundarnir Valdis óskarsdóttir og Auður
Haralds stjórna þættinum ,,Án ábyrgðar” i kvöld
kl. 22.35. Þetta er annar þáttur þeirra og fjallaði sá
fyrsti um mat.
Þessi þáttur fjallar um ævintýri. Þær ræða ævin-
týrin fram og aftur, velta vöngum yfir hinum al-
þekktu sögum um öskubusku, Þyrnirósu og Mjall-
hviti og athuga hvernig þær samsvara raunveru-
leikanum.
Valdis og Auður ræða við fólk á
förnum vegi um ævintýrin og
hvernig þau lifa i vitundinni. Eitt
frumsamið ævintýri eftir þær
sjálfar verður lesið sem byrjar
þegar öll önnur ævintýri enda,
þ.e. morguninn eftir brúðkaupið
Þátturinn „An ábyrgðar”
verður á dagskrá næstu vikur og
Valdls óskarsdóttir og Auöur Haralds umsjónarmenn þáttarins „An á-
byrgðar”.
verður fjallað um aðskiljan-
legustu málefnieins og orð.orða-
tiltæki og málshætti, blómarækt
og mega hlustendur eiga von á
þætti um hrylling, almennan og
sérstakan.
y ■■ — — — —|
! útvarp !
| Fimmtudagur J
I 8. október j
| 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- |
1 kynningar. i
I 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- i
! fregnir. Tilkynuingar. Viö i
! vinnuna — tónleikar. |
J 15.10 „Fridagur frú Larsen” .
J eftir Mörtu Christensen J
J Guðrún Ægisdóttir lýkur J
J iestri þýðingar sinnar (4). J
I 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. J
I 16.00 FTéttir. Dagskrá. .16.15 J
I Veöurfregnir. I
I 16.20 Sfödegistónleikar: Frá I
| austurrfska útvarpinu I
| 17.20 Litli barnatfmiun Gréta I
j ólafsdóttir stjórnar barna- j
j tima frá Akureyri. j
j 17.40 Tónleikar. Tilkynningar. j
| 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá j
■ kvöldsins. j
• 19.00 Fréttir. Tilkynningar. i
1*19.35 Daglegt mál Helgi J. |
I Halldórsson flytur þáttinn. |
■ I 19.40 A vettvangi ■
I 20.05 AprilsnjórSmásaga eftir i
Ílndriöa G. Þorsteinsson. ■
Höfundur les. •
| 20.30 Tónleikar Sinfóuiuhljóm- ■
j sveitar tslauds I Háskóla- ■
| bfói
j 21.15 Alice Leikrit eftir Key J
| McManus. Þýöandi: J
■ Guðrún Þ. Stephensen.
| Leikstjóri: Briet Héðins- •
■ dóttir. Leikendur: Guörún I
• Þ. Stephensen, Helga Þ. I
I Stephensen, Þórunn M. j
Magnúsdóttir, Margrét j
Helga Jóhannsdóttir.Sigrún j
J Edda B j ö rnsd ót t i r , j
J Þorsteinn Gunnarsson, |
I Siguröur Skúlason, Brynja i
I Benediktsdóttir og Guðlaug •
I Maria Bjarnadóttir. j
j 22.15 Veðurfregnir. Fééttir. |
j Dagskrá morgundagsins. J
j OrÖ kvöldsins J
j 22.35. An ábyrgöar Umsjón: J
j Auður Haralds og Valdis J
i Oskarsdóttir. J
■ 23.00 Kvöldtónleikar: Frá tón- *
■ listarhátlöinni i Bergen I
j 23.45 Fréttir. Dagskrarlok. I